Þjóðólfur - 10.01.1902, Síða 2
Það ár gengu til fiskjar í Rvík 34
þilskip. A þeim voru 486 menn. Skip-
in munu yfirleitt hafa verið úti um 6
mánuði, sum lengur en sum skeinur.
Eptir því mun ekki vera of í lagt,
að reikna útgerðina alla 1 50—200,000
kr., eða verzlun og útgerð Rvíkur full-
ar 3 miljónir.
Þessi bankagrýta, sem kölluð hefur
verið „stóri bankinn" yrði bannig rétt
fyrir Reykjavfk.
Samkvæmt frumvarpinu átti lands-
bankinn a ð 1 eg g jast n i ðu r. Hluta-
bankinn hefði því engan keppinaut
átt, en af því hefði aptur leitt, að hann
hefði heimtað svo háa útlánsvöxtu, að
efnamennirnir hefði ekki brúkað hann,
nema í viðlögum. Meiri hluti nefndar-
innar gerði ráð fyrir, að hltitabankinn
mundi taka 5V20/o, sbr. Alþt. C. bls.
506. Hann hefði líka með engu móti
getað tekið lægri vöxtu Hann mundi
aptur á móti hafa tekið hærri vöxtu,
að minnsta kosti 6°/o og líklega tölu-
vert hærri stundum. Bankinn hefði því
líklega ekki getað komið öllu fé sínu
út í verzlun og útgerð 1' Rvík. Setjum
svo, að hann hefði átt I miljón afgangs.
Það fé hefði hann getað lánað mönn-
um utan Reykjavíkur. Krækiber í koppi.
Af þessari 1 miljón hefði töluvert farið
í nágrennið, líklega V4 parturinn. Þar
hefði bankastjórnin orðið kunnugust og
því helzt þorað að lána þar. Afgang-
urinn hefði farið í útibúin á ísafirði,
Akureyri og Seyðisfirði, sfn 250 þús-
undin á hvern stað. Landsmenn ut-
an Rvíkur hefði þannig ekki fengið ann-
að en það, sem lagt hefði verið til úti-
búanna.
Og útlánsféð utan Rvíkur hefði verið
lánað út á sama hátt og í Rvík. Það
hefði verið lánað út til skamms tfma,
mest út á víxla, aðallega kaupmönnum
og útgerðarmönnum.
Utlánsfé hlutabankans hefði þannig
allt, eða að minnsta kosti nálega allt
gengið til Skyndilána. Það hefði kann
ske verið slett nokkrum tugum þúsunda
í landbúnaðinn, til þess að efna inn-
gangsloforðið, að nafninu til.
En af því, að féð hefði verið lánað
til skamms tíma, hefði aptur leitt, að
einungis afkastafljótir atvinnu-
vegir, verzlun og útgerð, hefði haft not
af bankanum. Hinir atvinnuvegirnir
hefðu ekkert fengið og engin not haft
af lánunum, þótt þau hefðu fengizt.
Bændurnir, bústólparnir, landsstólp-
arnir í hverju landi sem er, hefðu ekk-
ort fengið. Litli landsbankinn okkar,
sem margir lasta, átti þó 31. des. 1900
í fasteignarlánum —- að frátöldum veð-
deildariánum — 714 þúsund 770 kr.
42. a., sbr. Stjt. 1901 C. bls. 107.
Sjálfskuldarábyrgðarlán hefði heldur
ekki fengizt að nokkrum mun í hluta-
bankanum, sízt til lengri tíma en 6 mán-
aða. Landsbankinn lánar gegn sjálf-
skuldarábyrgð til I árs, og framlengir
lánin opt ár eptir ár. Hann átti 31. !
des. 1900 úti í sjálfskuldarábyrgðarlán- |
um 288 þúsund 148 kr. 53 aura.
Sveitafélög hefðu alls ekki feng-
ið lán í hlutabankanum. Þau þurfa lán
til margra ára. Landsbankinn átti 31.
des. 1900 úti í slíkum lánum 55 þúsund
446 kr. 77 aura.
Loks hefði hlutabankinn ekkert lánað
út á lífsábyrgðarskírteini, en landsbank-
inn hefur líka lánað út á þau.
Með öðrum orðum : M i k i 11 m e i r i
hluti þeirra manna, sem helzt þurfa
á lánum að halda, hefði ekkert fengið
í hlutabankanum, hefði liann komizt á
og landsbankinn verið lagður niður.
Og þeir, sem lán hefðu fengið, örlítill
hluti þjóðarinnar, hefði orðið að borga
lánin dýrum dómum, hefði orðið að |
borga sömu vöxtu og teknir hafaverið
í útlöndum, en þar hafa menn seinustu
árin orðið að borga 6—8%. En hvaða
íslenzkir atvinnuvegir bera slíka vöxtu?
