Þjóðólfur - 04.07.1902, Side 3
107
skugga um það, ef hann vill lesa dá-
lítinn greinarstúf í 21. tbl. Austra.
TJm séra Arna Jónsson er öllum þeim,
er hafa fylgzt ofurlítið með í stjórnar-
baráttu vorri, fullkunnugt, að hann er
einbeittur heimastjórnarmaður. En lík-
lega hefur ritstjórinn ætlað, að menn
þessir mundu verða tilleiðanlegir til
þess að vera milli flokka, þegar á
þing kemur, þá er hann væri áð-
ur búinn að telja alþýðu trú um það
í blaði sínu, að þeir væri flokksleys-
ingjar. En honum hefur láðst að gæta
þess, að menn þessir eru hvorki af
hans sauðahúsi né vanir því að bera
kápuna á báðum öxlum. En vér get-
um frætt ritstjóra ísafoldar á því, að
báðir þessir menn hafa hlotið kosningu,
af því að þeir hafa notið og njóta al-
menns trausts heimastjórnarmanna, sem
staðfastir og einbeittir heimastjórnar-
menn. Það er og ekki heldur eins
dæmi, að ritstjóri ísafoldar hefur talið
einbeitta mótstöðumenn valtýsku klík-
unnarflokksleysingja. Það ert. a. m. ekki
ýkja langt síðan, að hún taldi hr. Guttorm
Vigfússon flokkleysingja; og mun þó
enginn, sem þekkir manninn, væna
hann um tvíveðrung.
Hitt þykir oss harla merkilegt, hvers-
vegna ísafold taldi sér ekki 14 þing-
menn í stað 13, fyrst hún á annað
borð fór að flokkfæra þingmenn eptir
sinni „kokkabók". En þá hefði rit-
stjórinn ekki heldur getað komið að
hinni skarpvitru(I) og spekingslegu(I) á-
lyktun sinni, „að hlutfallslega er þó
liðsafli Valtýinga í þrengri merkingu
minni eptir þessar kosningar en áður.
En í víðtækari merkingu er hann vit-
anlega miklu meiri eða sama sem all-
ur þorri þtngsins". Ekki kæmi oss
það neitt óvart, þótt einhverjir rök-
fræðingar kölluðu röksemdaleiðslu þessa
„logiskt" gat, er mundi vart komast
fyrir f hinu sæla Dyrhólagati ritstjór-
ans. Aleitni ritstj. við séra Einar Jóns-
son er ekki svaraverð. Hann er að
allra dómi, er hann þekkja, meiri sæmd-
ar- og dánumaður, en flestir þeir, er
teljast til sauðahúss ísafoldar að með-
töldum sjálfum ritstjóranum. En ekki
ber það vott um mikla fyndni eða
skapandi ímyndunarafl ritstjórans, að
fara að vitna í óþokka-syrpu til þess
að svala reiði sinni á séra Einari.
Loks fjölyrðir ritstjórinn mjög um
það, hvað hafi valdið falli og hruni
Valtýinga. Hann telur þar upp marg-
ar orsakir, sem eru hvergi til nema í
heila karls, en gleymir auðvitað aðal-
orsökinni, sem var reiði og gremja
þjóðarinnar á öllu atferli og háttalagi
Valtýs og Valtýssinna og þá ekki sízt
á starfsemi ritstjórans og blaðs hans.
Því að það hefur upp frá því, aðþað kné-
setti valtýskuna fyrirgert öllum rétti
til þess að geta talizt til þjóðhollra
blaða, er unna sóma sínum.
Landnámsmaður.
Alþingiskosningarnar.
Til frekari skýringar við kosninga-
fréttirnar hér áður í blaðinu, skal þess
getið, að atkvæðatalan f Suður-Múla-
sýslu var þannig, að Guttormur var
kosinn með 157 atkv., og Ari Brynj-
ólfssonmeð 153. Axel Tulinius sýslum.
fékk 63 atkv. (ekki 67), og séra Jón
Guðmundsson í Nesi í Norðfirði, er
einnig bauð sig fram, fékk 49 atkv.
Áður en farið var að kjósa var varp-
að hlutkesti um, hvor þeirra Ara eða
Jóns Bergssonar á Egilsstöðum skyldu
bjóða sig fram, og kom hlutur Ara
upp. Mun sjaldgæft, að hlutkesti hafi
áður ráðið þingmennsku-framboði hér
á landi.
í Norður-Múlasýslu varð að tvíkjósa
millum Jóhannesar sýslumanns og Jóns
frá Sleðbrjót, því að hvorugur fékk
yfir helming greiddra atkvæða við
fyrri kosninguna (Jón 125, sýslumaður
121). Við þá kosningu fékk séra
Einar prófastur Jónsson á Kirkjubæ
63 atkv. og séra Einar Þórðarson í
Hofteigi 95, en þeir drógu sig í hlé
við síðari kosninguna.
