Þjóðólfur - 05.07.1898, Qupperneq 1
ÞJOÐOLFUR.
50. árg.
Reykjavík, þriðjudaginn 5. júlí
1898.
Nr. 31.
Útlendar fréttir.
Kaupmannahöfn 24. júní.
Nú tekur að herða að Spánverj-
um á Cuba. Cervero aðmíráll þeirra liggur
innilokaður með flotann í Santjago og kemst
hvergi, því Amerikumenn liggja með fjölda
skipa fyrir utan, og þar að auki hafa þeir
sökkt stóru gufuskipi þversum í sundinu, sem
llggur inn að höfninni. Þessa dagana eru
þeir einnig að setja á land 27000 hermanna
skammt frá Santjago. Cervero hefur sent
stjórninni spönsku skeyti um það, að úti sé
öll von fyrir Spánverjum á Cuba. A Filips-
eyjum er ástandið að minnsta kosti ekki
betra, ef ekki verra. — Sú flugufregn hefur
borizt út, að ekkjudrotningin á Spáni hafi
boðizt til þess, að leggja niður völdin; sé
það satt, þá lýsir það bezt, hve allt er í
hundana komið þar í landi.
Þá er ástandið á Ítalíu ekki upp á marga
fiska heldur. Ut af „hungur-óeirðunum", sem
átt hafa sér stað þar í vor, hefur stjórnin gefið
herforingjunum ótakmarkað vald gagnvart
borgurunum, og synd væri að segja, að þeir
hafi ekki notað sér það, því öll fangelsi í
ríkinu eru troðfull og meir en það, og flestir
hafa þó ekki unnið sér annað til saka, en
það, að þeir heyrðu til flokki jafnaðarmanna.
Rudini hefur lagt fram frumvarp í þinginu þess
efnis,að hepta prentfrelsið og banna félagastofn-
anir; dauflega var tekið undir þetta hjá hon-
um, og hefur hann því sagt af sér, en nýtt
ráðaneyti er ekki myndað enn þá.
Loks er Meline ráðaneytisforseti á Frakk-
landi oltinn úr sessi, og hefur hann setið ó-
venjulega lengi að völdum, eptir því sem
tíðkast þar í landí, og hefur hann átt það
að þakka »Orleanistum« og »Bonapartistum«,
en nú samþykkti neðri málsstofan fundará-
lyktun þess efnis, að stjórnin yrði að leita
stuðningshjá „republikönskuni" meirihluta, hitt
væri henni ekki samboðið. Meline maldaði
í móinn, en það kom fyrir ekki, ályktunin
var samþykkt með 295 atkv. gegn 246. —
Hver mynda á nýja ráðaneytið, er ekki víst
enn þá, en ólíklegt er það ekki, að það
verði Peytral.
A Þýzkalandi eru kosningar að nokkru
leyti um garð gengnar, og hefur jafnaðar-
mönnum miðað töluvert áfram, gyðingafénd-
ur (antisemítar) biðið algjöran ósigur, en hinir
flokkarnir eru líkt scttir og áður. — í seinni
tíð hafa öðru hverju fundizt portkonur í Ber-
hn, myrtar á hroðalegan hátt — ekki ósvip-
að og Jakob kviðsprettir gerði hér á árunum
~~ en ekki hefur lögreglunni enntekizt að
na * sökudólginn, eða — dólgana enn þá.
Héðan frá Danmörku er ekkert sérlegt í
fréttum. Hér f höfuðstaðnum er allt á tjá
og tundri þessa dagana í minningu hins
merkilega árs 1848. í Rósenborgargarði er
haldin stórkostleg hátíð, sem standa á í 4
daga, og ágóðinn að ganga til undirforingj-
anna í hernum, Hátíðin var opnuð í dag,
og löbbuðu 800 öldungár, sem tekið höfðu
þátt í stríðinu r848—50 ískrúðgöngu frá Krist-
jánsborgarsloti upp í Rósenborgargarð; þeir
hafa streymt hingað að úr öllum (áttum þessa
dagana, og eru gestir Hafnarbúa hátíðardagana.
— Látinn er hér With konferensráð; hann
var eir.n af merkustu læknum Dana.
Norðmenn hafa samþykkt, að hækka aptur
fúlgu konungsins og ríkiserfingjans. — Sverd-
rup lagður af stað á „Fram" til rannsókna
norður með vesturströnd Grænlands.
Múhameðstrúarmenní Asíu, þegnar Rússa,
sem þeim hefur komið vel saman við hingað til,
hafa ■ gert uppreisn nýlega, en Rússum tókst
j fljótt að sefa; það hefur komið fram, að sold-
dán muni eitthvað hafa verið þar viðriðinn
og getur það vel lcomið honum á kaldan
klaka síðar meir.
Keisarinn í Kína hefur flutt aðsetur sitt
frá Peking til Singanfu, en það er afgamall
höfuðstaður Kínaveldis, og rnest borgíNorð-
ur-Kína önnur en Peking. Hann gefur ekki
um að vera of nálægt vörgunum frá Evrópu.
