Þjóðólfur


Þjóðólfur - 13.05.1898, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 13.05.1898, Qupperneq 2
99 Það vill nú svo vel til fyrir mig, að inn í preststöðuna hafa á þessari öld þrátt fyrir allt valizt fjöldamargir gáfumenn og líka góðir og samvizkusamir menn, er létu sér annt um að rækja skyldur sínar. Þetta kem- ur mjög af því, að til skamms tíma áttu lærðir menn á þessu landi fáa annars úrkosti og tóku því prestsskapinn heldur en ekkert, þótt tekjurýr væri; en nú er þetta snúið á annan veg, því á síðari tímum hafa lærðum mönnum Opnazt ótal aðrir arðsamari vegir og embættum líka fjölgað, svo kjörin þurfa að vera betri en áður eigi nógir menn að fást í preststöðu. En þrátt fyrir að þetta mannval hefir á undangengnum tíma gengið inn í prestlega stöðu, þá hefir trúarlífið samt hnignað stórum á landi þessu. Hér verð eg því að kenna um útbúnaðinum eða með öðrum orðum öllu fyrirkomulagi ríkiskirkj unnar, allt ofan frá biskupi og prestaskóla niður til djákna og sóknarnefnda. Séra Jón Helga- son óskaði á synodus í sumar, að sér væri sýnt að þjóðkirkjan væri guði miður þókn- anleg en fríkirkjan, Mig minnir nú eigi bet- ur en að séra Lárus Halldórsson hafi í frí- kirkjnfyrirlestri sínum sýnt þetta með ský- lausum orðum nýja testamentisins. Jesús segir, að sitt ríki sé ekki af þessum heimi og öll sagan sýnir berlega, að kirkjan hefir saurgazt af sambandiru við ríkið, en ríkið lítið hreinkast. (Meira). Fréttaþráðurinn til íslands. Eins og áður hefur verið skýrt frá var gott útlit fyrir, að »norræna fréttaþráðarfélag- ið mikla« tæki að sér að leggja fréttaþráð til íslands, er kæmi á land einhversstaðar í nánd við Reykjavík (t. d. í Þorlákshöfn eða Herdísarvík), en frá Reykjavík væru svo lagð- ar landlínur út um land, og munu flestir hata búizt við, að vér yrðum að kosta þær að mestu eða öllu leyti. Af því að Reykjavík er og hlýtur að verða aðalstöð og þunga- miðja viðskiptalífsins í landinu, munu allir hafa talið þetta mjög heppilega ráðið. En viti menn. Það er til maður í Kaupm. höfn, er heitir Valtýr Guðmundsson. Hann virð- ist vera skapaður með þeim ósköpum að vilja alstaðar trana sér fram sem einskonar, umboðsmaður eða fulltrúi íslenzku þjóðarinn- ar þar ytra, gætandi ekki þess, þótt afskipta- semi hans geti haft miður góð áhrif á úrslit málanna. Eptir því sem „Bjarki" segir berum orðum, og önnur blöð gefa einnig í skyn, hefur dr. Valtýr nú gert hverja at- rennuna á fætur annari til að koma í veg fyrir, að sælínan yrði lögð til Reykjavíkur, en yrði í þess stað lögð til Austfjarða, í þeirri von að félagið kostaði þá landlínu þaðan til Reykjavíkur yfir fjöll og öræfi að svo miklu leyti, sem fé sparaðist við að leggja sælínuna í land á Austfjörðum en eigi í Reykjavík. Þessi litla hluttaka félags- ins í innanlandsþræðinurn ætti þá að koma í staðinn fyrir þá hagkvæmu(!) ráðstöfun að slíta Reykjavík — höfuðstað landsins — úr beinu fréttaþráðarsambandi við útlönd, því að það dylst víst engum, hversu hagkvæmt það er — eða hitt þó heldur — að Reykjavík standi í fréttaþráðarsambandi við útlönd með þræði, er liggur yfir fjöll og firnindi til Austfjarða, svo að hvað lítið, sem sá þráður bilar er Reyka- vík alveg slitin úr öllu sambandi við útlönd. Og það geta orðið heldur snúningar á að gera við þær skemmdir á svo langri leið. Þetta fyrirkomulag væri því svo óhafandi, að engu tali tekur. Og enn fremur ætlar dr. Valtýr sér þá dul, að fá stjórnina til að veita IOO—150,000 kr. upp á væntanlegt samþykki alþingis til að fá þetta hagræði(!) Og hann ætlast til, að þingmenn gangist fyrir þessu og stjórninni verði send ávörp úr flestum héruðum landsins, um að henni