Þjóðólfur


Þjóðólfur - 14.10.1898, Qupperneq 3

Þjóðólfur - 14.10.1898, Qupperneq 3
i88 Það, sem um er að ræða, er það, að ljós- mynda gervallt himinhvolfið, og að draga upp mynd af því, eins og það kemur fyrir sjónir vor jarðbúa, eingöngu eptir ljósmyndinni, án þess að í það blandist nokkur villa af kíkisrannsókn- um. Mynd af himinhvolfinu er að vísu til, en hún er enn bæði ófullkomin og ósamstæð til móts við það, er hún mætti verða. Argelander bjó t. d. til (1862) uppdrátt af stjörnunum á vor- um nyrðra helmingi himinhvolfsins, eru í þeim uppdrætti allar stjörnur af 9. stærð og þar yfir og má þar líta á einu blaði 324,198 stjörnur. Þetta er stjörnuuppdráttur Argelanders hinn mikli, og er hann eitt af merkustu verkum vorrar aldar. Á skrá Schoenfelds yfir stjörnur á suður- helmingi himinhvolfsins eru 133,659 stjörnum markaðir staðir. Gould, forstöðumaður stjörnu- turnsins í Cordoba í Argentiska lýðveldinu, hef- ur fyrir nokkrum árum gefið út uppdrátt yfir stjörnur á suðurhvolfinu, en á honum eru eigi aðrar stjömur en þær, sem sýnilegar eru með berum augum. Þetta eru tilraunir, er kostað hafa mikla fyrirhöfn, en sem aldrei geta veitt það, sem búast má við, ef menn blátt áfram neyttu Ijósmyndarinnar. En í stað þessara hádegisbaugaathugana ept- ir fjölda stjarnfræðinga, sem eru mjög mismun- andi bæði að því, hvernigþeir meta stærð stjam- anna og í aðferðinni að því að ákveða stað þeirra, í stað margra afskripta, mikils útreiknings á athugunum, sem ná yfir mörg ár, ætti blátt á- fram að taka nákvæma ljósmynd af himninum, og það eigi að eins af stjörnum allt að 9. stærð, heldur af 10., n„ 12., 13. og jafnvel 14. stærð; mundi það eigi veita mjög örðugt, heldur að eins þurfa nokkuð lengri tíma. (Meira.) Mannalát. Hinn 30 ágúst síðastl. andað- ist á Akureyri Evald E. Möllet fýrv. verzlunar- stjóri á 87. aldursári (f. 22. jan. 1812) Hann var mesti dugnaðar- og sðmamaður, og var orðlagður fyrir reglusemi og áreiðanleik f viðskiptum, Var kvæntur Margrétu Jónsdóttur prests frá Grenjað- arstað systur Björns Norðanfararitstjóra gamla og eru 7 böm þeirra á lífi, þar á meðal Friðrik Möller verzlunarstjóri á Eskifirði. Hinn 30 f. m. andaðist N Chr. Gram stór- kaupmaður og eigandi Þingeyrarverzlunar á Dýra- firði og fleiri- verzlana þar vestra. Hinn 15. f. m. andaðist úr lungnabólgu Guðrún Jónsdóttir kona Árna bónda Helga- sonar á Brekkum í Holtum, bróðursonar Árna stiptprófasts. Helgasonar. Hún var á 75. aldursári (f 22. febr. 1824) og eiga þau hjón eina dóttur á lffi. (G.) Hinn 1. þ. m. andaðist af afleiðingum barns- burðar Sigriðvr Pdlsdóttir, kona Þorsteins bóndá Tónssonar á Hrafntóptum í Holtum, 33 ára að aldri Þau lifðu saman í hjónabandi p/2 ár og eiga 2 börn á lífi. Sigríður sál var einkar góð húsmóðir. dugleg og ráðvönd kona, hjálpfús og gestrisin og elskuð og virt af öllum, sem þekktu hana. Drukknun Hinn 26. f. m. fórust tveir vinnumenn Þorvaldar bónda Skúlasonar í Hrapps- ey, en hinum 3. (Magnúsi Gíslasyni) var bjargað. Þeir sem drukknuðu hétu Einar Sveinsson og Páll Ólafsson (bróðir Sámúels söðlasmiðs hér í bænum.) MeO „Thyru“ 11 þ. m. komu 136 farþeg- ar, þar á meðal af Norðurlandi Sigurður Thor- oddsen verkfræðingur, er verið hefur að sjá um stöplabyggingu Hörgárbrúarinnar, Guðmundur Þorláksson cand. mag. ungfrú Helga Havsteen, ekkjufrú Friðrikka Briem frá Sauðárkróki. Enn fremur fra Isafirði Björn Þórðarson verzlunarstjóri og Stefán Runólfsson útgef. „Hauks", en úr Stykk- ishólmi Davíð Sch. Thorsteinson læknir og kona hans, Hjörleifur bóndi Björnsson frá Hofsstöðum, auk fjölda kaupafólks víðsvegar að. — „Thyra“ á að fara héðan vestur og norður um land á morgun. Hitt og þetta. Uppboð í Japan fara fram á mjög hátíð- legan hátt. Kaupendurnir kalla ekki upp boð sín, en skrifa nafn sitt ásamt upphæðinni, sem þeir vilja greiða, á smáa pappfrsmiða, sem látnir eru ofan í öskjur. Síðan eru miðarnir skoðaðir og sá sem hæst verð hefur boðið fær hlut þann, sem falur var. Biblía Lúters. í gripasafni einu í Berlín, er biblía sú, sem Lúther notaði ávallt. Á spássí- urnar hefur hann sjálfur ritað ymislegt, sem á daga hans drief. Hún var prentuð í Basel árið 1509 og kvað hafa verið vel geimd. Hús^ái hjólum. Manni nokkrum, sem hef ur umbætt hjólhesta og hreyfivjelar að ýmsu leyti, hefur dottið í hug að byggja tvíloptað hús, semá að vera á hjólum og vera knúð áfram af hreifi- vél, sem á að vera undir því, því að maður