Þjóðólfur - 24.10.1902, Page 4

Þjóðólfur - 24.10.1902, Page 4
167 ilf Viðarverzlun Bjarna Jónssonar hefur með skipinu „OLGU PAULINE‘% sem kom beint frá Halm- stad í Svíaríki fengið söguð tré af öllum sortum, panel ogr plægðan Borðvið. Mustad’s smjörlíki (no rsk vara) fæst nú keypt hjá flestum verzlunarmönnum. Reynið það, og þér munuð komast að raun um, að það er bezta smjörlíkið. Klæðaverzlunin í Bankastræti 12« Mikið úrval af: KAMGARNI, KLÆÐI, BÚKSKINNI, CHEVIOT, einnig fjölbreyttogfall- eg BUXNAEFNI og sérstakt Úrval í VETRARFRAKKA og ULSTERA, Verð frá 2 kr 25—p kr. al. er nú nýkomið og selzt með góðu verði eptir venju. Komið og gerið kaup við mig. Virðingarfyllst. GUÐM. SIGURÐSSON klœðskeri. Hálslín aföllum stœrðum HVERGI ÓDÝRARA, og allt því til- heyr andi fæst þar einnig. því að það atvik er að engu leyti henni að kenna, jafnvel þótt nokkrar óhlutvandar per- sónur hafi flutt þann orðróm út, og hirði eg því ekki að nafngreina þær, að mér þykja þær ekki þess verðar. Ein af óhróðurssög- um þeim, sem hinir illgjörnu náungar hafa smíðað í því skyni, að reyna að sanna lygar sínar um fyrgreinda stúlku, er sú, að stúlka þessi hafi spillt samkomulagi á meðal hjóna, þar sem hún átti heimili fyrir austan, og að hún hafi fyrir þá sök verið rekin þaðan, og vegna þessarar óhróðurssögu hefur stúlkan leitað vitnisburðar sóknarprests síns, og fylg- ir því sá vitnisburður línum þessum. Af þessu vona eg, að allir góðgjarnir og réttsýnir menn láti sannfærast um, að óhróð- ur sá, sem með röngu hefur verið borinn út af greindri stúlku, er sprottinn af ill- girni.þeirra, er flutt hafa, en hefur engan sannleika í sér fólginn. Reykjavík 3I/io 1902. Magnús Gudnason. (steiasmiður). * * * Ungfrú Eggertína Guðmundsdóttir, núver- i andi í Reykjavík hjá Magnúsi steinsmið I Guðnasyni, hefur, að mig minnir bezt, ( 7 ár verið sóknarbarn mitt ( Holtaprestakalli, j og þar af 2 ár vinnukona á heimili mínu i þar, Guttormshaga. Og að gefnu tilefni gef eg henni það vottorð: að hún, Eggertína Guðmundsdóttir, kom sér allstaðar vel, þar sem hún dvaldi, og engin kvörtun né kæra gegn henni heyrðist frá nokkrum manni þar. Vildu þar fleiri fá hana í vist, en fengu. Og af heimiíi mínu fór hún svo, að ekkert nema gott verður um hana sagt þaðan af neinum. Sérstaklega var hún barnelsk og barngóð. Þetta vottast hér með eptir beztu vitund og samvizku. Fellsmúla á Landi 16. sept. 1902. Ofeigur Vigfússon. Næstkomandi fimmtudag hinn 30. þ. m. verður haldinn Kvenn- félagsfundur á venjulegum stað og tíma. Þá er borgunardagur félagsins og æski- legt að allar félagskonur mæti. Stjórnin. Harðfiskur, Saltfiskur og Grásleppa fæst í verzlun Sturlu Jónssonar. Eigandi og ábyrgðarmaður: Hannes Þorsteinsson, cand. theoi. Prentsmiðja Þjóðólfs. Leir eldfastur fæst í verzlun Sturlu Jónssonar. Mustads norska smjörlíki nýtt og ágætlega gott er komið með síðustu ferð Lauru til Gunnars Þorbjörnssonar. Það mun borga sig að koma til kaupm. Jóns Helgasonar og líta á sýnishorn af fallegum og hald- góðum fataefnum, Sjölum, Skyrtum og Teppum, nnnið úr ísl. ull í góðri verksmiðju. Allir sem til þekkja, koma þang- að með sínar