Þjóðólfur - 19.01.1900, Blaðsíða 3
II
mjög sniðin eptir lögum íshúsfélagsins í Reykjavík.
I stjórn voru kosnir: Olafur Árnason kaupm. á
Stckkseyri, Jón Jönasson verzlunarstjóri s. st. og
Guðm. Sæmundsson kennari s. st. I varastjórn var
kosinn Jón Pálsson organleikari. Endurskoðunarm.
séra Olafur Helgason á Stóra-Hrauni og Eggert
Benediktsson pöntunarfélagsstjóri í Laugardælum.
Varaendurskoðunarmaður P. Nielsen verzlunarstj. á
Eyrarb. Nokkrir Eyrbekkingar gerðust hluthafar í
Jtessu fél. og telja allir það bráðnauðsynlegt. í ráði
er að konu upp íshúsi í Þorlákshöfn og hafa þar
nokkurskonar útibú frá fél. á Stokkseyri, enda er þar
aflavænlegast tíl síldveiðar. o. s. frv., sem fél. hefir
f hyggju að koma á, sem allra fyrst."
SkípBírand. Enn er eitt gufuskipið
strandað hér við land. Næstl. gamlárskvöld rak
» V í k i n g « , skip Thor. E. Tuliniusar stórkaup-
manns á land á Sauðárkrók, og brotnaði þar í
fjörunni, en vörur skemmdust.
Um Tejo-strandið 7. nóv. f. á. er nú sann-
frétt, að ekki hafi bjargazt meira en 100 skipd.
af saltfiski lítt skemmd, hitt nærri gegnblautt og
að litlu nýtilegt. Uppboðið hljóp á 5. þús. kr.,
en skipskrokkurinn var ekki seldur. Hafði skip-
ið strandað fram undan Almenningsnöf á sýsiu-
mótum Skagafjarðar og Eyjafjarðar, og eru lend-
ingar illar þar í nánd (við hina svo nefndu Dala-
bæi) og illt aðstöðu til björgunar, enda hafði
skipið brotnað til muna von bráðar.
Múebruni, Hinn 15. des. f. á. brann f-
búðarhús Bárðar búfræðings Guðmundssonar á
Hesteyrarverzlunarstað í Norður-ísafjarðarsýslu.
Er skrifað af Isafirði, að eigaudi hússins, Bárður
þessi, hafi játað fyrir sýslumanni, að hann hafi
sjálfur kveikt í húsinu.
Hvalkálf rak fyrir skömmu á Krossi í
Austur-Landeyjum.
Óveitt prestaköll: Mosfell í Grímsnesi
(Mosfells-Miðdals-Klausturhóla- og Búrfellssóknir).
Metið 1474 kr. 01. a. Lán hvílir á prestakallinu
tekið 1892, upphaflega 750 kr., er afborgast með 6%
á 28 árum. Fráfarandi prestur nýtur eptirlauna af
brauðinu samkv. lögum. Auglýst 10. jan. Veitist
frá næstu fardögum. Umsóknarfrestur til 22. febr.
Reynivellit (Reynivalla- og Saurbæjarsóknir) í
Kjalarnessprófastsdæmi. Metið 1530 kr. 45 a. Lán
hvílir á prestakallinn tekið 1897, að uppliæð 2800
kr., er afborgast á 28 árum með 100 kr. á ári. Frá-
farandi prestur nýtur eptirlauna af brauðinu samkv.
lögum. Auglýst 13. jan. Veitist frá næstu fardög-
um. Umsóknarfrestur til 1. marz.
Mannalát. Nýdáinn er á': Kiðabergi í
Grímsnesi Jón Halldórsson, fyr bóndi á Búrfelli í
sömu sveit og síðar á Suður-Reykjum í Mosfellssveit,
á níræðisaldri. Hann var son Halldórs prests í
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd Magnússonar sýslu-
manns á Geitisskarði Gíslasonar biskups á Hólum
Magnússonar, en bróðir séra Jóns áJIBreiðabólstað í
Fljótshlíð (J- 1858), og séra Arngríms á Bægisá
(j- 1863). Jón var fyrrum auðugur að fé og með
helztu bændum hér sunnanlands fyrir ýmsra hluta
sakir, en hamingjulítill sjðari hluta æfi sinnar, og fyrir
löngu orðinn örsnauður að fé.
