Þjóðólfur - 02.03.1900, Side 4
4o
Um Útskála sækir að eins hinn setti
prestur þar, séra Friðrik Hallgrimsson.
Veitt prestakall. Rípur-prestakall í
Skagafirði er veitt af landshöfðingja 17. f. m. séra
Jóni O. Magnússyni á Mælifelli.
Óveitt brauð: Mælifell (Mælifells og
Reykjasóknir) 1 Skagafjarðarprófastsdæmi. Metið
1071 kr. ig. a. Lán hvílir á prestakallinu tekið
1895, upphaflega 1500 kr., er endurborgast með
6% vöxtum í 28 ár. Umsóknarfrestur til 10. apríl.
Veitist frá næstu fardögum.
Rannsókn í Nilssons málinu er nú lok-
ið vestra (á Isafirði og Dýrafirði). Hr. Einar
Benediktsson málafærslumaður, er skipaður hafði
verið til að halda próf í málinu, kom hingað að
vestan 25. f. m. með gufuskipi frá Isafirði, er fór
til útlanda, en hleypti E. B. á land við Garðskaga.
Við rannsókn þessa munu hafa sannazt svo mikl-
ar sakir á Nilsson , að sennilegt þykir, að dóm-
ur hans harðni, en fyrir undirrétti (í Danmörku)
er mælt, að N. hafi þegar verið dæmdur í 1 árs
betrunarhúsvinn u.
Mesta veðurblíða hefur verið hér
allan næstl. febrúarmánuð, að kalla má, syo
að menn muna naumast annað eins góðviðri um
þetta leyti árs.
Þilskipin eru nú að leggja út héðan til
aflafanga þessa dagana; lögðu 8 hin fyrstu af
stað í gær.
Fyrirspurn.
Getur bæjarfógetinn í Reykjavík verið þekktur
fyrir að halda sem fulltrúa mann, er gerzt hef-
ur handveðslánandi („Pantelaaner11)? Sú atvinna
þykir í öðrum löndum ekki neitt sérlega „fín“, og
það mundi hvergi þolast nema hér, að maður, er
þá atvinnu ræki, gæti jafnframt verið „fullmektugur"
hjá háttstandandi embættismanni eða lögreglustjóra.
Svar'. Vér getum ekkert dæmt um það, hvað
bæjarfógetinn getur verið þekktur fyrir gagnvarc
bæjarmönnum, því að vér erum honum ekki neitt
handgengnir. Réttast fyrir spyrjanda að snúa sér til
bæjarfógeta sjálfs ! þessu efni. Það er hverju orði
sannara, að það á ekki sem allra bezt við, að „full-
mektugur" hjá bæjarfógeta reki þá atvinnu, er hann
hefur auglýst, því að henni er svo háttað, að nauð-
synlegt væri, að banna hana hér með lögum. Að
minnsta kosti ætti „prívatmönnum“ ekki að leyfast, að
gera sér hana að gróðavegi. Nokkuð öðru máli væri
að gegna, ef bæjarfélagið sjálft hefði umsjón yfir lán-
stofnun, þar sem fátæklingar gætu fengið lítil bráða-
birgðarlán gegn handveði og hóflegum vöxtum.
Bæjarstjómin þyrfti að taka málefni þetta til umræðu
og athugunar.
Lestrarfélag Reykjavíltur
heldur að öllu forfallalausu ársfund sinn mánu-
daginn 5. marz næstkomandi á »Hotel Island«
kl. 87^ e. h. Þar fer fram uppboð á bókum,
blöðum og myndum.
TU letgu óskast tvö herbergi (annað
svefnherbergi) með góðum húsgögnum, handa ein-
hleypum manni frá 1. apr. til 30. júní. — Ritstj.
vísar á.
Mikiö af ódýrum
og sterkum KARLMANNAFÖTUM er nú
til sölu hjá mér, saumuðum á vinnustofu
minni.
Guðm. Sigurðsson
klæðskeri.