nilarsendingar. Virðingarfyllst Jón Helgason. Aðalstræti 14 (fyrverandi Sturlu-búð). V o 11 o r ð . Eg hef verið mjög magaveikur, og hefur þar með fylgt höfuðverkur og annar lasleiki. Með því að brúka K í n a -1 í f s - e 1 i x í r frá hr. V a 1 d e - mar Petersen í Friðrikshöfn, er eg aptur kominn til góðrar heilsu, og ræð eg því öllum, er þjást af slík- um sjúkdómi, að reyna bitter þennan. Eyrarbakka. Oddur Snorrason. KÍNA-LIFS-EI.IXÍRINN fæsthjá flestum kaupmönntim á íslandi, án nokkurrar toll- hækkunar, svo að verðið er öldungis sama sem fyr, 1 kr. 50 a. flaskan. Til þess að vera vissir um, að fá hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir V. P. að líta vel eptir því, að -p - standi á flösk- unum í grænu lakki, og eins eptir hinu skrá- setta vörumerki áflöskumiðanum: Kínverji meO glas 1 hendi, og firmanafnið Walde- mar Petersen. Tapazt hefur úr Reykjavík 2. október rauður hestur glófaxóttur, mark: biti fram- an bæði. — Finnandi er beðinn að skila honum gegn sanngjarnri þóknun, að Ólafs- völlum á Skeiðum. Br. Jónsson. = U BSMIÐ U R = Pétur Sighvatsson á DÝRAFIRÐI, gerir við og selur Ur og Klukkur, Baro- metra, Kíkira, Glerangtt, (hita og kulda)- Mælira, Kapsel, Hringi, Brjóstnálar, margskonar Úrfestar úr Silfri, Gullpl. og Nikkel m. m. Allt mjög vandað og ódýrt. Eg hef árum saman dvalið erlendis og get því boðið betri kjör en nokkur annar. VÁTRYGGINGARFELAGIÐ ,SUN‘ í Lundúnum (stofnað 1710) tekur að sér með sanngjörnum kjörum ábyrgð á húsum, allskonar áhöldum og inn- anstokksmunum, fénaði, er inni brenn- ur og skipum, sem í höfn eru eða á land eru sett. Adnlumboðsmnður á íslandi Dr. Jón Þorkelsson yngri í Reykjavik. 5C honum og sagði: „Drengurinn etur okkur alveg út á húsgangínn", en faðir hans svaraði: „Það kemur aptur", sagði maðurinn, er hann gaf svín- inu flesk", og svo fékk Þorsteinn að snæða úr grautarskálinni sinni í ró og næði. Menn þóttust sjá, að maturinn hleypti kröptum í köggla pilts- ins, er hann dró þungan, hlaðinn sleða upp glerhála brekkuna á vetrar- degi, svo að svitinn rann niður eptir kinnunum, eða er hann lypti vetur- gömlu nauti á lopt, með því að fara undir kvið þess. Svo virtist föður hans einnig, og eptir slikar þrekraunir fékk hann ávallt svo mikið að borða, að hann stóð á blístri. Þorsteinn óx upp, og varð herðibreiður og ramur að afli. Leið nú að þeim tíma, að hann skyldi staðfestur verða í kristindóminum. Faðir hans var hálfsmeikur um hann, því að hann mundi eptir því, er hann sjálfur gekk tii prestsins, að það var erfitt að sneiða hjá skerinu, svo að allt færi ekki í strand; því gaf hann Þor- steini það ráð, að hann skyldi þegja að staðaldri, og að eins svara endr- um og sinnum, er brýna nauðsyn bæri til. „Það eru spjátrungar, sem kjapta mikið", sagði faðirinn. Og Þorsteinn lofaði þessu. En fyrsta árið komst hann ekki að, af því að presturinn hafði spurt hann, hver væri voldugastpr, og piltur svaraði skjótt, að það væri hreppstjórinn, því að faðir Þorsteins hafði einmitt um það leyti átt í brösum við hreppstjór- ann og lofað að slaka til. Og næsta ár kom Þorsteinn heim, og sagði, að það væri hæpið, að hann slyppi í þetta sinn, því