Þjóðólfur - 13.12.1901, Blaðsíða 3
235
vegna að reyna að gera manntetrinu þetta skilj-
anlegt:
„Með pví að vera að hafa á boðstólwn, og fd
menn til að kaupa áhöld, setn hljóta að reynast ó-
brúkandi, spillir hann fynr verzlun sinni sjálfur,
pegar eg nú reyni að koma í veg fyrir að honum
takist petta, pá vinn eg verzlun hans gagn“.
Þetta virðist mér að maðurinn ætti aðgetaskil-
ið, og vera mér þakklátur fyrir.
Stefán vill halda því fram, að plógurinn, sem aug-
lýstur er í „Hlín“ sé allt annar og miklu betri plóg-
ur en sá, sem eg minntist á í greininni, og er það
að vissu leyti fyrirgefanlegt, því nafnið á plógnum
er ekki rétt í grein minni. Plógur sá, er eg nefndi
„Canton Clipper" er einn af þeim plógum, sem Stefán
Jónsson seldi Bíinaðarfl. Isl. í vor, enda þótt hann
þræti fyrir, að hann hafi nokkurntíma boðið fram
þann plóg. „Root Ground“ Nr. i. hefur hann líka
selt félaginu, og er bolurinn á báðum þessum
plógum alveg eins, þó lakari á „Root Ground“ því
á honum er veltifjölin alveg ónýt fyrir þúfna-
plægingu, að eins 8 þuml. breið að ofan, hæð bring-
unnar frá skeratá (korda bogans) 14 þuml. A „Can-
ton Clipper" er ásinn úr tré, og á honum er hjól-
ristill, en að ristlinum undanskildum eru plógar þessir
báðir jafnóhentugir fyrir þúfur. Af því eg ekki sá
neins nafns getið á plógi þeim, er auglýstur var (
„Hlín“, en eg hins vegar aldrei hafði lagt vel á
minnið nöfn þessara fyrirtaksplóga! þá hefur mér
orðið á að hafa hausavíxl á nöfnum' og nefna
þann „Canton Clipper", sem réttnefndur er „Root
Ground PIovv" Nr. 1. og þann plóg á eg við í grein-
inni, að vísu getu ummæli mín átt jafnvel við báða
þessa plóga. Eg átti alls ekki við „Canton Scoteh
Clipper“ en eg hef áður minnst á þann plóg ásamt
enn þá einum af plógurn Stefáns, en það kemur
ekki þessu máli við. — Við nánari athugun á rnynd-
inni af„ Root Ground“ sýnist mér veltifjölin dálítið
stærri en á plógi þeim með sama nafni Nr. 1. sem
félagið á, og getur því verið, að það sé annað núm-
er, sem auglýst er í „Hlín“ en það gerir hv'orki til
né frá, þegar um þýðingu plógsins til þúfnaplægingar
er að ræða, því það sem einkum gerir hann óhæf-
an til slíkrar notkunar er lagið áásnutn og veltifjöl-
intii. Að „Canton Scotch Clipper" ekki erbrotplóg-
ur þurfti eg ekki að láta Stefán þennan fræða mig
um, en hitt vil eg leyfa mér að benda honum á, að
veltifjölin á þeim plógi, er miklu betur löguð til
þúfnaplægingar heldur en á „Root Ground" og sömu-
leiðis vil eg benda honum á, að af brotplógum er
naumlega að búast við að finna hentugan plóg fyr-
ir þúfur, því þessir plógar eru ætlaðir til að brjóta
með sléttara land, og er því optast veltifjölin óhent-
ug eða þá að skeratá og bolurinn allur erof langt,
lagið á hentugum plógi fyrir þúfur verður því að
vera sem mitt á milli brotplóga og akurplóga.
Eg þykist nú hafa sýnt hér að framan, að um-
mæli mín í Þjóðólfi eru ekki svo „óviðkomandi um-
talsefninu" (Stefán verður að fyrirgefa að eg nota bara
íslenzkuna. Margir af okkur alþýðumönnum hafa ekki
öðru betra til að dreifa), sem Stefán gefur í skyn í
þessari svokölluðu leiðréttingu sinni. Þessi óheppilegu
hausavíxl á nöfnunum vona eg að hann geti fyrirgefið.
Eg verð því enn að álíta plóg þennan óhentugan og
að Stefán hafi entt pá ekki gefið okkur kost á hent-
ugri plógum en við getum fengið annarstaðar; geti
hann það skal eg ekki síður en aðrir verða honum
þakklátur. En hann hefur gert annað, hann hefur
ekki að eins gefið kost á að útvega heldur útvegað
4 plóga, sem því miður er útlit fyrir að fái að hvíla
sig í friði engu síður en þeif, sem hann talar um að
keyptir hafi verið með ráði „hinna lærðu íslenzku bú-
fræðinga". Plógar þessir eru til sýnis og viðvörun-
ar í verkfæraskúr Gróðrarstöðvarinnar hér í Reykja-
vík. Eg skal svo ekki eyða fleiri orðum um plóga
þessa, en ráða vil eg Stefáni til þess, að bíða með
að bjóða meir af því tagi, þangað til einhver er bú-
inn að fægja með plægingu ryðið af þessum 4 ger-
semum, sem eg nefndi.
Jón Jónatansson.
