Þjóðólfur - 12.08.1898, Page 3

Þjóðólfur - 12.08.1898, Page 3
fimiskennara, er var fjarverandi. — Meistari Ei- ríkur fer héðan í nótt með »Thyra« vestur og norður um land til Austljarða, og þaðan heimtil sín. Póstmeistarinn kom í fyrra dag úr embætt- isferð sinni um Norðurland. S. d. komu þeir Halldór Jónsson bankagjaldkeri og séra Þórhall- ur Bjarnarson ofan úr Borgarfirði. —- Björn M. Ólsen rektor og Bjarni kennari Jónsson eru einn- ig komnir úr »austurför« sinni. Dr. Þorvaldur 'Thoroddsen er og kominn til bæjarins ofan úr Hallmundarhrauni, og varð þar einkis vísari, því að langt er síðan »Loptur« dó. Nýr lyfsali danskur kom hingað til bæjárins með »Thyra«, Martin Olesen að nafni. Hefurhann keypt lyfjabúðina hér af erfingjum E. Tvedes, að sögn fyrir 110,000 kr., og sezt hér að. Dáin er hér í bænum 7. þ. m. Ingibjörg Sigurðardóttir ekkja Jóns Arasonar útvegsbónda, er fyr bjó í Skálholtskoti, og látinn er fyrir löngu (1877). Af börnum þeirra eru á lífi: Armann, fyrirvinna móður sinnar mörg.ár, Bergþóra kona Guðbrands Eiríkssonar í Stöðlakoti, Sigríðurkona Þorvarðar Þorvarðarsonar prentara, Málfríður kona Lárusar Lúðvíkssonar skósmiðs og Rósa kona Páls Sigurðssonar snikkara. — Ingibjörg heit. var mesta dugnaðar- og röskleikakona, ráðdeildarsöm og iðjusöm, frábærlega trygg og vinföst, og að öllu leyti mesta sómakona. Eg hef lengi þjáðst af óhægð fyrir brjóst- inu og óreglulegri meltingu, en er eg hafði tekið inn 2 flöskur af Kínalífs-elixír frá hr. WaldemarPetersen íFrederikshavn, get eg með ánægju vottað, að upp frá því hef eg ekki kennt fyrgreindra veikinda. í sambandi við þetta vil eg geta þess, að göm- ul kona nokkur hér á bænum (Sigríður Jóns- dóttir) hefur neytt Kína-lífs-elixírs með besta árangri gegn illri meltingu, er stafaði af ofmiklum kyrsetum innanbæjar, en hafði iM áður vanist vinnu undir berum himni. Sömu reynzlu hafa einnig ýmsir fleiri hér um slóð- ir, er hafa neytt og enn neyta bittersins gegn ýmiskonar lasleika. Eg get því með öruggri sannfæringu veitt Kína-lífs-elixírnum með- mæli mín sem læknislyfi gegn fyrgreindum sjúkdómum, og því fremur sem auðvelt er að hafa hann jafnan við hendina, með því að hann er ódýr í samanburði við það, sem önnur læknislyf og læknishjálp kosta. Grafarbakka Ástríður Jónsdóttir. Kína-Iífs-elixírinn fæst hjá flestum kaup- mönnum á Islandi. Til þess að vera viss um, að fá hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir að líta vel eptir því, að X/‘- — standi á flöskunum í grænu lakki, og eins eptir hinu skrásetta vörumerki á flöskumiðanum: Kínverji með glas í hendi, firma- nafnið Valdemar Petersen, Frederikshavn, Dan- mark. Peningabuddur, margar tegundir, ódýrar ern nýkomnar í verzlun Sturlu Jónssonar. Ekta anilínlitir C fást hvergi eins góðir og ódýrir eins P1 4-J c og í verzlun rr r+ p c ctí Sturlu Jónssonar P D ed +-> u Aðalstræti Nr. 14. C rjj "t Margskonar álnavara og prjónagarn er nýkomið í verzlun Sturlu Jónssonar. Núer ,Thyra‘ komin. Með honni féklc verzlunin ,Edinborg meðal annars: I vefnaðarvörudeild: Hálfklæði. — Sirs. — Svartan og misl. Shirting. — Tvinna margskonar. -— Bleikt og óbleikt lérept. — Tvististauin breiðu. — Handklæðin hentugu. — Hvíta og misl. vasaklúta. — Hvíta og«nisl. borðdúka. — Regnkápur handa konum og körlum — Ionahúfurnar, sem allir kaupa. — Flókahúfur handa börnum. — Stólarnir þægilegu o. m. m. fl. í nýlendu ogr pakkhúsdeild: Overhead — Bankabygg. — Hrísgjón. — Klofnar baunir. — Haframéi. — Kaffi. — Kandis. — Melis. — Púðursykur. — Sveskjur. — Rúsínur. — Gráfíkjur. — Grænsápu. — Stangasápu. — Soda. -— Leirvöru allskonar. — Þakjárnið þekkta. o. m. m. fl. Rvík 8. ágúst 1898. ÁSGEIR SIGURÐSSON. Gufubrætt þorskalýsi, tvær tegundir er nykomið í verzlun Sturlu Jónssouar. Allskonar farfi, fernisolía og kítti er nýkomið í verzlun Sturlu Jónssonar. 