Þjóðólfur - 05.07.1901, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 05.07.1901, Blaðsíða 3
En þá er eptir ákvæðið um setu ráðgjafans á þingi. Um það atriði út af fyrir sig hafa ekki verið mjög skiptar skoðanir, heldur um búsetu hans í Höfn og setu í ríkisráðinu. Þar skilur Val- týinga og heimastjórnarmenn alvarlega. Vér heima- stjórnarmenn hljótum að heimta stjórn sérmála vorra inn 1 landið, heim tilokkar. Oggetumvér ekki nú þegar fengið hinar allra fyllstu óskir vor- ar: landstjóra með ráðgjöfum hér, þá ættum vér að geta fengið svo mikið, hjá væntanlegri vinstri mannastjórn, að svo mikill munur yrði á þvf, eins og degi og nóttu í samanburði við það, semVal- týingar hafa viljað. Meðal annars verða kröfur vorar beinlínis að stefna að því, að fá ráðgjafa fyrir sérmál vor með fullri ábyrgð fyrir alþingi,ersé búsettur í Reykjavlk, dæm- ist aflandsdómi ogvitanlega sé launaður af landsjóði. Að sjálfsögðu á sllkur ráðgjafi ekki sseti í ríkisráðinu, en um nánara fyrirkomulag á verk- sviði ráðgjafans, um ráðgjafafulltrúa í Höfn eða greiningu sameiginlegu málanna og sérmálanna m. fl., verður ekki talað nánar hér. Að koma æztu stjórn hér innanlands í hagfellt horf, þá er ráðgjafi — hvort heldur hann nefnist jarl eða landshöfðingi — væri orðinn búsettur hér, mundi ekki verða svo erfitt. Aðalstefnumunurinner: valdið út úr land- inu (Valtýingar), valdið inn 1 landið (heima- stjórnarmenn). Og það er ekkert lítilræði. Um þetta snýstað líkindum baráttan á þessu Þ'ngi. ____________ Eptir að þetta var ritað birtist frumvarp til breytingar á stjórnarskránni frá Valtýingum, og eru flutningsmenn: dr. Valtýr, Ólafur Briem, Ste- fán Stefánsson kennari og Jóh. Jóhannesson. Var það lagt fram á þingfundi í neðri deild í gær, en kemur til umræðu á morgun. Samkvæmt hug- boði voru er 61. gr. s t j. skr ári nn a r nú lát- in liggja á milli hluta, ekkert hróflað við henni, en settar inn fleiri breytingar á stj.- skránni, en gert var á síðasta þingi t. d. breyting á 14. gr., að 34 þjóðkjörnir alþingismenn eigi sæti á þingi og 6 konungkjörnir, ennfremur breyting á 15. gr., að 14 þingmenn sitji í efri deild og 26 f neðri deildinni, einnig breyting á 17. gr. (rýmkun á kosningarrétti til alþingis) og svo breyting á 28. og 36. gr. í Rangármiðl- unaráttina: að hvorug þingdeildin megi gera ályktun um neitt, nema meir en helmingur þingmanna sé á fundi, og sama gildir um fullnaðarályktun á máli í sameinuðu þingi, þar á meðal um fjárlaga- og fjáraukalaga frumvörp. Þetta eru helztu atriðin í þessu nýja valtýska frumvarpi, er síðar verður ef til vill birt í heild sinni, en nú er ekki rúm til þess. Eins og menn sjá hafa Valtýingar nú tekið það ráð, að hverfa svo að segja alveg frá frv. 1899. Þeir ætla víst, að þessi nýja valtýska gangi betur í augu þings og þjóð- ar, og hafa verið beinlínis knúðir inn á þetta, af því að alls örvænt var um fylgi við hitt. Þetta hafa þeir lært: ávallt að aka seglum eptir vindi; en þeir hafa þó ekki viljað hörfa algerlega at hinum fyrra grundvelli, svo að millibilið og stefnu- munurinn milli þeirra og heimastjórnarmannahefur lítið minnkað við þessa nýbreytni þeirra, því að breyt- ingin á tölu þingmanna, skipun efri deildar og kosn- ingarréttindin til alþingis eru atriði, sem lítill ágrein- ingur getur orðið um. Þó munu heimastjórnar- menn halda því fram að hagfelldast sé, úr því breytt er á annað borð kosningarréttis skilyrðun- um, að þá sé réttur þessi ekki bundinn við neitt ákveðið gjald, að eins menn gjaldi eitthvað til almennra þarfa, en svo langt hafa hinir ekki vilj- að ganga. Menn sjá nú hverju fram vindur. Með því að svona lagað frumvarp hefur alls ekkert vilyrði frá stjórninni um samþykki, geta Valtýingar ómögulega stuðzt við þá ástæðuleng- tir, að þeir hafi sniðið frumvarp sitt eptir óskum stjórnarinnar. En úr því að þeir eru hættir að