Þjóðólfur - 12.08.1898, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 12.08.1898, Blaðsíða 1
Þ JÓÐÓLFUR. 50. árg. Reykjavík, föstudaginn 12. ágúst 1898. Nr. 38. Hnignun Spánar. i i I hinu fræga enska tímariti sContemp- orary Review" hefur nýlega birzt fróðleg grein um Spán og apturför þess ríkis. Hefur norska timaritið »Kringsjá« tekið ágrip af grein þessari, og birtist hér aðalefni hennar, sakir þess að Spánn er nú ofarlega á dag- skrá og verður að líkindum nokkra stund enn á einn eða annan hátt. Höf. getur þess í fyrstu, að mismunur- inn milli glæsilegrar fortíðar og dapurrar nú- tíðar, milli háfleygra frægðardrauma og aumk- unarverðs virkileika. geti hvergi verið meiri en á Spáni, ættjörðu þejrra Cervantes, Cort- ez og Calderon’s de la Barca. Ríki þetta, sem fyrrum var svo voldugt, er nú að eins skuggi einn, borgirnar orðnar að smáþorpum og ekkert þar að sjá ncma fornfálegar menj- ar um horfna frægð, auðæfi og völd. Ut- lendingum, er verður reikað um göturnar í Valladolid og Salamanca virðist eins og vind- urinn sjálfur sé að syngja útfararsálma yfir hermönnum þeim, stjórnvitringum, höfðingj- um og skáldum, er hófu Spán til frægðar og frama. Engin öld hefur verið jafnmikil ó- heillaöld fyrir Spán sem 19. öldin, því að hver ógæfan á fætur annari hefur sótt landið heim: borgarstríð, uppreisnir ogstjórnarbylting- ar á víxl, unz allur dugur var drepinn úr þjóðinni og stjórnendurnir orðnir gerspilltir. Akuryrkja landsins, iðnaður og menntun lenti í vanhirðingu, meðan verið var að steypa yfirstjórnendunum af stóli og setja þá aptur til valda, meðan verið var að semja og sam- þykkja stjórnarskipun landsins og nemahana aptur úr gildi svona á víxl, og svo færðist rfkið saman og hjaðnaði niður, eins og óþétt vindblaðra. Chili og Columbia urðu fyrst óháð, Florida var seld Bandaríkjunum, Peru og Mexico brutust brátt undan heimalandinu og nú er Spánn að missa hinar síðustu og dýrmættistu landeignir sínar í Vesturálfu. Enn á þó Spánn hugprúða hermenn sem í fyrri daga, en það stoðar ekkert, því að skammsýni og hirðuleysi stjórnendanna gerir allt að engu. Enn á Spánn einnig Iistamenn, en þeir láta sér lynda að herma eptir öðrum. Þar er einnig nóg af stjórnmálamönnum, en þeireru mestir í munninum og skortir alla forustu- hæfileika og skarpskyggr^. Enn eru á Spáni duglegib hreinlyndir og vandaðir bændur, sem ekki horfa í að láta hinn síðasta eyri af hendi rakna til framkvæmdar einhverri blóðlausri hugmynd, en þeim gremst að sjá eigingjarna aðalsmenn svalla þessum skilding- um burtu. Ástæðurnar lyrir þessari aumkvunarverðu hnignun eru margar. Eitthvert hið mesta mein landsins er hin frámunalega fáfræði f- búanna. Af þeim 18 miljónum manna, er landið byggja er yfir 16 miljónir, ereigihafa notið neinnar bóklegrar fræðslull Ogjafnvel meðal hinna svokölluðu menntuðu manna er þekkingin býsna léttvæg og af skornum skammti. Háskólamenntunin er t. d. mjög léleg. Frakkneskur maður, sem hefur sér- staklega kynnt sér rækilega fyrirkomulag hinna æðri skóla á Spáni, ritar um spán- verska stúdenta, að þeir kunni ekkert í grísku, svo að segja ekkert í latínu, og viti alls ekk- ert í sögu annara þjóða á síðarí tímum. — Þekkingunni í nýju málunum er svo ábóta- vant, að undrum sætir. Stjórnmálamenn, læknar, blaðamenn og jafnvel kaupmenn láta sér nægja að tala hið hljómfagra móðurmál sitt, og geta sjaldnast gert sig skiljanlega á annara þjóða tungu. Þá er Sagastaráðaneyt- ið hafði ákveðið að skoða skyldi öll hrað- skeyti til annara landa, áður en þau væru send, gat það ekki fengið nokkum skoðun- armann, sem kunni þýzku, svo það varðloks úr, að hraðskeyti a þýzku mætti senda rann- sóknarlaust. Þessar 16 miljónir ómenntaðra Spánverja og meiri hluti hinna tveggja miljóna, sem eru eitthvað dálítið betur að sér, hirða alls ekkert um pólitík, heldur hugsa að eins um að fá að vinna í næði til að bæta kjör sín og barna sinna. Kúbamálið 'hefur aldreiver- ið neitt áhugamál þeirra, og nýlendu- stjórnin er í þeirra augum ekkert annað en blóðþyrstur guðdómur, er heimtar meirimann- fórnir en Mólok, og er