Þjóðólfur - 01.11.1901, Side 1

Þjóðólfur - 01.11.1901, Side 1
ÞJOÐOLFUR. 53. árg. Reykjavík, föstudaginn 1. nóvember 1901. Nr. 52. Biðjið ætíð um OTTO MÖNSTED’S danska smjörlíki sem er alveg eins notadrjúgt og bragðgott eins og smjör. Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í Danmörku, og býr til óefað hina beztu vöru og ódýrustu í samanburði við gæðin. Fæst h já k a u p m ö n n u n u m . Landsban kin n Og Indriði Einarsson Þótt eg fyrir áskorun annara fari nú að svara Indriða Einarssyni, þá álít eg það óþarft; því þegar sá orðrómur er kominn á, hvort sem hann er sannur eða ósannur, að einhver sé keyptur, þá trúa fáir. I fyrra vetur var I. E. í mörgum blaðagrein- um, sem kærastan hans »ísafold« flutti fyrir hann, að reyna til að gera mönnum það skiljanlegt, að bankavaxtabréfin væru eigi meira virði en 8$0/o. Þetta var á þeim tíma, sem honum var kunn- ugt um, að bankinn þurfti að selja bréfin; hann lá þá með fjölda þeirra, og hafði gefið öllum lánþiggjendum veðdeildarinnar 100% fyrir þau. En nú sér I. E., að bankanum liggur elikert á að selja bréfin, því nú eru þau seld hér á landi hátt á þriðja hundrað þús. kr. fyrir 100%, og er- lendis 200,000 kr. fyrir 99%, og auk þess gerð ráðstöfun til að taka % milj. kr. lán í gulli er- lendis gegn veði í bankavaxtabréfum. Þess vegna hrópar I. E. hátt í ísafold, 70. tölubl., að banka- vaxtabréfin séu seld allt of ódýrt fyrir 99%; 100 kr. bréfin ættu að kosta 112—125 kr. »Velgerð dönsku bankanna og ósérplægni er sú, að þeir borga landsbankanum hér 99,000 kr. fyrir það, sem þeir yrðu að borga þar 124,714 kr, fyrir*. Þetta segir I. E. Mikil er bíræfnin; eg held að hann ætli að eins vitskertum mönnum að lesa grein sína. Sama daginn, sem eg seldi bankavaxtabréfin, lét eg kaupa á »Börsen« í Kaupmh. fyrir Lands- bankann 100,000 kr. í 4%%, Kaupmh. Frihavn Oblig. fyrir 97%%; 50,000 kr. í Östifternes Kre- ditkasse 4%% Oblig. fyrir 99%% og Vest & Sönderjydske Kred: 4r/2% Oblig. fyrir 9974%- — Öll þessi verðbréf gefa 472% og eru í þeim stofn- unum, sem Danir állta bezt tryggðar. Þó eru þau öll keypt undir 100%; er það þá sennilegt, að danskir bankar fari að kaupa ísl. bankavaxta- bréf fyrir mikið hærra verð, en sín innlendu bezt tryggðu verðbréf. Menn munu síðar sjá, þó þeir vilji ekki sjá það nú, að landinu og banka þess, er sýndur sómi og traust, með því að stofnanir, sem mest álit hafa í Danmörku lána orðalaust s/3 milj. kr. í gulli með 4% vöxtum, gegn veði í bréfum, sem bankinn sjálfur á, án þess að nefna nokkra auka- tryggingu, og kaupa svo þar að auki 200,000 kr. í sömu bréfum, með jafnháu verði og Danir sjálfir kaupa sín eigin verðbréf, sem bezt eru tryggð. Það er eptirtektavert, að útlendir menn sýna landsbankanumj þetta traust, sama sumarið, sem innlendir menn berjast fyrir því 1 blöðum og á þingi, að innlendi bankinn skuli lagður að velli sem aflóa og ónýtur, með því að hann ekkert lánstraust hafi né lífsafl. — Þótt Valtýr, I. E. og ísafold hafi hleypt upp þessu moldryki, þá mun sú raun á verða, að þau fá ekki »stóra bankann« sinn fyrst um sinn, og verða vonandi að bíða nokkur ár enn þá, eptir væntanlegum verkalaunum. — »Sjaldan hefur af meiri bíræfni ryki verið sáð í augu manna, en með því að þessi 72 niilj. kr. í gulli — geti ráðið bót á peningaþörf lands- manna« segirl. E. íbyrjun greinarsinnar. Hann læt- ur sem hann hafi ekki heyrt og séð á fundinum 12. þ. m., að eg bæði sagði frá og lagði fram skil- rfki fyrir því, að landið ætti kost á að fá lánað auk nefndrar 72 rn'lj- kr., D/2 milj. kr. í gulli gegn 4°/o vöxtum í 28 og 30 ár, Eg veit að ekki er til neins að segja I. E. frá því, hann skilur það ekki, en eg vona að flestir greindir lesendur mínir sjái það, að bankastjórnin gat ráðið til lykta láni því, sem Landmannsbankinn í Kaupmh. lánaði lands- bankanum, af því hann tók til tryggingar verð- bréf þau, sem bankinn sjálfur átti, en ofannefnd i7* milj. kr. verða lánaðar gegn trygging lands- ins, en hana getur þingið eitt gert bindandi skil- mála um. I því efni gat eg ekki annað gert í ferð minni en útvega lánið með góðum kjörum. Þingsins er síðar að segja um það, hvort það vill fyrir