itugsa um það, ættu þeir að vera fúsir til að ganga öðru frv., sem tryggði æzta valdið í landinu, I31 frumvarpi, sem væntanleg vinstrimannastjórn að öllum líkindura mundi fallast á. Valtýingum tjáir ekki að halda þvl fram I þaula, að þeir sitji við sama keipinn sem fyr. Afslátturinn er svo greinilegur. Svo mikið höf- um vér heimastjórnarmenn kennt þeim, og vilj- um kenna þeim meira. En valtýskan í eiginlegri merkingu orðsins er dauð. Fylgismenn þessarar nýju stefnu geta ekki lengur vitnað í hana, hversu sem þá langar til. Það er að eins gert til að klóra í bakkann í lengstu lög, en er alveg þýðingarlaus fullyrðing. Um iðnaðarmál. Það munu nú allir viðurkenna, hve mikil nauð- syn það er fyrir íslenzka iðnaðarmenn og aðra, að fara utan og kynna sér háttu annara þjóða. — Utanferðir hafa líka fjölgað allmikið á slðari ár- um, og eiga auðvitað hinar tíðu og hagkvæmu skipaferðir mestan þátt í því. Það er eigi lítill hagur fyrir Austfirðinga og Norðlendinga, að stórkaup- maður Tulinius og Wathnes verzlun halda uppi föstum skipaferðum milli Islands og nærliggjandi landa. — Vestfirðingar hafa einnig notið góðs af skipaferðum hvalveiðamanna og annara þar vestra. Fæði og farareyri er eins og kunnugt er svo ódýrt með skipum þessum, að það mun engum sjálf- bjarga manni ofvaxtð. — Sunnlendingar standa talsvert ver að vígi, með því að skip sameinaða gufuskipa-félagsins eru, að heita má, hin einu, sem farþega flytja frá Reykjavlk til útlanda. En ferðir með skipum þessa félags, eru talsvert dýr- ari en með skipum fyrnefndra. Arið 1897 og aftur'99, gerði þingið þann samn- ing við sameinaða gufuskipafélagið, að 60 iðnaðar- menn á ári (?) eða aðrir, sem færu utan til að kynna sér verkleg „fræði“ fengju farseðil að eins fyrir hálft verð, ef ferðin ekki varði lengur en 6 mán- uði, og hefur það án efa orðið mörgum að góðu liði. — En engir iðnaðarmenn, sem fara utan til að afla sér meiri þekkingar í iðn sinni, en þeir eiga kost á að njóta heima á „Fróni", geta þó fæstir notið þeina hlunninda, með því að 6 mán- uðir er allt of stuttur námstími. Sumir hafa að vísu fengið farseðilinn framlengdan til eins árs, og farið svo heim til þess að geta notið þeirrar íviln- unar, sem þeir ella mundu fara á mis við, jafnvel þótt þeir ljóslega hafi séð, að kunnátta þeirra enn þá ekki fullnægi þeim kröfum, er þeir í framtíðirmi hljóta að gera til sjálfs sin. ísl. iðnaðarmenn, sem koma til útlanda, eru þvl nær undantekningarlaust mjög illa að sér í iðn sinni, og teikningu, sem sem heita má, höfuðskilyrði fyrir, að geta leyst af hendi gott verk, hafa fæstir lært svo að nokkuru gagni geti komið. En flestir hafa þó þá hugmynd um sjálfa sig, að þeir geti fullkomlega jafnazt á við hvern meðalsvein erlendis. Þetta hefur haft þær óheppilegu afleiðingar 1 för með sér, að margir hafa byrjað strax að vinna, sem fullkomnir svein- ar, en auðvitað að eins fengið þá vinnu, sem ekki gat skert álit vinnuveitandans, þótt hún væri mið- ur vönduð. En sá sem ekki getur leyst af hendi gott verk, getur heldur ekki unnið álit sem góð- ur iðnaðarmaður. — Það mun því vera hyggileg- ast fyrir flesta, að byrja strax að vinna, sem ófull- komnir sveinar (Forbundter), enda er með þeim hætti optast auðvelt að fá vinnu, og það á góðum stöðum, og kemur það sér vel fyrir landa, er að heiman koma félausir og fákunnandi í orði og verki. Auk þess eiga menn með þeim hætti heimt- ing á að fá tilsögn frá meistarans hendi, og það verk, sem hægt er að læra af. — Hér að framan hefur verið minnzt á fvilnunarsamning þingsins við sameinaða gufuskipafélagið, sem vonandi verð- ur endurtekinn 1 sumar, þó með litlum breyting- um, sökum þess að hann er ekki sem hentugast- ur fyrir unga iðnaðarmenn, er fara utan til náms. Liggur það mest í þvf, að farseðlarnir eigi gilda lengur en 6 mánuði. Nokkurir hafa, eins og áð ur er áminnst, fengið