sé þetta ó- hætt. Fyr má nú vera bíræfni en að hugsa sér slíkt. Dr. Valtýr ætti í þess stað að fá ávörp með undirskriptum flestra kjósenda um, að hann skuli eptirleiðis alls ekkert vera að vafsast í þeim málum, sem komin séu á góð- an rekspöl án hans íhlutunar, og að það sé hraparlegur misskilningur hjá honum, efhann telji sig erindreka eða miðil fyrir Islands hönd erlendis. Þessi íhlutunarsemi dr. Valtýs get- ur nfl. hleypt kergju í hlutaðeigendur og spillt fyrir málinu í stað þessaðbeinaþví í rétt- ara horf. Oss varðar ekkert um í hverjum tilgangi Valtýr er að vasast í þessu, því að „góð meining enga gerir stoð“. Vér lítum á þetta mál frá sjónarmiði alls landsins í heildsinni, en ekki einstakra landshluta. Hér getur ekki verið um neina hreppapólitík að ræða, heldur um það, hvað öllu landinu er hagfelldast í bráð og lengd. Og það er eng- inn minnsti vafi á því, að fréttaþráður hing- að til lands kemur að langfyllstum og bezt- um notum með því að liggja á land, ein- hversstaðar nálægt Reykjavík, alls ekki aust- ar en t. d. við Portland. Frá Reykjavík eiga svo þræðirnir að liggja út um landið eptir sveitum, en alls eigi um fjöll og ör- æfi. Og þótt fréttaþráða — eða málþráða- net verði eigi lagt á svipstundu um allt land- ið, þá er óþarfi að verða óðamála út af oi- urlítilli bið, að því leyti. Aðalatriðið fyrir oss nú er að fá millilandaþráðinn heppilega lágðan, og það vonum vér allir að takist, þrátt fyrir milligönguhringl dr. Valtýs. Og svo mikið er víst, að þjóðin gleypir ekki tveim höndum við þessu kostaboði(l), er hann þykist hafa á reiðum höndum nieð þeim skil- yrðum, sem það er bundið. Nei, svo græn- ir eru íslendingar ekki, að verja 150,000 kr. til að fá óhafandi fréttaþráðarsamband. En þeir vilja eflaust verja hálfu meira fé til þess að geta fengið það gott og hagfellt til frambúðar. Sá er munurinn. Mannalát. Hinn 28. f. m. andaðist að Hofi í Álptafirði fyrverandi prófastur séra Þirarinn Erlendsson á 99. aldursári. Hann var eigi að eins elztur allra „lærðra manna“ hér á landi, og í öllu Danaveldi, heldur einnig elztur allra núliíandi stúdenta í Noregi og jafnvel á Norðurlöndum, þótt eg þori ekki að fullyrða það með vissu, að því er Svíþjóð og Finnland snertir. Aðeins 4 prestvígðir menn hafa náð hærra aldri, að því er kunnugt er, hér á landi, síðan um siðabót: séra Jón Jónsson á Staðarhrauni-[-1653 113 ára, sérajón Runólfsson á Munka-Þverá j- 1682 102 ára, séra Magnús Jónsson á Breiðabólstað í Fljótshlíð j- 1707 101 árs. (?) og séra Ólafur Sigfússon á Refstað f 1730 104 ára, en á aldri þessara tveggja síðast- nefndu leikur nokkur vafi, einkum séra Magnús- ar, svo að sennilegast er ekki néma um 3 presta að ræða, er orðið hafa 100 ára eða þar yfir. Ekki þekki eg heldur neinn prest, er orðið hafi jafn- gam all séra Þórarni eða því sem næst, nema séra Ein- ar Skúlason í Garði 1 Kelduhverfi, ý 1742 98 ára, afa Skúla landfógeta. — Séra Þórarinn var fædd- ur í Hellisfinði 10. febr. 1800 og bar nafn lang- a£a síns séra Þórarins Jónssonar á Skorrastað (ý 1770), því að Guðrún dóttir hans átti Árna bónda Torfason á Nesi í Norðfirði, og þeirra son var Erlendur í Hellisfirði faðir séra Þórarins, en kona Erlendar var Ólöf Jónsdóttir frá Skeggja- stöðum í Fellum Oddssonar. 