Þjóðólfur - 09.09.1898, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 09.09.1898, Blaðsíða 1
ÞJÓÐÓLFUR. 50. árg. Reykjavík, föstudaginn 9. september 1898. Nr. 42. Hugleiðingar um landbúnað vorn. Eptir gamlan sveitabónda. III. Eg get búizt við þeirri mótbaru, að túnræktin geti ekki verið í apturför, því nú séu menn í óða önn að slétta tún og gera aðrar jarðabætur, og þetta hljóti þó að sjá einhverja staði. En þessu svara eg svo, að það er auðvelt að benda á fjölda jarða, sem áður höfðu þýfð tún, en nú hafa slétt tún að meira eða minna leytr, sem gefa þó minni töðu. Orsökin er fyrst sú, að kýr eru færri og því teðsluskortur og svo er í sjálfu sér minna varið í slétturnar en margur hyggur, þegar túnin eru ógirt og því óverjandi og notuð sem beithagi fyrir allan fénað mestan hluta ársins, en þetta á sér því miður allt of víða stað. Komi mönnum saman um, að grasrækt- in og þá sérílagi túnræktin sé aðalundirstaða landbúnaðarins hlýtur að leiða af því, að ó- ráð er að fara að breyta til með fénað þann, sem búin framleiða. Enginn fénaður mun borga sig betur en sá, sem búin hafa hingað til framleitt, en þó einkum nautpen- ingurinn. Hitt er annað mál, að gaman og líklega gagn gæti verið af því, að hafa með- fram á búum sínum ýmsar aðrar fénaðarteg- undir, og sjálfsagt er, hvaða fénaðartegund sem um er að ræða að vanda meðferð og bæta kynferði svo sem framast er kostnr. Vilji maður nú saímfærast um í hvaða ástandi grasrækdn nú er hjá oss, álítegþað hægast með því, að lýsa því, hvernig umhorfs er á vanalegU sveitaheimili. Þegar komið er á sveitaheimili tekur maður eptir því, að túnbletturinn umhverfis bæinn er ógirtur, hann þekkist vanalega ekki á öðru enþví að í honum er annað graslag. Um túnblettinn liggja víðast götur, fleiri eða færri, eptir því sem á stendur og heimreið og öðru hagar; sumstaðar eru hreppa- og sýsluvegir um þver og endilöng túnin, þó að- eins lftill bugur sé að fara utan túns, og hægt að gera þar góðan veg. Ekki eru götur þessar heldur afgirtar. Á túnblettinum stendur ennfremur fjöldi fénaðarhúsa, eitt og «itt, sitt á hvorum stað; verður því að reka flestallan fénað yftr túnið, hvenær sem á að hýsa hann. Við dyr flestra húsa eru stærri og minni haugar. Haugum þessum hefur að vetrinum verið fleygt út á gaddinn og ekkert síðan um þa hirt. Má fullyrða, að húsa- og haugstæðin og göturnar ná á sumum bæjum yfir hálfa og allt að heilli dagsláttu, eða yfir Vio—1/20 hluta túnsins. Frekari lýsingu þarf tæplega til að sýna f hvaða ástandi túnrækt- in, þessi svo að segja eina jarðrækt, sem á sér stað, er hjá oss. Kringum túnin liggja víða valllendisflatir eða valllendisþýfi, sem að- eins vantar áburð til þess að verða eins gott og túnbletturinn, en sem alls ekki er ljáborið. Eg hef eitt sinn spurt nágranna minn, sem var að reisa nýtt hús á túni sínu og þannig minnka það, hvers vegna hann ekki hefði heldur sett húsið á fagra flöt rétt við túnið. Hann svaraði: það má eg ekki; túnið mitt sprettur eigi vel nema kringum bæinn og fén- aðarhúsin. Maðurinn hafði rétt að mæla, túnið var alstaðar annarstaðar í órækt. Afleiðingin af þessu ráðlagi er auðsæ. Túnið, sem er helmingi eða að minnsta kosti þriðjungi minna en það gæti verið, ef áburð- ur sá, sem tilfellst væri rækilega notaður og hirtur, gefur af sér þriðjungi eða helmingi minni töðu en það gæti gefið, væri það í beztu rækt, og þó aðeins með því skilyrði, að slátt- ur ekki byrji fyr en í fyrstalagii2—13 vikur af sumri, en sem er hinn mesti skaði, því sláttur ætti, ef vel væri, jafnan að byrja líð- andi Jónsmessu eða um 10. s'umarhelgi eða 10 vikur af sumri. Eg trúi ekki þeirri Isaf. speki, að J:að megi venja jörð á að spretta snemma, með því að slá snemma. Til þess þarf meira. Aðalheyskapurinn verður svo útheyis sinurusl og síðslagi, sem auk þess að vera orðinn lítt nýtur á jörðinni, iðulega mætir hrakningi og verður engri skepnu bjóð- andi. Það er vinna, sem í fæstum tilfellum getur borgað sig, eins og fólkshald nú er dýrt orðið og aðrar lcröfur til lífsins miklar að standa dag eptir dag, jafnvel viku eptir eptir viku á þýfðum þjóttumýrum, þar sem duglegur maður hefur eptir sig 2—3 hesta af sinurusli, ef mýrin þá ekki flæðir í haust- rigningunum, svo allt verður að engu. Það er sannfæring mín, að landbúnaður vor geti