1 verzlun
Vilhjálms Þorvaldssonar
á Akranesi
eru keypt allskonar brúkuU íslenzk
frímerki.
NORDISK BRANDFORSiKRING
tekur í ábyrgð hús, vörur, húsgögn o. fl. fyr-
ir lœgra iðgjald en önnur félög eru vön að
gera hér á landi.
Halldór Jónsson bankagjaldkeri er um-
boðsmaður fyrir Reykjavík, Kjósar- og Gull-
bringusýslu, Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Lefoliis verzlun á Eyrarbakka hefur um-
boð fyrir Arnessýslu og Rangárvallasýslu.
Leiðarvísir til lífsábyrgðar
faest ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.
J. Jónassen, sem einnig gefur þeim, sem vilja
tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar upplýsingar.
Umboðsmenn á Islandi
fyrir lífsábyrgðarfélagið
Thule:
Hr. Einar Gunnarsson, cand. phil., Reykjavík
» Otto Tulinius, káupm., Hornafirði
» Gustav Iversen, verzlunarm., Djúpavog
» Guðni Jónsson hreppstjóri, Eskifirði
» Stefán Stetánsson, kaupm, Seyðisfirði
» Ólafur Metúsalemsson, verzlunarm.,
Vopnafirði
Séra Páll Jónsson, Svalbarði í Þistilfirði
Hr. Jón Einarsson, kaupm., Raufarhöfn
» Bjarni Benediktsson, verzlunarm., Ilúsavík.
Séra Arni Jóhannesson Grenivík.
Hr. Baldvin Jónsson, verzlunarm., Akureyri
» Guðmundur S. Th. Guðmundsson kaupm.
Siglufirði
» Jóhannes St. Stefánsson kaupm.
Sauðárkrók
» Halldór Árnason, sýsluskrifari Blönduósi
» Búi Ásgeirsson, póstafgr.m. Stað í
Hrútafirði
» Jón Finnsson, verzlunarstjóri Stein-
grímsfirði
» Björn Pálsson, myndasm. Isafirði
» Jóhannes Ólafs son, póstafgr.m. Dýrafirði
Séra Jósep Hjörleifsson Breiðabólstað, Skóg-
arströnd.
Hr. Oddgeir Ottesen, kaupm. Akranesi.
Aðalumboðsmaður fyrir „T H U L E“,
Bernharð Laxdal.
Patreksfirði.
Hér með viðurkenni eg undirskrifaður, að herra
Sigurður Benediktsson á Geysi hefur frá því í vor
haft leyfi til að brúka skipið mitt, og nú síðast í
vetur suður í Keflavík að sækja upsa.
Reykjavík 28. febrúar 1900.
Gudmundur Þórdarson.
Eg undirskrifaður skora hér með á þá menn,
sem hafa látið sér það um munn fara, að eg hafi
í síðari upsaferð minni á nokkurn hátt gert þeim
rangt til með kaup eða sölu á nefndum farmi, að
sanna þau orð, annars ber að skoða þau ómerk
og þá menn ósannindamenn.
Geysi, 1. marz 1900.
Sigurður Benediktsson.
Reningabréf með utanáskript „hr. Jón
Árnason, Reykjavík" hefur nýlega tapazt hér í
bænum. Ráðvandur finnandi skili bréfinu á af-
greiðslustofu Þjóðólfs gegn fundarlaunum.
Alþýðufyrirlestur stúdentafélags-
Ins á sunnudaginn kemur. Ingeniör Sigurður
Thoroddsen talar um vegi.
Ðæmalaust er það! Nýtt hús við Skóla-
vörðustíg fæst keypt fyrir hálfvirði.' Menn snúi
sér til Gísla Þorbjainarsonar,
Reykjavík.
Aldrei framar á æfinni býðf1SÍn5ott
fyrir auka-útsala.
Aðeins 6 kr.
