Þjóðólfur - 23.03.1900, Blaðsíða 3
5i
inn. — Nú væri sem stæði »Benediskuf]allveg-
urinn« ófær, en »Valtysku sveitaveginn« væri
mögulegt að fara, en það kostaði svo mikinn
tíma og fyrirhöfn, afsal ýmsra réttinda o. fl. fyr-
ir manninn, að þegar hann kæmi til Reykjavík-
ur væri það honurn einkis vert í samanburði við
tilkostnaðinn að komast þangað. Hefði nú mað-
urinn vitað þetta allt fyrirfram, gæti þá nokkur
álitið vitlegt af honum að hafa farið? Ætli það
hefði ekki verið skynsamlegra að bíða þar til
fönnina leysti aí fjallveginum, og fara svo hann,
því það er þó fljótlegra og ódýrara að fara hann,
þegar hann er fær. Það játa »ísafoldar« menn-
irnir; einnig hafa þeir víst hugmynd um, að á
eptir vetrinum komi sumar, og það muni vera
hlýrra, svo þá geti fjallvegirnir orðið færir, þó á
vetri séu ófærir. Setjum enn fremur svo, að mað-
ur í Reykjavík fyndi sérstaka mannúðarhvöt
hjá sér til þess að ferðast norður f Húnavatns-
sýslu 1 því skyni að biðja »Valtýskunni« bein-
inga, hann yrði að farasveitir, en væri orðinnsvo
naumt fýrir, að með því hann ekki gæti farið
skemmstu leið, nfl. fjöll yrði enginn Húnvetning-
ur fáanlegur til ölmusugjafa, þegar loks þangað
kæmi; — ferðin því ekkert annað en erviði og
kostnaður. Hefði þessi maður nú vitað,áður en
hann fór, shvernig fara mundi«, ætli þá hefði
ekki verið hyggilegra fyrir hann að kúra kyr
heima í »Vík«. Hvað heldur mr. Einar Hjör-
leifsson um það?
Þar sem í »ísafold« er ekki eitteinasta orð,
sem hrekur hið mínnsta atriði í grein Húnvetns-
ings, enda þó að öðru leyti sé þar kveðinn upp
allharður dómur um gáfnafar hans af þeim sspek-
ingum*, þá skal eg ekki fara frekar út f þetta,
og allra sízt eyða mörgum orðum um að dæma
um gáfur þeirra; það væri llka sama og að bera
í bakkafullan lækinn, þar sem svo órækar sann-
anirum bæði gáfur og góðvilja(l) þeirra gagnvart
þjóðinni í mestu velferðarmálum hennar geta
menn nú á tímum lesið í »ísafold« eptir sjálfa
þá, að ekki þarf framar vitnanna við. Að end-
ingu óska eg og vona, að þó »ísafoldar« spek-
ingunum« kunni ef til vill að takast það að fá
meþp hluta þjóðarinnar til þess í samvinnu við
sig, að flytja landsréttindi og fjárhag íslands
»norður og r.iður«, þá verði aldrei meiri hluti
Húnvetninga í þeirri íerð, hvort sem farið verð-
ur þá um »fjöll« eða »sveitir«, ellegar hvorttveggja.
Eókmenntafékagsf'iinciur. Sakir þess
að »Isafold« hefur að sumu leyti skælt og skefckt
á sína alkunnu vísu það sem gerðist á fundi þess-
um og atkvæðagreiðsluna þar, þykir réttast að
birta hér fundargerðina f heild sinni, eins og hún
var bókuð af skrifara félagsins, lektor Þórh. Bjarnar-
syni og samþykkt í fundarlok.
»Ár 1900, ío. d. marzm. var hin fyrri aðal-
fundur deildarinnar haldinn í Iðnaðarmannahús-
inu kl. 5. e. h. Þar gerðist er hér segir:
1. Forseti minntist dáinna félagsbræðra, fyrst
alþm. og sýslurn. Benedikts Sveinssonar, sem var
einhver elzti félagi og jafnan tryggur vinur Bm.-
félagsins, og í annan stað fornfræðingsins dr. 01.
®.ygh’s í Kristjaníu. Fundarmenn tóku undir
teinningarorð forseta með því allir að standa upp.
2. Þá gat forseti þess, að nú væri burtfallinn
5°o kr. ársskatturinn til Hafnardeildarinnar við
Það, að deildin hér hefði nú frá ársbyrjun tekið
að sér útgáfu Fornbréfasafnsins, sem eigi gæti
talizt byrði fyrir félagið með þeim 1000 kr. styrk,
er deildin hefði til útgáfunnar. Jafnframtgat for-
seti þess, að þær 24 arkir, sem út kæmu í ár,
væru fullprentaðar.