Hinn 27. des. f. á. andaðist Jón Einatsson
bóndi á Garðsstöðum í Ögurhrepp við ísafjarðar-
djúp, einhver merkasti bóndinn þar um slóðir.
Hinnji 5. þ. m. andaðist Jóhann Runólfsson
bóndi í Arabæ hér í Reykjavík, faðir Magnúsar
læknaskólakandídats, sern nú er utanlands.
Fyrirspurnir.
1. Mega læknar láta taka lögtaki eða fjárnámi
meðalaskuldir eða borgun fyrir ferðir til sjúklinga?
Svat: Nei.
2. Mega þeir taka fyrir ferðir sínar.'ef þeim svo
sýníst, meira en lög ákveða ?
Svar: Frekar en lög mæla fyrir er ekki skylt
að borga.
3. Eru þeir ekki skyldir að inna af hendi sund-
urliðaðan reikning fyrir hverja sérstaka ferð, ef
skuldunautar óska þess ?
Svar: Jú.
wm~ T H U L E
er útbreiddasta lífsábyrgðarfélag á Norðurlöndum.
Lág iðgjöld, hár bonus, enginn aukakostnaður,
þýðingarmikil hlunnindi fyrir sjúklinga. THULE
er stjórnað undir yfirumsjón sænsku ríkisstjórnar-
innar. Upplýsingar um THULE fást ókeypis
hjá umboðsmönnum félagsins og aðalumboðs-
manninum.
BERNHARÐ LAXDAL.
Patreksfirði.
Tilsögn í garðyrkju
geta einn eða fleiri ungir menn fengið á næst-
komandi vori hjá undirrituðum, í 6 viknatíma,
frá byrjun maímánaðar, með þeim skilmálum,
að þeir vinni að garðrækt 10 tíma a dag án
endurgjalds.
Reykjavfk 12. jan. 1900.
Einar Helgason.
Greiðasala.
Hér eptir seljum vér undirritaðir ferðamönnum
greiða fyrir þá borgun, sem nú skal greina: hýsing
manns náttlangt 25 aura, hver málsverður 20 aura,
kaífibolli 10 aura, hýsing hests 10 aura, töðupund
5 aura og útheyspund 3 aura. En ekki skuldbind-
um vér okkur tii þess, að hafa alit það til, sem um
kann að verða beðið.
Helgafellssveit 16. desember 1899.
Þ. Bergmann. Loptur Halldórsson.
Dældarkoti. Kongsbakka.
Jónas Sigurðsson. Asgrímur Jóhannsson.
Helgafelli. Staðarbakka.
Guðjón Guðtnundsson. Hallur Kristj'ánsson.
Arnarstöðum. Gríshóli.
Gísli Sigutðsson. Jóhann Magnússon.
Saurum, Drápuhlíð.
Guðmundur Bjarnason.
Hofstöðum.
Bygningsmaterialer.
Et Trælastfirma í Norge önsker at komme í Forbindelse með större Trælastexportör-
er eller Bygmestere paa Island for Export af Bygningsmaterialier — især hövlede Bord.
Henvendelse,
Brugsejer E. M. OLSEN
Blegebakkens Dampsag & Hövleri.
Skien — Norge.
40
„Ef saga yðar er sönn, þá hljótið þér þó að eiga ein-
hverja vini eða kunningja, er þér gætuð skýrt frá vandræðum
yðar. Ef þér því töluðuð sannleika og ef þér hefðuð haldið,
að yður gæti orðið það að liði, munduð þér hafa gert þeim boð
í tíma, en nú er það orðið of seint«.