Veljið úrið „La Vigilant", sem
er dregið upp án lykils. 6 stykki
fást aðeins fyrir
30 KRÓNUR.
25 kr.i 8 ,karat‘ gullúr
með akkerisgangi handa karl-
mönnum með 2 gullkössum,.
50 mm. að stærð, 15 ekta stein-
um, skriflegri tryggingu fyrir að
úrin gangi rétt, með haldgóðu,
óbreytilegu gulli, eins og í 400 kr. úrum, sel eg fyr-
ir einar 25 kr. Þar að auki samsvarandi úrkeðjur
á 2 kr. 50 a. — Gullúr handa kvennmönnum á 23
kr. Silfurúr með fínasta akkerisgangi, 15 rubístein-
um og 3 þykkum, ríkulega gröfnum silfurkössum,.
vandlega stillt, viðurkennd beztu úr í heimi, áður 60
kr., sel eg nú fyrir einar 15 kr. Silfurúr handa
kvennmönnum með 3 silfurkössum á 14 kr. Send-
ist kaupendum að kostnaðarlausu og með ábyrgð,
en borgun fyrir hið pantaða sendist fyrirfram. Pant-
anir geta menn óhræddir stílað til; Uhrfabrik
M. Rundbakin. Wien , Berggasse 3.
Verðskrá með meir en 500 myndum er send ókeypis.
I. Paul Liebes Sagradavín og
Maltextrakt með kinín og járni
hefi eg nú hnft tækifæri til að reyna með ágæt-
um árangri. Lyf þessi eru engin leyndarlyf (arc-
ana); þurfa þau þvl ekki að brúkast í blindnþ
þar sem samsetning þessara lyfja er ákveðin og
vitanleg. Sagradavínið hefur reynzt mér ágætlega
við ýmsum magasjúkdómum og taugaveiklun, og
er það hið eina hægðalyt, sem eg þekki, er verk-
ar án allra óþæginda, og er líka éitthvað hið ó-
skaðlegasta lyf.
Maltextraktin með kína og járni er hið
bezta styrkingarlyf, eins og efnin benda á, hið
bezta lyf gegn hvers konar veiklun, sem er, sér-
staklega taugaveiklun, þreytu og lúa, afleiðingum
af taugaveiki, þróttleysi magans o. s. frv. — Lyt
þessi hef eg ráðlagt mörgum með bezta árangri
og sjálfur hef eg brúkað Sagradavínið til heilsu-
bóta, og er mér það ómissandi lyf.
Reykjavík 28. nóv. 1899.
L. Pálsson.
Einkasölu á I. Paul Liebes Sagrada-
víni og Maltextrakt með kínín og
járni fyrir Island hefur undirskrifaður. Útsölu-
menn eru vinsamlega beðnir að gefa sig fram.
Reykjavík í nóvember 1899.
Björn Kristjánsson.
Lengur en heilt ár hef eg þjáðst af kvala-
fullri óhægð fyrir brjóstinu og taugaveikl'un og
á þessum tíma hef eg stöðugt neytt margra
læknislyfja án þess að öðlast nokkurn bata;
þess vegna fór eg að reyna Kfna-lífs-elixir
hr. Valdemars Petersens; hef eg nú neytt úr
hálfri annari flösku af honum, og finn þegar
mikinn létti, er eg á eingöngu elixírnum að
þakka.
Arnarholti á íslandi.
' Guðbjórg Jónsdóttir.
KÍNA-LÍFS-ELIXIRINN fæst hjá flestum kaup-
mönnum á íslandi.
Til þess að vera vissir um, að fá hinn ekta
Kína-llfs-elixír, eru kaupendur beðnir að líta vel
V. P.
eptir því, að-þý-standi á flöskunum í grænu lakki,.
og eins eptir hinu skrásetta vörumerki á flösku-
miðanum: Kínverji með glas í hendi, og firma-
nafnið Waldemar Petersen, Nyvej 16, Köbenhavn.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theol.
Glasgow-prentsmiðjan.