Þjóðólfur - 16.05.1902, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 16.05.1902, Blaðsíða 1
ÞJOÐOLFUR. 54. árg. Reykjavík, föstudaginn 16. maí 1902. Jti 20. Biðjid æ t í ð um OTTO M0NSTEF8 DANSKA SMJÖRLlKI sem er alveg eins bragðgott og notadrjúgt og smjör. Verksmiðjan er hin elzta og stœrsta í Danmörkn, og: býr til óefað hina beztn vöru og' ódýrustn í samanburði við gæðin. Fæst hjá kaupmönnum. ^ Skrifstofa og ÞJÓÐÓLFS e r f 1 u 11 í Austurstræti J 3. Yfirburðir tíumannafrnmv. yílr frumv. Yaltýinga. Það er sannarlega gleðiríkt fyrir alla íslendinga, er unna ættjörðu sinni, að nú hefur stjórnin loksins, eptir langa mæðu, veitt sjálfsstjórnarkröfum vorum það svar, að vér getum fengið stjórn sérmála vorra búsetta í landinu sjálfu. Þetta var einmitt það, sem iomanna- frumv. á síðasta þingi fór fram á og nú hefur þessi stefna vor Andvaltýinga sigrað fagurlega, hvað svo sem mót- stöðumenn vorir (Valtýingar) segja um það. Að minnsta kosti er það eigi þeim að þakka, að málið horfir nú svona vænlega við, því þó að þeir séu að vitna í ávarpið frá efri deild, þá vita allir að þar voru þeir af heimastjórn- armönnum (eins og reyndar ávallt fyrri) knúðir nauðugir áfram, til að nefna á nafn heimastjórnaróskir vorar. H'ófuð- kjarninn í hinni síðari stjómarbótar- baráttu vor íslendinga hefur beinlínis verið krafan um innlendastjórn og hver sú stef?ia, er sleppir henni, er fallin frá merginum málsins, en pá liggur á- val/t nœst að hœtta allri baráttu. Þótt nú tilboð stjórnarinnar veiti oss eigi svo fullkomið stjórnarfyrirkomulag, sem vér hefðum helzt óskað, margirhverj- ir, og trúlega hefði reynzt oss bezt þá er nú stjórnartilboðið nýja svo ógurlega stör endurbót, frá því sem verið hefur, að sjálfsagt er að taka því. Höfuðatriði stjórnartilboðsins er þetta, að vér fáum æzta mann framkvæmd- arvaldsins (ráðherrann) inn í sjálft land- ið. En jafnframt þessu væri æskilegt, að fá ýmsum aukaatriðum í núverandi stjórnarskrá breytt, svo framarlega sem vér vitum fyrir víst, að þau verði eigi höfuðatriðinu til falls, þegar kemur til kasta stjórnarinnar með samþykkið, því sé það í nokkurri hættu er sjálfsagt að sleppa fyrst um sinn að deila um allt, sem smávægilegra er. Margar af breyt- ingum þessum eru samt þess eðlis, að ólíklegt er, að stjórnin verði á móti þeim. Til þess þó að vita, hversu langt vér megum fara í breytingunum, væri vitanlega bezt, að ráðherrann vildi taka sér skemmtiferð hingað til lands á kom- anda sumri og væri hér um alþingis- tímann í Reykjavík, svo að þingr.ienn gæti samið við hann. Auðvitað mál er, að flokksmenn vorir í Kaupmanna- höfn geta fyrir þing borið undir hann þær frekari umbætur, sem oss er ann- ast um að fá, til að vita undirtektir hans, en hitt væri þó miklu betra. Höfuðatriðið er þá, sem sagt inn- lenda stjórnin og hana fáum vér, ef vér viljum. En þegar farið er að tala um aukaatriðin, sem eru allmörg í báðum stjórnarbótarfrumvörpunum, erfluttvoru á síðasta þingi, þá getur mér eigi dul- izt, að hið fellda iomannafrumv. hefur marga og stóra kosti fram yfir sam- þykkta frumvarpið þeirra Valtýssinna. Það er nú svo sem víst, að annaðhvort þessara frv. eða ef til vill bæði, verð- ur lagt til grundvallar fyrir breytingun- um, en þá, úr því að breytt er, er nátt- úrlega réttast að velja það úr, sem bezt er. Eg vil nú bera saman iom.frumv. á þsk. 39 og valtýska frv. á þsk. 218 í