96 ívan horfði til skiptis framan í Fédor og konu hans, og andlit hans var herfilega afmyndað, af einhverri afarþungbærri, innri kvöl. Því næst mælti hann snögglega: „Takið við taumunum!“ og tók svo í skyndi að vinda þá utan af úlfliðunum. Fédor hlýddi ósjálfrátt, en skildi þó ekkert í þessu. „Svona eigið þér að halda í taumana", sagði ívan skýrt og skilmerkilega „þér ráðið ekki við neitt, ef þér haldið þeim ekki svona; hafið þér náð handfesti á þeirn?" „Já“, svaraði Fédor, án þess hann vissi, hvað hann sagði. „Mig langaði til að drepa yður", sagði ívan, og rómur- inn varð skyndilega hár og hvellur, — „en það er sakir henn- ar\ — — -— Og hann stóð upp hvatlega og hljóp ofan af sleðanum niður í snjóinn. Enn einu sinni námu úlfarnir staðar, enn einusinni þyrluð- ust snjóflyksurnar í háa lopt, og hestarnir, sem fundu, að nýr maður haffii tekið við taumhaldiriu, hertu sig enn betur og þutu áfram á fleygiferð. Það leið nokkur stund, áður en nýgiptu hjþnin gátu gert sér fullkomlega glögga grein fyrir því sem við hafði borið. Þá er hestarnir voru stöðvaðir á götunum inn í þorpinu, lá Alexía meðvitundarlaus við hlið mannsins síns, og hún var borin þannig á sig komin inn í hið nýja heimkynni sitt, og þar lá hún hættulega veik nokkra mánuði. Hið fyrsta verk hennar, er hún kom til heilsu aptur, var að láta setja upp krossmark á sléttunni á þeim stað, þar sem tvö mannsbein og annað stígvél ívans hafði fundizt. Bændurnir skírðu það »Gröf ívans« og það hefur borið það nafn ávallt síðan, þótt ívan í raun og veru sé einn meðal þeirra tiltölulega fáu manna, sem farið hafa á mis við greptrun í moldu. 93 spori heyrðist annað og hið þriðja, unz það varð að einum sam- felldum kórsöng mjög langt í burtu, óg mjög óskýrt, en það var nú eigi framar neinn vafi á, hvað það var. í þessu bili hafði ívan náð stjórn á hestunum. Hann sí- vafði taumunum utan um úlfliðina, ogvirtist fremur halda hest- unum aptur, en knýja þá áfram. »Hvers vegna lætur þú þá ekki stökkva, eins og þeir kom- ast, flónið þitt“? kallaði Fédor óþolinmóðlega. Ivan leit við honum yfir öxl sér og sagði: „Langar þig til að deyja í nótt?“ Hann þúaði hann og brosti mjög kulda- lega, svo að sást í tennurnar. „Hestárnir munu síðar þurfa á öllum kröptum sínum að halda, og þeir munu fá sig fullreynda í kapphlaupi áður en lýkur, vertu viss um það«. Fédor varð orðlaus. Þetta fornafn „þú«, af munni þjón- ustumanns, hafði sömu áhrif á hann, eins og honum hefði verið gefið utan undir. Auðvitað hugsaði hann sér, að ívan skyldi fá þetta fullu launað síðar, en það var ekki tækifæri til þess nú, því að hann gætti einkis annars en að horfa ýmist fram eða aptur; hann horfði framundan sér til að koma auga á sleðann, er þau vissu að var á undan, en aptur fyrir sig horfði hann á hina lágu hrísrunna, er óljóst mótaði fyrir á yfirborði sléttunnar. Smátt og smátt tóku einstakir dökkir dílar að skiljast frá þess- um strjálu runnum, og í hinni daufu birtu gat sýnzt svo, eins og runnarnir sjálfir væru komnir á hreyfirigu; þeir urðu ávallt fleiri og fleiri saman, og brátt voru það ekki einstakir dökkvir dflar, er sáust, heldur samfelld heild, er ávallt varð stærri og stærri, teygjandi út tungurnar án afláts. ívan leit aldrei aptur fyrir sig, hann hafði svo næma heyrn, að hann vissi upp á hár, hve langt bilið var milli hans og úlfanna, en hann horfði fast og stöðugt á veginn fi am undan sér.

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.