Þjóðólfur - 05.12.1902, Síða 2

Þjóðólfur - 05.12.1902, Síða 2
194 Það er fullkomlega rétt athugað hjá hin- um heiðraða höf., að þjóðin verður að gæta þess, að ofmargir embættismenn skipi ekki fulltrúaþing hennar hlutfallslega. En hinsvegar væri ekki rétt, að rýma öll- um embættismönnum burt úr þjóðkjörna flokknum, því að ýmsir embættismenn hafa verið og eru enn meðal hinna nýt- ustu og sjálfstæðustu þingmanna. Það er um að gera, að þjóðin geti valið úr þeirra flokki þá, sem hæfastir eru, en það hefur opt farið út um þúfur á seinni árum, og þeir embættismenn komizt á þing, sem þangað áttu ekkert erindi, og aldrei áttu þangað að koma. Vér viljum t. d. nefna suma sýslumennina, er sátu á þingi 1901. En sem betur fór hafnaði þjóðin við síð- ustu kosningar sumum hinna óþörfustu úr þeim flokki. Og væntanlega fer þjóðinni að skiljast, að það eru ekki borðalagðar húfur eða einkennisbúningur,er skapaþing- mannshæfileikaeða veitaeigaþingmennsku- stöðuna. Með vaxandi þroska þjóðarinn- ar mun henni takast smátt og smátt að skilja gullið frá soranum og hrinda þeim mönnum úr þingsæti, er skortir kjark og sjálfstæði til að gæta hagsmuna þjóðarinn- ar, eins og skylt er, hvort sem þeir eru embættismenn eða ekki, Til þess að vera sannur spegill þjóðarinnar þarf þingið að endurskapast, styrkjast og göfgast, og það umbótaverk verður þjóðin að vinna. Ritst. Vitnisburður um íslendinga i þýzkum blöðum. Það er engin nýlunda, að sjá hinar og þessar öfgar og annað ranghermi um land vort í erlendum ferðasögum og blaðagreinum eptir útlenda ferða- menn, er koma hingað snöggvast öllu ókunnugir og án þess, að skilja minnstu vitund í málínu. Það eru ekki nema örfáir erlendir menn, er geta ritað af nokkurri þekkingu um land ■ vort og þjóð, þótt þeir ferðist hér 1—2 mán- aðatíma að sumrinu. Meðal hinna ör- fáu útlendinga, er sannast og réttast hafa ritað um landið á síðari árum er Heusler háskólakennari í Berlín, enda skilur hann tungu vora vel. Greinar þær, er hann ritaði í „Deutsche Rund- schau" 1896 og snúið var að mestu á íslenzku í Þjóðólfi snemma árs 1897, voru ágætlega ritaðar og munu mörg- um í fersku minni. I. Nú í haust hafa tveir þýzkir menn, er ferðuðust hér um land í sumar rit- að greinar um ferð sína í þýzk blöð, og eru þær greinar á ýmsan hátt vill- andi, þótt margt sé rétt athugað hjá þeim. — Annar þessara manna dr.' Heinrich Pudor ritar í „Barmer Zeitung" 20. sept. og í aukablað við „Hamburger Nachrichten" 12. okt. Mörgu af því, sem hann minnist á í þessu síðartalda blaði er svo háttað, að frá því verður ekki skýrt án þess að nefna einstaka menn eða einstaka atvinnurekendur, enda er það ekki svo markvert, að blaðamál geti talizt. En margt af því, sem hann getur um, er á réttum rökum byggt t. d. um ó- þefinn í höfuðstaðnum og óþverrann á götunum, tilbreytingaleysi og smekk- Jeysi í byggingastíl húsanna o. fl. Hann er mjög fjarri því, að vera hrif- inn af bænum eða útsýninu þaðan. Hann gekk upp að Skólavörðu og litaðist um þaðan. Lýsir hann með mjög dökkum litum landinu, er hann sá þar í námunda og kveðst hafa geng- ið þaðan aptur niður í bæinn hrygg- ur í huga, eptir hinum óþokkalegu götum, og horft á hin eyðilegu hús, og hjartað hafi ætlað að frjósa í brjósti sér við þá dapurlegu sjón. Þar hafi ekki sést neinn vottur af list eða ger- manskri menningu í byggingarsniði húsanna, allt svo þunglamalegt og steingerfingslegt, og það sé einkenni- legt, að