Þjóðólfur - 23.01.1903, Side 1
55. árg.
JtwiJadi yJÚt/lýOÁMl
Nýir fleygar —
Ný sundrung.
Saga mannkynsins sýnir það berlega,
að frelsi og sjálfstæði hverrar þjóðar
er af engu jafnmikil hætta búin sem
af sundrung, samtakaleysi og innbyrð-
is óeirðum þjóðarinnar. Heilir þjóð-
flokkar eru horfnir og orðnir að engu
vegna þess, að þeir þekktu ekki sinn
vitjunartíma og hugsuðu meira um að
svala sinni eigin metnaðar- og hégóma-
girni með innbyrðis argi og illdeilum,
en að verjast einhuga gegn sameigin-
legum utanaðkomandi óvin. Vérþurf-
um ekki annað, en að líta í sögu vorr-
ar litlu þjóðar. Hvers vegna glötuðu
íslendingar sjálfstæði sínu og urðu
konungsþjónar á 13. öld ? Ekki af
neinu öðru en ósamþykki og innbyrð-
is styrjöld höfðingjanna, — hinna beztu
manna þjóðarinnar. — Það var sundr-
unS °g samtakaleysi landsmanna að
kenna, að þeir urðu erlendri þjóð háð-
ir. Og það er cnn í dag sama sundr-
ungin, sama samtakaleysið, sem átt
hefur mestan þátt í því, að oss hefur
miðað svo lítið áfram í sönnu sjálf-
stæði, sönnum framförum. Meðan vér
vorum að vakna úr margra alda dái
um miðja næstliðna öld, þá var þjóð-
in nokkurnveginn samtaka, samhuga.
En lengur gat það ekki haldizt, en
meðan verið var að nudda stýrurnar
úr augunum, því að þá er menn voru
nokkurnveginn alvaknaðir gátu menn
ekki orðið samferða lengur. Þá var
um að gera, að finna sér eitthvað til,
svo að fylkingin rofnaði. Hin síðari
stjórnarskrárbarátta vor er sorglegur
vottur um þessa sundrungu, þessa út-
úrdúra, er gerðir voru af skammsýn-
um, metorðagjörnum mönnum, til að
afla sjálfum sér orðstírs og umtals.
Hin svonefnda valtýska, er 1897
sprengdi þjóð vora sundur í tvo and-
stæða flokka er ágætt dæmi þess, hversu
auðvelt það er, aðsutidra fámennri, fá-
tækri þjóð, sem ekkert getur áunnið,
nema hún haldi einn hóp, og sé hvar-
vetna öruggur bakhjarl foringja sinna
í baráttunni. Ekkert vopn, er stór-
þjóð getur beitt gegn smáþjóð að und-
anskildu beinu ofríki eða hnefarétti,
er sárbeittara og hættulegra en það
vopn, að kveikja ófrið meðal sjálfrar
þjóðarinnar innbyrðis, láta hana ber-
ast á banaspjótum og horfa svo á,
hvernig hún fer að tætast sjálf í sund-
ur. Og það er venjulegast mjög auð-
velt að koma þessu í kring, því að
ekki þarf nema einn gikk í hverri
veiðistöð, til að hleypa öllu í bál og
brand og hefja sprenginguna. Það
koma þá fleiri á eptir.
011 saga valtýskunnar frá 1897, með
ræturnar frá 1895 er stór svartur blett-
Reykjavík, föstudaginn 23. janúar 1903.
