Þjóðólfur - 21.04.1899, Síða 1

Þjóðólfur - 21.04.1899, Síða 1
» ÞJÓÐÓLFUR 51. árg. Reykjavík, föstudaginn 21. apríl 1899. Nr. 19. 2g5jg§P~ Þeir sem vilja taka að sér umsjón gistihússins „ Valhallar“ á Þingvöllum í sum- ar og hafa þar á hendi veitingar handa ferðamönnum, verða að semja við oss nndir- ritaja fyrir 20. maí nœstk. Húsið verður albúið til notkunat utn eða fyrir miðjanjúni. Stjórn „Skálafélagsins", Rvík 20. apr. 1899. Sigfús Eymundsson, Tryggvi Gunnarsson, Hannes Þorsteinsson. Um hreppshelgina og fátækraflutningir.n. Eptir Jóhann Eyjólfsson. Eg býst við, að sveitarstjórnarlögin verði höí'ð til meðferðar á r>æstkomandi þingi, og er það mikið hamingjuspursmál fyrir þjóðina, hvern- ig hún fær þessi lög úr garði gerð frá full- trúum sínum. Það er séra Þorkell Bjarnason, sem mest og bezt hefur beitt sér fyrir þessu máli, og er mjög virðingarvert hvern áhuga hann hefur sýnt í því, ■en því miður get eg í sumum greinum ekki fellt mig við skoðanir hans og fl., sem um það hafa ritað. Það er ekki frumvarpið frá 1897, eða lögin i heild sinni, sem eg ætla að gera að umtalsefni; það er að eins um tvö atriði, sem mig langaði til að tala fáein orð, nefnil, um hreppshelgina og fátækraflutninginn, en það er líka einmitt það atriðið í sveitastjórnarlögunum nfl. við hvað sveitfesti manns á að vera bundin, sem við sveita- bændur gerum okkur að mestu áhugamáli, þó nokkuð séu skiptar skoðanir um, hvað heppileg- .ast sé. Það eru aðeins þrjár aðferðir, sem eg man •eptir, að hafi verið nefndar til að binda hrepps- helgina við: í fyrsta lagi að hafa fæðingarhreppinn fyrir framfærsluhrepp, í öðru lagi að maður geti nnnið sér sveit á skemmri eða lengri tíma, ■og í þriðja lagi, að hver eigi þar sveit, sem hann á heima eða sem næst því. Maður gæti nú reyndar sagt, að það Tæri í sjálfu sér alveg sarna, hvað af þessu væri haft til að binda hreppshelgina við, og það væri það líka, ef hver einstaklingurinn væri óháð- ur áhrifum sveitastjórnanna viðvíkjandi því, hvar hann hefur lögheimili sitt. Eg get hjartanlega tekið undir með séra Þorkeli, þar sem hann segir: »Þjóðfélagið í heild ^ að annast um þurfamenn sína, það er ástæðulaust að metast um það, hvar þurfamað- urinn er framfærður, það hefur jafnan verið svo, að sveitaþyngslin hafa verið mismunandi í hin- aim einstöku hreppum, og þau breytast sífelldlega í hreppunum, sem fer eptir ýmsum þeim kring- umstæðum, sem lög ekki geta haft áhrif á«. Það er hér um bil áreiðanlegt, að hvað sem af þessu þrennu væri haft til að binda hrepps- helgina við, þá væru sveitaþyngslin hlutfallslega þau sömu f hreppunum jafnt fyrir það; ekkert sveitafélagi getur haft skaða á því, við hvað sveitfestin er bundin, þegar sömu lög eru um land allt; en það er einstökum mönnum, og ein- stöku fátæku fjölskylduliði, sem getur riðið það á miklu, svo lengi sem sveitastjórnirnar vilja hafa hönd i bagga með þeim, og það munu þær til lengstra laga gera, eptir því sem þærhafa vit og getu til og nú þykir hver sá sveitastjóri helzt geta staðið í stöðu sinni, og vera maður með mönnum, sem í skjóli laganna beitir mestu ofríki við þessa einstakl- inga, ef