Joseph Leiter, ungur maður í Chicago,
hafði keypt afarmikið af hveiti í Ameríku
og ætlaði þannig að skrúfa upp verðið á því,
og ábatast svo á neyð annara, en hann mis-
reiknaði sig fuglinn, því nú er hann orðinn
gjaldþrota með 18 miljóna króna skuld.
[Nýja Öldin segir í siðasta blaði, að Leiter
hafi grœtt($) 4miljón dollara á brallinu. Ritstj}.
Hinn 21. júní lézt hér í bænum Nikulás
Runólfsson cand. mag. úr innanveiki; hafði !
legið í 6 mánuði við miklar þjáningar. Upp-
runalega var hann gullsmiður, og fullorðinn |
var hann, er hann byrjaði bóknám, er hann j
lauk með góðu prófi fyrir nokkrum árum I
við háskólann, og var aðalnámsgreinin eðlis- |
ræði; fór hann þá til Frakklands, og dvaldi
þar eitt ár, en síðan hefur hann verið aðstoð-
armaður við fjöllistaskólann hér í Höfn.
Vísindalegar ritgerðir hafa nokkrar birzt
eptir hann, og hafa allar hlotið hrós þeirra,
sem vit höfðu á, og fyrir nokkrum árum
vann hann heiðursgullpening háskólans fyrir
ritgerð eina. Hann var ljúfmenni hið mesta
og í alla staði hinn vandaðasti, og er því að
honum mikill söknuður. Bókavörður Hafnar-
deildar bókmenntafélagsins var hann síðustu
árin.
Fréttaþráðurinn.
Eg hafði um daginn tal af forstöðu-
manninum fyrir „Fréttaþráðarfélagi Norð-
urlanda", kommandör Suenson, skýrði hann
mér hið nánasta frá um hið fyrirhugaða fyr-
irtæki með lagningu fréttaþráðarins til Is-
lands, og sagði hann þá á þessa leið:
Sæsími frá Shetlandseyjum, eins og leið
liggur yftr Færeyjar til íslands í grennd við
Reykjavík mun kosta á að gizka »
tvcer miljónir króna.
En af þvi að félagið nú Iánar upphæð þessa
hlutaðeigendum fyrirtækisins um hin næstu
20 ár, og hver upphæð með almennri pen-
ingarentu á að geta tvöfaldast á þeim tíma,
reiknast upphæðin
fjórar miljónir króna.
Er það ekki meira en svo, að það samsvari
3—4 °/o rentu af áreiðanlegum ríkisskulda-
bréfum. Þetta er því ekkert gróðafyrirtæki
fyrir félagið, og enda ekki að vita, hvort
það muni svara tilkostnaði, úr því félagið á
líka að halda sæsímanum yið, þessi 20 ár upp
á sinn kostnað; tekur því félagið fyrirtækið
að sér, fremur í heiðursskyni og sökum þess,
að Danaveldi á í hlut, en ágóðans vegna.
En sldlyrðið fyrir því, að fyrirtækið nái
fram að ganga, er nú það, að óhult lof-
orð fáist fyrir þessum fjórum miljónum.
Nú hefur félagið samið við Island og
Danmörk, og auk þess hefur það snúið sér
til Englandsstjórnar og Frakka. Hefur það
hagað fjárbænunum þangað á þá leið, að
lönd þessi gegn fjárframlagi sínu fengju ó-
keypis fréttaskeyti daglega um veðurathug-
anir á Islandi.
Upphæðinni var jafnað þannig niður á
meðal landanna.
Island borgi alls í 20 ár „ mill. 700 þús. kr.
ríkissjóður Dana----— 1 — 80 —- —
-—■— Engl.--------------1 — 80 — —
-----Þ'rakka------------1 — 80 — —
samtals 3 mill. 940 þús. kr.,
er samsvarar hér um bil hinum 4 mill.
En nú er sá hængur á, að Frakkland
hefur neitað fjárframlaginu; hefur þá félag-
ið í stað þess snúið sér til Rússlands, en ó-
vænt mjög, hvort það vill sinna því nokkuð,
og England er enn mjög á báðum áttum.
Þannig hefur því enn ekki fengizt loforð fyr-
ir meiru en naumum helmingi fjárins, nefni-
lega hjá Islandi og Danmörku, en fáist ekki
loforð fyrir öllu fénu, þá er fyrirtækið strand-
að fyrst um sinn; þó ættu Islendingar að
vera vongóðir enn um, að fá fréttaþráðinn,
því félagið hefur áður klofið fram úr ekki
minni vandræðum,
Nú var upphaflega fjallað svo um, að
sæsíminn yrði lagður á land einh'versstaðar í
nánd við Reykjavík, t. d. í Þorlákshöfn, þar
sem hann væri óhultur af völdum náttúrunn-
ar, og síðan lagður þaðan yfir land til Rvík.
ur. En nú er komin fram tillaga um, að
fara ekki lengra með sæsímann en til Aust-
fjarða einhversstaðar, og sparast við þetta
300 þús. kr., sem félagið er fúst á, að draga
frá tillagi íslendinga til sæsímans. Og enn
hefur komið fram tillaga um, að þessar 300