3- forseti lagði fram og las upp endurskoð-
aðan reikning deildarinnar um árið 1899; í annati
stað las forseti upp yfirlit yfir eignir deildarinnar
og skuldir. Skuldir við árslok 1899 námu um
47° kr., sem nú eru greiddar af landssjóðsstyrk
Þ- Skuldir lækkuðu um fullar 500 kr. umliðið
At- Þó að fjárhagur deildarinnar þannig hafi far-
tð stórum batnandi, leggur stjórnin til að gefa
ekki út á þessu ári annað en hinar venjulegu
ársbækur, og mætti þá treysta því, að deildin
við lok þessa árs væri alveg skuldla.us, og ætti
þá óskertan landssjóðss,tyrkinn til starfa 1901, og
væri þá hægt að færast meira í fang. Þá skýrði
forseti frá því, að nefnd sú, er skipuð var á sum-
arfundi síðast til að segja álit sitt um »Handnt
til framhalds Nýju sögu Páls Melsteðs« eptir
Hallgrím bókavörð Melsteð, hefði með vitund
höfundarins frestað að kveða upp dóm um ritið.
Forseti las síðan upp fundargerð Tímaritsnefnd-
arinnar frá 30. maí f. á. í tilefni af ritdeilu milli
forseta og eins Tímaritsnefndarmanns, ritstjóra
Einars Hjörleifssonar, og lýsti forseti jafnframt yf-
ir því, að hann gæti ekki unnið með þeim rit-
nefndarmanni áfram. Sú tillaga var horin upp
og samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum:
»Fundurinn lýsir yfir trausti sínu á forseta
og lýsir óánægju yfir þeirri árás, sem gerð
hefur verið á hann á síðastliðnu ári, en sak-
ii heilla félagsins biður það forseta að fresta
að öðru leyti úrslitum þessa máls, þar til
sumarfundur getur útkljáð það«.
Breytingartillaga að fella burt »og lýsir ....
ári« téll með 8 atkv. gegn 4.
Hinn endurskoðaði reikningur var samþykkt-
ur með öllum atkvæðum.
4. Halldór bánkagjaldkeri Jónsson vakti máls
á því, að Tímaritsnefndin, sem kosin væri að
eins til eins árs, mætti eigi taka til prentunar
fleiri ritgerðir, en að kæmust í Tímariti hvers árs,
en eigi var gerð nein ályktun um það“.
4 nýir félagar voru teknir í félagið«.
Gufuskipið ,MjöInir‘, eitt skipa þeirra,
er Thor E. Tulinus stórkaupmaður hefur 1 förum
hingað til lands, kom hingað í fyrrakveld með
kol handa »Heimdalli«; hafði lagt af stað frá
Höfn n. þ. m. beina leið hingað, degi síðar en
»Laura«, sem átti að koma við í Skotlandi og í
Færeyjum og nú er væntanleg á hverri stundu.
Farþegar með skipi þessu voru Magnús Jóhanns-
son læknaskólakandídat, og Eiríkur Kjerúlf stud.
med.
Frá ótlöndum bárust þau ný tíðindi, að
leikhúsið mikla í París »Théatre Francaise« brann
til kaldra kola 8. þ. m. Ein af leikkonunum
brann inni og allmargir af slökkviliðinu meidd-
ust. Mörg dýrmæt listaverk týndust í brennunni.
Er tjónið því tilfinnanlegra, sem sýningin stend-
ur fyrir dyrum.
Látinn er Schóusboe biskup í Alabnrg.
Ftá Búaófriðnum engar verulegar fréttir
frekara en áður hafa heyrzt. 5. þ. m. náði
Gatacre hershöfðingi Stormberg orustulaust, því
að Búar hörfuðu þaðan sjálfkrafa. Er almenn
ætlun, að þeir séu að búa sig undir aðalorustu
og draga her sinn saman til að stöðva framsókn
Bretahers, en ekki vita menn með vissu\ hvar
þeir muni taka sér aðalstöð, llklega helzt í nánd
við Bloemfontein, höfuðborg Oranjeríkis. Eru þar
vígi allgóð og örðugt aðsóknar. En þar er þeim
Roberts og Kitchener og meginstyrk Bretaliðs að
mæta; er ætlun Roberts að buga Oranjemenn til
fulls, áður en haldið verður inn í Transval fyrir
alvöru, svo að þeir þurfi ekki að óttast neinar
bakskellur.
í neðri málstofu parlamentsins enska var sam-
kvæmt uppástungu stjórnarinnar samþykkt 6. þ. m.
með 161 atkv. gegn 26, að ríkið tæki lán að
upphæð 35 miljónir pd. sterl. (630 miljónir
króna) til að standast kostnaðinn af ófriðnum.
Hefur England aldrei aukið jafnstórri upphæð við
ríkisskuldirnar á allri þessari öld, enda urðu ali-
miklar umræður um þessa lántöku í parlamentinu
og var Harcourt helzti andmælandi, vildi heldur
ná meiri hluta þessa fjár með auknum sköttum
og tollum, en stjórnin sigraði. Sama daginn var
samþykkt umræðulaust að hækka toll á te, tó-
baki og áfengum drykkjum. Má sjá af þessu, að
Englendingar búast ekki rið, að ófriðurinn verði
mjög skjótlega til lykta leiddur.
