Þjóðólfur


Þjóðólfur - 09.07.1901, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 09.07.1901, Qupperneq 2
134 takast upp í safn þetta en ,Leiðsla‘. Öðru máli er að gegna um þýðing Hansens á Hallgr. Pét- urssyni, sem er eitthvert hið ágætasta og fegursta kvæði skáldsins. Þýðingin hefur sumstaðar tekizt miður en skyldi, bæði að kveðandi og hreimfeg- urð, að eg ekki nefni tilþrifin og kjarnyrðin, sem er svo ákaflega ervitt að fást við. í annari vís- unni kemst skáldið svo að orði: ,Blinda hvarma baða sollin tdr, berst og þýtur yfirhöfði skjár'. í þýðingunni : ,Taarer bade .... han er ogsaa blind, Blæsten smælder gennem Vindvet ind'. Eða er- indið: .Komiðnú með hjartnæm hryggðartár': ,Er i rorte? Bryder Taarer frem', sem mun naumast verða talin rétt þýðing. Eggert Ólafsson er apt- ur á móti vel þýtt kvæði; þó hef eg rekið mig þar á miður heppilega þýðingu á vísuorðunum: Boðinn skall yfir bárumar, — í búlkann var komið skarð,: Ind Vandet brod med skummende Dad, i Hast — hans Skib var læk. Að endingu viljum vér þakka þýðandanum fyrir loflega viðleitni hans að efla þekkingu landa sinna á íslenzkum bókmenntum og óska, að hún verði honum með tímanum til gagns og gleði. A A1 þ i ngi, ii. Stjórnarskrárbrryting Valtýinga, er getið var um 1 síðasta blaði var á dagskrá í neðri deild til i. umr. 6. þ. m. Dr. Valtýr talaði alllangt er- indi fyrir málinu, og rakti sögu þess. Var svo að heyra, sem hann gerði sér enn von um, að stjórnin mundi samþykkja þetta, þrátt fyrir allar breytingarnar, og þrátt fyrir það, þótt skilyrð- inu frá 18971™ breytingu á 61. gr. væri nú sleppt. En sllkt er að eins út í bláinn talað, og hefur við ekkert að styðjast, enda gat landshöfðingi þess, eptir fyrirspurn frá Pétri Jónssyni, að þetta nýja frumvarp Valtýinga væri ekki þannig úr garði gert, að stjómin mundi fallast á það, enda er nú naumast nokkur urmull orðinn eptir af frv. Valtýs 1897, nema þingseta ráðgjafans frá Höfn. En úr því að þeir Valtýingar eru hættir að hugsa um, hvað stjórnin muni samþykkja, þá virðist rétt- ara að spenna bogann dálítið hærra og krefjast þess, sem vér getum verið nokkumveginn ánægð- ir með u m s i n n, og útlit er fyrir, að frjálslynd vinstrimannastjórn muni ekki synja oss um. Og það er og hefur jafnan verið stefna heimastjórn- arflokksins. Og sú stefna nntn sigursælust verða að lokum, hversu ósleitulega, sem spyrnt verður móti henni. Samkvæmt kröfu 8 þingmanna úr heima- stjórnarflokknum voru heimtaðar hlutfallskosning- ar við nefndarkosninguna í Valtýsfrv. nýja og hlutu kosningu: Lárus Bjarnason, Valtýr Guðmundsson, Hannes Hafstein, Skúli Thoroddsen, Guðlaugur Guðmundsson, Ólafur Briem, Björn Bjarnarson búfr. Önnur mál, er fyrir þingið hafa verið lögð síðan 5. þ. m. eru þessi hin helztu: Breyting á lögum 24. nóv. 1893 um gæzlu og viðhald á brúm yfir Ölfusá og Þjórsá (flutningsmenn: Hannes Þorsteinss., M. Torfason, Sig. Sig., Þ. Guðmundss.) þ. e. að brýrnar komist í eign og umsjá landsjóðs, er kosti gæzlu þeirra. Um óháð sjálfstjórnarkirkjufélög á íslandi (flutningsm.: B. Bjarnarson búfr., H. Þorsteinss.) prentað áður í Þjóðólfi; sett í nefnd f n. d. f gær (Einar Jónss., B. B. búfr., H. Þor- steinss. B. B. sýslum., M. Torfason). Sala þj óðj arðarinnar Sauðár f Skagafirði (flutn.m: Ól. Br., St. Stefánss. (Skagf.)). Lan dbún að armál. Tillaga um nefndar- skipun f þvf (frá Sig. Sig., P. Jónss., Ól. Br.). Fátækramál og sveitarstjórnarlög. Tillaga um milliþinganefnd til að íhuga þessi mál (frá H. Þorst., Sig. Sig., Þ. Thoroddsen). Breyting á opnu bréfi 6. júlí 1848 (um 3 ára sveitfesti 1 stað 10) frá M. Torfasyni o. fl. Samgöngumál. Till. um nefndarskipun frá Jóh. Jóhannessyni, H. Hafstein 0. fl. B a n k a m á 1. Till. um nefndarskipun til að Ihuga það, frá Þórði Thoroddsen, Guðl. Guð- mundssyni og Valtý Guðmundssyni. Samgöngumál. Till. um nefndarskipun í þeim málum frá St. Stefánssyni (Skagf.) o. fl. Menntamál. Till. um nefndarskipun í því frá St. St. (Skagf.) og Valtý Guðmundssyni. Um gagnfræðaskóla í Akureyrar-kaup- stað eða flutning Möðruvallaskólans þangað. Frv. frá St. St. (Skagí.) og Þ. Thoroddsen um, að verja megi allt að 25,000 kr. úr landsjóði til að reisa gagnfræðaskóla á Akureyri með 3 kennurum, er einn sé skólastjóri og hafi 3000 kr. í laun og leigulausan bústað í skólanum, en hinir kennar- arnir 2000 kr. og 1600 kr. — Heimastjórnarflokkurinn hefur nú borið upp í neðri deild nýtt stjórn- arskrárbreytingarfrumvarp, er gengur í ein- dregna heimastjórnarstefnu, og byggist því á allt öðrum grundvelli, en hið nýja Valtýs- frumvarp. Höfuðatriðið í þessu nýja heima- stjórnarfrumvarpi er að flytja æztu stjórn sérmála vorra inn í landið, með því að fá ráðherra, búsettan hér á landi og launaðan af landsjóði, mann.sem mæti á alþingi og beri ábyrgð gagn- vart því. Hér er því mikil grundvallarmis- munur milli þessa og Valtýsfrumvarpsins, en ólíklegt er samt, að hinir gætnari Valtýingar snúistá móti þessu, því að það ætti að vera sam- eiginlegt áhugatnál allra þjóðrækinna manná að leggjast á eitt í því, að fá öllum þeim kröfum vorum framgengt, er vér getum haft nokkra von um, að fái áheyrn hjá frjálslyndri vinstri- mannastjórn, og í heimastjórnarfrv. þessu er ekki lengra farið en svo, að vér getum fylli- lega vænzt þess. Auðvitað fer það skemmra en endurskoðunarfrumvörpin gömlu, en það byggist alveg á réttum grundvelli, sama grund- vellinum.sem endurskoðunarfrumvarpiðog mið- ar því algerlega í rétta átt. Þetta þarf ekki frekari útskýringar að sinni, því að frum- varpið sjálft ber það með sér, og þess vegna prentum vér það hér á eptir í heilu lagi, til þess að þjóðin geti áttað sig á, um hvað hér er að ræða, og hversu mikið framfaraspor á sjálfstjórnarbraut vorri sé stigið með þessu frv. Þess skal getið, að flestar breytingar frá nú- gildandi stjórnarskrá erú auðkenndar með öðru letri í frv. þessu, svo að það geti orðið fljót- legra til samanburðar. Frumvarp til stjórnarskipunarlaga um breyting á stjórn- arskrá um hin sérstakíegu málefni íslands, 5- jan. 1874. Flutningsmenn: Lárus H. Bjarnason, Hannes Hafstein, Björn Bjarnarson, þm. Borgf., Pétur Jónsson, Hannes Þorsteinsson, Jósafat Jónatansson, Hermann Jónasson, Tryggvi Gunnarsson, Stefán Stefánsson, þm. Eyf., Björn Bjarnarson, þm. Dalam. í staðinn fyrir 1. gr., 2. gr., 3. gr., 5. gr., 11. gr., 12. gr., 14. gr., 17. gr., 18.gr., 19- gr-. 