Þjóðólfur - 05.12.1902, Blaðsíða 3
195
Hvað ætli Björnstjerne Björnson verði
að orði, þegar hann lítur á þetta and-
lega afkvæmi eins af »höfuðskáldum« Is-
lendinga, ef hann annars lifir það, að
lesa það til enda?
3/i2-’o2.
Hreggviður.
Skagafirði 9. nóv.
Héðan eru engar fréttir að skrifa, nema
að nú er komin vetrartíð, snjókyngja mikil,
sem dreif niður fyrstu dagana af þessum mán-
uði, en sem þó dálítið seig í norðanfrost-
leysu, en víðast hvar hér er mjög haglítið
fyrir allar skepnur. Og yfir höfuð lítur mjög
illa út með fóðurbirgðir manna, ef ekki
hlánar bráðlega, því hér í sveit er sá mesti
hrossafjöldi, og þeim tíðlegast lítið hey ætl-
að, og svo mun enn hafa verið.
Fiskafli hefur verið, og síld hér inn í
fjarðarbotn, einnig kolkrabbi, og var þar
til kolkrabbinn kom, opt allt að 4 krónu
hlut, og stundum meira.
Hér má heita læknislaust nú, því Sigurð-
ur Pálsson læknir lifgur norður á Akureyrar-
spítala, en Magnús Jóhannsson læknir á
Hofsós liggur heima lijá sér eða sama sem,
getur elcki farlð út úr húsi til nokkurra
læknisstarfa.
Lítið er talað um þólitík hér, en einn val-
týski burgeisinn hér í sýslu sagði í haust,
þegar frétt var að stjórnarfrumvarpið hafði
verið samþykkt, að það pyifti ekki lengri
tíma til pess að fella það d nœsta þingi, en
gengið hefði til þess að samþykkja það nú.
Ekki hafa þingmenn okkar enn haldið „leið-
arþing" hér, svo sem vani hefur verið, og
geta sumir þess til, að það stafi af því, að
þeir þykist ekki hafa sigri að hrósa.
Hinn prúðbúni valtýski flokkur hér er enn,
að því sem sagt er, að gylla 2. þingmann
okkar og verk hans, þótt sum þeirra séu
varla þess verð.
Nú með síðustu ferð „Vestu" norðan fyrir
kom hér á Sauðárkrók Jón Jónsson frá
Amerfku, sem fyr var bóndi á Hjaltastöð-
um og „agent" hinn duglegasti, til að koma
fólki héðan úr landi. Elcki lætur hann nú
vel af ferð sinni, en hægt fer hann að
lýsa ástandinu hjá þeim fátækari, þótt hann
kannist nú við, að fátækt og basl sé til í
Ameríku eins og hér. En vel liklegt er, ef
hann sæi sér færtað gerast „agent“, að hann
mundi taka til sinnar fornu iðju aptur.
Læknaskipun.
Guðm. Guðmundsson héraðslæknir í
Stykkishólmi hefur ásamt sínu embætti
verið settur til að þjóna Flateyjar lækn-
ishéraði fyrst um sinn frá 1. þ. m.
Þórður Pálsson læknaskólakandídat hef-
ur verið settur til að þjóna Skagafjarðar
læknisumdæmi f veikindaforföllum Sigurð-
ur læknis bróður síns. Fór hann norður
héðan landveg seint í f. m.
Ðáinn
hér í bænum 29. f. m. A n d r e a s
Frederiksen bakarameistari, dugnaðar-
maður í sinni iðn og sæmdarmaður.
Ávarp
skrautritað með undirskriptum margra
bæjarmanna var norska skáidinu Björn-
stjerne Björnson sent nú með »Laura«.
B. verðttr nfl. sjötugur 8. þ. m. Stjórn
stúdentafálagsins sendi og ávarp í ljóðum
í nafni Stúdentafélagsins. Hafði formað-
ur félagsins Bjarni Jónsson frá Vogi ort
drápu. Þorsteinn Erlingsson orti og kvæði
til Björnsons, er sent var með ávarpi bæj-
armanna.
Smjörsalan
á Englandi frá rjómabúunum í Árnessýslu
hefur gengið allvel, smjörpundið selst á 80-
85 a. hæst 90 a. (að eins 1—2 kvartil, er send
voru sem sýnishorn til Newcastle). Þá er land-
sjóðsstyrkurinn bætist við, má telja, að
seljendur fá að minnsta kosti fulla 70 a.
fyrir pd. að frádregnum öllum kostnaði, og
getur það kallazt viðunanleg sala, þótt bet-
ur gæti verið og ætti að vera. En hér
eru svo miklir erfiðleikar og mikill kostn-
aður við flutning smjörsins, þangað til
það er komið á enska markaðinn,að mjög
mikið dregst frá verðinu til að greiða
þann kostnað m. fl.