að honum hefði orðið sú skyssa, að segja, að eiginleikar guðs væru „fýsn holdsins, fýsn augnanna og ósiðlegt líferni". Nú voru engin önnur úrræði, en að faðir hans varð að fara í spariflíkurnar sínar og tala einslega við prestinn, og er hann kom heim aptur um kveldið, sagði hann Þorsteini, að hann skyldi vera hughraustur, þetta lagaðist allt saman, hann skyldi að eins rifja vel upp fyrir sér boðorðin og hinar þrjár greinar trúarjátningarinnar. Þá er Þorsteinn gekk til prestsins morguninn eptir, hafði hann með sér stórt smjörkvartil, sem hann átti að skiija eptir í eldhúsinu, og pabbi hans hafði aptur og aptur áminnt hann um, að hann skyldi vera stilltur og gætinn, meðan þetta stæði yfir. Og Þorsteinn var Svo þýður og gæfur þann daginn, að það var öldungis aðdáanlegt. Það datt hvorki af hon- 5i um né draup. Hann sat allan fyrri hluta dagsins í lestrarstofunni, og grúfði sig niður i bókina, eins og það væri synd að horfa ofan á sand- inn á gólfinu, og svo boginn í bakinu, að það varð enn ávalara en venjulega, og með hárlubbann langt niðri í augum. Og svo las hann svo lágt, að það var næstum kjökur. Presturinn aumkaðist þá yfir hann, svo að hann varð fermdur, en hann varð að lofa því, að hafa guðs orð iðulega um hönd og leitast ávallt við að lifa eptir því. Jú, hann lofaði því, að hann skyldi áreiðanlega lesa, og lifa eptir því, það væri öldungis víst. En hið fyrsta, er Þorsteinn gerði, er hana slapp burtu, var að taka langan staur, er stóð í aldingarði prestsins og skjóta honum beint inn um búrgluggann, og sama kveldið lúbarði hann fimm stráka, og hleypti tveim hrossum frá Andrési á Brúarlandi út í engjarnar, af því að dóttir hans hafði kallað: „Skammastu þínl" á eptir honum. Nú var Þorsteinn frjáls maður, og engum háður nema föður sínum. Það kom einnig brátt í Ijós, því að innan skamms var farið að kæra hann fyrir föðurnum hvað eptir annað. Ymist hafði Þorsteinn verið á þessum staðnum, ýmist á hinum með strákapör sín. Faðirinn svaraði fáu, áminnti Þorstein að eins við og við, að hann skyldi fara gætilegar. Þorsteinn var enginn geð- prýðismaður; ef hann reiddist, þá barði hann, því að hann vissi, að þá sefuðust allir. í ryskingum stóð enginn honum á sporði. Sveitungum hans var ekki vel við hann, og vildu ógjarnan kljást við hann, því að það var naumast nokkurt samkvæmi, er ekki lauk með áflogum, ef Þor- steinn var þar staddur. Svæsnastur var hann, er hann var orðinn heitur af dansi og teitur af víni. Þá óð hann fram með frýjunarorðum, þreif til sumra og hóf þá á lopt til að sýna, hve sterkur hann var. Fótleggir hans voru eins og vel vaxnir trjástofnar, og er hann spennti aflvöðvann, var hann harður átöku sem járn. En þótt sveitarmönnum væri ekki vel til Þorsteins, þá var það samt hann, sem kom hvarvetna fram, ef eitthvað var á seiði, sem sveitin varð að skipta sér af. Hann var eins og Golíat, er Filistearnir höfðu að skildi fyrir sér. Þannig var það einhverju sinni, er leið konyngs lá um sveitina, að reistur var heiðursbogi, er konungur skyldi ganga í gegnum, og var Þorsteinn fenginn til að standa undir I

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.