um einhverja hagsmuni hreppsins sýnist . vera að tala, og það er útaf þessum vesalings einstaklingum, sem sveitarstjórnirnar eigá opt 1 höggi og hörðu stímabraki hverjar við aðra og það fer stundum í nokkuð hart á milli þeirra, já, svo hart að vinir verða að óvinum, og frænd- ur að fjandmönnum. Hréppapólitikin hefur ver- ið, og er ennþá sá blettur á þjóðinni, sem full- komin þörf væri að fara að skola af henni. Séra Þorkell Bjarnason o. fl. álíta, að ekki sé óeðlilegra að binda hreppshelgina við neitt enfæðingaihreppinn, og ekkert sé smánarlegra en fátækraflutningurinn. Það er sérstaklega þetta tvennt, sem þeir eru að berjast fyrir að útiloka. Mér þykir þetta mjög leiðinlegt, af því það er einmitt fæðingarhreppurinn, sem eg vil láta binda hreppshelgina við, það er að segja: eg vil, að hver maður eigi þar sveit eptir 16 ára aldur, og úr því á meðan hann lifir, þar sem móðir hans átti lögheimili, þegar hann fæddist, þvl þá er girt fyrir að öllu leyti, að konur séu fluttar í aðra hreppa til að ala þar börnin, sem svo margir hafa haft fyrir grýlu, því slfkt væri þýðingarlaust, þar sem hreppshelgin er bundin við lögheimili móðurinnar, en ekki við fæðingu barnsins. Og ef kvennmaður, sem elur barn, á ekkert lögheimili þá ætti barnið að eiga þar sveit, sem móðirin er sveitlæg, en það mun mjög fátítt hér á landi, að kvennfólk eigi ekki lögheim- ili, enda optast að konur ala þar bömin, sem þær eiga heima, svo hreppshelgin væri því í sjálfu sér bundin við fæðingarhreppinn. Margir eru orðnir óánægðir með það fyrir- komulag, sem nú er, að hver eigi þar sveit, sem hánn hefur dvalið full 10 ár eptir 16 ára aldur, án þess að þiggja af sveit. Það sem sérstaklega gerir þetta fyrirkomulag slæmt, er það að sveita- stjórnirnar gera allt sem í þeirra valdi stendur til að reka þá menn í burtu úr hreppnum á ní- unda dvalarárinu, sem þær eru nokkuð hræddar við, að geti orðið sveitunum til byrði, eða þá þær neyða eða narra þá, eða fá þá á einhvern hátt til að taka sveitarlán eða sveitarstyrk, og úr þessu verður opt misklíð, og stundum mála- rekstur á milli hreppanna. Og einstakir menn verða opt fyrir megnasta órétti og skaða með þessu. Það er altltt, að fátækur maður bjargast lengi við lítil efni, og lélegar ástæður, ef hann fær að vera kyr og óáreittur á sama stað, en svo sýnist sveitarstjórninni vissara að láta hann fara 1 burtu úr hreppnum, áður en hann verður sveit- lægur, og fyrjr dugnað hennar og hyggindt verð- ur manninum svo komið í burtu, en maðurinn, sem hefur orðið fyrir þessari meðferð, að vera flæmdur frá ábýli sínu með fjölskyldulið sitt, bfður opt við það stórtjón, sem hann fær aldrei bætur á og fer kannske undir eins á sveitina, einmitt fyrir þessa meðferð, og þar að auki er hægt að geta þess til, að tilfinningar hans og konu hans séu tilfinnanlega særðar með þessarí aðferð. Þá er að minnast á það fyrirkomulagið, sem sumir virðast nú helzt hafa augastað á, það er að hafa dvalarhreppinn fyrir framfærsluhrepp: að hver eigi þar sveit, sem hann á heima, eða þar sem hann er búinn að eiga heima eitt ár. Þetta fyrirkomulag álít eg verst og