M 4.
ur í hinni pólitisku sögu landsins, stórt
hneyksli, sem kórónað var með að-
gerðum meiri hlutans á þingi 1901,
og aldrei verður'burtu numið. Það
var fyrirsjáanlegt, að úr því mundi ekki
verða að fullu bætt síðar. Og það
varð heldur ekki til fulls, þótt betur
færi en áhorfðist, Hafi gerðir þings-
ins 1902 ekki verið sem heppilegast-
ar, þá er þó svo mikið víst, að eins
og í haginn var búið áður, var ann
ar vegur lítt fær eða alls ekki fær ann-
ar en sá er þingið fór. Þeir sem eru
óánægðir með þá úrlausn, ættu að
láta reiði sína bitna á þeim flokki, sem
með öllu atferli sínu hafði sýnt það,
að hann var reiðubúinn til að sporna
gegn öllu öðru, en einmitt því, sem
hann hafði barizt fyrir að lemja í gegn,
En eptir því sem á stóð var sigurvon
hans ekki fólgin í neinu öðru, en ef
takast mætti að sprengja heimastjórn-
arflokkinn, og til þess voru gerðar al-
varlegar tilraunir, sem að vísu báru
ekki tilætlaðan árangur þá, en var þó
svo undirbúið, að ljós gæti orðið úr
því síðar, án þess ljósberarnir sjálfir
hefðu ljósa hugmynd um, hvers erindi
þeir gengju. Og það virðist að nokkru
leyti hafa tekizt. Hér er gamla sag-
an endurtekin. Þá er þing Islendinga
samkvæmt einróma áskorunum þjóðar-
innar, hefur loks komið sér saman um,
að minnsta kosti að nafninu, að binda
enda á baráttuna um sinn á þann hátt,
að ná æztu stjórninni inn í landið, þá
er undireins farið að vinna að því að
koma í veg fyrir, að það geti orðið
og svívirða alyktanir alþingis, af því
að ekki hafi fengizt allt sem menn áð-
ur kröfðust, og með því að telja fólki
trú um, að ráðherrabúseta hér á landi
sé ónýt skóbót og verri en einskisvirði,
jafnvel stórhættuleg, af því að ráðgjaf-
inn sé ekki útilokaður frá ríkisráðinu.,
Og til þess að árétta „hneykslið" bet-
ur, eru allir þingmenn kallaðir flón og
Bakkabræður, en þjóðin, sem valið
hefur þessi þingflón, hún á að vera
einstaklega vitur, og henni er hælt
mjög í því skyni, að hún kunni að
senda tóma spekinga á næsta þing til
að kollvarpa því, sem flónin hafa
gert. En skyldi því nú ekki vera svo
háttað hér sem annarsstaðar, að hver
þjóð hafi fulltrúa við sitt hæfi, hvorki
verri né betri að jafnaði, að minnsta
kosti ekki á öllu lægra stigi, en þjóð-
in sjálf er yfirleitt, svo að ef sú verður
raunin á, að allir fulltrúarnir séu flón
þá stigi þjóðin sjálf naumast í vfitið
og hafi að minnsta kosti fáum spek-
ingum á að skipa til að senda á þing.
Það er mjög hætt við því, hætt við,
að t. d. þingið 1903 verði nokkuð
þunnskipað af þeirri nauðsynlegu vöru,
spekingunum, sem allt þekkja og allt
vita út í æsar, mönnunum, sem eiga
að forða íslenzku þjóðinni frá hroða-
legum voða. Það er lakast, ef
þjóðin verður svo hláleg, að komast
að þeirri niðurstöðu, að hún geti ein-
hvern annan búhnykk betri gert, en
að ónýta gerðir þingsins næstl. sumar
og eyða mörgum árum enn í vonleys-
isbaráttu um stjórnarmál vort, en láta
atvinnumál landsins og allar verklegar
framfarir standa í stampi og sitja á
hakanum enn um nokkra áratugi. Það
getur verið, að það væri heppilegt, en
vafasamt er, hvort almenningur verð-
ur samt á þeirri skoðun, og hvort hann
hugsar ekki svipað því, sem heima-
stjórnarþingflónin(l) hugsuðu í sutnar,
