Þjóðólfur - 29.03.1901, Page 2

Þjóðólfur - 29.03.1901, Page 2
58 í um fjögur hundruð ár fór fjöldinn allur af íslendingum erlendis á eigin skipum. Þeir fóru þá mest til Norðurlanda, þar að auk til Englands, Skotlands, Irlands o. s. frv. Þeir voru flestir kaupmenn, margir skáld, er dvöldu hjá kon- ungum og höfðingjum um stundarsakir. Margir fóru pílagrímsferðir alla leið suður á Italíu og jafnvel til landsins helga. Margir fóru námsferðir til erlendra skóla. Langmestur þorri þessara ferðalanga hurfu aptur heim til ættjarðar sinnar. Þeim þótti veg- urinn aldrei of langur. Þegar heim var komið, sögðu þeir frá öllu því, sem þeir höfðu séð og heyrt, og þessar sögur studdu að því að gera Is- lendinga að svo duglegum sögumönnum og sögu- riturum. Arið iooo kom kristni á Island. Með henni fluttist menntunarstraumur, sem hér er óþarfi að lýsa. En hins vil eg láta getið, að það er hinn elzti kirkjusöngur, sem að fróðra manna tali hefur getið af sér 'ninn svokallaða t v í s ö n g , Um það get eg vfsað til ritgerðar eftir dr. A. Hammerich. Af því að eg er ekki sjálfur söng- fróður maður, tek eg upp eptir ritgerðinni það sem helzt einkennir þennan söng. »Af hin- um fornu hljóðgreinum er það hin ‘svonefnda lýð- verska hljóðgrein, er mest kemur fram í tvísöngn- um; þar í eru að eins heil-hljóð, óbreytt og ó- milduð. Þar er einkum eitt merkilegt hJjóðbil (interval), kvartinn, er saman er settur af þremur heilhljóðum; þetta þótti í útlöndum svo Ijót hljóð- stifling, að hún var nefnd diabolus in musica. Þessi söngpúki er þann dag 1 dag í tvísöngnum. A miðöldunum þekktu menn samstillingu hljóða. Einni aðalröddu var látin fylgja aukarödd, sam- fara kvintum eða kvörtum; aðalröddin ersagtað liggi neðar, hin ofar«. Það er þess vegna, að Is- lendingar komast svo að orði, að önnur röddin »fari upp«, hin »niður«. Tvfsöngslög verðasung- in tvö í kvöld; annað þeirra: Island o. s. frv., er eiginlega ekki annað en hin klassisku tvíyrði (sex- Iiða og fimmliða vísuorð á víxl). Það er alkunn- ugt, að Islendingasögur segja opt frá draumum; opt kemur maður í draumi og talar í Ijóðum; hinn man þau, er hann vaknar. Islendinga dreym- ir enn. Eg get þess hér til garnans, að þetta kva.ði er svo til komið, að Konr. Gíslason, er síðar varð prófessor, dreymdi eitt sinn, að mað- ur kæmi til sín og kvæði langt kvæði, en hann mundi að eins tvö vísuorðin (þau seinni á skemmt- unarskránni). Hann hafði þau svoupp fyrir kunn- ingja sínum, þjóðskáldi 19. aldar, og honum þótti |>au svo tilkomumikil, að hann orti utan um þau hið göfuga kvæði sitt. Hér kemur fram skyld- leikur milli fornra og nýrra tíma. Hin 15. og 16. öld (að minnsta kosti fram að siðabót) eru taldar hið vesalasta tímabil í sögu Islands; ef til vill þó meðfram af því, að sögulind- irnar hafa enn ekki verið opnaðar og því síður notaðar. Það kveður sí og æ við, að þá hafi verið hin mesta eymd í landi, drepsóttir, hafísar, grasbrestur, kvöl og kuldi. Og vfst er um það, að allt þetta átti sér stað, og þjóðin hafði lítið meginn til að þola nauðina. Engu að síður blómg- aðist andlegt líf 1 landi á sinn hátt. Gömlu bækurnar voru lesnar og ritaðar upp án afláts. Skáldskapur var engan veginn lagður fyrir róða. Það er til fjöldi af andlegum kvæðum frá þeim tímum, og mörg mætavel ort, og bera vott um sanna tilfinning. Svo var og ortur fjöldi af nokk- urskonar söguljóðum (rímum). En það sem í pessu efni er markverðast er, að þá—á 15. öld — bárust til Islands frá Danmörku — nú var þetta land komið í stað Noregs — fjöldi af hin- um dönsku, nafnfrægu þjóðkvæðum. Þau voru þýdd á íslenzku, eða stæld, og ný búin til í líking við þau. Með þessu móti hafa mörg af þessum kvæðum geymzt á Islandi í fornlegri mynd en í Danmörku og sum eingöngu þar. Þessi kvæði voru notuð við danz og sungin með lög- um,er að mestu eða öllu hafa myndazt á íslandi; af þessum