landsins og bankans hönd þiggja lánið. Þá kemur í Ijós, hvort kappið í köppunum erum það, að fá peninga inn í landið, til að hjálpa þeim sem lánþurfa eru, eða áhuginn snýst um það, að eyðileggja landsins eigin stofnun, til þess að eiga hægra með að koma að útlendum yfirráðum yfir peningaviðskiptum landsmanna jafnframt þvf, sem sem þeir vilja draga stjórnina út úr landinu. — Á öðrum stað segir I. E.: »Þessi 72 milj. kr. lántaka er eintómur reykur, ekki annað en sölutilraun á bankavaxtabréfunum,' sem ekki aflar bankanum veltufjárauka, — það er færsla á fé bankans úr einum vasa í anrian«. En sá refa- vefur. Þegar I. E. var búinn með greinum sín- um í fyrra vetur að vekja tortryggni á bankav.br. og spilla því, að bankinn gæti selt þau hér á landi, þá sá eg leik á borði gegn I. E. og Isafold, og það var að taka lán út á bréfin. En þegar lánið er fengið, þá segir I. E., að það sé ónýt sölutil- raun, það hefði verið miklu betra að selja þau. — Það er annars skrítin ályktun, að það auki ekkert veltufé bankans, að taka vaxtabréfin upp úr féhirzlum bankans, lána út á þau hálfa milj. kr. í gulli og dreifa því í lánum út á milli manna. En þó yrði veltufjáraukinn enn þá meiri, ef eg fæ þeim vilja mínum framgengt, að þingið næsta sumar samþykki að gefa út 1 milj. kr. í seðlum, auk seðla þeirra, sem nú eru til, en gullið sé lagt í kassa bankans til tryggingar þessum nýju seðlum. Fáist þetta, þá má bjargast við það í bráð, en þyki þetta of lítið, þa er gull í boði eins og að framan er sagt, til að tryggja með meiri seðla- útgáfu. — »Bankavaxtabréfin eru ekki útlend í Dan- mörku, þau eru innanríkisbréf« segir I. E. Eptir því eru ríkisskuldabréfin og önnur dönsk verð- bréf innlend hér. — Á öðrum stað segir hann: »Vextir af veð- deildarbr. eru alls 54,000 kr., — og þá ábyrgist lándsjóður auk bankans sjálfs, og má nærri geta, hvort hann muni ekki vera því vaxinn. — Þetta vita bankarnir í Kaupmh. greinilega. — Hvar er þá velgerðin, þó þeir gefi fyrir bréf þessi 4/5 hluta þess, sem þau eru verð«. — Þeir sem lesa þetta mikla hrós um bankav.bréf- in, og minnast um leið vitnisburðar I. E. um þau í fyrra vetur geta naumast verið samdóma Isafold, að ferð mín til útlanda í haust hafi verið »árangurs- laus«. Það er ekki lítilsvert, að öll bankav.br. hafa á stuttum tfma vaxið svona mikið í verði og áliti. — Þótt eg sé I. E. samdóma um það, að full- nægjandi trygging sé fyrir bankavaxta.br. í fasteignum þeim, sem veðdeildin hefur að veði frá lánþegum sínum, og 200,000 kr., sem lands- sjóður hefur sett til tryggingar, þá er framsetning hans svo bjöguð og skökk, að auðséð er, að hann hugsar ekkert um það sem hann segir. Land- sjóður og bankinn ber enga ábyrgð af bréfunum og vöxtunum frekar en að ofan er sagt. I öðru lagi er það, að ef landssjóður bæri ábyrgð af vöxtunum umfram nefndar 200,000 kr., þá væri ábyrgð hans margfalt meiri upphæð en eins árs vextir »54.000« kr. Því að hafi landssjóður skyldu til að ábyrgjast vextina, þá hlýtur sú ábyrgð að ná ekki að eins til 1 árs vaxta, heldur til vaxt- anna fyrir öll þau ár, sem nokkurt bankav.br. er óinnleyst. Og að síðustu er það rangt, að árs- vextir veðdeildarinnar séu 54,000 kr. Þeir ná aldrei þeirri upphæð, því áður en búið verður að gefa út öll bankav.br., þá verða dregin út og eyði- lögð talsvert mörg bréf fyrir þá upphæð, sem þá verður búið að innborga til veðdeildarinnar af lánum hennar, og upp frá því fara vextirnir ár- lega minnkandi, og verða litlirseinasta áratuginn. Svona er allt snúið og bjagað í þessari grein I. E. Það er eigi hægt að kalla hana »bíræfnis- ryk til að sá í augu manna«, því ósannindin og bjánaskapurinn liggja svo utan á henni, að hún getur engum manni glapið sýn. (Framh.). Tr. Gunnarsson. ,,Stjórnarbótin“(I) eptir Yeratý. V. Eg þykist vita, að nú þrífi Hafnarstjórnar- menn tveim höndum ráðgjafaábyrgðina, segi, að hún sé »trygging« þess, að valdið sé betur kom- ið í höndum hans en landshöfðingja. Það sé svp sem ekki ónýtt ákvæðið það. Það sé oss hauk- ur í horni. Eg skal gaumgæfa það hér að nokkru. Ekki skal eg fara hér mörgum orðum um,

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.