Þjóðólfur - 03.02.1899, Blaðsíða 3
23
Eggert Hannesson hyggur
hagastur dóm að laga.
Eptir barnamissi, sem Eggert hafði hent, féll hon-
um enn þyngra mótlæti til 1579. Strákur nokkur
hafði verið í vist hjá honum, þóttist þar illa hald-
inn og strauk til útlendra. Það ár kom hann
aptur með öðrum reyfurum á skipi. Þeir komu
landveg utan úr vikum að Bæ, náðu honum þar
hálfnöktum, þegar hann hafði hlaupið af rúminu
■og bundu hann út á hlaðgarði, en ræntu öllu,
•sem þeir eiga vildu á staðnum, fluttu það á hest-
um hans yfir að Hvalskeri, hvar skip þeirra var
lagzt. Þar brutu þeir npp timburhús, sem Eggert
átti og héldu sig þar hálfan mánuð og Eggert
hjá sér með vondri meðferð, fluttu hann síðan
með sér norður á Isafjarðardjúp. Þá bjó Magn-
ús dótturmaður hans í Ögri og er almenn sögn,
að hann hafi samið við þá að leysa Eggert út
með hálftunnu fullri af smíðuðu silfri og er ræn-
ingjum þótti hún eigi nógu full kastaði Ragn-
heiður Eggertsdóttir þar ofan á gullfesti, og þó
varð Eggert að gefa þeim bréf til Magistraten í
Stade að leggja út 400 rd,, en vegna Eggerts bað
kongur að halda þeim peningum ' inni, þegar
Rggert kærði mál sitt fyrir honum síðan. Nokkru
áður en þetta var giptist Eggert Steinunni Jóns-
dóttur, systur Magnúsar dótturmanns síns og hún
meina eg að lifað hafi, þegar Eggert sigldi héðan
síðast1). Á þessu ári gerði Eggert sitt testament
og ítrekaði það árið eptir. Þar gefur hann dótt-
ur sinni í hendur VII hndr. hundraða og XXX
hndr. betur fyrir utan sínar löggjafir til Ólafs
sonarsonar síns, sem áður er um getið og garð-
inn Saurbæ á Rauðasandi dóttursyni sínutn Birni
Magnússyni, sem heitinn var eptir syni hans, —
og segist hann þá vilja ábyrgjast, að Jón sonur
sinn í Hamborg fái þar fulla peninga í sinn
bróðurhlut móti því, sem Ragnheiður fékk nú. —
Árið 1580 sigldi Eggert alfarinn héðan frá Islandi
•og sama ár flutti Magnús sig frá Ögri að Bæ á
Rauðasandi og bjó þar til þess hann deyði. —
Björn var elztur barna Magnúsar, en flest munu
þau fædd í Ögri við Isafjörð, því Ragnheiður var
15 vetra, þegar húnjgiptist, en er að merkja að
hún hafi verið orðin roskin kona, þegar hún kom
að [Bæ]. .... Það illmæli, sem Birni [Magnús-
syni] var eignað mun hafa risið af dulkofralegum
umgangi Sesseiju systur hans, sem lét vinnukonu
hans leggjast á sæng fyrir sig, þegar hún ól barn
það, sem séra Sigurður prestur þar átti við henni,
sem allt komst upp sfðan. En þeir dönsku höf-
uðsmenn höfðu grun á Birni sjálfum. Varö hann
því að sverja tylftareið fyrir systur sína og tvílar
enginn, að honum hafi verið sá eiður vel fær, en
séra Sigurður strauk strax úr landi. — Árið eptir
að Eggert sigldi sendi hann bréf inn og gefur
Saurbæjarkirkju frelsi til húsgerðar og teinærings-
naustgerðar á Hvalskeri við Patriks[fjörð] til við-
halds tveimur hvíldarstöðum náunga sinna, Katrín-
ar systur sinnar og Björns sonar síns, sem bæði
liggja grafin framan til við kirkju í Saurbæ. —
Katrín hafði áður testamenterað alla eign sína
börnum Eggerts. Þessu húsi og nausti var við-
haldið á Skeri allan aldur til þess Guð"
rún Eggertsdóttir deyði og í húsinu var geymd
-öll skreið og þungavara frá Vatneyrarkaupstað,
-en flutt eptir hentugleikum að Bæ yfir heiðina á
vetrum----------
Rósirnar hefðu orðið þyrnar.
Það var hásumar. Sólin skeir. 1 heiði og
rsendi brennheita geisla sína yfir láð og lög. Eg
•átti heima hátt uppi í fjallshlíðinni, undir hamra-
belti miklu. Utsýni var þaðan hið fegursta yfir
héraðið. Eg bað um, að styðja mig út á túnið,
út í blessaða birtuna. Eg vildi sjá sólina enn einu-
sinni, áður en eg kveddi heiminn. Eg lagðist
niður í grasið. Það angaði úr því ilrnurinn,
og loptið var svo blíttt og hressandi. Eg
fann nýtt fjör færast í líkama minn.