stærsta húsið á landinu sé holdsveikraspítalinn. En kvennfólkið leizt honum mjög vel á og lýsir því allítarlega í íslenzka búningnum, er honum þykir fallegur og fara því vel. Segir hann, að flestar íslenzkar stúlk- ur, er hann hafi séð, séu mjög fríðar sýnum („auffallend hubsch“), beínvaxn- ar, fallega litkaðar með heiðblá augu, fallegt enni og laglegt nef; það eitt þykir honum óprýða, að neðri vörin sé venjulega nokkuð löng, en efri vörin ofstutt(I). Á Þingvöllum þótti honum landslag einkennilegt og lýsir því allítarlega. Ranghermterþaðhjáhonum, að „Ferða- mannaféiagið" hafi reist „Valhöll" — í Miðda! áði hann á leiðinni aust- ur og verður skrafdrjúgt um hitt og þetta þar. Leizt honum einkum mjög vel á annan bóndann þar, sem hann þó ekki nafngreinir. Frá Reykjavík fór þessi dr. Pudor sjóveg til Akureyrar og þaðan land- veg suður Grímstunguheiði og Kalda- dal. Er hann allmjög hrifinn yfir ein- verunni, kyrðinni og mikilfengleik nátt- úrunnar á íslands eyðimörkum, er hann svo kallar. I.ýsir hann því all- skáldlega í grein sinni í „Barmer Zeitung". En allmjög kvartar hann um, hve dýrt sé að ferðast hér og fylgdarmönnunum íslenzkn gefur hann fremur laklegan vitnisburð, segir að þeir verðskuldi naumast að nefnast því nafni, því að þeir skipti sér svo að segja ekkert af ferðamanninum, hið eina, sem þeir geri sé að rata veg- inn og sjá um hestana. „Þeir litu aldrei aptur til að gæta að okkur'' segir hann „jafnvel ekki þótt hætta væri á ferðum, t. d. þegar riðið var yfir ár, eða ofan afarbrattar kleifar. Og það væri óskandi" bætir hann við, „að ferðamannafélagið íslenzka annaðist um að ráða bót á þessu, með því að láta fylgdarmennina iæra, hvernig þeir ættu að leysa starf sitt af hendi". Á Kaldadal fékk hann sand- og snjóbyl, en af því að undanhald var, kvaðst hann hafa komizt lífs af, hefði hann haft bylinn í fangið, kveðst hann ekki vita, hvernig farið hefði. Ræá*- ur hann því öllum ferðamönnutn, er ferðast um hálendi íslands, að fara um það frá norðri til suðurs, en aldr- ei hins vegar, frá suðri til norðurs(Il). Ymislegt fleira spaklegt segir náungi þessi, er hér yrði oflangt að telja. Utan úr heimi. XJm mannæturnar á Borneo, eyjunni miklu við suðurströnd Asíu, rit- ar hollenzkur maður Theodore de Gestel allítarlega í tímaritinu „Cosmopolitan": „Dajakarnir, en svp nefnast mannætur þessar, eru hraustir hermenn. Þá er þeir fara í bardagamála þeir sigí framan með ýmiskonar málmlitum, og hafa grímur fyr- ir andlitinu, búnar til úr hornum og skinn- um vísundans. Þeir drepa óvini sína með langri þungri sveðju, er þeir kalla „kluang". Blaðið á sveðjunni er nál. i'A alin á lengd og tæpir 2 þuml. á breidd, og eggin vel brýnd. Er þetta óttalegt vopn, er reiður „dajak" hefur það í hönd- um. Mannætur þessar búa í hópum, 1000—1500 í hverjum á allstóru svæði, er þeir girða með bambusreyr, svo þétt, að það er nálega ókleift fyrir nokkra liíandi skepnu að komast gegnum girðinguna. Meðíram girðingunni er grafinn skurður, svo að úr þessu verður bezta vígi. Ókunn- um mönnum er mjög sjaldan hleypt inn fyrir. Eitt kveld er eg ferðaðist upp eptir Kotaifljótinu, sendi foringi hinna innbornu íylgdarmanna minna menn burtu til að safna kókoshnetum. Eg tók eptir þvl, að 10 lögðu af stað, en er þeir komu aptur 1—2 klukkustundum síðar með örfáar kók- oshnetur voru þeir að eins 9. Þá er þeir komu, lögðu aptur 10 menn afstaðlsömu erindum. Það vaknaði undir eins grunur