farseðilinn framlengdan til eins árs. Öðrum hefur aptur á móti ekki tekizt það, allt eptir þvl hvort skrifstofustjórinn hefur verið í góðu eða þungu skapi. Auðvitað má ekki ætla, að stjórn gufuskipa- félagsins gangi inn á, að ívilnunarseðlarnir gildi árum saman. — ísl. iðnaðarmenn í Höfn hafa laus- lega rætt með sér, á hvern hátt ívilnunarsamning- urinn gæti orðið að sem beztum notum. Þeir hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að það yrði með því móti, að ísl. iðnaðarmenn, erlendis, gætu notið þessarar ívilnunar, þegar þeir aptur hverfa heim til íslands, án þess þó að tekið sé tillit til, hve lengi þeir hafa dvalið erlendis ef þeir að eins hafa farið utan með skipum sameinaða gufuskipa- félagsins og borgað ferðina fullu verði og fara heim með þeim ásetningi að llengjast heima á „F’róni" og reka iðn sina þar. — Það er mikil nauðsyn, að iðnaðarmenn fari utan til náms, en —■ það er ekki minna um vert, að þeir komi heim aptur að loknu námi. En til þess að skerða ekki um of rétt þeirra, er utan vilja komast, þá mætti auðveldlega ákveða í hinum nýju samningum, að til dæmis Ve eða r/io hluta hinnar umsömdu ívilnunar mætti veita ísl. iðnaðarmönnum til heimferðar frá Höfn. Það virð- ist heldur ekki vera óeðilegt, að þeir njóti góðs af hlunnindum þessum, sem upp á eigin spítur hafa komizt utan og stundað þar iðn sína og nám með alúð og kappi. — Urn þær mundir, sem menn hverfa aptur heim til fósturjarðarinnar, er peninga- þörfin líka meiri en nokkuru sinni áður, þá þurfa menn að kaupa sér verkfæri og búa sig alvarlega undir starf lífsins á ýmsan hátt. — Þess skal að endingu getið, að skrifstofustjóri gufuskipafélags- ins hefur látið á sér skilja, að stjórn félagsins mundi að líkindum ekkert hafa á móti því, að hin umraedda íyilnun yrði veitt iðnaðarmönnum til heimferða, á þann hátt, sem hér hefur verið bent á. Þess er ekki að vænta, að alþingi í öllu sínu annrlki taki tillit til hverra smámuna, sem þó geta að vísu opt verið mikils varðandi. Isl. iðnaðar- menn í Höfn, þótt ungir og fáir séu, vona að þing- menn hugleiði þó þetta atriði. Þeir (iðnaðarmenn) hefðu viljað skrifa í blöðin um mikið og margt, er að iðnaði lýtur, en þeir vildu ekki taka fram fyrir hendumar á stéttarbræðrum sínum heima, gömlum og ráðsettum borgurum. Það er annars leiðinlegt, hve lítið er skrifað um iðnaðarrnál. Iðulega birtast langar ritgerðir og blaðagreinar um landbúnað, verzlun og fiski- veiðar. En um iðnaðarmál er ekki verið að ræða opinberlega. Sú atvinnugrein virðist Ifka lengi hafa verið olnbogabarn blaðamannanna okkar. Á leið til íslands vorið 1901. Gudm. Gamalíelsson. 1 fjárlagafrumvarpl stjórnarinnar 1902—1903 eru meðal annars þess- ar nýjungar helztar: Hækkun útgjalda við holdsveikraspítalann um 1332 kr. á ári, til málunar á húsum spítalans 2400 kr. 1902, og fyrir byggingu útihúss fyrir kol, olíu og vistir o. fl. 4000 kr., hækkun á launum póstaf- greiðslumanns utan Reykjavlkur um 400 kr., til bréfaburðar (á Akureyri) 100 kr., til að kaupa 4. eldtrausta járnskápa handa póstafgreiðslumönnum 500 kr., 1000 kr. hækkun á ári til gufubátsferða í Sunnlendingafjórðungi og á Faxaflóa, hækkun á launum vitavarðar á Reykjanesi úr 1200 kr. upp í 1500 kr., bráðabirgðar-uppbót handa fátækum brauðum hækkað úr 1700 kr. upp í 2500 kr., til að stækka kirkjugarðinn í Reykjavfk allt að 6200 kr., til þóknunar fyrir tímakennslu f efnafræði við læknaskólann 200 kr., til að byggja girðing úr steini um lóð lærða skólans 1800 kr., og til að útvega lesborð o. fl. f 2 kennslustofum 600 kr., hækkun á launum aðstoðarkennarans við stýri- mannaskólann úr 1000 kr. uppí 1200 kr., til bóka- skápakaupa fyrir landsskjalsafnið 1330 kr. fyrra árið og 1475 kr. til annara útgjalda við safnið, styrkur til kand. Boga Melsteð til að rita sögu

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.