„Já, herra dómari, þér hafið sjálfsagt rétt að mæla, að það
sé nú of seínt, en það er hægt að segja: „gerið vinum yðar
boð*, þegar menn eru lokaðir inni í fangelsi, eins og eg, og
kunna hvorki að lesa né skrifa og vita heldur ekki, hvar þá er
nð finna. Vinir mínir eru ef til vill í Ameríku eða þá í Afríku,
hvernig get eg þá gert boð eptir þeim? Að minnsta kosti get
æg það ekki svo fljótt, að það geti komið mér að nokkru liði.
Nei, eg á engrar hjálpar að vænta, herra dómari, þér getið þess
vegna látið hengja mig undir eins",
Allir, sem voru inni í dómssalnum, litu forviða á mann-
inn, sem blátt áfram skoraði á dómarann að flýta fyrir dauða-
refsingunni, en staðhæfði jafnframt, að hann væri saklaus. Dóm-
arinn varð auðsjáanlega hrærður og eptir litla þögn mælti hann:
„Akærði! Rétturinn vill ekki láta hengja mann, sem vera
kynni saklaus. Er enginn maður hér staddur, sem getur bor-
ið yður vitni?"
Thomas Wilson leit örvæntingaraugum um allan salinn.
„Það held eg varla —“ mælti hann, en allt í einu þagn-
aði hann og undrunarsvipur kom á andlit hans; hann hallaðist
áfram og það var eins og augun ætluðu út úr höfðinu á hon-
um. Ósjálfrátt sneru allir sér við og litu í sömu átt og fang
inn. Hann einblíndi á ferðamanninn, sem sezt hafði að í
Ljónaveitingahúsinu; hann benti hátíðlega á bekkinn, semferða-
maðurinn hafði sezt á og mælti með ákafri geðshræringu:
„Þarna situr maður, sem gæti varið mig, efhann vildi".
37
sinnar og bláu augun voru eins og tindrandi stjörnur í hvítu
þokulopti, og hann vissi varla af því, að hann tók hönd hennar
og kvaddi hana — með titrandi hjarta og sárum söknuði ráfaði
hann út og tárin læddust eitt og eitt ástarhrein niður kinnarn-
ar, er hann gekk niður götuna.
. . Elskaði hann hana ekki? —
„Með leyfi!" — Það var géstur, sem vildi fá að sjá blöð-
in, sem lágu á borðinu hjá Páli og hann vaknaði úr draumum
sínum, borgaði — og gekk heim á leið.
Það var farið að rigna, eins og rignt getur í Höfn. Þétt-
ar þráðbeinar gusur skullu á hellunum og regnið streymdi foss-
andi niður með suðu og ískri. Það var ekki annað fyrir hendi
en að flýta sér heim. Páll sveipaði um sig yfirhöfninni og
gekk álútur áleiðis. Úr huga hans var alveg horfin öll löngun
til að sækja í sollinn og glaða kunningjahópinn. Hann vildi
vera einn. Hann var að hugsa um móður sína og hvað hún
mundi segja um þau áhrif, sem hann hafði orðið fyrir í Höfn,
hvað trúna snerti. Hann mundi eptir, að hann var farinn að
hugsa, áður en hann fór úr slcóla og einkum hafði hugsun lians
vaknað við altarisgöngurnar; hann hafði trú á þeim til þess að full-
nægja því sem presturinn og kverið kenndi, að nauðsynlegt
væri, og skoðaði kvöldmáltíðina sem endurminningarhátíð, og
þá var leiðin lögð til hugleiðinga um endurlausnarverkið og
dauða Krists sem guðs sonar. Hann gat trúað á Krist sem
frelsara mannkynsins, sem sýndi því leiðina til ljóssins og sann-
leikans og guðs, sem vildi að friður og eindrægni og jöfnuður
ríkti á jörðunni og sagði við lærisveina sína: elskið hver ann-
an. í þessum hugleiðingum gekk hann heim og lagðist til
hvíldar, en áður en hann sofnaði, bað hann móður sína að fyr-
irgefa sér, ef hann væri villur vegar og að hann hafði við ad