Þjóðólfur - 29.03.1902, Síða 1

Þjóðólfur - 29.03.1902, Síða 1
Þ JÓÐÓLFUR. Jfo 13. SaMKVÆMT lögum um stofnun landsbanka 18. sept. 1885, 9. gr, hefur bankinn ákveðið, að setja á stofn nú með vorinu útibú í kaupstaðnum Akureyri, og skal starfs- svið útibús þessa vera Norðlendingafjórðungur: Húnavatns-, Skagafjarðar-, Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslur. — Að öllu forfallalausu tekur útibú þetta til starfa eigi síð- ar en 1 5. júni þ. á. Þetta kunngerist hér með almenningi. Laudsbankinn 18. marz 1902. Tryggvi Gunnarsson. Bidjid æ t í ð um OTTO MONSTED’S 4 DANSKA SMJÖRLÍKl * sem er alveg eins bragðgott og notadrjúgt og smjör. Verksmiðjan er hin elzta og stœrsta í Danmörku, og byr til óefað hina beztu Törn og ódýrustu í samanburði við gæðin. ■k: Fæst hjá kaupmönnum. ^ 54. árg. Reykjavík, laugardaginn 29. marz 1902. LelOpj. í skilvinduauglýsingunni hér aptar í blaðinu er misprentað: 04 potta í stað 40 potta. Frá útlöndum. Mikill Búa-sigur. Tvö ensk blöð frá 11. og 13. þ. m., er komu með skipi í Hafarfjörð nýlega, herma þau tíðindi, að Delarey Búaforingi hafi snemma morguns 7. þ. m. ráðizt skyndi- iega á brezkahöfðingjann Methuen lávarð nálægt Kraipan, er hann vará leið fráWyn- burg til Lichtenberg, og tekið hann höndum. Hafði Delarey 1500 manna, en Methuen 1200 (900 riddaraliðs og 300 fótgöngu- Hðs). Um mannfall af Bretum ber sögn- um ekki saman, en að minnsta kosti hafa fallið 3 foringjar og 38 liðsmenn, en særð- ir 6 foringjar og 72 menn. Auk þess tal- að um 200 manna er »vanti« af Bretaliði og er líklegt að meiri hluti þeirra komi ekki síðar fram og sé í tölu hinna föllnu. París aðstoðarforingi Methuens varð og að gefast upp. — Þá er Búar réðust á Methuen voru þeir klæddir sama einkenn- isbúningi (khaki) sem Bretar, er því áttu erfitt með að greina þá frá sínum eigin mönnum. Sagt er að Methuen hafi meiðzt á fæti (lærbrotnað ?) í þessum viðskiptum. Haldið er að Búar muni gefa hann laus- an aptur gegn því að fá einhverja helztu menn sína í skiptum frá Bretum, en ekki teija menn neitt hætt við því, að Búar muni skjóta hann, því að Delarey sé veg- lyndur maður. — Methuen er einn hinna fáu brezku höfðingja, er haft hafa sömu Hervöld á hendi þar syðra slðan ófriður- 'nn hófst, og Roberts hefur hrósað hon- um í enska þinginu, og beðið menn að á- fella hann ekki fyrir þetta síðasta hrapar- lega óhapp, fyr en ljósari fregnir séu um Það komnar. Brá Englendingum rnjög í brún, er þeim bárust þessar fréttir, og þótti sýnt, að Búar væru ekki með öllu af baki dottnir. Varð kurr mikill og ó- rói í þinginu, er hermálaráðherrann las upp hraðskeyti frá Kitchener um þessar ófarir. Hrópuðu sumir upp: »skömm«, »svívirðing«, enírsku þingmennirnir sumir kölluðu »heyr!«, þá er lesið varumhrak- farir rfreta og handtöku Methuens, en aðrir þögguðu niður í þeim, og lenti í orðahnippingum út af þessu »hneyksli«. Frá fréttaritara »Þjóðólfs« í Kaupm.höfn komu nú með »Heklu« nýrri fréttir ds. 16. þ. m. Þar segir svo: Ofan á ófarasögu þá, er sögð hefur verið (handtöku Methuen’s o. fl.) kemurnú sú furðufregn, að Delarey hefur sleppt Methuen úr haldi skilyrðis-og endur- gjaldslaust. Það var talið víst, að hann mundi heimta lausn eins eða fleiri afher- foringjum Búa, er í haldi sitja hjá