Gufuskipið „Isafold"
kom í gærmorgun eptir 8 daga ferð frá Leith
með vörur til Brydes verzlunar.
Frá útlöndum
engin veruleg tíðindi, að því er séð verður af
enskum blöðum frá 2. og 3. þ. m. Búastríðið í
sömu skorðum sem fyr. Kitchener þykist vera að
kreppa meir og meir að Búunum, og lætur frétta-
þráðinn flytja fregnir um, að nú hafi rnenn hans
handsamað nokkra Búa og tekið að herfangi mörg
þúsund(!) nautgripa. Talað er um, að Vilhelmína
Hollandsdrottning ætli með aðstoð Fiakka og Rússa
að gangast fyrir því, að skipaðir verði gerðardómur,
en menn gera sér litlar vonir um, að nokkur á-
rangur verði af þeim málaleitunum. Blaðið
„Scotsman" er mjög gramt yfir því, að blaðstjór-
um á Englandi t. d. Stead og Labouchére og öðr-
umBúavinum t. d. Campbell-Bannermann skuli hald-
ast uppi að ófrægja ensku hershöfðingjana og enska
herliðið í Suður-Afriku 1 ræðu og riti, og segir að
réttast væri að setja þessa menn í fangelsi fyrir
illmælin. Vitnar blaðið (, að Þjóðverjar hafi það
öðruvísi. I Berlín hafa nfl. 2 úr ritstjórn sósíalista-
blaðsins „Vorwárts" verið dæmdir nú um mánaða-
mótin í 6 og 7 mánaða fangelsi íyrir ummæli um
von Kettler hershöfðingja, er hefði beitt óþarflega
roikilli grimmd við „boxarana í Kína. „Svona
þvær þýzka stjórnin alla bletti af b.ernum" segir
hið skozka stórblað. — Keisadrottningin í Kína
ætlaði að halda hátlðlega innreið sfna í Peking
nú eptir mánaðamótin, og mikill viðbúnaður hafður
fil að fagna henni. Hún hefur gefið út skipun um,
að ríkiserfinginn Pu-Chun, sonur Tuans prins, skuli
sviptur rétti sínum til ríkisstjórnar og bera að eins
I hertogatitil. Er þetta gert til að þóknast stór-
veldunum, af því að Tuan prins var pottur og
panna í „boxara“-uppreisninni, eins og kunnugt er,
og segir keisaradrottningin, að Tuan hafi með því
svívirt minningu forfeðra sinna svo, að afkomend-
ur hans geti ekki setzt að ríkjum í Kína. Mælist
þetta vel fyrir hjá Norðurálfumönnum, en miður
hjá Klnverjum, og eru nú „boxarar" farnir að
láta bera á sér aptur í sumum fylkjum í landmu.
Landsbankinn.
Landsbankinn verður lokaður
dagana 23. desember—4. janúar
næstkomandi að báðum dögum
meðtöldum. — Þö er afgreiðslu-
stofan opin 2. janúarkl. 1 1—2, en
að eins til þess að greiða vextí af
bankavaxtabréfum og innleysa
bankavaxtabréf.
Reykjavík 12. desember 1001.
Tryggvi Gunnarsson.
Jólakort — Jólakort
n ý k o m i n
á SKÓLAVÖRÐUSTÍG 5.
komu nú með „Laurn“.
Mjög stórt úrval.
M
EÐ því að verziun Sturlu Jóns-
sonar selur eingöngu vörur gegn pen-
ingum út í hönd frá næsta nýári og hætt-
ir öllum útlánum, er skorað á alla þá,
sem skulda téðri verzlun, að hafa greitt
skuldir sínar til hennar fyrir 1. febrú-
ar 1902 eða samið um þær; en þá verða
allar útistandandi skuldir afhentar hr.
kaupm. Kristjáni Þorgrímssyni í
Reykjavík til innheimtu.
Reykjavlk 5. nóv. 1901.
Sturla Jönsson,
Hærri vextirl
Hinn 1. dag janúarm. 1902 hækka inn-
lagavextir við sparisjóð Arnessýslu upp í 4%.
Eyrarbakka, 25. nóv. 1901.
(luðjón Ólafsson. Jón Pálsson.
Kr. Jóhannesson.
N\/minIl/ úr v,ðey fœst da^ie?a
1 1 V III IU11\ hjá Ben. S. Þórarinssyni.
Potturinn 1 5 aura.
Leiðarvisir til lífsábyrgðar
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr. J.
Jónassen, sem einnig gefur þeim, sem vilja
tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar upplýsingar.
Innlstúlka getur fengið vist í góðu húsi
hér í bænum 14. maí næstk. Þær stúlkur, sem vilja
sinna þessu, gefi sig fram sem fyrst. Ritstj. vísar á.
t
♦
VERZLUN
J. P. T. BRYDE’S
n
i
mr VÍN, VINDLAR og REYKTÓBAK
f r á
Kjær & Sommerfeldt.
Nýjar víntegundir komnar, svo sem;
Graacher hv. vín. Rheinewine (Rhinskvín musserende).
Messuvín á Vi. Genever 1V4.
Marsala (Medeira). Bodenheimer hv. vín.
M A D E I R A dark rich.
Ætíð nægar birgðir, og hvergi fá
menn ódýrari vín eptir gæðum.
J