Samsæti
hélt Loptur bóndi Guðmundsson á Tjörn-
um undir F.yjafjöllum, föstudaginn 26. sept.
síðastl. í tilefni af því, að þá var hann 80
ára að aldri. Boðsfólkið var yfir 100, og
var það allt gamalt og nýtt venzlafólk Lopts
bónda.
Ræðu fyrir minni Lopts hélt Kjartan próf.
Einarsson í Holti. Kvæði var einnig ort
fyrir minni sama og sungið. Ræðu fyrir
minni sveitarinnar hélt Jón Ág. Kristjánsson
organisti. Að síðustu gáfu boðsgestirnir
Lopti bónda mj ö g .vandaðan göngustaf silf-
urbúinn, með nafni Lopts og aldursárum á,
er Hallgr. Brynjólfsson í Miðeyjarhólmi hafði
gengizt fyrir að panta hjá Oddi silfursmið
Oddssyni á Eyrarbakka. Loptur bóndi Guð-
mundsson er nú búinn að búa í Vestur-
Eyjafjallahreppi í 56 ár, er því elzti bóndi
sveitarinnar, og hefur jafnan búið góðu búi
og verið hin bezta sveitarstoð. Sam-
sætið fór vel fram, og fór hver og einn á-
nægður heim til sín morguninn eptir.
Einn viðstaddur.
Skákdálkur Þjóðólfs.
Nr. tó.
Utanáskript: Pétur Zóphóníasson.
Box 32 A. Rvík.
Tafl. nr. 6
Enskt riddaratafl.
Tsc/iigorin. Gossiþ.
Hvítt: Svart.
1. e2—e4 e7—eS
2. Rgi—Í3 Rb8-—c6
3- C2 C3 d7—ds
4- Ddi—84 f7—f6
5- Bfi-—b5 Rg8—e7
6. e4Xds Da8Xd5
7- 0—0 Bc8—d7
8. d2—d4 e5—e4
9- Rf3—d2 Re7—g6
10. Bbs—C4 Dd5-aS
11. Da4—b3 f6-f5
12. Bc4—f7 + Ke8—e7?
33- Rd2—d41 Da5—a6
14- Bci— gs + Ke7Xf7
15- RC4—d6 + niát.
Taflfélög eru nú fjögur á landinu, í Reykja-
v!k,fsafirði, Akureyri og Bolungarvik. Auk þess
er taflfélag meðal íslendinga í Kaupmanna-
höfn, ogí Winnipeg. Mjög mikil hreyfing hefir
vaknað til þess, að hefja þessa list á ný til
valda, og hefur hún byrjað á stofnun Tafl-
félags Reykjavíkur. I Stykkishólmi og Seyð-
sfirði er í ráði að stofna taflfélag. í stjórn
Taflfélags Reykjnvíkur eru: Jens B. Waage
cand. phil., Pétur Zóphóníasson gagnfr. og
Helgi Hélgason verzlm.
William E. Napier heitir amerikanskur
blaðamaður og taflmaðtir, er kom hingað í
haust. Hann er ungur að aldri (21 árs) og
ritar í ýms blöð í Bandaríkjunum t. d. The
Pittsburg Dispatch, er hann ritstjóri þar að
skákdálk, og í fyrra var hann ritstjóri að
„The American Chess World". Hér ritar
hann í ýms blöð vestra um atvinnu og lifn-
aðarhætti íslendinga m. m., og dvelur hann
hér í vetur. í sumar tók hann þátt í alheims-
kappskákaþinginu í Monakó. Þar tefla beztu
taflmenn heimsins. Sá er fékk fyrstu verð-
taunin 5000 fr., heitir Maróczy og er Ung-
verji (f. 3/3 1870 í Szegedin á Ungverjalandi).
Síðan tefldi Napier á kappskákaþingi í
Hannover, og hlaut verðlaun. Hann vakti
mikla eptirtekt fyrir hve vel hann tefldi. Hér
hefur hann teflt við hina beztu, og hafa allir
farið hrakfarir. Þó hefur hann tapað ör-
fáum skákum.
Aðalorsökin til þess, að vér fáum þessar
hrakfarir, er að vér kunnum ekki skák, þ. e.
a. s. byrjanirnar, nema hvað við lærum af
áð tefla. Hér Iíta engir í skákbók til þess
að læra hverju eigi að leika ! þessu tilfelli
eða hinu, en slíkt en nauðsyn, til þess að
verða dgætur taflmaður. Ættum vér að
leggja meiri áherzlu á það, að læra hverju
á að leika.
Yeðuráttufar í Rvík í 11 óv. 1002.
Meðalhiti á hádegi. + 3.8 C.
—„— „ nóttu . + 1.2 „
Mestur hiti „ hádegi. + 8 „(h. 18.)