alþingistíðindunum og sjá svo til, hvort betra er. 1. grein í frv. á þsk. 39ertekinupp úr stöðulögunum hér um bil orðrétt, en þar hefur frv. á þsk. 218 ekkert til- svaranda. Það yrði nú eflaust stór kost- ur á stjórnarskránni, ef þessi grein væri sett inn í hana, því að þá eru stjórn- arskipunarlög landsinseigi lengur byggð á stöðulögunum, sem grundvelli, né nein- um öðrum almennum lögum, er breyta má þegar vill. Stjórnarskráin sjalf er þá orðin, sem eiginn grundvöllur, sem hvorki ríkisþing Dana né nokkur get- urbreytt nema íslendingar sjálfir. Grein- in er góð eins og hún er í frv., og samkvæm því er alþingi sjálft samþykkti hana í fyrri stjórnarbaráttunni eins og lfka Jón Ólafsson hefur tekið fram (í fyrirl. sjálfstjórn í síðastl. nóvber.). Þó væri betra að greinin væri tekin upp aptur á ný, með þeirri breytingu frá því er stendur í iom.frv., að innvitn- uninni í stöðulögin væri alveg sleppt. Einnig væri réttara að upphaf greinar- innar hljóðaði þannig : „í öllum þeim málum er sérstaktega varða ísland, sem er óaðskiljanlegur hluti Danaveldis með sérst'ókum landsréttindum hefur landið löggjöf sína og stjórn o. s. frv." Með því er bæði 1. og 2. gr, úr stöðulög- unum sett inn. Að grein þessa vant- ar með öllu í valtýska frv. er auðsær stór galli. 2. grein í frv. á þsk. 39 er einmitt greinin um, að hafa tvo ráðherrana, sem er höfuðágreiningsefnið milli frumv., því greinin sem þar til svarar I. gr. í frv. á þsk. 218 gerir, svo sem kunnugt er, ráð fyrir einráðum ráðgjafa út í Khöfn. Um þessa gr. í iom.frv. þarf nú lítið að tala úr þessu, annað en það, að það er henni að þakka, að oss er nú boðin innlend stjórn búsett í Reykja- vík, með einum ráðherra, en aptur er sá í Khöfn dottinn úr sögunni. Það er svo að heyra, sem Pali amtmanni í 21. tbl. „Norðurlands" þ. á. þyki all- miklu tapað við það, að vér eptir stjórn- artilboðinu höfum engan ráðherra í Khöfn til að gæta réttinda vorra í sameigin- legu málunum, því skiljanlega verða hinar skjótu komur ráðherrans frá Rvík. til Danmerkur eigi að fullu gagni í þeim efnum. Það er trúlegt, að þetta geti stöku sinnum orðið skaði fyrir oss, en hann er víst mest Valtýingum að kenna, því að þeir hafa úthrópað og smánað á allar lundir tveggja ráðherra fyrirkomulagið í iom.frv. og hefur þó I Páll Briem sýnt í ritgerðinni „Nýjar tillögur" (Norðurl. 14), að hægt væri að halda þessu fyrirkomulagi landinu til hagsmuna með því að gera nokkr- ar umbætur á greininni um þetla í 10- m.frv. Það kemur eigi þessu við, þótt hann aptur í sumu hafi víst fremur skemmt þetta fyrirkomulag með tillög- unum. Áður hafði amtmaðurinn sagt (Norðurl. nr. 7), að búseta ráðgjafans væri aukaatriði í þessu stjórnarbótar- máli, en það er misskilningur, því inn- Iend búseta stjórnandans íhverjulandi sem er, hlýtur jafnan að vera aðalat- riði. Beint í því er fólginn munurinn á innlendri og útlendri stjórn. Efann- ars hvors skal án vera: „innlendrar fram- kvæmdarstjórnar í sérmálunura" eða „útlendrar eptirlitsstjórnar f sameigin- legu málunum", þá kýs eghiklaust fyrra kostinn og sleppi hinum síðari, en vafa- laust er bezt, að hvorugt vanti. Um leið og talað er um þessa grein í iom.frv. má geta þess, að orðið „ráð- herra" í staðinn fyrir „ráðgjafi" í hinu, er réttara bæði málslega og stjórnskipu- lega skoðað. Nafnið „ráðherra", sem þar að auki er fornt, ætti þvf að taka upp í nýju stjórnarskrána. Og