grimmari en hinir gömlu mexikönsku guðir. Meiri hluti þess- ara Spánverja eru bændur af ýmsum kyn- flokkum, er hafa varðveitt óbreyttar venjur og erfikenningar forfeðra sinna. En það scm tengir þá saman í eina meira eða minna samkynja heild er hollusta við hina sameiginlegu trú og framúrskarandi heit og sterk föðurlandsást. Þeir sem eitthvað hugsa um pólitík eru að eins mjög lítill hluti landsbúa, svo sem 5—600,000, og þeir sækjast ekki eptir neinu öðru en að krækja í eitthvert embætti. Um hverja sýslan, með 6—800 kr. árslaunum, er stjórnin veitir, eru 8-—12 óþreyjufullir kandí- datar „um boðið«ogþeir eru reiðubúnir til að prédika evangelíum apturhaldsflokksins, frjáls- lynda flokksins, lýðveldisflokksins og Karl- unga til skiptis eptir því, sem af þeim kann að verða heimtað. „Cand. phil“. Þá er Friðþjófur Nansen kom hingað á Grænlandstör sinni 1888 varð honum að orði: ■ „Aumingja ísland, sem átt svo marga em- bæt.tismenn “. Það var þessi embættismanna- fjöldi, sem honum leizt einna lakast á hér hjá oss, þá er hann bar hann saman við fólksfjöldann. En það er önnur stétt manna, er á síðari árum hefur ískyggilega aukizt hér á landi og það eru þessir blessaðir „Cand. phil", menn.sem hafa búið sig undir embættis- stöðuna en einhverra orsaka vegna eigi kom- izt lengra en yfir heimspekiprófið og verða svo að hafa þetta leiðinlega „cand. phil. “ hangandi við nafnið sitt alla sína daga. Og ávalt bætast nýir og nýir við í þennan kandí- datahóp, er Hafnarháskóli á mestan og bezt- an þátt í að unga út. Og hvað liggur svo fyrir þessum mönnum öllum, er brostið hefur hamingju eða fé til að ljúka embættisprófi? Ekkert annað en einhver lítilfjörlegskrifstofu- störf, tímakennsla fyrir 25—50 aura hæst um klukkustundina og annað en rýrara. Áður fyrrum voru þessir „cand. phil“ sjaldsénari vara, meðan stúdentafjöldinn var minni og hinir fáu, sem þá komust ekki lengra en að krækja í cand. phil. nafnbótina gátu optast- nær holað sér einhversstaðar niður í þolan- lega atvinnu. Þess eru og dæmi, að þeir liafi getað krækt í góð embætti. En nú er öldin önnur. Hinn glæsilegi og girnilegur vegur að embættakjötkötlunum er nú harð- lega lokaður fyrir öllum, er eigi hafa embætt- isprófsstimpilinn öðlazt, því að nú er svo komið, að jafnvel þeir sem hann hafa verða að lifa á miskunn guðs og munnvatni sínu ef til vill mörg ár, þangað til eitthvert sæti verður autt við það, að sá sem það skipar flytur búferlum í annan heim eða fer að búa sig undir það. En það gera fæstir fyr en í fulla hnefana, svo að það getur dregizt lengi að „komast í skarðið" og langt finnst þeim sem búinn bíður. Það hefur opt brugðizt mörgum herfilega að „spekúlera" í dauðanum sem veitingarvaldi, því að hann getur opt veitt lausn frá embætti miklu síðar, en hinn óþreyjufulli „eptirmaður" óskar, þótt hann sé fyrirfram löngu ákveðinn til að skipa sætið af hinu tímanlega veitingarvaldi. En það eru þó ekki kandídatar með embættisprófi, sem verst eru farnir. Þeir geta þó ávallt lifað í voninni-'og æft sig í þolin- mæði. En það eru þessir veslings „cand. pliil", sem hlaupið hafa í strand á miðri leið, þeir geta ekki gert sér háfleygar vonir að minnsta kosti ekki hér á landi. Fyrir þeim flestum liggur erfiður barningur, erfitt matstrit og það sem verst er, að mörgum þeirra er skilað aptur frá Höfn til ættjarðar- innar svo veikluðum á sál og líkama, svo þrek- og kjarkvana, að þeir geta alls engan barning tekið, eru orðnir óhæfir til að heyja baráttuna fyrir tilverunni og lenda svo í iðju- leysisrölti og rabbi og drabbi á knæpum, þar sem síðasti eyririnn hverfur ofan í hinn botnlausa vasa veitingamannsins. — Vér megum því þakka fyrir, ef vér fáum hina ungu „cand. phil“ vora nokkurnveginn heila á húfi úr Hafnarvistinni, því að þá getum vér vænst þess, að þeir verði þó sjálfum sér og oss að einhverju liði. En að öðrum kosti verða þessir heimviknu Hafnarstúdentar sjálf- um sér og öðrum til óánægju og ama og það myndast smátt og smátt alveg sérstök stétt í landinu, stétt sem sannarlega verður

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.