Þjóðólfur - 09.03.1900, Side 4
44
Frá ófríðnum.
Ófarir Búa.
Kimtoerley og Ladysmith leystar
úr herkvíum.
Cronje hershöfðingi og lið hans á
valdi Breta.
Að eins vikugamlar fregnir af Búastrídinu syðst
sunnan úr Afríku (eptir enskum blöðum til 3. þ. m.),
getur Þjóðólfur flutt lesendum sinum í dag. Fréttir
þessar konm með enskum botnverpli í gær, og
og eru hinar sögulegustu, en því miður verður
hér að eins birt stutt ágrip, sakir þess, að blaðið
var að mestu leyti sett í gærkveldi, er fréttirnar
komu. Aðalatriðið er, að nú hafa Búar lotið al-
staðar mjög í lægra haldi íyrir Bretum, oger þar
fyrst frá að segja, er French hershöfðingja Breta
tókst að brjótast áfram til Kimberley og leysa bæ
þann úr herkvíum Búa. Láta blöðin mjög yfir
því, hve för hans hafi verið fljót og frægileg, því
að með riddaraliði og fótgönguliði hafi hann á
4 dögum komizt 90 (enskar) mílur og sópað Bú-
um hvarvetna burtu af leið sinni, en misst að eins
50 manns á þeirri ferð. Herlið hans var alls um
10,000. Að kveldi 15. f. m. hélt hann innreið
sina í Kimberley og var tekið með fögnuði mikl-
um af Cecil Rhodes og hermönnum þeim, er þar
höfðu svo lengi kvíaðir verið; grétu margirþeirra
af gleði við þessa samfundi. Litlu síðar kom
Methuen lávarður frá Magersfontein til Kimberiey.
Hafði Cronje hershöfðingi með aðalherstyrk Búa
þeim meginn leitað undan frá Magersfontein nið-
ur með Modderá inn í Oranjeríki, en Bretar
sóttu eptir. Lagði French að vörmu sporiafstað
frá Kimberley til móts við þá Roberts og Kit-
chener, er komu að sunnan með miklu liði. Var
þá Cronje kominn í úlfakreppu, og loks algerlega
timkringdur af Bretaher á allar hliðar, sunnudag-
inn 18. f. m. Sló þar þegar í mikinn bardaga, er
stóð allan þann dag til kvelds. Var þá hiti mjög
mikill og þjáðist lið Breta mjög af þorsta, en ó-
mögulegt var að ná í vatn. Ákaft þrumuveður
skall á síðari hluta dagsins með regni miklu og
svalaði það liðinu nokkuð. jMacdonald hershöfð-
ingi (Breta) særðist, en ekki hættulega. Daginn
eptir var skothríðinni haldið áfram, og var þá
French kominn til orustustaðarins. Skoraði Ro-
berts þá á Cronje að gefast upp, en hann tók
því fjarri. Hvenær sem hlé varð á skothríðinni
voru Búar önnum kafnir að hlaða sér vígi og bú-
ast um, sendu þeir boð tiJ Kitchener og báðu um
24 stunda frest til að greptra hina föllnu, en ætl-
nðu sér að nota þann tíma til viðbúnaðar, en
Kitchener svaraði, að þeir yrðu annaðhvort að
halda áfram orustunni eða gefast upp, og kusu
þeir þá fyrri kostinn. Þeir Roberts hugsuðu sér
nú að gera út af við Cronje í einni svipan, og
og hófst því enn voðaleg skothríð þriðjudaginn
20. f. m. Segir fregnriti einn, er þar varstaddur,
að hann hafi aldrei vitað þess dæmi, að 110 fall-
byssum hafi verið miðað í senn á svæði, er ekki
hafi verið stærra en ensk míla á hvern veg, en
svo var þá kreppt að Búum. Samt sem áður
stóðust þeir þessa voðaskothríð allan daginn, og
Cronje neitaði hvað eptir annað að gefast á vald
Breta, þótt honum væri sýnt fram á, að frekari
mótspyrna væri ekki til annars, en slátra mönn-
om til ónýtis. Kvaðst hann fyr mundi láta saxa
sig og alla sína menn sundur. Þó fór svo að lok-
um, eptir 9 sólarhringa innikróun og dæmafáa
vörn gegn nær óþrotlegri skothríð frá öllum hlið-
um, að hann varð að gefast upp fyrir Roberts
skilyrðislaust með liði því, er hann þá hafði ept-
ir og var um 4000 manna. Þetta var snemma úiorg-
uns 27. f. m. Jafnvel ensk blöð dást mjög að hinni frá-
bæru hreysti hansog Búa við þetta tækifæri og segja,
að vörn þessi muni lengi uppi vera, gegn jafn-
miklu ofurefli, er við var að eiga, svo að segja á
beisvæði. Þá er fregnin um uppgjöf Cronjes og
handtöku liðs hans barst til Englands varö mikill
fögnuður um land allt, og þótti nú sýnt, að Búar
mundu ekki lengi við hrökkva. Þess var og
skammt að bíða, að Búar biðu nýjan hnekki.
