Þjóðólfur - 31.08.1900, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 31.08.1900, Blaðsíða 2
 fyrir smíði Ölfusárbrúarinnar, enda aflaði það hon- um maklegs lofs bæði innanlands og utan. í suniar hefur bankastjórnin eptir upþá.- stungu hans kostað íslenzkan sœmdar- og dugn- aðarmann utan til þess að útvega erlendis sjálfstœðan markað fyrir íslenzkt sauðjé og hesta', og þó er Isafold svo ósvífin, að árétta það aptur og aptur, að Tryggvi og menn þeir er honum fylgja, séu erindsrekar og leigu þjónar Vídallns. Að endingu skulum vér loks líta á, hvað Tryggvi hefur afrekað fyrir Reykjavík þau fáu ár, sem hann hefur verið hér heimilisfastur. Það er dugnaði og forsjá Tryggva að þakka, að íshús var stofnað hér 1 bæ, sem er að allra dómi einhver hin mesta nytsemdarstofnun, sem nokkru sinni hefur verið á fót komið hér á landi. Fyrir atorku bankastjórans hefur Landsbank- inn eignazt snoturt og ramgert starfhús- og forn- gripasafn landsins loks hlotið viðunanleg húsa- kynni. Smekkvísi hans og frábær starfsemi hefur breytt foræðinu fyrir neðan alþingishúsið í hinn eina opinbera blómgarð, sem til er á landi þessu. Öllum bæjarbúum er það fullkunnugt með hvílíkri elju Tryggvi hefur endurbætt og lagað stræti og rennur hér í bæ. Vesturgata og Aust- urstræti sýna þess Ijósastan vott. Nú er hann að láta grafa brunn á Laugavegi til þess að bæta úr tilfinnanlegum vatnsskorti manna, sem þar búa. Margar nytsamar framkvæmdir, sem þessi frábæri elju maður hefur á prjónunum, mætti enn telja; en vér látum rúmsins vegna hér staðar numið. Af afstöðu Tryggva til stjórnbótakrafa vorra er það eitt að segja: Hann hefur síðan hann kom á þing haldið íram sjálfstjórnarkröfum vor- um með stilling og staðfestu. Hann vill að Is- land hafi þjóðlega og alinnlenda stjórn, en sé engin selstöð eða útibú Dana. Hann vill af öllurn mætti styðja atvinnumál landsmanna, kenna þeim að færa sér í nyt auðs- uppsprettur lands og sjóar, í stað pess að kasta 'öllum áhyggjum sínum upp á Vesturheim eða erlent auðvald. Því að reynslan sýnir, að það hefur orðið flestum þjóðum til stórtjóns og hnekkis, að byggja framsókn sína á erlendu auð- valdi. Vér þurfum að eins að minna á Portú- galsmenn, Itali, Tyrki og Egyptalandsmenn. Hann vill efla og styðja samgöngur innan- lands og ritsímasamband, verzlun og viðskipti við aðrar þjóðir, því að Tryggvi veit, sem er, að ef samgöngur okkar og viðskipti við önnur lönd komast í viðunanlegt horf og vér losumst af skuldaklafanum danska og sýnum það í orði og verki, að við kunnum og viljum hagnýta auðsupp- sprettur lands vors og förumsjálfirað vinna afurðir landsins og koma þeim á heimsmarkaðinn, þá er björninn unninn, þá fáum við mótmælalaust þá stjórnarbót, sem við þurfum á að halda, því að öll mannleg reynsla allt fram á þennan dag sýnir, að það er framsókn, dugnaður og staðfesta, sem útvegar þjóðunum stjórnarbót,velgengniogviðgang. S. Pistill úr Árnessýslu. Alþingiskosningahorfur hér í sýslu eru víst ekki sem greinilegastar enn þá, eða svo er það í minni sveit. Eg hef séð nú um langarr tíma, að »ísafold« telur það helgustu skyldu sína að áfella alla pólitiska andstæðinga sfna, leggur suma alveg í einelti, hefur þar á sér hunda sið, eptir því er sumum virðist. Blaðið hyggur með þessu atferli að auka meðmælendum sínum fylgi, en allt annað verður ofan á, alþýða sér vel hvert stefnt er; hún mun enn sem fyr ráða mestu um kosningar, hvað sem ýmsir stórburgeisar segja í það og það skiptið. Maðurinn, sem blað þetta breiðir sig aðallega yfir, er nú presturinn séra Magn- ús á Torfastöðum. Um hann er vitanlega sjálf- sagt að segja, að hann er fyrirtaks prestur og all- iS8 góður bóndi, dugar vel í framkvæmdum í hrepps- félagi sfnu, og vinsæll mun hann þar vera. Þing- mannshæfilegleikar prestsins