Þjóðólfur


Þjóðólfur - 09.07.1901, Qupperneq 1

Þjóðólfur - 09.07.1901, Qupperneq 1
ÞJÓÐÓLFUR. 53. árg. Reykjavík, þriðjudaginn 9. jCilí 1901. Nr. 34. Landsbankinn verður opinn í sumar í júlí og ágúst frá kl. ÍO f. m. til kl. 1 ©. m. Bankastjórn til viðtals kl. 10—11 f. m. Landsbankinn 25. júní 1901. Tryggvi Gunnarsson. Bókmenntir. Olaf Hansen: Ny islandsk Lyrik. Oversœttclser og Siudier. Kebenhavn 1901. 184 bls. í bók þessari flytur herra Hansen löndum sínum sýnishorn af kvæðum xo íslenzkra skálda: Bjama Thorarensen, Jónasar Hallgrfmssonar, Jóns Thoroddsen, Gríms Thomsen, Benedikts Gröndal, Steingríms Thorsteinsson, Matthfasar Jochumsson- ar, Páls Ólafssonar, Hannesar Hafsteins og Þor- steins Erlingssonar. Með þýðingunum fara stutt- ar lýsingar af skáldunum. Eru þær allar samdar af góðvild í okkar garð; en á suraum þeirra finnst oss harla lítið að græða t. a. m. greininni um Stein- grím og niðurlagið á greininni um Pál Ólafsson, þar sem þýðandinn ber hann saman við Jeppe paa Bjærget, höfuðpersónuna 1 hinu alkunna leik- riti Holbergs. Virðist oss samlíking sú hálfgerð fjarstæða, — þótt einstöku skaplyndiseinkunnum þeirra svipi saman, — af því að Jeppe er og verð- ur einlægt að öðrum þræði kúgað og kvalið dýr, sem hefur litla meðvitund um manngildi sitt, þar sem Páll er frjálsborinn maður, sem þekkir út í æsar annmarka sína og yfirburði. Niðurlagsorðin í greininni um Jón Thoroddsen: ,Men ogsaa hans bedste Lyrik er hentet fra det Land, hvor Svend og Pige kan modes'* þykja oss ekki allskostar ljós og eðlileg. Bezt þykir oss þýðandanum hafa tekizt að lýsa Grími Thomsen, þótt vér sé- um honum ekki alveg samdóma, þar sem hann segir, að það sé líkast þvf, sem Grímur hafi „ekki eytt aldri sínum innan um menn, heldur innan um bækur, er væru ritaðar um einstaka menn, er hann væri nú farinn að skilja". Látum svo vera, að sum kvæði skáldsins styðji þessa skoðun, en á hinn bóginn megum vér ekki gleyma því, að önnur kvæði Gríms bera þess órækan vott, að hann hef- Ur bæði skilið mennina í kringum sig og íslenzka náttúru. Um valið á kvæðum þeim, er hr. Hansen hef- Ur þýtt, mætti segja ýmislegt; sumum finnst ein- hverju kvæði ofaukið, sumir vilja fyrir hvern mun bafa þetta kvæði eða hitt, og þar fram eptir göt- unum. Ef nokkuð skal þar um segja, virðist oss valið ekki nógu margbreytilegt, og finnst t. d. að ástæða hefði veiið til, að taka upp einhver önnur kvæði eptir Þorstein Erlingsson, en eintóm heims- ^deilukvæði, að þeim alveg ólöstuðum. Margir niundu og hafa óskað þess, að einhver kvæði eptir Einar Benediktsson hefðu komizt að í bókinni. Þó að þýðingar þessar séu allmisjafnar að gæðum, verð- Ur ekki betur séð en að þýðandi skilji vel íslenzku * Auðkennt af oss. og hafi lagt alúð við starf sitt. Raunar finnst oss nokkrar þýðingarnar á sumura beztu og þjóðleg- ustu kvæðum vorum vera engu líkari en að kvæð- in