þegar nú amtmannaembættin verða lögð nið- ur, ætti um leið að hætta að nota orð- in „amt“ og amtsráð" en taka upp heitin „fjórðungur" og fjórðungsnefnd". Þetta eru auðvitað einungis umbætur á máli. 3. grein í frv. á þsk. 39 samsvarar 2. gr. í frv. á þsk. 218. Þessi grein í iom.frv. ákveður, að fyrir embættis- afbrot skuli ráðherrann dæmdur af inn- lendum landsdómi, þar sem aptur hitt frv. talar ekkert um, hver skuli dæma hann, en eptir öllum anda þess sýnist það helzt myndi verða einhver dóm- stóll í Khöfn. Þetta er ólíkt betra í iom.frv. og er því sjálfsagt að taka það upp í stjórnarskrána. Af því að hér er um mikil réttindi að ræða þá er þetta stóratriði. 4. grein á þsk. 39 og 3. gr. á þsk. 218 eru alveg samhljóða. Lenging þingtímans er nauðsynleg. 5. grein á þsk. 39 hefur ekkert til- svaranda á þsk. 218. Þar eru nú yf- irburðir iom.frv.auðsæirhverjum manni, sem eigi er blindaður af flokksfylgi. Frumv. Valtýinga hefur þar þann stór- galla, að fjárráð þingsins eru illa tryggð. Því þótt það frv. auki 4 þjóðkjörnum þingmönnum við það sem nú er, og setji 2 af þeim í efri deildina, þá verð- ur sú breyting á skipun efri deildar eng- in áreiðanleg trygging fyrir þingræði og fullu fjárráðavaldi. Stjórnin get- ur valið svo hina konungkjörnu menn í deildina, að aldursforsetinn verði þjóð- kjörinn maður og svo ef einhver af þjóðkjörnum mönnum deildarinnar yrði veikur og kæmi eigi á þing (líkt sem fulltrúi Norður-Þingeyinga síðast), þá er komið engu betra ástand í deildinni, en nú. í iom.frv. stendur þarna í 5. gr.: „að bráðabirgðarfj’árl'óg megi pví að eins gefa út, að þingið hafi eigi getað komið sér saman um fjárlög", en þessi fyrirmæli eru eigi til í valtýska frv. En svo á eptir iom.frv. að fækka hinum konungkjörnu um 2 og bæta það upp með 2 þjóðkjörnum, sem er ólíkt betra (þó eigi væri neitt aftnað) held- ur en samkyns fyrirmæli í hinu frv. Yfirhöfuð er svo vel frá þessu öilu geng- ið í frumvarpi vor heimastjórnarmanna, að það gefur ekkert eptir hinum nafn- frægu fyrirmælum miðlunarfrumvarps- ins, sem orðar þetta þannig: „Eigi má gefa út bráðabirgðarfjárl'óg fyrtr það fjárhagstímabil, er fjárlög eru sam- þykkt fyrir aý alþingi". Þar eru ráð þingsins vel tryggð. Það er annars undarlegt, að hvorki Páll Briem ( fyrnefndum blaðaritgerð- um sínum né Jón Ólafsson í áður nefnd- um fyrirlestri, skuli geta um það, að í þessu efni stendur frv. meira hiutans langt á baki frv. minna hlutans og þetta er því undarlegra, sem báðir að mak- legleikum hæla hinum ágætu fyrirmæl- um miðlunarfrumvarpsins um þetta mál og hefði því átt að.halda á lopti sams- konar fyrirmælum hjá öðrum. Einkum mátti búast við þessu af því, að báð- ir mennirnir virðast, að miklu leyti, hafa staðið fyrir utan þá tvo flokka, er deilt hafa á undanförnum tíma um stjórnar- bótarmálið. s 6. grein í frv. á þsk. 39. Það er heldur ekkert sem til hennar svarar í frv. á þsk. 218. En það er þó óneit- anlega réttarbót, að konungur getur eigi náðað ráðherrann, nema með samþykki neðri deildar, 7. grein á þsk. 39 svarar til 4. og 5. gr. áþsk. 218. Um kosti þessar grein- ar í iom.frv. er eiginlega áður talað, þar sem rætt var um skipun efri deild- ar og tölu hinna konungkjörnu manna í báðum frv. Ymsum skynsömum mönn- um hefur hins vegar dottið í hug, að réttast mundi vera, úr því þingið er afgreiðsla

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.