Inndælt er lífið hugsaði eg og ógjarnan
vil eg nú deyja. Endurminningar frá æskudög-
1) Það er rétt. Þau Eggert skildu samvistir
og fór hún að Snóksdal til Guðrúnar Ólafsdóttur
■dóbur sinnar.
um mínum svifu í hug mér. Eg minntist þess,
að eg hafði verið léttur á fæti og leikfullur, og
hafði notið lífsins, eins og fjörmikill unglingur
getur notið þess. En nú fannst mér, sem eg
hefði aldrei lifað. Mér virtist að sælustundirnar
hefðu verið svo undurfáar, en sorgarstundirnar
margar. Og eg hallaði mér aptur á bak og
starði upp í himininn, eins og eg vildi
fá þar leystar ráðgátur llfs míns. En eg fékk
ekkert svar. Og það seig einhver svo undarlega
blýþungur hryggðarhöfgi yfir mig, svö að mér
lá við að tárfella í grasið. Og eg fann það
glöggt, að táralind mín var ekki þornuð, þótt eg
hefði aldrei grátið í 50 ar, eða síðan egsá hana
í síðasta sinni, er f mínum augum var fegurst og
fullkomnust allra kvenna, hana, sem eg unni svo
heitt, að eg hefði viljað ofurselja sálu mína valdi
myrkranna fyrir hennar sakir. Og eg endurtók
nafn hennar aptur og aptur í huga mínum. En
fékk ekkert svar. Hún var horfin, horfin mér fyrtr
löngu. Og eg minntist orða Heine: »Hún var
yndisleg og hann elskaði hana, en hann var ekki
yndislegur, og hún elskaði hann ekki«. Þar er
mín saga. Eg minntist þess einnig, er eg var
staddur ásamt henni á dansleik. Hún dansaði
við alla nema mig. Eg sat hnugginn út í horni.
Gleðin skein á andliti allra. Eg einn var dapur,
enn daprari, af því að aliir skemmtu sér svovel.
Þá bölvaði eg gleðinni, og taldi mér trú um,
að hún væri blekking ein. Síðan hef eg verið
allri gleði firrtur. Hún veik frá mér á því
kveldi, og hefur aldrei aptur kornið. Þá var eg
tvítugur að aldri, en nú er eg orðinn gamall og
grár fyrir hærum. Eg finn að eg á skammtept-
ir ólifað. Og eg hef lifað til lítils. Og lífið
hefur verið mér þung byrði. En sarnt vil eg
ekki deyja, að minnsta kosti ekki í þessu fagra
veðri. Eg vil deyja um vetur í margra stiga
kulda, þegar snjórinn hylur gaddfrosna jörðina,
því að svo hefur líf mitt verið. Það hefur verið
sífelldur vetur í sálu minni, og helkuldi í hjarta
mér síðan kveldið á dansleiknum. Þá frusu í hel
mínar heitustu og beztu tilfinningar, og þær hafa
ekki lilnað síðan. Það hefur að eins ofurlítið
þiðnað íshjúpurinn um hjarta mitt, þá er sólin hef-
ur skinið skærast á sumrin og náttúran hefur í-
klæðzt sinu fegursta sumarskrauti. Það var sum-
ardýrðin, er jafnan snart hina viðkvæmustu strengi
hjarta míns. En sannrar ánægju hef eg aldrei
notið.
Og þá er eg lá þarna i grasinu og horfði
upp í himininn, krafði eg þann, sem á að ríkja
þar uppi í hæðunum, til reikningsskapar fyrir líf
mitt. En eg fékk ekkert svar Eg hélt samt á-
fram að mögla gegn forsjóninni út af því, hvers-
vegna hún hefði gert mig afskiptan æztu gæðum
lífsins, hversvegna hún hefði svipt mig gleðinni
og allri rósemi sálarinnar, hversvegna hún hefði
pínt mig öll þessi ár, bæði á sálu og líkama.
Þá var eins og hvíslað væri í eyra mér: »Það
fær þú að vita hinum megin«. Ofseint, ofseint,
hugsaðieg. Verði tilveran hinum megin, fyrir
handan gröf og dauða, ekki fagnaðarríkari, en
þessi jarðneska tilvera hefur verið, þá bið eg
að hafa mig afsakaðan. Og hver ábyrgist, að
mér verði bætt það, er eg hef farið á mis við
hérna-megin ?