ekki orðið í góðu lagi, fyr en bændur hafa mestan heyfeng sinn af góðu velræktuðu túni. Flæðiengi og starengi er að vísu til á einstöku jörðum, en slíkt er undantekning- ar, sem ekkert almennt verður byggt á. Að þessu takmarki ætti því að keppa af alefli og eg álít hægt að ná því, þó til þess þurfi vitanlega tíma og sérílagi mjög breyttan hugs- unarhátt. Eitt haust, er vetur, sem optar lagðist snemma að, og því var illt að haust- yrkja, kom nágranni minn til mín og sagði mér hróðugur, að allar haustyrkjur væru búnar hjá sér. „Áttu þá ekki óborinn hauginn“,spurði eg. „Um það hirði eg ekkert", svaraði hann, „það má alténdbera haugskrattann". Þettasvar lýsir furðu vel skoðun bændanna flestra á með- ferð og hirðing áburðarins, sem flestar aðrar þjóðir ekki einungis leggja mikla stund á að afla og nota sem bezt, heldur jafnvel kaupa dýrum dómum úr öðrum heimsálfum. Jón Sig- urðsson segir á einum stað í ritum sínum, að bændur í Sviss séu metnir eptir haugnum; ætti að meta íslenzku bændurna eptir þeim mæli- kvarða mundi ekki vel fara. Þjóðminningardag héldu Biskupstungnamenn 14. f. m. á svonefndu Reykholti skammt austur frá Torfastöðum. Hafði verið ákveðið á bindindisfélagsfundi þar 1 sveit- inni í fyrra haust að halda slíka samkomu. Er Þjóðólfi skrifað um hana á þessa leið: »Fyrst var messað á Torfastöðum kl. 10 um morguninn. Síðan var riðið upp á Fellskotsflatir til að reyna hestana; hagar þar allvel til; fjalls- hlíðin á aðra hönd, en lágur ás á hina, sléttur völlurámilli 100 faðrna langur. Þar voru reyndir 12 hestar á stökki og 3 á skejði. Bezt hljóp bleik- ur Erlendur á Miklaholti, en bezt skeiðaði Glói Sigurðar frá Hrepphólum. Eptir kappreiðina var svo haldið suður í Reykholt; var byrjað á því að syngja: »Hvað er svo glatt« o. s. frv. »Það er svo tæpt« o. s. frv.. Þá setti séraMagn- ús Helgason samkomuna með nokkrum orðum; þá var sungið: Táp og fjör og frískir menn o. s. frv.« Síðan var farið í bændaglímu að fornum sið. Erlendur frá Miklaholti og Bjarni í Tjarnar- koti voru heimabændur og skiptu liði með sér; var þar margt röskra drengja bæði úr Tungum, Hreppum og Grimsnesi og víðar að en allirféllu fyrir þeim Erlendi og Bjarna að lyktum. Eptir glímurnar tóku menn sér hvíld og fengu sér kafifi; var kafiS selt við hverinn sjálfan en auk þess höfðu margar konur haft með sér kaffi og könn- ur og var vatnið tekið úr hvernum, sátu menn svo í hópum út um allt holt umhverfis kaffikönn- umar. Að stundu liðinni var svo gengið austur fyrir holtið og sungið ágöngunni: '»Hve fögur er vor fósturjörð«. Þegar allir svo voru komnir saman í klettahvamminum fagra sunnan undir hóltinu, mælti séra Magnús fyrir minni íslands og var sungið á eptir: »Eldgamla ísafolds r. og síðasta erindið og þrítekinn síðari helmingur- inn. Þegar hér var komið tók að rigna, enþang- að til hafði verið fagurt veður og blítt; þess vegna varð ekkert úr kapphlaupi né neinum leikjum öðrum, er annars hefði orðið; fóm menn að halda heim, enda var þá komið að miðaptni. Gleðirt varð þannig endaslepp, en svo rnikið mátti þó sjá af þessari samkomu, að ahnenningur er fús til þeirra og mikil likindi til að þær geti orðið skemmtilegar, ef gott veður vill til og stað- ur er heppilega valinn; á þessari samkomu vora full 600 manns og getur hér aldrei að lita slíkt fjölmenni, nema ef vera skyldi í réttum. Að lokum birtist hér ræða sú, er séra Magn- ús hélt fyrir Islandsminni á samkomu þessari: »Þegar tilrætt hefur orðið um það að undan- fömu, að við Tungnamenn ætluðum að halda »þjóðminningardag«, þá hef eg altaf heldur vik- ið því nafni hjá mér og sagt, að við ætluðum að halda gleðisamkomu; eg hef gert það af þv£ að eg var í efa um, hvort þessi samkoma gæti orðið svo tilkomumikil, að henni gæti hæft svo veglegt nafn, því að við þjóð mína vildi egekki kenna neitt, sem væri auðvirðilegt og ómyndarlegt en alls ekki af því, að níér kæmi til hugar að láta þennan dag eða þessa samkomu líða svo, að ekki væri minnst íslands og hinnar Isl. þjóðar eðaað mér þætti það ekki eiga við fyrir okkur Tungna- menn að géra það, þó að okkar samkoma yrði umfangsminni en aðrar samskonar, sem haldnar hafa verið; þó að við séum fáir, erum við eins fyrir því Islendingar, það er ísl. jörð, sem við

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.