hjá mér. F.g kallaði á foringjann, ogkrafð- ist, að hann segði mér, hvernig þessu væri varið. Hann spurði mennsínaog fullyrti, að þeir vissu ekkert. Eg sagði honum, að hann skyldi segja þeim, að eg mundi láta skjóta þá, ef þeir segðu ekki satt, og bauð honum að láta fjötra þessa 9 menn við næsta tré. Og þá er eg um leið lét sveit hermanna ganga fram, alla með hlöðn- um byssum, þá játaði loksins foringinn, að maðurinn, sem vantaði, hefði dottið of- an úr pálmatré og rotazt til dauðs. Eg tók þá byssti mína og fór á eptir hinum 10, er nýfarnir voru. Innan skamms sá eg eld kyntan og fylgdarmenn mína hina innbornu umhverfis bálið. Eg gekk nær, án þess þeir sæju mig, en hljóp svo ailt í einu að þeitn og spurði þá, hvað þeir væru að gera. Eg sá, að þeir voru að steikja og snæða eitthvað af kjöti. Eg skipaði þeim þegar í stað að hverfa aptur til náttstaðarins og lét gæta þeirra. Svo kallaði eg á foringjann og lét hann telja allt fólk sitt. Kom þá í'ljós, að enn vant- aði einn mann. Dajakarnir eru kallaðir „höfðaveidarar". Höfðaveiðin er einn þáttur í helgisiðum þeirra, og má ekki teljast sem vottur um grimmd. Dajakinn drepur sjaldan meira en einn mann, heggur af honum höfuðið og sker ur honum hjartað, til að hlaupa með þessi sigurmerki til konu sinnar, sem fylgir 1 humátt á eptir aðalflokknum, og gleðst með honum yfir sigri hans. Hann veit, að hún metur hann meira sem mann, eiginmann og hermann í stuttu máli í öllu, nákvæmlega í hlutfalli við þá höfða- tölu, sem hann færir henni. Eptir bardagann- er slegið upp veizlu. Maðurinn etur hjarta óvinar síns, því að hann hyggur, að hann fái með þvf hugrekki og þrótt, og svo býður hann vinum sínum að snæða með sér það sem eptir er af mótstöðumanni hans. En höfuðið hengir liann upp til skrauts heima hjá sér. Mér hafði verið falið á hendur, að taka burtu og brenna öll þau mannahöfuð, er eg fyndi í þorp- um dajakanna og það gerði eg. Mætti eg hvergi neinni verulegri mótspyrnu, þótt eg tæki þau burtu, enda hafði eg einskonar leiðarbréf frá soldáninum í Kotai, stjórn- anda þess hluta eyjarinnar, er dajakar byggja. En leiðarbréf þetta var fólgið f því, að maður var sendur á undan flokk vorum, og bar hann á bambuslegg merki, er dajakar þekktu vel og átti að merkja eitthvað á þá leið, að soldáninn skipaði þeim, að taka vel á móti mér. Eg spurði soldáninn meðal annars um „rófumennina", er sagnir hafa borizt um, að ættu heima á þessu svæði. Þeir eru kallaðir „orangbutung" á malayisku. Sold- áninn kvaðst ekki vita, hvort þeir væru til, en væri svo, þá mundu þeir blygðast sín fyrir að láta sjá sig. Eg skal þegar geta þess, að eg ferðaðist 400 kilometra upp eptir Kotaifljótinu, og var ávallt að skyggn- ast eptir rófumönnunum, en komst að þeirri niðurstöðu, að menn með rófu væru alls ekki til. Það er enginn efi á, að dajakar hafa ver- ið mannætur frá ómunatíð. Þeir segja, að mannakjöt sé hið gómsætasta kjöt, er þeir þekki, og hafa sér til afsökunar, að það liggi í eðlisfari allra lifandi skepna að eta óvini sína, eins og óstyrkvari skepnur af öðrum tegundum, t. d. eins og tígrisdýrið etur antiiópuna, kötturinn músina, fuglarnir orma eða fiska og mennirnir nautin og sauðfénaðinn Dajakarnir sögðuvið mig: „Okkurþyk- ir gott mannakjöt, þvf að það er bezta kjötið, sem til er, og þess vegna borðum við það". En þeir eta aldrei frændur sína eða vini, að eins óvini sína. Við hina hyggilégu stjórn Hollendinga hefur þó