Bret- um, t. d. Cronje og Kruityinger(sem menn halda Bretar muni dæma höfuðsekan). I Lundúnum hefja menn Delarey til skýjanna fyrir veglyndi hans og stjórnin kvað láta í veðri vaka, að það muni verða endur- goldið, en jafnframt er þess getið, að engum Búaforingja verði gefin lausn. Wolmarans og Wessels heita sendi- boðar Búa, sem árangurslaust hafa reynt að fá ýmsar Evópuþjóðir til að miðla málttm i Suður-Afriku. Þeir hafa nú seinast ver- ið hjá Rooswelt, forseta Bandaríkjanna i Norður-Ameríku, er gaf þeim það svar, að Bandaríkin hvorki vildu eða gætu skipt sér af málum þeirra. Án frekari skýringa hefur þess verið getið í blöðunum, að enska stjórnin hafi sent til írlands hersveit, er átti að fara til Suður-Afríku, vegna æsinga þeirra, sem fé- lagið »United Irish League« hefur vakið i seinni tíð. í jarðskjálptunum í Schemacka í Kák- asus höfðu 126 þorp orðið fyrirskemmd- um (9084 hús) og fjöldi fólks (talan óná- kvæm) farizt eða meiðst.—I nýjum jarð- skjálptum er sagt, að 3000 hús hafi hrun- ið í bæ þeim, er Tochangori heitir, við Svartahafið og manntjón orðið töluvert. 1 ------------ Rússakeisari hetur gert Loubet ríkis- forseta heimboð; í maímán. leggur L. af stað. Leo T o 1 s t o i, sem lengi hefur verið sjúkur, en farið var að batna, er nú apt- ur þungt haldinn. Alavantitsj hét maður, ættingi eða fylgismaður Karageorgevitsj þess, er þyk- ist til ríkis borinn i Serbíu; hann greip nýlega til þess óyndisúrræðis, að gera upp- reisn, líklega í þeim tilgangi að hjátpa K. til valda, en afdrif hans urðu þau, að hann í fyrsta herskálanum, er hann reyndi að vinna, var skotinn til bana af hlutað- eigandi höfuðsmanni, sem hann í stað skýr- ingar sjálfurhafði reynt að drepa. Fólksþingið danska 'nefur með öllum þorra atkvæða samþykkt sölusamninginn um Vestureyjar. Nú er eptir að vita, hvað landsþingið segir! Ekki minnist fréttaritarinn einu orði á Andrasöguna frá Hudsotisflóanum — apt- urgönguna frá því fyrra — sem Isafold gein svo fljótt yfir nú að vanda. I ensku blaði frá 13. þ. m. hefur enskur biskup eða trúboði, er var í Hudsonsflóalöndun- um fyrir 2 árum tullyrt í samtali við blaðamann að þetta nýja hraðskeyti frá New-York væri að eins endurtekning þeirr- ar sögu, er hann hafði áður heyrt Skræl- ingja segja frá, og vera mundi uppspuni einn til að fá dálítið af tóbaki hjá Hud- sonsflóafélaginu í sögulaun. Færir hann ýmislegt þessu til sönnunar. Safnaðarfundur. Hinn 24. þ. m. var haldinn almennur safnaðarfundur hér í bænumum kirkjugarðs- bygginguna. Bar sóknarnefndin mál þetta fram að öllu óundirbúið, og vissi hún ekki einu sinni, hversu löng girðingin þurfti að vera. En fundurinn bætti úr þessu öllu og samþykkti að gera skyldi myndar- lega girðingu úr höggnu grjóti eða stein- steypu, og fól nefndinni að útvega upplýs- ingar um það. — Þegar þessu máli var lokið, stóð upp formaður stúdentafélags- ins og gerði fyrirspurn til sóknarnefnd- ar og prests um það, hvers vegna þeir hefðu eigi lagt fyrir fundinn bréf frá stúdentafélaginu. I því bréfi hafði stúd- entafélagið lýst óánægju sinni yfir því, er prestur bannaði að syngja 1 kirkjunni eptir- mæli eptir Vilhjálm heitinn Jónsson, og skorað á sóknarneíndina að leggja þetta fyrir safnaðarfund. Þessu erindi vildi sóknarnefnd stinga undir