hættu- legast at öllu því, sem mönnum hefur dottið í hug að hafa til að binda hreppshelgina við. I staðinn fyrir að eptir núgildandi lögum er reynt að standa á móti þvf að bláfátækir menn séu svo lengi í sveitinni í einu, að þeir verði sveitlægir, þá væri, ef þetta fyrirkomulag yrði að lögum, lítt mögulegt fyrir nokkurn mann, sem væri mjög fátækur eða á einhvern hátt fatlaður að eignast heimili nema á sinni sveit; þá mundi sveitastjórnunum fyrst fyrir alvöru gefast kostur á að leggja fram dugnað sinn og hyggindi, og í samtökum við jarðeigendur og jarðaumráðend- ur og aðra sveitabændur mundu þær af öllum kröptum standa á móti því, að fátækir búentíur fengjuheimilisfestuíhreppnum, einnig allt farlama fólkoggamaltfólkogyfirleitt allt það fólk, semein- hverjar ástæður værutilaðhaldaað gætu orðiðósjálf- bjarga þegar minnst vonum varði. Þaðersama um hvaða stöðu er að tala, hvort heldur það er búendastaða, húsmennska, lausamennska eða vinnu- mennska; það mundi þykja mesti ódrengskapur, og ganga landráðum næst, að hleypa slíku fólki inn í sveitina, eða á heimili sitt, og sá sem það gerði yrði talinn óalandi og óferjandi og allt þetta fólk, sem er nokkuð margt, hlyti því undir flestum kringumstæðum að vera þar kyrt alla sína æfi, sem það hefur einu sinni lent, hvort sem því er það geðfellt eða ógeðfellt, haganlegt eða óhag- anlegt. Af þessu leiddi því óbeinlfnis eitthvert hið megnasta atvinnu-ófrelsi, sem maður getur hugsað sér. Það er ekki til neins að vera að tala um það, að þetta mundi ekki almennt eiga sér stað, og að allir betri mennirnir séu hafnir yfir þess- háttar skrílmennsku, nei! það er ekki til neins að vera að tala um það á meðan við sjáum, að hreppapólitfkin hreykir sér eins hátt í sessinum og hún gerir, og allir færari og betri mennirnir, nota sfna hæfileika til að ýta af sér ómegð og álögum með öllu leyfilegu móti yfirá nágranna- hreppana. Og svo er annað, sem eg er hræddur um að mundi verða brúkað, ef þetta yrði að lögum. Það á sér opt stað, að eitt hreppsfélag á jörð, sem liggur í annari sveit t. a. m, Tunguhrepp- ur á jörð, sem heitir Móakot og liggur í Strandar- hreppi. Þá er það innanhandar fyrir sveitastjórn- ina í Tunguhreppi að byggja einhverjum bláfá- tækum manni jörðina Móakot, manni sem hefur verið á hrakólum hjá þeim innan um hreppinn, og er rétt kominn á sveitina. Þessum manni byggja þeir svo Móakot til eins eða tveggja ára, eða réttara sagt, láta hann vera þar þangað til hann er kominn á sveitina. Þá byggja þeir honum út og segja, að nú geti Strandhreppingar • annast hann, en senda svo aptur annan bónda að Móakoti, sem er af líku tagi og hinn fyrri. Og það er Ifka hægt að koma svona hreppa- pólitík við, þó hreppsfélagið eigi enga jörð, sem liggur í annari sveit; það þarf ekki annað en að einstakir menn eigi hana. T. d. hreppstjórinn, oddvitinn eða einhver úr Strandarhreppi, á jörð, sem liggur í Tunguhreppi, og þessi jarðareigandi annaðhvort gerir það fyrir hreppsfélag sitt eða hann hugsar sér það sjálfur, að hann skuli nú launa Tunguhreppingum fyrir bygginguna á Móa-

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.