1815, sama árið og or- ustan stóð við Waterloo fór séra Þ. að læra und- ir skóla hjá séra Benedikt Þorsteinssyni á Skorra- stað, og var hann þar 4 vetur, en síðar 3 vetur hjá Árna stiptprófasti Helgasyni í Breiðholti, er útskrifaði hann úr heimaskóla 1822, ári síð- ar en Napóleon lézt á St. Helena. Því næst dvakii hann hjá séra Benedikt, er þá mun hafa búið á Ormstöðum í Norðfirði og gekk að eiga Guðnýju dóttur hans, en 28. maí 1826 var hann prestvígður af Steingrími biskupi sem aðstoðarprestur séra Magnúsar Ólafssonar í Bjarnanesi. Var hann hinn 7.prestur,erbiskup vígði, ennú eru ekki á lífi nema aðeins 3 af 141, er hann vígði alls. Þrem árum síðar (1829) var séra Þórarni veitt Bjarnaness- prestakall við uppgjöf séra Magnúsar og s. á. var hann skipaður prófastur í Austur-Skaptafellssýslu, og hélt því embætti, þangað til hann flutti að Hofi í Álptafirði vorið 1844, en hafði fengið veitingu fyrir því brauði haustið áður. 1882 lét hann af prestskap eptir 56 ára prestsþjónustu; bjó hann þar eptir nokkra hríð á Múla í Álptafirði en flutti fyrir nokkrum árum aptur að Hofi til bróð- urdóttursonar síns séra Jóns Finnssonar, er iét sér mjög annt um hið háaldraða gamalmenni. Síðustu árin hafði séra Þórarinn mjög litla ferli- vist, en var þó allhress og hélt sálarkröptum sín- um furðanlega vel. — Hann var hið mesta ljúf- menni og góðmenni og því virtur og elskaður af' sóknarbörnum sínum, fjörmaður mikill á yngri árum og langt á elliár fram, glaðvær í umgengni og skemmtinn, og að öllu hinn mesti sómamaður. Með Guðnýju konu sinni átti hann 12 börn og eru 9 þeirra dáin: Erlendur sýslumaður í Isa- fjarðarsýslu (drukknaði 1857). Högni (j- 1855), Vígdís (ý 1844), Ingveldur (ý 1844), Ólöf (ý 1861} þá nýgipt frænda slnum Erlendi bónda Bjarna- syni í Hellisfjarðarseli, Guðnýjar tvær og Bene- diktar tveir, en 3 þeirra lifa enn: Þorsteinn próf- astur í Heydölum, frú Guðrún kona Carls D. Tul- iniusar konsúls á Eskifirði (móðir Þórarins Tulin- iusar stórkaupmanns í Kaupmannahöfn og þeirra. bræðra) og Þrúður gipt Haráldi Ólafssyni Briem á Búlandsnesi, bróðurséra Valdimars á Stóra-Núpi. - Mynd af séra Þórarni með stuttu æfiágripi er í aprílnúmeri „Verði ljóss" þ. á. Að honum látnum eru nú báðir uppgjafaprest- arnir 1 Holtunum langelztir allra prestvígðra manna. hér á landi, nfl. séra Benedikt Eiríksson í Saur- bæ, á 92. aldursári, og séra Jón Brynjólfsson í Hala á 89. ári. H. Þ. Hinn 9. f. m. andaðist að Þinghól í Mjóafirðl eystra frú Ldra Sveinbjarnardóttir kona séra Þor- steins Halldórssonar úr lungnatæringu. Hafði leg- ið síðan um nýár. Einn sveitungi hennar lýsir henni svo: „Hún var fríðleikskona, mjög vel að sér til munns og handa, góð ogástúðleg húsfreyja og sómi stéttar sinnar. Hún var einkar skemmt- in og glöð heim að sækja. Mun margur lengi minnast hins glaða og ástúðlega viðmóts hennar.“' Hún var ekki fullra 30 ára að aldri. Hinn 24. f. m. andaðist Hjálmar Hermanns- son dannebrogsmaður á Brekku í Mjóafirði eptír langa og þunga legu, á 79. aldursári (f. 19. ágúst iSigj, einhver hinn mesti dugnaðar- og framfara- maður á Austurlandi og sæmdarmaður í hvívetna. Æfiágrip hans með mynd er prentað 1 Sunnan- fara 1897, 7. tölubl. Um 2 bændur í Biskupstungum, er getið var látinna í síðasta tölubl. hefur sóknarprestur þeirra séra Magnús Helgason á Torfastöðum sent Þjóð- ólfi eptirfarandi minningarorð: Sunnudaginn sfðastan í vetri (17. apr.) and- aðist Erlendur Þorvardarson bóndi í Arnarholti eptir fárra daga legu í lungnabólgu. Hann var rúml. sjötugúr að áldri. Hann var fæddur í Stóra- Klofa á Landi; þar bjuggu foreldrar hans. Hann vár tvíkvæntur; átti hann fyrri Ástríði JónS’dóttUT bónda 1 Stóra-Klofa, en missti hana 8. des. 1888. Lifa nú 5 börn þeirra og eru þau vel upp kom- in. Síðari kona hans var Guðbjörg Jónsdóttir bónda í Aúðsholti. Hann háfði búið 15 ár í Arnarholti, en áður bjó hann í Mykjunesi ( Holt- um. Hann var góður bóndi, atorkumaður mikill og afhragðsverknjaðurjiann var manna hraustastur og

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.