þjóðlögum verða sungin 3 í kvöld; 2 af kvæðunum eru þjóðkvæði, Svíalínoghrafn- inn, þýðing á Valravnen, og Ólafur liljurós, stælt eptir álfakvæðinu danska. Á 17. og 18. öld var mjög mikið samband milli Dana og íslendinga í andlegu tilliti. Lærð- ir menn skrifuðust einatt á og leituðu skýringar og hjálpar hvorir hjá öðrum. Islendingar dvöldu hér við háskólann o. s. frv. En annars fór Islend- ingum lítið fram, því að margt stóð í vegi, ekki sízt verzlunareinokunin, en það er ekki tóm til að fara frekar út i þessi efni. Og svo að eg fari fljótt yfir sögu, skal eg geta þess, að á fyrra hluta 19. aldar var —eptir lýsingu samtíðarmanna þá — komið í mesta ó- efni með söng á Islandi, ekki sízt kirkjusönginn. En þá reis upp maður, er tók sér fyrir hendur að gera umbæturá þessu, og vert er að sé nefnd- ur hér í kvöld, það er Pétur Guðjónsson (1812—77). Hann var organleikari við dómkirkj- una i Reykjavík og kennari í söng við latinuskól- ann. Honum varð mjög mikið ágengt. Læri- sveinar hans dreifðust um allt land og breiddu út söngþekking og næmi fyrir góðum söng. Hann samdi engin lög siálfur, en eflaust hefur hann stutt að því, að vekja dábundna hæfileika til við- gangs og þroska. Á hinum síðustu 25 árum hef- ur öllu farið vel fram. Sjálfstæðir sönglagasmiðir hafa runnið upp. Og er þar fyrst til að nefna Sveinbjörn S veinbj a rn arson (1000-ára- hátíðakvæðið); hann hefur ort mörg lög, er al- kunn eru á Bretlandi mikla, en lítt kunn hér í landi. Svo eru 3 aðrir, er lög verða sungin eptir í kvöld: bræðurnir Jónas og Helgi Helgasynir. Annar þeirra var upphaflega járnsmiður, hinn trésmiður, — og get eg þess af því, að þetta er sýnishorn af þjóðlífi Islendinga nú; nú er Jónas organleikari við dómkirkjuna, Helgi kaupmaður. Báðir hafa þeir, hvor á sinn hátt, gert þarft verk á Islandi. Hinn þriðji er B j a r n i prestur Þorsteinsson, sem sérstaklega hefur lagt stund við þjóðkvæðin, og nú hefur hann fengið styrk til þess að ferðast um landið og safna þjóðlögum, sem enn lifa á vörum þjóð- arinnar. Að því er snertir hið andlega lffáís- landi síðustu 25 árin, hefur því óneitanlega farið mjög mikið fram. Bæði í skáldskap og vísind- um er allt nú orðið miklu fjölskrúðugra. Nátt- úruvísindin hafa rutt sér vel til rúms. En listir eru að eins að heita má, í fyrstu byrjun sinni. En gleðilegt er það, að geta nú við aldamótin bent á hina fyrstu frjóanga í málverkalist, í mynda- smíði, í sjónleikafþrótt, þótt grannir séu. Hvað verklegt og efnalegt lff snertir, eru reyndar fram- farir sjáanlegar, en þó smáar og seinar. Enþjóð- in er öflugri nú, en nokkru sinni um langa tíma. Og því er mér óhætt að segja í sannleik, að nú, er ársól hinnar nýju aldar roðagyllir fjalla- tindana þar heima, bregður hún og geislum sínum yfir fámenna þjóð, er sækir áfram af ein- urð og góðum vilja, þjóð, er á, vonandi, langa og góða framtíð fyrir hendi. Það stoði ogstyrki allar góðar vættirl Finnur Jónsson. Séra Oddur V. Gíslason. Sumarið 1894 fluttist séra Oddur V. Gíslason til Vesturheíms. „Kirkjublaðið" (1894, bls. 127) 1 roinntist burtfarar hans frá íslandi og sagði, að löndum vestra væri skylt að taka honum og hans góðu konu og efnilegu börnum, sem allra bezt“. Síðan hefur nálega ekkert verið ritað um séra Odd í blöðum á Islandi, nema það, sem „Sunnanfari" (1898 bls. 18) talar um hag hans. Þar stendur: „Þó líða engir þeirra fo: prestar Vestur-íslend- inga) neinn skort, nema hvað Oddur Gíslason hefur átt mjög örðugt, og svo var mér (o: Jóni Olafssyni) sagt af útliti hans og æfi, fyrsta vetur- inn, sem hann var vestra, að það hefði víst verið kallað hér heima, að sæi á manni fyrir lélegtvið- urværi og illa aðbúð, og varð að skjóta saman ut- an safnaða hans, til að halda í honum lífinu. En hvort sem þetta er nú ofsagt eða ekki, þá veit eg það með vissu, að eg varð var við óræk merki þess, að þessi