í Suður-Þingeyjarsýslu var Pétur á
Gautlöndum valinn með 139 atkv.
Páll Jóakimsson bauð sig fram, en
fékk ekkert atkvæði. Höfðu Suður-
Þingeyingar sótt kjörfundinn svona
sleitulaust, af því að kvit-tur hafði kom-
ið upp um það, að Einar Norðurlands-
ritstjóri ætlaði að koma þar í opna
skjöldu og hrinda Pétri, gerandi ráð
fyrir, að kjörfundur yrði laklega sóttur,
af því að enginn annar en P. mundi
verða f kjöri, og því þýðingarlaust að
fjölmenna. Átti svo bróðir Einars,
Sigurður læknir að smala í laumi
Höfðahverfi og Svalbarðsströnd handa
Einari, meðan hinir uggðu ekki að sér.
En allt þetta ráð ónýttist af pata þeim,
er fyr var getið, og treystist þá Einar
ekki að láta á sér bæra, enda er full-
yrt, að hann hefði fengið sárfá atkvæði,
hefði hann lagt út á djúpið. Er þetta
tekið eptir fregnum úr Suður-Þingeyj-
arsýslu.
í Eyjafirði var Klemens sýslumaður
kosinn með 262 (öllum) atkv., en Stef-
án í Fagraskógi með 236. Einhverj-
ir, sem óánægðir voru yfir því, að
fleiri skyldu ekki vera í kjöri fengu á
kjörfundinum Agúst Þorsteinsson bók-
bindara á Siglufirði til að bjóða sig
fram, en hann fékk að eins 26 atkv.
Guðmundur bóndi á Þúfnavöllum hafði
hætt við framboð sitt aptur fyrir kjör-
fundinn til að dreifa ekki atkvæðum.
„Norðurland" er mjög angurvært yf-
ir því, að ekki hafi tekizt að hrinda
Stefáni frá.
Atkvæðatala hjá Matthíasi kaupm.
Ólafssyni (ísafj.s.) var 118 (ekki 124)
atkv. — Þess skal loks getið, að Guð-
laugur sýslumaður var kosinn (í V,-
Skaptafellssýslu) með 58atkv.(2greiddu
ekki atkv.).
Frá útlöndum
hafa borizt fréttir til 25. f. m. Helztu
tíðindi þau, að krýningarhátíð Játvarð-
ar Englakonungs, er átti að vera 26.
f. m. var frestað um óákveðinn tíma,
sakir veikinda konungs. Hafði verið
gerður hættulegur holdskurður á hon-
um 24. f. m., vegna ígerðar í botn-
lan£$num, og tókst vel, en konungur
þó ekki úr lífshættu, þá er síðast frétt-
ist af honum aðfaranótt hins 25.
Lhðu forföll þessi mikill hnekkir fyrir
fjölda manna, er varið höfðu afarmiklu
fé til undirbúnings hátíðahaldsins, en
margir höfðu þó haft þá fyrirhyggju,
að kaupa ábyrgð á lífi og heilsu kon-
ungs, þannig, að þeir fá skaða sinn
bættan hjá ábyrgðarfélögunum, úr því
að hátíðin fórst fyrir sakir veikinda
konungs, og verða því félög þessi fyr-
ir öllu skakkafallinu. En vitanlega
hefur fjöldi manna ekki verið svona
forsjáll. Frestun hátíðahaldsins hefur
og orðið harla óþægileg hinum ótölu-
lega aragrúa af gestum, tignum og ó-
tignum, víðsvegar úr heimi, er safnazt
hafði til Lundúna til að vera við krýn-
ingarathöfnina.
Látinn er 19. f. m. í Sibyllenort á
Saxlandi, Albert Saxakonungur 74 ára
gamall (f. 23. apr. 1828), hafði setið
að ríkjum síðan 1873, mikilsvirtur þjóð-
höfðingi og mjög vinsæll af þegnum
sínum.
Fastráðið er, að Búaforingjarnir nafn-
kunnu, De Wet, Botha og Delarey
ferðist til Evrópu í sumar, eins og fyr
hefur verið skýrt frá í þessu blaði.
Kemur De Wet um miðjan september
til Vínarborgar og ætlar að ferðast um
Austurríki, Ungverjaland og Þýzka-
land, en Botha fer til Frakklands,
Hollands og Belgíu, og Delarey til
Rússlands. Þannig skýrir austurrískt
blað („Neues Wiener Tagblatt" 18. f.
m.) frá ferðaáætlun þeirra.