eru vitanlega óséðir enn. Samt sýnist rétt að geta þess, að á kjör- þingum þeim, sem hr. Bogi Melsteð var í kjöri, var séra Magnús einbeittur fylgismaður hans, og aðalformælandi; þá bar skoðunum þeirra saman í aðalmálunum. — Nú er það kunnugt, að opt var skorað á séra Magnús á þeim tíma að gefa kost á sér til þingmennsku, þótti þá fastur og glögg- ur í pólitik o. fl. Þá var svarið optast þvertnei. En nú þegar alþing okkar er jafnvel orðið heims- frægt fyrir stefnuleysi og sundrung þykir Isafold presturinn þar ómissandi(I). Þarna er meðmælum hennar rétt lýst. — »Hvað elskar sér líkt«. Bogi stendur að nokkru leyti alveg á sama grundvelli í helztu málum sem fyr, samanber »Önnur uppgjöf íslendinga eða hvað?«; þar er Bogi vitanlega nær hugsunþorra allra heimastjórn- armanna landsins, enda er höfundurinn sögufróð- ur vel, sem kunnugt er. Svo er nú komið á 6 ára tímabili (líklega réttara 2 ára), að þó Bogi byði sig hér nú fram, mundi enginn honum hér 1 sýslu andvígari en séra Magnús og flokkur sá, er honum kann að fylgja — Þarna er stefnufesta þingmannsefnis okkar á Isafoldar vísu komin. — Jú, hún hefur fundið lyktina. »Þarna var ráðið að renna í botninn«, segja formennirnir stundum. — Alþýða sér vonandi, hvar fiskur liggur undir steini. — Sigurður búfr. er mesti efnismaður, og til þessa átti hann von á talsverðu fylgi, en síð- an að Isaf. setti hann á skrána hér hafa nokkrir hlaupið úr flokk hans, og óvíst heyrðist mér, eptir því er maður sunnan úr Flóa sagði um dagmn, að hann næði kosningu, ef aðrir væru í boði t. d. Tryggvi, sem þeir kváðu margir vilja fá; þar eru nfl. flokkar Hannesar og Tryggva, en slðan »ísafold« fór að gleðrast útaf kosningu Tr. í Rvík. hefur flokkur Tryggva að sögn held- ur rofnað. — »ísafold« sendi hingað fyrirstuttu Sigurð barnakennara úr Rvík. Maður sá er ætt- aður héðan úr sveit og var því látið heita svo, að för hans hingað héti orlofsferð — en á bak við þetta lá í raun og veru smalamennska til handa vinum »Isaf.«, en sem betur fór var smal- inn bráðónýtur í þessa ferð, er of siðavandur að beita sörnu meðulum og sendiherrar hans. Ein- ar Hjörleitsson segja skilorðir menn, að vígt hafi til handa bindindismönnum Ölfusinga, skúr við íveruhús prestsins í Arnarbæli, — þó sannað síð- ar, að hann var fremur í smalaferð, en árangur af því meðal bænda þar enginn. A Eyrarbakka og Stokkseyri bregða þeir sér. Einar látinn í förina; hann má vera að mann- tetrið, svona er að eiga harðan húsbónda. Einar hafði setið á einmælum við vissa náunga, eink- um á Stokkseyri, þar hafði »bitizt betur«. Ein- ar gistir óðalsbónda í samaskyni, og eitthvað mun hann hafa veitt: »Rægðu duglega, eitthvað mun eptir loða«. — Þetta eru nú mennirnir, sem mest skamma aðra fyrir smalamennsku, helzt ímyndaða, þetta eru þá mennirnir, sem gera sér gott af að taka nafnlausar níðgreinar um mót- stöðumenn sína. — Það er ekki enn kunnugt, að »Þjóðólfur« hafi farið eins að í þeim málum að fyrra bragði og »ísafold«; hún getur séð það, ef hún vill. Gildur bóndi hér upp í sveitinni, kvað upp á síðkastið vera notaður mjög af »ísafold« til.að spilla fyrir vini hennar(!) Hannesi ritstjórao. fl.,— sagt er að maður sá hafi í heitingum, ef þeir kjósi Hannes í stað Magnúsar, en svona er það allt vaxið, »hvað bindur annað«, segir máltækið og svo er umþetta. Enginn, sem nokkuð þekkir til málanna tekur minnsta mark á því, er bóndi þessi segír í kosningarmálum, er orðinn allt of mikil þvara í annara potti til þess. — Að lokum get eg þess, að allt atferli »ísa- foldar« og hennar manna, sem vitanlega eru helzt prestár og þeirra nánustu — er iíkast því, er Knútur hinn ríki Englandskonungur beitti til þess að ná Noregi undan Ólafi hinum helga, nema ekki hef eg heyrt, að þeir hafi borið gull í tösk- um inn