þessi er á þeirri skoðun, að það sé engin ástæða til þess að hús séu endilega á einhverjum einum og sama stað og geti aldrei annarsstaðar verið, og þar eð það hefur komið í ljós við ýms tækifæri, að í hreyfivélunum er ágætt hreyfiafl fyrir vagna, þá ætlar hann nú að sýna, að það er ekki erfið- ara að hreyfa hús heldur en vagn. Eptir tilætl- uninni á að byggja húsið úr stálvír og í því eiga að vera 4 herbergi og efra loptinu má þjappa sam- an, ef fara þarf með húsið undir brú. Kjöt af sauðum og veturgömlu fé úr Borgarfirði og Þingvallasveit, fæst í dag og næstu daga í verzlun Jóns Þórðarsonar SíMON Jónsson Á SELFOSSI selur nú sem að undanfömu með mjög vægu verði allskonar bækur, gamlar og nýjar, svo sem guðsorðabækur, sögubækur, skáldsögur, riddara- . sögur, kvæðabækur o. fl. Eins hef eg til mikið af allskonar ritföngum og forskriptabókum handa börnum, stafrófskver o. s. frv. Leiðarvísir til lífsábyrgðar fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr. J. Jónasen, sem einnig gefur þeim sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar upplýsingar. 116 lypt með báðum höndum hesti upp á pallinn til mín með því að taka um belti, er bundið var undir kvið honum — og síðar gat eg gert það með annari hendinni. En þetta var þó ekki það, sem við mig átti. En verðlaunaglímurnar f „Cirkus Craf- ton“. Eg hafði fengið atvinnu við »Cirkus Victoria" í Lundún- um og sýnt þar meðal annars list mína í að taka upp hesta eða þunga hluti. Þá var það einn dag, að einn vinur minn, sem hét Bambino, segir við mig: »Við skulum fara og horfa á glímumennina í »Cirkus Crafton“. Menn segja að það séu knáir karlar, og þeir fá 100 pd. st. (1800 kr.) í laun". „Já, það skulum við gera”, segi eg og síðan fórum við þangað og horfðum á þá. Þeir voru litlir, en frábærlega liprir; hvert kveld buðu þeir 10 pd. st. hverjum þeim, sem gæti lagt þá. Eg réð mér ekki og hugsaði með sjálfum mér: „Þú verð- ur að reyna það!“; eg gaf mig fram og síðan hófst leikur- inn. Eg hélt eg gæti tekið þá báða undir hendina í einu, en það fór allt öðru vísi. Fyrst glímdi eg við hinn stærri, en í hvert sinn, sem eg var búinn að ná tökum á honum vatt hann sér út úr höndum mér og varð laus, án þess eg gæti gert mér grein fyrir, hvernig á því stóð; þá rasaði eg og lá með báðar herðar við gólfið. Það birtist auðvitað í blöðunum, að sterki maðurinn í ■■Cirkus Victoria", sem lypti upp tveim hestum í einu — því eg var þá þegar farinn til þess — hefði verið 'yfirunninn á fimm mínútum. Húsbóndi minn varð auðvitað fokreiður og vildi ekki ler>gur hafa mig í þjónustu sinni og gramdist mér það mjög, en n fiverju kveldi fór eg í „Cirkus Crafton« og kynnti mér brögð glímumannanna. Síðan gaf eg mig aptur fram. Eg þreif ri3 sem hann hafði haft með sér, en lagt frá sér á stól, er hann fór að bisa við skápinn. En eg verð að gera enn eina játningu. Eg vissi vel, að ungfrú Haines var ekki síður þjófur, en mað- urinn, sem lá undir gólfinu í bankanum og allt þetta höfðu ver- ið þeirra samantekin ráð. Hún hefur sjálfsagt verið mesta af- hrak og ekki átt neina vægð skilið, en hver sem vill, má kalla mig aula, því eg gat ómögulega fengið af mér að segja nein- um frá, hvað gerzt hefði. Eg hélt fyrst til veitingahússins. Hún var í gestastofunni og var albúin til þess að aka til járnbraut- arstöðvarinnar, þegar félagihennar kæmi aptur, en þegar hún sá, að eg kom inn rak hún upp hljóð og lá við öngviti. „Hvar er hann bróðir minn?" spurði hún. „Hann er vel geymdur í bankanum", svaraði eg. „Eruð þér kominn til þess að taka mig höndum", spurði hún mjög lágt. »Nei, eg er kominn til þess að aðvara yður. Það er bezt fyrir yður að komast sem fyrst af stað", svaraði eg. „Hafið þér nokkra peninga?" „Einungis 3 eða 4 pund", sagði hún. „Þér eigið 100 pund inni í bankanum", sagði eg, „eg var alveg búinn að gleyma því; eg skal fara og sækja þau“. „En hann — vinur minn?" „Hann verður þar sem hann er kominn, þangað til þér eruð farin í burtu, en þá verður hann fluttur í fangelsi". Eg fór síðan aptur til bankans, sótti peninga hennar og ók með henni til járnbrautarstöðvarinnar. Eg beið þangað til lestin var farin og þá fyrst tilkynnti eg, hvað gerzt hafði, fékk menn með mér og flutti ræningjann úr kjallaranum og í fang- elsi. Síðar var hann dæmdur til 8 ára betrunarhúsvistar, en konuna, sem eg skildi við á járnbrautarstöðinni, hef eg aldrei

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.