Þegar Loubet forseti Frakka kom
heim úr Rússlandsferð sinni, sagði
ráðaneytið Waldeck-Rousseau af sér
völdum, eins og fyr hefur verið skýrt
frá hér í blaðinu. Formaður nýja ráða-
neytisins, er fylgir sömu pólitisku stefnu
og hið fyrra (radikal), heitir Combes,
66 ára gl., var upprunalega læknir, en
fór brátt að gefa sig við pólitík, hef-
ur setið í öldungaráðinu (senatinu) síð-
an 1885. var kennslumálaráðgjafi í
ráðaneyti León Bourgeoi’s 1895/96.
Af ráðgjöfunum í ráðaneyti W.-R.
hafa þeir Delcasse utanríkisráðgjafi og
André hermálaráðgjafi fengið sæti í
hinu nýja ráðaneyti. Fjármálaráðgjafi
varð Ronvier, hinn nafnkunni stjórn-
málamaður, er áður hefur verið ráða-
neytisforseti. Hann er nú risinn úr
roti eptir Panama-hneykslið hér um ár-
ið, þar sem hann þótti hafa brennt sig.
Við forsetakosningar í fulltrúaþing-
inu, er fóru fram rétt áður en ráða-
neytið myndaðist vann Bourgeois sig-
ur yfir Paul Deschanel, er áður gegndi
forsetastörfum.
Eldgosinu á Martinique heldur áfram
með nokkra daga millibili. 6. f. m.
kom gífurlegt gos úr Peleéfjalli. Bær-
inn Fort-de-France lá 4 tíma í myrkri.
Sveitin umhverfis Morne Rouge þakt-
ist sjóðandi leðiu. Haldið, að nokkr-
ar fiskiskútur hafi farizt.
Annars ber víðar á eldgosi um þess-
ar mundir; fréttir þó óljósar; þannig
má nefna:
Eldfjallið Strazsa í Efra-Ungverja-
landi, fyrir sunnan Karpatafjöll, hefur
eptir nokkur 100 ára hvíld aptur gosið.
- - Frá Baku fréttist, að fjallið Gusy
Gran — nálægt þorpinu Kobí — hafi
spúið eldi og m. a. drepið heilan fjár-
hóp. — Frá Valparaiso: Í Chaico —
héraði eldgos; 2 þorp eyddust, 75
manns fórust.
SuðurheimskautafarinnBorchgrevinck,
er hefur dvalið í Martinique, nú í
New-York, hvað þykjast hafa gert vís-
indal. uppgötvun, er geti leitt til, að
menn geti séð fyrir eldgos.
Maður
sá, er drukknaði af þilskipinu „Svanen"
25. f. m. og getið var um í síðasta blaði
hét Jón Sigurdsson.
Til Ameriku
fór í f. m. alfarinn séra Einar Vigfússon á
Desjarmýri með skylduliði sínu; viðskilnað-
ur sagður laklegur við stað og kirkju. Mun
hann ekki hafa gert biskupi eða prófasti
aðvart um brottför sína, heldur gengið
þegjandi trá öllu saman. Hann var sagð-
ur mjög efnalítill.
Prestkosning
er farin fram 1 Selárdal. Kosningu hlaut
Magnús Þorsteinsson (frá Húsafelli) með
ölluro greiddum atkv.
Embættispróf i læknisfrceði
við háskólann hefur tekið Steingrímur
Matthíasson (prests Jochumssonar) með 1.
einkunn, 175 st.
Fyrti hluta lögýrceóipt ófs hafa tekið Egg-
ert Claesen og Jón Sveinbjörnsson með
1. einkunn og Magnús Jónsson með 2. eink.
Heimspekisptóf hafa tekið þessir stúdent-
ar: Einar Arnórsson, Jóri Ófeigsson,
Magnús Sigurðsson og Skúli Bogason með
eink. dgœtl., Björn Líndal, Böðvar Jónsson,
Böðvar Kristjánsson, Guðmundur Einars-
son, Gunnlaugur Claesen og Haukur Gísla-
son með ddvel, Guðmundur Jóhannsson vel.
Ný lög frá alþingi
staðfest af konungi 7. f. m.
Lög um heimild til að stofna hlutafél-
agsbanka á Islandi.
Lög um heimild fyrir landstjórnina tii
hluttöku fyrir landsjóðs hönd í hlutafélags-
banka á Islandi.
Viðaukalög við lög 12. jan. 1900 um
stofnun veðdeildar í landsbankanum í
Reykjavlk.