—„— kuldi „ — „— . -+ 6 „ (h. 4.).
Mestur hiti „ nóttu . + 6 „ (h. 20.)
—„—kuldi „ „ . + 6 „ (aðfn. h. 4.).
Fyrstu daga mánaðarins hægur á aust-
an; h. 6. bálhvass á norðan, síðan hægur
við sömu átt; gekk svo til austurs og síð-
an til útsuðurs með afsþyrnu-roki síðari
part dags h. 14. Ur því optast hæg aust-
anátt (landsunnan) með óhemju rigningu
við og við, einkttm h. 27. Loptþyngdar-
mælir einlægt vísað lágt.
V12—’o2 y. Jónassen.
Alþýðufræðsla
STÚDENTAFÉLAGSINS.
Sunnudaginn 7. þ. m. kl. 5 e. h.
Bjami Jónsson: Vandfarnar götur.
Leiðarvísir til lífsábyrgðar
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr J.
Jónassen, sem einnig gefur þeim, sem vilja
tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar upplýs-
ingar.
fslands banki.
^þamkvœmt l'ogum 7. júni þ. á. hefur undirrituðum sem hlutafélagsfull-
trúum verið veitt leyfi til að stofna hlutafélagshanka á íslandi, er nefnist »ís-
Lands bankí« og hafa einkarétt um 30 ára timabil til að gefa út seðla, er
greiðist handhafa með mótuðu gulli, þegar krafizt er.
1 1. grein þessara laga segir svo meðál annars:
»íslendingar, hvort sem eru einstakir menn, sjóðir eða stofnanir, skulu
látnir sitja fyrir í 6 mánuði frá því að lög þessi öðlast gildi að skrifa sig
fyrir hlututn í bankanum, annaðhvört með því, að borga hlutaupphæðina
í peningum með ákvæðisverði, eða með því, að gefa út skuldabréf fyrir
hinni sömu upphæð með 1. veðrétti í fasteignum á Islandi, er þó nemi
ekki meira en 20°/o af virðingarverði fasteignanna. Af skuldabréfum þess-
um greiðast 4% í ársvexti, og skal greiðsla á þeim vöxtum tryggð bank-
anum af landssjóði. Skuldabréfin mega að eins ner.ia heilum hundruðum.
Utgefendur þeirra og seinni eigendur fasteigna þeirra, sem ræða er um,
mega, eptir vild, hvenær sem þeir vilja borga lánið með peningum með
sex mánaða uppsögn í 11. júní og II. desember gjalddaga«.
Eþtir 2. grein laganna má hlutafé bankans eigi nema minna en 2 mil-
jónum króna og eigi vera meira en 3 miljónir króna.
Hlutabréfin verða gefin út fyrir 100, 300 og 2000 krónum.
Þá er tilsógn er gefin um að sktifa sig fyrir hlutum gegn peningaborgun,
verður samtímis að borga alla hluta-uþþhœðina. En óski menn, að skrifa sig
fyrir hlntum gegn skuldabréfum með 1. veðrétti í fasteignum á íslandi, er
ekki nemi meira en 20°l o af virðingarverði fasteignanna og greiddir séu f/o
i ársvexti afi verður að Láta fylgja um leið:
a. virðingargerð á hlutaðeigandi fasteign, sem sé l'ógum samkvæm;
b. eignar- og veðbókarvottorð fyrir fasteigninni, svo og yfirlýsing þeirra,
er nú eiga veðrétt í henni, um, að þeir láti veðrétt sinn víkja fyrir veð-
setningunni til bankans.
/ Af skuldabréfunum greiðist vextir frá /. aþríl 1903.
t
Samkvœmt framans'ógðu er hér með skorað á íslendinga, er kynnu að
vilja nota rétt sinn eþtir lögutn 7. júní 1902 til þess að sitja fyrir, að skrifa
sig fyrir hlutum í »fslands banka«., eþtir áðursögðum skilmálum, að hafa
gefið sig fram um slik hlutabréfakauþ fyrir 31. marz 1903
í Reykjavík við
herra cand. juris Hannes Thorsteinson,
í Kaupmannahöfn við annanhvorn okkar undirritaðra.
Fyrir greiddar uþþhœðir verða gefnar bt áðabirgðakvittanir, sem síðar
verður skiþt á við hlutabréf eþtir nánari auglýsingar.
Kynni tilboð um hlutabréfakauþ að verða um ofi áskilur félagið sér
rétt til nauðsynlegrar niðutfærslu, ef til kemur.
Kaupmannahöfn þann 14. nóvember 1902.
Ludvig Arntzen Alexander Warburg
hæstaréttarmálaflutningsmaður stórkaupmaður
Holmens Kanal 2.
Frihavnen.
L