prestur átti við ákaflega bág kjör að búa“. Þessu hefur aldrei verið mótmælt af ís- lenzka kirkjufélaginu í Vesturheimi, eða „agenti" Kanadastjómar í Reykjavík. Sjálfur hefur séra Oddurekkert skrifað um hag sinn í blöð á íslandi. Það er eðlilegt. Hann getur ekki skrifað glæsi- legar lýsingar af efnahag sínum og ástæðum. En öðruvísi fengi hann ekki leyfi til að skrifa. Hon- um yrði þá ekki vært í kirkjufélaginu. Honum var því nauðugur einn kostur að steinhætta að skrifa í blöðin. Sumarið 1893 voru þeir vesturfara-„agentarnir“ Sigtryggur Jónasson og Baldvin Baldvinsson heima á Islandi. Séra Oddur, sem þá var prestur á Stað í Grindavlk, sneri sér til þeirra og kvaðst hafa í í huga að fara vestur um haf og gerast prestur hjáVestur-íslendingum,ef kirkjufélaginusýndist það ráðlegt. Baldvin réð honum frá þeirri fyrirætlun. En Sigtryggur réð honum auðvitað til þess að fara vestur. Sigtryggur skrifaði svo séra Jóni Bjarna- syni um mál þetta. Séra Jón og séra Friðrik Berg- mann lögðu fram alla krapta sfna, bæði leynt og Ijóst til þess að ná séra Oddi vestur. Þeir buðu honum að verða prestur hjá söfnuðinum í Selkirk og fjórum söfnuðum í Nýja-íslandi. Þótt séra Oddur þyrfti eigi að reiða sig á bréf þeirra, þá gat hann eigi annað en reitt sig á skýrslur kirkjufélagsins í „Lögbergi" og „Sameiningunni“. Ársskýrsla kirkjufélagsins 1893 skýrði frá því, að það væru fjórir blómlegir söfnuðir í Nýja-íslandi og einn í Selkirk. Séra Oddi var nú boðið að verða prest- ur hjá þessum fimm söfnuðum, og átti hann að fá 500 dollara í árslaun. Séra Oddur trúði þessu, enda gat honum varla dottið í hug, að skýrslan færi með eintóm ósannindi. Hann sagði því af sér prestsembætti sínu á Islandi, og flutti vestur um haf sumarið 1894. Þegar séra Oddur kom vestur, sá hann um seinan, að hann hafði illilega verið dreginn á tál- ar: I stað þess að fá prestsþjónustu hjá fimm söfn- uðum og fimm hundruð dollara í árslaun, fékk hann prestsþjónustu hjá einum sötnuði og eitt hundr- að dollara í árslaun. Ársskýrsla kirkjufélagsins frá 1893, sem sem hann hafði reitt sig á, reyndist honum þannig: Að eins einn fjórði hluti henn- ar var sannur, en fimm fjórðu hlutar hennar voru eintóm ósannindi. Séra Oddur lét samt eigi hugfallast, en tók til starfa í Selkirk og Nýja-íslandi í júlímánuði 1894. Með stökum dugnaði hafði hann með hönd- um prestsþjónustu í Nýja íslandi, Selkirk, Þing- vallanýlendu og ýmsum öðrum nýlendum Vestur- Islendinga, Það fór að réttast úr efnahag hans og honum fór að líða betur. En þá kom fram ágrein- ingur milli hans og formanna kirkjujélagsins. Ágreiningur sá snertir tvö mál, er formenn kirkju- félagsins hafa gert að atvinnu sinni. 1. Formenn kirkjufélagsins hafa gert Skólamál Vestur-íslendinga („Tjaldbúðin" II, bls. 14—16) sér að atvinnu. Undir því yfirskyni að koma ís- lenzkum skóla á fót í Vesturheimi, hafa þeir safn- að um mörg ár fé í „skólasjóð", bæði á íslandi og í Vesturheimi. Sjálfir hafa þeir svo lánað sjálf- um sér sjóðinn. Og aldrei hefur seinustu 10 árin (1890—1900) verið gerð nein grein fyrir því, hvar þessir peningar eru „niðurkomnir". Almenningur vissi það eitt, að þessir peningar voru í höndum sumra þeirra manna, sem um 1877—1879 höfðu umráð yfir hallærisláni Ný-íslendinga (Berlingske Tidende 22. sept. 1900). Menn höfðu þess vegna ótrú á söfnunarmáli þessu. — Séra Oddur safnaði engu í skólasjóðinn í Nýja-íslandi og Selkírk- Formenn kirkjufélagsins undu því afarilla, °S þótti þeim hann vera ónýtur verkamaður í þjön- ustu kirkjufélagsins. Þeir kenndu því honum um, að tekjur þeirra af skólasöfnuninni færu minnk. andi. 2. Formenn kirkjufélagsins hafa gert innflutn- ing frá íslandi til Vesturheims sér að arðsamn atvinnu („Dannebrog" 26. nóv. 1900). Þeir ætluð ust auðvitað til þess, að séra Oddur skrifaði gtesl

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.