stól, og leitað- ist hún við að finna ástæður fyrir þvf, en aldrei vissum vér jafnilla smalast. Þá lýsti formaður stúdentafélagsins yfir því við fundarstjóra, að á fundinum væru nokkrir menn, er ætluðu að taka mál þetta uyp. Því næst töluðu þeir Halldór Jónsson bæjarfulltrúi og Jón Jakobsson bókavörð- ur, og átöldu aðferð prests, en þó mjög hógværlega. I saina strenginn tók Jón prestur Helgason prestaskólakennari og bar hann fram þá tillögu til áskorunar á prestinn, að fundurinn kannaðist við, að prestur hefði að lögum rétt að ráða, hvað sungið væri, en skoraði á hann að neyta þess réttar varlega. — Er því vonandi að prestur geri það söfnuði sínum að skapi, að gera ekki sorgbitnum mönnum gramt í geði með því að meina þeim ástæðu- laust að heiðra framliðna vini sfna. Ávarp til konungs skrautritað með mikilli snilld af Bene- dikt Gröndal var sent héðan nú með »Laura«. Efni þess var aðallega þakk- læti til hans hátignar fyrir boðskapinn 10. janúar, og hatði bæjarstjórnin samið ávarpið og gengizt fyrir því, að það yrði sent, en fjöldi bæjarbúa reit nöfn sín undir það. Útibúið á Akureyri, er landsbankinn ætlar að setja þar á stofn í vor, kvað eiga að byrja með 100,000 kr. Stjórnendur þess verða Júlíus Sigurðsson amtsskrifari sem framkvæmdarstjóri og Stefán umboðsmað- urStephenssongjaldkeri, auk 3. manns sem gæzlumanns til aðstoðar. Skipstrand. Hinn 24. þ. m. strandaði f Selvogi ís- lenzk fiskiskúta »Trausti« að nafni, frá Dýrafirði. Menn björguðust. VarOskipið danska »Hekla« (kapt. Hammer) kom hingað í fyrra kveld í stað »Heimdalls«. sem ekki kemur hingað í þetta sinn. Skip þetta er viðlíka stórt og »Heimdallur« og mjög líkt að útliti og allri gerð. Það lagði af stað frá Höfn 17. þ. m., enkom við í Noregi á leið hingað. „Vesta" kom hingað 21. þ. m. Varð að snúa aptur við Látraröst sakir hafíss. Klemens sýslumaður Jónsson, er var með skipinu fór landveg héðan norður með pósti. — »Vesta« fór aptur 26. þ. m. til Flateyjar og Stykkishólms, og lengra, ef unnt yrði. „Ceres" kom hingað af Vestfjörðum 25. þ. m., hafði komizt út af Isafirði gegnum ísinn, og á aðrar vesturhafnirnar, en komst ekki til Stykkishólms sakir ofviðris, og tók »Vesta hér vörurnar úr henni, er þangað áttu að fara. »Ceres« hélt nótt- ina eptir til Seyðistjarðar og þaðan til útlanda. Hafisinn hindrar nú allar skipaferðir fyrir Norður- landi og Vesturlandi einnig, suður undir Látrabjarg, og ætla menn, að jafnmikill ís hafi ekki komið hér að landi næstl. 20 ár, eða síðan ísárið mikla 1882. Vonandi er þó, að hann verði ekki landfastur langt fram eptir sumrinu. — Frétzt hefur, að 3 bjarndýr, er komu með ísnum hafi verið ■ skotin í Bjarnarfirði á Ströndum, Og víðar er sagt, að bjarndýr hafi gengið á land og verið unnin. Aflabrðgð eru mjög lítil austantjalls, en 25. þ. m. aflaðist þó dável á Eyrarbakka og Stokks- eyri. — I Garðsjó, Höfnum og jafnvel í Grindavík hefur verið góður afli í þorska- net. __________ Póstskipið „Laura" fór til útlanda 22. þ. m. Með því tóku sér far: Sigurður Magnússon læknir, Guð- jón Guðlaugsson alþm., Jón Þórðarson kaupmaður með frú sinni, H. Andersen klæðskeri, Einar Árnason fyrv. verzlunar- stjóri og Ágúst Flygenring kaupm. úr Hafnarfirði.

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.