Og eg lokaði augunum og einhver þreytu-
dofi færðist um mig allan. Hvað stoðaði allt
þetta mögl, allar þessar kvartanir? Eg hafðifyr-
ir löngu gert upp reikning minn við lífið og
mér fannst það skulda mér allt, allt nema fáein
augnablik, er eg var á léttasta skeiði og lifði í
voninni um hana, er eg unni svo heitt, og hafði
kjörið í huga mér til að strá rósum á lífsleið
mlna. En þá var eins og hvíslað væri aptur að
mér: »Allt er blekking. Rósirnar hefðu orðið
þyrnar. Enginn er sæll, nema sá, er sættir sig
við hlutskipti sitt, og möglar ekki«. • Þá sveif
mér í hug, að fáir mundu vera sælir. Og mér
létti svo við þá hugsun, að eg reis upp, staulað-
ist heim óstuddur og lagðist upp í rúmið mitt.
Það var komin einhver kyrrð og ró í hugaminn
og eg möglaði ekki framar yfir hlutskipti mínu.
Eg fann að það sveif á mig svefnhöfgi og eg
óskaði, að vakna ekki aptur, þótt hásum-
ar væri og sólin skini skært. Eg var orð-
inn nokkurnvegmn sáttur við sjálfan migoglífið,
og hafði fengið mikinn hluta af skuld lífsins við
mig greiddan með þéim orðum, er hljómuðu í
eyrum mér, er eg var að sofna: »Allter blekk-
ing. Rósirnar héfðu orðið þyrnar«. En
var sú hugfró ekki einnig blekking? Hver ræð-
ur þá gátu ?
Hreidar.
,Plógur‘
er eitt hið bezta og vænlegasta, sem eg hef lengi
séð í þá átt, sem vér þörfnumst helzt, þ. e. að
efla von almennings og traust til þess að land-
búnaður vor geti þrifizt. — Ritið er að sönnu lítið,
en þeim mun ódýrara er það líka, og það er að
öllu leyti ágætlega samið að minni hyggju það, sem
komið er.
Vonandi er, að bændur sjái ekki eptir aðkaupa
þessar handhægu og hentugu bendingar útgefand-
ans, því það borgar sig margfaldlega að fá eina
góða ráðlegging í búnaði fyrir svolítið verð, hvað
þá svo margar ágætar upplýsingar, sem Plógur
væntanlega mun gefa um ýmislegt. Vér bændur
megum elcki horfa í það, að láta nokkra aura af
hendi gegn því, að menn leggi sig fram um, að
fræða okkur og ráðleggja. Þá væri nær fyrir okk-
ur að minnka við okkur kaup á einhverju þarfleys-
isblaðinu eða meiningailausum ritum, sem nú eru
gefin út, að því er sýnist, einungis til að auðga þá
er verzla með pappír og bleksvertu.
Fyrsta tölublaðið er einkanlega um áburð og
notkun hans. Eru þar margar mjög góðar vísbend-
ingar[í, enda er áburðarmeðferðin eitt meginatriðið í
búnaðinum og aldrei nógsamlega brýntfyrir mönnum
að hirða hann, drýgja og hagnýta sér sem bezt.
Áburðurinn er fóður jarðarinnar, eins og grasið er
fóður skepnunnar — og til sannindamerkis um það
hversu mjög áburður er metinn hjá þeim, semkunna
að búa eptir réttum reglum mætti minna á söguna
um norskabóndann, sem lagði hlandforina sína alla
í botn og veggi með silfurspesíum til þess að sýna
að hann áliti forina sanna gullnámu og grundvöll
undir búi sínu, og þó þetta megi virðast í fljótu bragði
óþarfa eyðsla, þá er það þó ekki, þegar betur er
aðgætt. Slíkt bragð sem þetta, getur vakið athygli
og áhuga ýmsra, sem ekki virtu mikils áður það
sem Norðmaður þessi hafði orðið auðugur af.
— Við skulum kaupa „Plóg“, piltar. Hann er
þess verður og gefinn út í hollu og góðu skyni.
Nærsveitamadur.
Með , LA U RA‘
kom til verzlunar Stlirlu JÓnSSOnar:
Kaffibrauð, margar teg.
Brjóstsykur, margar teg.
Ostur.
Allskonar matvara.
Þorskalýsi
Bronse.
. Bronsetinktúra.
Hri 1/ \[ PQ\/OrQ helbredes aldeles og
L/I IKKtfbygtf sikkert med
Ph. Wencks Aretieoholthó.
Helbredelse kan fuldbyrdes uden Patientens
Vidende; </2 Pk. 6 Kr. l/i Pk. 10 Kr. franco
mod Belöbet förud. Gen. Agentfor Island söges.
Aug. Davlds Gothersgade 103.
Köbenhavn