Nú víkur sögunni til Bullers á austurtakmörk-
um ófriðarstöðvanna. Hann hafði þrisvar sinnum
komizt norður yfir Tugelafljót og freistað að leysa
Ladysmith úr læðingi, en ávallt orðið að hrökkl-
ast aptur suður yfir fljótið og beðið mikið mann-
tjón. Síðustu daga f. m. gerði hann 4. atrennuna,
og hörfuðu Búar undan smátt og smátt. Féllþar
meðal annara dóttursonur Krilgers forseta. Loks-
ins sást frá Ladysmith, að lið Breta var að komast
upp eptir hæðunum fyrir sunnan bæinn, og var
þá lostið upp margföldu fagnaðarópi af White
og ,hans mönnum, þvf að nú þóttust þeir vita, að
lausnardagurinn væri upprunninn, eptir meir en
4 mánaða umsát. Og svo varð einnig, þvf að
Buller náði hæðunum og Ladysmith á vald sitt
aðfaranótt fimmtudagsins 1. þ. m. Þykir mikil
fuiða, hve lengi White gat lengi staöizt umsátrið.
En Búar eru nú allmjög á kné komnir, er þeir
hafa algerlega orðið að rýmaNatal. Búast menn
við, að Kriiger kveðji Joubert heim til að verja
Pretoriu, en Oranjemenn skiljist við Búa, þvíað
Roberts vofir nú yfir höfuðborg þeirra, Bloemfon-
tein, og býst til að taka hana, en heitir því, að
ef Orjanemenn vflji góðfúslega leggja niður vopn-
in, þá skuli öllu eira, mönnum og fénaði, og eng-
in frekari herspjöll gerð verða þar í landi, og
ætla menn, að landsbúarmuni þeim kostum taka,
fremur en halda jafn óvænlegum leik lengur til
streitu.
Þessar miklu ófarir Búa hafa, eins og vænta
má, vakið mikla gleði heima fyrir á Englandi.
Þykjast Bretar nú hafa ráð Búa í hendi sér, og
muni ófriðurinn skjótt til lykta leiddur. Er ekki
ósennilegt, að svo verði einnig, en samt er hætt
við, að allógreitt verði Bretum að sækja Búa heim
í Transwal, og eigi munu þeir gefast upp fyr en
í fulla hnefana. En hvort sem þeir lúta í lægra
haldi fyrir ofureflinu fyr eða síðar, mun hinnar
drengilegu og harðfengu baráttu þeirra fyrir frelsi
og sjáltstæði getið með heiðri í sögunni.
Stór útsala.
Hreinsunarsala
byrjar í verzl. „Edinborg“ þ. 12. þ. m. og
verður þar seld allskonar kram- og vefnaðar-
vara með mj'óg nichtrsettu verði. Þetta er
gert til að gera rúm fyrir nýju vörurnar, sem
koma með vorinu.
Utsalan stendur að eins yfir
3 vikur
og verða þá þessar vörur settar upp aptur,
í sitt upprunalega verð.
Notið tækiærið á meðan það býðst.