hefðu verið færð úr íslenzkum hátíðabúningi í dönsk hversdagsföt, og ekki ósjaldan virðast oss gagnorð og ramíslenzk orðatiltæki verða dauf og bragðlaus í þýðingunni — en þá ber þess að gæta, að erviðleikarnir að þýða, svo að blær og andi haldist, eru stundum svo ákaflega miklir, að þýð- andanum er fullkomin vorkun. Höfum vér borið flestallar þýðingarnar saman við frumortu kvæðin og skulum nú greina hér nokkur dæmi til sönn- ar dómi vorum. Það hefur verið með réttu tekið fram annars- staðar, að þýðing hr. Hansens á vísuorðinu: „Landið sem aldrei skemmdir þín börn" í hinu þjóðkunna kvæði Bjarna: „Þú nafnkunna landið", sé skökk. í sama kvæði koma fyrir vísuorðin: “Fagurt og ógurlegt ertu, þá brunar eldur að fótum þín jöklunum frá". Hansen hefur þýtt þau á þessa leið: „Skræmmende skon, hvergang Ildbolger rulle frajoklerne udover Land til din Rand". Þýðingin er hér um bil rétt, en eg vona til, að menn, sem kunna bæði málin játi með mér, að hún er bragðdauf og hversdagsleg. Fyrir innri augum Bjarna vakir auðsjáanlega myndin afhinni jökulkrýndu mey; á það bendir orðatiheekið ,eld- ur að fóturn þín‘. Það er skáldleg og gervileg (,plastisk‘) mynd; í þýðingunni verður hún að hinu nauða hversdagslega og óskáldlega orðatiltæki ,ud- over Land til din Rand‘. Fjölmörg önnur sllk dæmi mætti benda á, ef tími og rúm leyfði. Allmargt mætti og athuga við þýðing Hansens á kvæði Bjarna: Oddur Hjaltalín. Höfum vér eitt sinn lesið aðra danska þýðingu á kvæði þessu eptir Kr Arentzen og þykir oss hún töluvert gagn- orðari og betri. í niðurlagi 3. vfsunnar einkennir skáldið málbragð og bituryrði Odds þannig: „Það voru frostrósir feigðarkulda, harmahlátrar og helblómstur". Hr. Hansen þýðir vísuorðið svo: ,Isblomster var de, avlet i Dodskulde — Dodsblomster, saaet af Sorg, der lo“. Þýðingin er rétt, en engum blandast hugur um, hvort orðavalið er tígulegra og gagn- yrtara. í sama kvæði stendur: .Konungs hafði’ hann hjarta með kotungsefnum‘; í þýðingunni: ,Hans Sind var en Konges, Han selv uden Eje\ og loks, ,en Oddur byggði sér þar hlátraheim, þá heimur grætti‘\ í þýðingunni: ,men Oddur sig bygged et Latterbo, naar han led og græd'. Hvervetna er íslenzka orðfærið fegurra og kjarnyrtara, þótt vér ekki fáumst um smáónákvæmni í þýðingunni. í Sigrúnarljóðum Bjarna, sem eru yfirleitt vel þýdd, finnst mér að innileikurinn og hin djúpa ástar- blíða, sem stundum felst í einu orði í frumkvæð- inu, komi engan veginn fram f þýðingunni, sem skyldi t. a. m.: ,Mín trúir þó ei meyja1, Dutror mig ikke, Pige‘, Orðskrúðið í ,til friðsala himna* hverfur alveg í þýðingunni: ,til Fredens Hus i Himlen*. I næst síðasta erindinu er ,bregða blundi' skakkt þýtt með ,fare op af Suvne'; ónákvæm er og þýðingin .bidende Vinde' á orðunum lopt- vegu kalda o. s. frv. Um þýðingar Hansens á nokkrum kvæðum Jónasar er sama að segja, sem um þýðingarnar á