í sýsluna — heldur kann það að vera út úr henni; betur að afleiðingarnar yrðu aðrar en forðum. Ritað 20. ágúst 1900. Grímsnesing ur. * * * I sambandi við grein þessa, sem rituð er hlut- drægnislaust ogofsalaust, get eg ekki stillt mig um að láta þess getið, að heimskufleipur og hrópyrði Isafoldar munu ekki aptra mér frá að bjóða mig fram til þingmennsku í Ámessýslu, og lýsi því hér með yfir, að eg mun gera það, svo fram- arlega sem önnur atvik verða þess ekki valdandi, að eg dragi mig í hlé. Isafold er þvf alveg óhætt að leggja út allar árar til að spilla fyrir mér, og senda hvern sendilinn á fætur öðrum austur þang- að til að telja kjósendum hughvarf. Ogumfram allt má hún ekki gleyma því að níða og rægja mig duglega 1 ýmsum greinum með lognum dul- arnöfnum og þá helzt að láta þær vera stílaðar úr Árnessýslu, en eg er sannfærður um, að Árnes- ingar eru yfirleitt svo skynsamir, að þeir sjá, hversu málstaður þess aðila er illur, er ekkert hetur annað til brunns að bera en lubbalegt nafnlaust níð um mótstöðumenn sína, tvinnað saman af heipt og heimsku, enda má Isafold vera þess fullviss, að allt atferli hennar við þessar væntan- legu þingkosningar, verður henni að eins sjálfri til bölvunar og spillir stórum fyrir þeim mönnum, sem hún hefur verið að trana fram. En þetta skilja auðvitað ekki jafn þorskkynjaðir þverhöfð- ar, sem Isafoldarritstjórarnir. Þeir trúa því sjálf- sagt í einfeldni sinni, að það sé nóg að svívirða mótstöðumann sinn persónulega með óskamm- feilninnar blygðunarlausa tuddaskap, eins og blaðið hefur leitazt við að gera t. d. gagnvart sýslumanni Snæfellinga, rektor Ólsen, Tryggva bankastjóra, Jónassen landlækni, Símon snikkara á Selfossi o. m. fl., sem oflangt yrði upp að telja. Ritstjórarnir mega vera undarlega grænir, ef þeir ímynda sér, að nokkur skynsamur maður glæpist á öðrum eins ritsmíðum, eins og þeir eru vanir að unga út í málgagninu þeirra. Sann- leikurinn er, að blaðið er bæði hatað og fyrir- litið af öllum þorra manna, sem kunna að gera greinarmun á réttu máli og röngu, öllum mönn- um, sem hafa nokkurn neista af heilbrigðri skoð- un um velsæmi í rithætti og samvizkusemi í rök- semdum. En af því að Isafold hefur aldrei lært að skammast sín, virðir hún öll rök að vettugi og þvælir og þvælir í endalausu þvogli um alla skapaða hluti, án alls skilnings á málunum og án allrar löngunar til að komast að réttri og skynsamlegri niðurstöðu. Eg hef margsinnis lýst ritstjóra ísafoldar beina ósannindamenn að ýmsum lygaáburði, sem þeir hafa flutt í sambandi við væntanlegar kosn- ingar 1 Árnessýslu, og þeir hafa orðið að kyngja því öllu saman, ekkert halt sér til varnar manna- tetrin. Og svona er það alstaðar. Sé tekið al- mennilega ofan í lurginn á þeim, þá standa þeir uppi varnarlausir, eins og strákar, sem staðn- ir eru að óknyttum, en hefja aptur sama leikinn undir eins og snúið er við þeim bakinu og láta þá, sem ekkert hafi í skorizt, eins og þeir hafi aldrei neina ráðningu fengið. Það er þetta blygðunarleysi, sem hlýtur að verða naglinn í líkkistu Isafoldar, ef hún heldur uppteknum hætti. En hún má vara sig á því, að menn eru farnir að sjá, hvlllkt þokkablað hún er, og hversu vönd- uðum vopnum hún beitir í þjóðmálabaráttu sinni. Guð varðveiti land vort fyrir mörgum slíkum leið- togum. Fávizkan ein og fruntaskapurinn getur naumast afsakað þá, þótt hvorttveggja birtist hjá þeim í óvanalega ríkulegum mæli, þvt að þótt mennirnir hljóti að vera hárla grannvitrir og ó- skynugir eptir framkomu þeirra að dæma, þá eru þeir naumast svo miklir andlegir aumingjar, að þeir viti ekki, hvað þeir gera. En óneitanlega bera margar ritgerðir blaðsins þess vott, að þeir sem því stýra séu eitthvað til muna bilaðir í I

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.