Það voru höfuðagnúarnir á hlutabank-
anum, að hann hefði orðið svo fáum
að liði, og þessum fáu að litluliði, af
því, hve vextirnir hefðu orðir háir.
En þessir agnúar stafa aptur af því,
að íslendingar hefðu engin ráð
fengið yfir bankanum.
Bankinn átti, eins og nafnið bendir
á, að vera eign hlutafélags, þ. e. hann
hefði orðið eign einstakra manna. Eig-
endurnir hefðu því getað farið með hann
eptir eigin vild. Hlutafélögum er, í
hvaða skyni sem þau eru stofnuð, svo
fyrir komið, að æzta vald í öllum mál-
um félagsins hefur aðalfundur, fundur
eigenda. En af því, að bæði er erfitt
að smala mönnum opt á fund, og svo
af því, að fjölmennir fundir yrðu ávallt
óhandhæg framkvæmdarstjórn, felur
fundurinn allt af nokkrum mönnum að
hafa á hendi hina daglegu stjórn í málefn-
um félagsins. Það er framkvæmdar-
stjórnin. Fleiri þurfa stjórnarliðirnir
ekki að vera. En sé um stóreignir eða
þýðingarrnikil mál að ræða, setur fund-
ur eigenda nefnd manna til að líta ept-
ir því, að framkvæmdarstjórnin fari eptir
þeim reglurn, er fundur eigenda hefur
sett henni. Það er fulltrúaráðið.
Svona er fyrirkomulag allra meiri-
háttar hlutafélaga, og svona átti „stóra
bankanum" að vera fyrir komið. En ai
þessu fyrirkoinulagi hefði leitt, að ís-
lendingar hefðu því að eins getað átt
nokkurn verulegan þátt í stjórn bank-
ans, að þeir hefðu eignazt nokkuð að
mun af hlutabréfunum. Hefði vel átt
að vera, hefði átt að tryggja Islending-
um meiri hluta fjárins. En það var
nú síður en svo.
Islendingar mundu aldrei hafa eignazt
bréfin að nokkru ráði. Þeir hefðu fyrst
og fremst ekki haft efni á þvi. Það
ber öllum saman um, að reiðu fé sé Iftið
til í landinu. Almenningur á fullhart
með að borga opinbera skatta í pen-
ingum. Því síður hefði hann haft pen-
inga til að kaupa fyrir hlutabréf. 1. gr.
í bankafrumvarpinu gerir að vísu ráð
fyrir, að eignast megi bréfin á annan
hátt. Þeir, sein eiga jarðir, hefðu gegn
því, að veðsetja bankanum jarðir sínar
með fyrsta veðrétti, og gegn því, að svara
4% sem vöxtum, getað fengið hlutabréf
út á 20°/o af virðingarverði jarða sinna.
En fyrst er nú það, að mikið vantar á,
að allar jarðir á Islandi séu einstakra
mánna eign. Kirkjan og landssjóður
eiga allt of margar, í sumum héruðum
nálega allar jarðirnar. I annan stað
munu flestir, sem jarðir eiga, hafa veð-
seft þær, og þá duga þær ekki leng-
ur í „stóra bankann" I þriðja lagi
mundu þeir fau, er eiga óveðsettar
jarðir, ekki ásælast hlutabréfin fy r ir
þær. Þeir legðu með því að nokkru
leyti dauða hönd á jörðina eða jarðar-
verðið. Þeir fengju sem sé ekki nema
20°/o(!) út á virðingarverðið, og þó átti
landssjóður að ábyrgjast bankanum, að
vextirnir af þessum 20% yrði borgaðir.
Maður, sem ætti 2000 kr. jörð, fengi
þannig að eins 400 kr. í hlutabréfum,
út á 1. veðrétt í jörðinni sinni Meira
fengi hann ekki út á hana, þótt hon-
um lægi lífið á. Enginn opinber sjóður
mundi lána honum eyrisvirði út á 2.
veðrétt. íslendingar hefðu þannig ekki
ráð á að eignast hlutabréfin að nokkr-
um mun, enda er auðséð á þessu eina
dæmi, þótt ekkert annað væri til, að ís-
lendingum hefur aldrei verið ætlað að
eignast bréfin.