mannakjötsátið farið mjög minnk- andi. Hollendingar mennta ekki villiþjóð- flokka með skotvopnum og lagafyrirmæl- um, heldur með því að sannfæra þá vin gjarnlega smátt og smátt — — — —■ — Þannig lýsir höf. þessi villimönnunum á Borneo. A þessum menntunarinnar og menningarinnar tímum, er það dálítið ein- kennilegt, að enn skuli vera hingað og þangað heilir þjóðflokkar, er hafa manna- kjöt fyrir kræsingar. Og það virðist enn eiga nokkuð langt í land, að slík villudýr í mannsmynd verði gerð að nokkurnveg- inn siðuðu fólki. Hlutverk menntunarinn- ar og menningarinnar er enn mikið í heiminum. Ljóðafregn. Það fer nú að verða gamanleysa fyrir smáskáldin að yrkja, þegarönnur eins stór- skáld eru uppi eins og Þorsteinn Erlings- son, tignaður af háum og lágum og laun- aður af landssjóði, enda sýna ritdómar seinni tímanna, að smekknum hefur farið fram — meðal »lærðu« mannanna. Mikilvægt tækifæri bar nýlega að hönd- um. Það var afmæli norska stórskálds- ins Björnstjerne Björnson. Þá veitti nú ekki af að yrkja og yrkja vel, taka á því sem til var, og sýna nú stórskáldinu norska hví- lfkt ágætisskáld Island ætti — og svo var farið til Þ. E. Og Steini lét ekki standa á sér, heldur brá við skjótt og orti, og svo var allt saman skrautritað og sent með »Laura«; en »ísaf.« með sinni alkunnu dómgreind á skáldskap þoidi ekki við, fyr en hún gat komizt út og flutt þessa mikilsverðu ljóðanýlundu út um bæinn. Skáldið byrjar á því, að lofsyngja »h ir ð« Björnsons; segir því næst að »vér« (Þ. E. & Co) höfum kennt honum (»Jeg har lavet ham«, sagði Brandes um Drachmann) og segir að vér skunnum að geyma« og að »ísland sé seint til að gleymac, og önnur þvílík há-heimspekileg kjarnyrði. Svo segir hann: „Þú komst hér svo fríðurogkvaddir svo snjallt, vér kenndum þig, sönginn og stálið. Oss fannst sem vér værum í ætt við það allt og eldgamla norræna málið. Ef eg skil rétt, þá finnst mér í þessum línum liggja sú meining, að höf. telji oss það sóma, að vér o: fornbókmenntir vor- ar séu f ætt við bókmenntir Björnsons, Sumir hefðu nú líklega viljað setja lær- dóminn þannig fram, að það væri sómi fyrir Björnson, að hann væri í ætt við vorar fornbókmenntir, og hans verk ættu þaðan rót sfna að rekja. En þetta er að vera frumlegur! Svo kemur: „Og víst hafa brotizt hér vestan um sæ, þeir voldugu glampandi hljómar. Nú eru þá »hljómarnir« farnir að »glampa«. Ekki er að furða, þótt dauðýflin hrökkvi saman! En í seinustu vísunni kemur þó perlan, þungamiðja kvæðisins: „Og þú verður æ með þeim fremstu í för, sem finna sér aflið í höndum, og láta’ ekki stöðvast hinn leiptrandi hjör unz Loki er höggvinn úr böndum". Það er þá markmiðið fyrir Björnsons og »hirðarinnar« háloiuðu baráttu, að halda áfram, þangað til Loki, persónugerfingur hins illa, lýginnar, svikanna og vélráð- anna höfundur er aptur »högginn úr bönd- um — eða á ekki að skilja þetta svo? o: þeir eiga að halda áfram þar til »djöf- ullinn er laus« 1 Kvæðið endar á þessum línum: „Úr æginum risin hin iðgræna jörð og óbyggður himinn og fagur". Feður vorir létu jörðina rísa iðjagræna úr sænum eptir Ragnarökkur, en að láta himininn koma þaðan líka — það var þeim ofvaxið. Þetta hefur skáldskapnum farið fram síðan. Bragarhátturinn er því nær hinn sami, eins og á Rask-kvæðinu sællar minningar; að öðru leyti yerður kvæðunum ekki jafn- að saman; svo miklu er þetta — há- fleygara!

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.