kvæðum Bjama. Víðast hvar standa þær á baki frumkveðnu ljóðunum. í kvæðinu .Gunnarshólmi* sem hr. Hansen hefur þýtt brot af, kemst skáldið í niðurlagi kvæðisins þannig að orði: .Sólroðin líta enn hin öldnu fjöll árstrauminn harða fögrum dali granda; flúinn er dvergur, dáin hamratröll, dauft er í sveitum, hnípin þjóð í vanda. Orðin eru slétt og óbrotin, en kveðandi og hljóð- fall kvæðisins bera vott um djúpa og innilega hryggð. ,De gamle Fjælde see i Morgnen rod den Dal, hvis Skunhed Aaen stadig bryder. Flygtet er Dværgen, Klippens Trold er dod, Folketi Nod, i Landet Slovhed bryder. Bryder mun þó vera prentvilla fyrir ,byder‘. Mik- ið finnst oss hér skilja frumkvæðið og þýðing Hansens: I ,íslandl farsælda frón‘, sem erannars dável þýtt, kann eg illa þýðingunni á vísuorðunum: Það er svo bágt að standa í stað, og mönnunum mun- ar: Svært det er paa Stedet at staa\ to Kaar kan man vælge,; og efast enda um, að húnkomiheim við anda kvæðisins. Þýðingin á stekkur = Stald, er skökk. Hulduljóð nefnir þýðandinn: Eggert Ólafsson. Þýðingin er víða lítt nákvæm, og mætti margt við hana afhuga t. d.: ,Nú skal úr hlíðum hárra Tinnufjalla | svo huldumeyjar þægan vinni koss | óbrotinn söngur yfir dalinn líða* hljóðar svo í þýðingunni: ,Nu fra de hoje Tinnefjældes Sider | hvis Bjærgets Disers Kys begejstre kan | strörn- mendeSang skal gennem Dalen flyde* (!). Þýðingin er að vorum dómi bæði stirð og skökk. Hvað verður af hinu undurfagra og inni- lega hreim og þýða stuðlafalli vísuorðanna ,Sól- fagra mey! hann svipast um með tdrum, saltdrif- in hetja, stigin upp af bárum': .SolfagreMo! Han ser sig om og græder, Havvandet driver salt af Hel- tens Klæder'. Þýðingin á: ,Hann lídut yfirljósan jarðargróða1, ,Fremad han gaar blandt Jordens lyse Grude1, er dálítið þunglamaleg. ,Lfða‘ á svo einkar vel við svipi eða vofur. I kvæði Jónasar .Ferðalok1, hefur þýðandinn þýtt erindið: ,Blað skilur bakka og egg‘: ,mellem Æg og Ryg ligger Erts‘. ,Skúli fógeti1 er þess ljóst dæmi, hversu miklum erviðleikum það er bundið að þýða mörg okkar þjóðlegustu kvæði á aðra tungu. Þýðand- anum hefði samt sem áður, hvað sem öðru líður, ekki verið ofvaxið að forðast einstöku smekkleys- ur, sem slæðzt hafa inn í þýðinguna, svo sem ,Gildur á velli og gildur í lund, gulls var hann skrýddur baugum': ,Stærk af Vækst og stout i Aand, Smykker han barpaa sin Troje'. Bezt virtist oss hr. Hansen hafa tekizt að þýða kvæði eptir Steingrím og Þorstein Erlingsson. Kvæði Matt- hfasar ,Leiðsla‘, sem þýðandinn nefnir ,Flugt‘ er ogmikið,velþýtt;á einum stað„finnstoss jafnvel að þýðingin taki frumkvæðinu fram: ,Eg andaði himinsins helgasta blæ og minn hugur svalg voða- legt þor‘. ,Jeg aandede Himmelens helligste Luft og jeg fyldtes af svulmende Kraft'. Annars hefðu mörg ágætiskvæði Matthfasar fremur átt skilið að

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.