Þetta er kostaboð, og mun kaupandan-
um hagnaðarmeira að verzla á þennan hátt,
en að kaupa með uppskrúfuðu verði á upp-
boðum.
Ásgeip Sigurðsson.
Hið íslenzka Bókmenntafélag
heldur hinn firra ársfund sinn þriðjudaginn
20. þ. m. kl. 5. e. m.d. í Iðnaðarmannahúsinu.
Verður þar skírt frá hag fjelagsins, rædd
mál, er upp kunna að verða borin, kosnir ní-
ir fjelagar o. s. frv. Skriflegt fundarboð mun
verða látið ganga meðal fjelaga hér í bænum
firir fundinn.
Deild fjelagsins í Reykjavík 6. mars 1900.
fíj'orn M. ÓLsen.
p. t. forseti.
Ný hálfstlgvél hafa tapazt hér í bænum.
Finnandi er beðinn að skila þeim á afgreiðslustofu
Þjóðólfs gegn fundarlaunum,
Ungur, reglusamup piltur, sem
kann vel reikning og dálítið í dönsku og
ensku, óskar eptir atvinnu, helzt við innan-
búðarstörf. Ritst. vísar á.
Stiidentafélagsfundur næsta laugar-
dagskveld kl. 8V2.
Umræður um Staðamdl hinfornu og afleiðingar
peirra við aðskilnað rikis og kirkju. Lektor Þórh.
Bjarnarson málshefjandi. Boðnir til að taka þátt í
umræðunum: yfird. Kristján Jónsson, dr. Jón Þor-
kelsson (yngri) og séra Lárus Halldórsson.
Hlemmiskeið
í Árnessýslu, 3ojá hndr. að fornu mati tæst til á-
búðar í næstu fardögum með lækkuðu afgjaldi.
Ágætar slægjur. Mikið af útheyi kýrgæít.
Semja mávið Ágúst Helgason, Birtingaholti.
NORDISK BRANDF0R31KRING
tekur í ábyrgð hús, vörur, húsgögn o. fl. fyr-
ir lœgra iðgjald en önnur félög eru vön að
gera hér á landi.
Halldór Jónsson bankagjaldkeri er um-
boðsmaður fyrir Reykjavík, Kjósar- og Gull-
bringusýslu, Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Lefoliis verzlun á Eyrarbakka hefur um-
boð fyrir Arnessýslu og Rangárvallasýslu.
Allar tegundiraf farfavöru, einn-
ig ýmsar tegundir af lökkum, bronze,
terpentmolia, fernisolía, blackfern-
is, gJjákvoða, (þólitur), benzin, sal-
míakspiritus, stearinolía, Vinar-
kalk, skósmiðavax, seglgerðar-
mannavax og margt fleira, sem
hvergl fæst annarsstaðar.
Allt betta selzt mjög ódýrt
í verzlun
Stuplu Jónssonap.
VOTTORÐ.
Eg undirrituð hef mörg ár þjáðst af
móðursýki, hjartslætti og þar af leiðandi
taugaveiklun. Hef eg leitað margra lækna,
en árangurslaust. Loksins kom mér til hug-
ar að reyna Kína-lífs-elixír frá Waldemar
Petersen í Frederikshavn, og er eg hafði brúk-
að úr 2 flöskum, fann eg stóran bata.
Þúfu í Ölfusi.
Ólafía Guðmundsdótttr.
KÍNA-LIFS-ELIXÍRINN fæsthjá flestum kaup-
mönnum á Islandi.
Til þess að vera vissir um, að fá hinn ekta
Kína-llfs-elixír, eru kaupendur beðnir að líta vel
eptir því, að-^-1 standi á fiöskunum i grænu lakki,
og eins eptir hinu skrásetta vörumerki á flösku-
miðanum: Kínverji með glas í hendi, og firma-
nafnið Waldemar Petersen, Nyvej 16, Köbenhavn.
Ekta anilinlitir
m
*
r+
»3
P3
3
fást hvergi eins góðir og ódýrir eins
og í verzlun
Lsturlu jónssonar
Aðalstræti Nr. 14.
C
ctí
cð
•i-j
tt.
■uinuu
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theol.
Glasgow-prentsmið;an