Með „Ceres“,
er kom hingað frá útlöndum norðan og
vestan um land 28. f. m. komu ýmsir far-
þegar, þar á meðal Sighvatur Bjarnason
bankabókari frá Akureyri fvar að setja á
laggirnar útibú þar), frú Sigrlður Jónsdótt-
ir, kona séra Geirs Sæmundssonar, Jón
óðalsbóndi Jónsson á Hafsteinsstöðum,
Þorvaldur Jónsson læknir frá ísafirði, Skúli
Thoroddsen o. fl. Ennfremur kom með
skipinu séra Sigurður Jónsson frá Þöngla-
bakka með fólk sitt á leið til Lundar í
Borgarfirði, er honum hefur verið veittur.
Með „Botnia“,
er kom frá útlöndum 30. f. m. komu
nokkrir farþegar, þar á meðal M. Lund
lyfsali, Andrés Fjeldsted cand. med. &.
chir, stúdentarnir Bjarni Jónsson, (frá
Unnarholti), Eggert Claesen, Guðm. Tóm-
asson, Guðm. Þorsteinsson, KristiánLinn-
et og Vernharður Jóhannsson úr Rvík,
frk. Steinun Hjartardóttir trá Englandi, og
nokkrir útlendir ferðamenn.
Hinn 22. f. m. andaðist hér í bænum
Stefdn Bjatnason fyrrum bóndi á Hvíta-
nesi í Skilmannahrepp. Hann var fæddur
12. nóv. 1830 á Hóli í Fjörðum (Þöngla-
bakkasókn), fluttist 12 ára suður að Gils-
bakka með séra Magnúsi Sigurðssyni, fór
þaðan tvítugur að Háafellií Hvitárslðuog
var þar 16 ár, þaðan að Hvítanesi í Skil-
mannahrepp 1867, og bjó þar góðu búi
34 ár, var öll þau ár hreppstjóri, og optast
nær sýslunefndarmaður, flutti til Rvíkur
vorið 1901. Hann kvæntist haustið 1867
Kristjönu Teitsdóttur, átti með henni 9
börn, þar af lifa 4 stúlkur og 1 piltur, öll
efnileg.
Eptirmseli.
Hinn 11. okt. f. á. andaðist að Núpdals-
tungu í Miðfirði bóndinn Jón Teitsson á
áttræðis aldri. Hann var talinn einhver
hinn bezti heimilisfaðir og var kvæntur Elin-
borgu Guðmundsdóttur smiðs frá Völlum á
Vatnsnesi, nafnkennds völundar. Meðal
barna þeirra hjóna er Björn bóndi í Núp-
dalstungu, meðal merkari bænda þar um
slóðir.
Hinn 2. maí þ. á. andaðist að heimili
sínu Minna-Knararnesi á Vatnsleysuströnd,
merkisbóndinn, Sigurdur Gíslason, 78 ára
að aldri. Sigurður sál. fæddist að Eyrarkoti
í Vogum og fluttist í æsku að Háteig í
Garðahverfi og ólst þar upp hjá afa sínum,
Gísla Jónssyni og konu hans Þóru Daníels-
dóttur, systur Jóns sál. Daníelssonar í Stóru-
Vogum. 24. ára fluttist hann að Minna-
Knararnesi til föður síns, Gtsla Gíslasonar,
og kvæntist þar árið 1856 Margréti Bjarna-
dóttur og eignaðist með henni 5 börn og dó
eitt þeirra í æsku, en 4 eru á lífi mjög
mannvænleg börn, 3 synir kvæntir og ein
dóttir ógipt. Sigurður sál. var mesti dugn-
aðar- og ráðdeildarmaður, búhöldur góður
og ágætur húsbóndi, trúfastur maki og á-
gætur faðir. Að stiilingu og hógværð
átti hann fáa stna líka, hann var einkar
orðvar og fáskiptinn og lifði yfir höfuð rnjög
grandvöru lífi til orða og verka, jafnframt
því, sem hann var öðrum fyrirmynd í dugn-
aði, ráðdeild og reglusemi. Ktyia hans, sem
var mesta sóma- og greindarkona og ljós-
móðir hreppsins um full 25 ár, andaðist 14.
jan. 1899. Fyrir 10 árum síðan missti Sig-
urður sál. sjónina og ásamt henni heilsuna,
og var optast meira og minna þjáður
þessa löngu nótt. Trúin á guð var hans eina
en jafnframt fagra og sæla ljós þessa löngu
nótt. Allir, sem þekktu hinn framliðna
minnast hans með þakklátum huga og
hreppsfélagið kveður hann með þeirri játn-
ingu, að hann hafi verið einn meðal hinna
nýtustu og duglegustu meðlima sinna með-
an heilsa leyfði. A.