En þótt íslendingar hefðu bæði getað
og viljað eignast hlutabréfin, þá hefðu
þeir ekki fengið þau. íslendingum
er að vísu á pappírnum, í 1. gr. frv.,
gefinn kostur á að eignast bréfin öðr-
um fremur. Þar stendur: „Islendingar,
hvort sem eru einstakir menn, sjóðir eða
stofnanir, skulu látnir sitja fyrir í 6
mánuði frá því að lög þessi öðl-
ast gildi, að skrifa sig fyrir hlutum
í bankanum". En sá er gallinn á gjöf
Njarðar, að eptir I. gr. kemur 21. gr.
og hún tekur ótvíræðlega aptur það,
sem lofað er í I. gr. Bankamönn-
unumersem sé 21.gr. gefinn 12 mán-
aða umhugsunartími frá því
er lögin öðlast gildi, til þess að
ráða við sig, hvort þeir eigi að leggja
út í að stofna bankann. Eg set svo,
að bankalögin hefðu öðlazt gildi 30.
júní 1902. Þeir Islendingar, sem ætl-
uðu að eignast bréfin, hefðu orðið að
hafa skrifað sig fyrir þeim 31. desbr.
1902. En hvar hefðu aumingja mennirnir
átt að skrifa sig fyrir bréfunum? Hjá
bankamönnunum ? Hjá stjórn hluta-
bankans? Nei, sei, sei, nei, Hluta-
bankamennirnir hefðu sagt: Þú getur
ekki skrifað þig fyrir bréfunum hjá okk-
ur. Það er alveg óvíst, að við stofn-
um nokkurn banka. En hvar er þá
bankastjórnin. hefði veslings landinn
spurt. Ertu svona grænn, góðurinn
minn, hefðu bankamennirnir sagt. Banka-
stjórnin getur ekki komið fyr, en við
höfum ákveðið að reisa bankann, og til
þess höfum við 12 mánaða umhugsun-
artíma. Við þurfum ekki að akveða
það fyr en 29. júní 1903. Nú, en hvar
á eg þá að skrifa mig fyrir bréfunum,
hefði landinn spurt? Hvergi, lambið
mitt, hefðu bankamennirnir sagt. — Svo,
það hefur þá bara verið „snuð", hefði
landinn sagt, en bankamennirnir anzað:
Nei engan veginn; þú áttir aðlesa2i.
gr. einsog I. gr., góðurinn minn, endirinn
er stunduin ekki þýðingarminni en upp-
hafið. — Það var svona! —En hvernig
stendur a því, að sannleiksvitnið hann
Þórður minn, lagavörðurinn hann Guð-
laugur minn, föðurlandsvinurinn hann
Valtýr minn og dyggðablóðið hann
Skúli okkar skyldi telja mér og mínum
líkum trú um þetta? Bankamennirnir
hefðu fraleitt svarað þessari spurningu,
í hæsta lagi klappað hægra buxnavas-
anum.
íslendingar hefðu þánnig ekki eign-
azt hlutabréfin fyrst um sinn, og þá ekki
seinna. Annaðlivort hefði bankinn grætt
eða ekki grætt. Hefði hann grætt,
hefðu útlendingar ekki sleppt bréfunum.
Hefði hann tapað, hefðu íslendingar
ekki viljað eignast þau Islendingar hefðu
þannig engin ráð haft yfir hlutabank-
anum. Það er ekki rétt, kann einhver
að segja. Islendingar áttu að eiga helming
atkvæða i fulltrúaráðinu, og svo átti
ráðgjafinn þeirra að vera sjálfkjörinn
formaður. Ojú, því er nú ver, að það
er satt og öllum ljóst, sem málið vilja
skoða hlutdrægnislaust, að íslendingar
hefðu engin ráð haft yfir bankanum.
Fulltrúaráðið hefur sem sé ekki önn-
ur völd en þau, sem aðalfundur
fær því. Bankafrumvarpið varast að
nefna, hvað þetta svokallaða fulltrúa-
ráð á að gera. Á því sést, að því hef-
ur eigi verið ætluð önnur eða meiri
völd en s’líkum »ráðum“ í öðrum félög-
um. Það er meira að segja, eptir því
sem fulltrúaraðið er skipað, ekki full
tryiíS'ng fyrir því, að íslenzku fulltrú-
arnir geti gætt þess, að framkvæmdar-
stjórn bankans fari eptir þeim reglum,
sem aðalfundur eigenda hefur einu sinni
sett. Þess er sem sé ekki getið, að
ráðgjafinn eigi að hafa atkvæðisrétt i
fulltrúaráðinu. Hann á kannske bara
að stýra fulltrúaráðsfundunum, líkt og
alþingisforsetarnir stýra deildarfundun-
um. Hann á kannske að vera at-
kvæðislaus?
Það er líka fleira, sem bendir á, að ís-
lendingum hefur ekki verið ætlað að
hafa ráð yfir bankanum.