25.gr., 28.gr., 34. gr., 36.gr.39.gr., 40.gr., 62. gr. og 2. ákvörðun um stundarsakir í stjórnarskránni komi svohljóðandi greinar: 1. gr. (1. gr. stj.skr.). í öllum þeim mál- efnum, er varða ísland sérstaklega, hefur land- ið löggjöf sína og stjórn út af fyrir sig, á þann hátt, að löggjafarvaldið er hjá konungi og alþingi í sameiningu, framkvæmdarvaldið hjá konungi og dómsvaldið hjá dómendum. Hin sérstaklegu málefni íslands eru tal- in í lögum um hina stjórnarlegu stöðu ís- lands í ríkinu, 2. jan. 1871. 3. gr., og eru þau þessi: 1. Hin borgaralegu Ivg, hegningarlógin og dómgœzlan, er hér að lýtur. Þó verður eng- in breyting gerð á stóðu hœstaréttar sem œzta dóms í íslenzkum málum án þess, að hið almenna lóggjafarvald ríkisins taki þátt í því; 2. lögreglumálefni; 3. kirkju- og kennslumálefni; 4. lækna- og heilbrigðismálefni; 3. sveita- og fátækramálefni; 6. vegir og þóstgóngur á Islandi; 7. landbúnaður, fiskiveiðar, verzlun, sigling- ar og aðrir atvinnnvegir; 8. skattamál; bein og óbein\ p. þjóðeignir, oþinberar stofnanir og sjóðir. Meðan ísland hefur ekki fulltrúa í ríkis- þinginu, tekur það engan þátt í löggjafarvald- inu um hin almennu málefni ríkisins, en á hinn bóginn verður þess eigi heldur krafizt á með- an, að ísland leggi neitt til hinna almennu þarfa ríkisins. Eigi má ákveða, að ísland hafi fuli- trúa á ríkisþinginu, nema með lögum, er bœði löggjafarvald ríkisins og hið sérstaka lóg- gjafarvald Islands samþykkir. 2. gr. (2. gr. stj.skr.). Konungur er á- byrgðarlaus og friðhelgur. Hann hefur hið æzta vald yfir hinum sérstaklegu málefnum íslands, rpeð takmörkunum þeim, er settar eru í stjórnarskipunarlögum þessum, og lætur ráðherra á íslandi framkvœma það. Hann ikal vera búseltur í Reykjavík, tala og rita íslenzka tungu, vera launaður af landsjóði íslands, og að jafnaði bera lög og ónnur mikilsvarðandi málefni sjálfur fram fynr konung. Auk þess nefnir konungur annan ráðherra fyrir íslandi, sem skal vera búsetlur í Kaupmannahófn. í fjarvist eða forfóllum ráðherrans á íslandi skal hann í umboði hans bera mál þau, er konwigur rœður úr- slitum á, fram fyrir konunginn, og að öðru leyti framkvœma þœr stjórnarathafnir, sem eigi má fresta þangað til úrskurðar ráðherr- ans á Islandi verður leitað. Undirskriþt konungs undir ályktanir þœr, er snerta Lóggjóf og landsstjórn á ís- landi, veitir þeim gildi, ef annarhvor ráð- herranna ritar undir með honum. Þegar ráð- herra sá, er búsettur er í Kauþmannahófn, undirskrijar lóg og stjórnarathafnir í umboði ráðherrans á íslandi, ber hann að eins ábyrgð á því, að málið sé rétt framfiutt og aýgreitt. 3. gr. (3. gr. stj.skr.). Ráðherrarnir bera ábyrgð á stjórnarathóýnum sínuni. Konung- ur eða neðri deild alþingis getur kœrt ráð- herrana fyrir embœttisrekstur þeirra. Lands- dómur á Islandi dœmir þau mál, er hófðuí kunna að verða gegn ráðherranum á íslandt, en hœstiréttur þau mál, er hófðuð kunna að verða gegn ráðherra þeim fyrir ísland, búsettur er í Kauþmannahófn. Abyrgð ráð- herranna skal ákveðin með lógum. Deyi ráðhert ann á íslandi eða sýkiR svo, að hann fai eigi löglega ráðstöfun gtU um stjórnarstórf sín til bráðabirgða, þá ann- ast sá embættismaður, sem honum er næstur, hinn elzti stjórnardeildarstjóri, stjórnarstöff þau, er eigi má ýresta, þangað til konungur nejnir annan ráðherra á íslandi, eða ráðheH' ann tekur aþtur við stjórninni. Þá er ráðherrann á fslandi jer utan, eða á annan hátt er fjarlægur bústað sínun1

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.