Embœttispróf í lögum við háskól-
ann hefur Magnús Arnbjarnarson tekið
með 1. einkunn,
Próf í mannvirkjafræði við háskól-
ann hefur Knud Zimsen tekið með 2. betri
einkunn.
Ólafur Pálsson cand. jur. er orðinn að-
stoðarmaður (assistent) í fjármálaráðaneytinu
danska. Hann var áður aðstoðarmaður á yfirborg-
stjóraskrifstofunni og heldur þeirri sýslan jafn-
framt hinni.
Ðalasýslu S. marz.
Fréttir héðan rnega góðar heita, því nú síðan
um febrúarbyrjun má heita einstök gæða tíð, nema
norðanhríðar og harðviðri eina viku. Það lítur því
út fyrir að heybirgðir manna verði nógar, verðiteigi þvf
vorharðara. Heilsa á fénaði hefur veri góð í vetur
og sömuleiðis er heilsufar manna gott. Merkustu
menn, sem andazt hafa hér um slóðir eru Jósep
bóndi Jónsson á Geitastekk, hálfsextugur að aldri,
hann dó 2. f. m. og Kristján Kristjánsson, maður
kominn yfir áttrætt. Hann var mjög merkilegur
maður og þó einkum frægur fyrir ráðsmennsku sína
fyrrum á búi Þorsteins heitins Hjálmarsens, prófasts
í Hítardal. Kristján átti nú heima á Gunnarsstöð-
um og dó 17. f. m. —
Eigi er hér Amei-íkuhugur neitt að ráði, en fáein-
ar hræður munu samt strjálast héðan til Vestur-
heims í vor og mun það helzt vera fólk, er gjarnan
má missast. Mannfundir eru litlir nú, en þá er
þeir eru er helzt talað um verzlun, heyafla og tíðar-
far; nokkuð er samt um landsmál talað, en eigi eru
menn hér neitt fyrir alvöru farnir að hugsa um, hvern
þeir eigi að velja fyrir alþingismann næst.
Af framfaratnálum héraðsins má helzt nefna :
samlagssmjörgerdina- og kauþfélagið nýja. Um
smjörgerðina er það helzt að segja, að hvorki rekur
eða gengur með það mál. Vel getur enn farið svo,
að þaþ deyi út í tómu samtakaleysi. En kaupfélag-
er hér nýstofnað og heitir, „Kaupfélag Hvamms-
fjarðar", og er ætlazt til, að nái yfir fimm syðstu
hreppa sýslunnar. Félagið er enn að eins örlítill
vísir til annars, sem getur orðið meira, því það er
sniðið alveg eptir enska Rochdale’sfélaga forroinu.
Hefði slíkt verið byrjað undir góðri stjórn fyrir 30
árum, þá væri það íslenzkt félag (0: Dalamenn sjálf-
ir) sem nú ættu verzlunina í Búðardal í staðinn
fyrir, að það núna er danskt auðkýfingafélag, en
slíkt mun mega segja víðar á landinu. En einhvern
tíma verður þó að byrja og betia seint en aldrei.
Skipströnd. í norðanveðrinu 15. þ. m.
strandaði á Hraunsnesi milli Lónakots og Hvassa-
hrauns, flskiskúta af Patreksfirði, eign Björns
Sigurðssonar félagsins, skipstjóri Edílon Gríms-
son, er átti eitthvað i skútunni. Skipið var mjög
klakað og lét ekki að stjórn. Gátu skipverjar
(16 alls) varpað kaðli í land til manna, er þar
voru fyrir, því að þetta var um hábjartan dag.
Gátu þeir svo fikrað sér í land á skipsbátnum
með stuðning af kaðlinum. Voru þeir alvotir
og allmjög þrekaðir, en hörkufrost á. Þó hafa
allir náð sér aptur. Skútan brotnaði þegar í spón
þar í brimgarðinum.
Sama daginn rak á land í Njarðvíkum þil-
skipið »Sleipnir« héðan úr Reykjavík, eign Tr.
Gunnarssonar bankastjóra. Haldið er, að skipinu
verði náð út aptur, þá er gert hefur verið við
skemmdirnar á því.
Reknetafélagiö. Aðalfundur þess fé-
lags var haldinn hér í bænum 17. þ. m. Reikn-
ingar samþykktir í einu hljóði.
Félagið var stofnað næstliðið sumar, en gat
ekki byrjað veiðarnar fyr en eptir 20. júlí, því
það átti ekkert skip og fékk ekkert skip leigt fyr
en eptir þann tíma, og var þá síldin á förum úr
Faxaflóanum, svo aflinn varð ekki meiri en 130
tn. síJd, reiknað á rúmar 1600 kr. Fólkshald og
skipsleiga var dýr, svo rúmar 700 kr. vantaði til
að tekjurnar hrykkju við útgjöldunum. En mest