Eptir seinustu málsgr. 20. gr. banka-
frurnv., er alþingi ætlað aðkjósa2menn
á aðalfund, ef landsjóður kynni að eign-
ast eitthvað af hlutabréfum. En í næstu
málsgrein á undan má segja, að fulltrú-
um alþingis sé gert ómögulegt að mæta.
Fulltrúaráðinu er sem sé heimilað að á-
kveða, að aðalfundlr bankans skuli verða
haldnir annarsstaðar en í Reykja-
vík.
í fulltrúaráðinu sitja 7 menn, ráð-
gjafinn, sem ætlað er að sitja úti íKaup-
mannahöfn, 3 menn, er hlutaeigendur
kjósa, alltsvo útlendingar, og 3 menn,
er alþingi kýs. Það má þannig segja,
að í fulltrúaráðinu sitji 4 útlendingar.
Eg kalla ráðgjafann útlending, meðan
hann situr í Kaupmannahöfn. Því mætti
ganga að því vísu, að aðalfundir yrðu
haldnir í Kaupmannahöfn. Það var ekki
nærri því komandi á þinginu, að bæta
aptan við annarstaðar „intianlands". Oger
þó fundarstaður aðalfunda þýðingarmik-
ið atriði, í 20. gr. stjórnarskrárinnar
er konungi heimilað að ákveða, að al-
þingi skuli, þegar sérstaklega stendur á,
koma saman annarsstaðar en í Reykja-
vík, en því er þó bætt við, að sam-
komustaður þess skuli vera á íslandi.
Og það var ekki vanþörf á þeirri við-
bót.
Gætnir menn eru vanir því, þegar
þeir semja um mikilvæg mál að setja
í samninginn ákvæði um bætur, ef samn-
ingurinn kynni að verða rofinn. Því var
líka hreyft á alþingi, að setja trygging-
arákvæði inn í bankafrumvarpið. En
formælendur frumvarpsins, þessir menn,
sem allt af eru að finna að gerðum
stjórnarinnar, og ekki ósjaldan með réttu
sögðu: Þess þarf ekki við; látum stjórn-
ina taka þau ákvæði upp í reglugerð
bankans Stjórnin, sem „Isafold", henn-
ar húsbændur og hennar leiguþjónar hafa
kallað bæði illviljaða íslandi og ókunn-
uga högum þess, á að ráða því, hvernig
eina banka landsins — einu peninga-
lindinni — verður fyrir komið innan
þeirra þröngu takmarka, sem aðalfundi
útlendra eigenda þóknast að draga fyr-
ir valdsviði fulltrúaráðsins
Auk þeirra stórgalla, sem nú hafa verið
taldir, voru mnrgir aðrir agnúar a banka-
frumvarpinu. í 19. gr. frumvarpsins er
bankanum að eins ætlað að hafa „aðal-
skrifstofu" sína í Reykjavik. Hann nratti
eptir frumvarpinu 1901, ekki síður en
frumvarpinu 1899, hafa skrifstofu í Kaup-
mannahöfn, og þóttust formælendur
frumvarpsins þó ekki vilja, að bankinn
hefði skrifstofu í Kaupmhöfn. Þeir urðu
sem sé að kannast við, að bankinn mundi
brúka nokkuð af starfsfé sínu erlendis,
ef hann hefði þar skrifstofu, en samt
mátti ómögulega girða íyrir það, og
þurfti þó ekki annað en fella orðið „aðal"
framan af orðinu „aðalskrifstofa". Hefði
í 19. gr. staðið, að bankinn skyldi hafa
skrifstofu sína í Reykjavík, hefði banka-
mönnunum verið ómögulegt að hafa
skrifstofu fyrir bankann í Kaupmanna-
höfn. En í ákvæðinu um, að bankinn
hafi „aðalskrifstofu" sína í Rvíkliggur,
að hann megi hafa skrifstofu eða skrifstof-
ur annarsstaðar, og þá líka í Kpmhöfn.
Landsbankinn, okkar eigin stoftiun,
verður að greiða landssjóði arlega 7500
kr. fyrir að mega gefa út 750 þúsund
krónur í seðlum. Hlutabankinn, útlendi
auðmannabankinn, atti að borga lands-
sjóði fyrir að rnega gefa út meira en
þ r i s v a r s i n n u m h æ r r i upphæð
meira en þrisvar sinnum lægra
árgjald(l) Hlutabankinn atti að
m ga gefa út 2l/a miljón í seðlum, en
átti eptir áætlun meiri hluta nefndar-
innar að eins að greiða í landssjóð 2V3
þúsund kr. á ári, sbr.C-deild Alþt.bls. 506
neðst, og þó var því jafnframt lofað í 15.
gr. ftumvarpsiuo, að aldrei mætti leggja á
bankann nokkurt annað gjald eða skatt.
Glasgovv- prentsmiðja.