að úr því að æzta stjórnin væri feng-
in inn í landið, þótt gallalaus væri
ekki, þá mundi hún draga inn í land-
ið til sín meiri og meiri yfirráð, og
þá er fram liðu stundir verða algerlega
sjalfstæð stjórn, eptir því sem vér gæt-
um frekast átt heimtingu á (landstjóra-
fyrirkomulagið), án þess rikisráðsá-
kvæðið reisti neinar skorður við því í
framtíðinni. En spekingarnir hugsa
öðruvísi, draga ályktunina alveg þver-
öfugt við þetta: að ráðherrann hér
verði heimótt ein, valdalaus og ráða-
laus, fjötraður a höndum og fótum af
danska ríkisráðinu, svo að allt valdið
úr landinu dragist undir það i sérmál-
unum, með öðrum orðum, hann verði
að eins skrípamynd af stjórnanda, er
feli loks embættisbræðrum sínum í
Danmörku að gera allt fyrir sig, hreyfi
sig annaðhvort ekki héðan eða dvelji
langvistum í Danmörku, svo að vér
höfum hans engin not. Það getum
vér kallað að mála „þann gamla" á
vegginn. En þeir sem hugsa ekki
jafn djúpt og langt sem spekingarnir, —
er hugsa auðvitað eptir öðrum reglum
en fólk flest, — hugsa blátt áfram og
eðlilega eptir réttum hugsunarreglum,
að ráðherrabúsetan verði alls ekki nein
fals-búseta eða heimóttarstjórn, heldur
öflug, áhrifamikil og framkvæmdarsöm
innlend stjórn með ábyrgð fyrir ís-
lenzlcri þjóð og íslenzku þingi, en alls
ekkert háð ríkisráði Dana í framkvæmd
sérmalanna, þótt ráðherra, búsettur
hér á landi heiti að nafninu meðlimur
þess, fyrst um sinn, meðan staða hans
og valdsvið breytist ekki i landstjóra-
horfið. En hversu langt þess verður
að bíða er auðvitað ekki unnt að segja.
Það kemur mikið undir einlægum vilja,
þreki og staðfestu þjóðarinnar á næstu
árum, eptir að hún fær þessa stjórn-
arbót, sem spekingarnir segja reyndar,
að sé margfalt verri en valtýskan —
búseta í Höfn(!!). Þeir um það. En
heimastjórnarmenn eru þar alveg á
gagnstæðri skoðun. Þeir telja alger-
lega loku skotið fyrir alla innlenda
stjórn, hverju nafni sem nefnist, jafn-
skjótt sem valtýskan væri komin á.
Þótt spekingarnir dragi dár að nafn-
inu „heimastjórn" og kalli það fals-
nafn, þá mega þeir vara sig á að gera
ofmikið að því vegna þess, að þá sverja
þeir sig nokkuð berlega í fylgi við
Hafnarstjórnina hansValtýs, þótt þeir
þykist ekki heldur fylgja henni, og
geta því átt á hættu, að verða skýrðir
Valtýs-fleygar, enda verður ekki bet-
ur séð, en að þeir eigi það nafn skil-
I ið, úr því að þeir ráðast nær eingöngu
á heimastjórnarflokkinn, en láta aðgerð-
ir þingsins 1901 og allt atferli Valtý-
inga fyr og síðar nær óátalið. Það
lítur því út fyrir, að það sé að eins
til að villa sjónir fyrir mönnum, að
þeir telja fulltrúa Valtýinga á síðasta
þingi með flónunum og Bakkabræðr-
unum, en í raun réttri eigi heimastjórn-
arflokkurinn að taka þessar sannfær-
andi(l), skynsamlegu(l) og rökstuddu(!)
nafngjafir til sín eingöngu. Valtýr er
því sjálfsagt einn meðal hinna fremstu
spekinga, er skipa eiga fulltrúasæti á
næsta þingi, og t. d. Jón Jensson r.r.
2, báðir „adjútantarnir" frá Reykja-
víkurfundinum 11. ágúst, þjóðfundin-
um nr. 2, eins og fundarboðandinn
komst að orði.
Menn verða að gera sér fullkomlega
ljóst. hver verður afleiðingin af því,
ef ónýttar verða gerðir síðasta þings
í stjórnarskrármálinu. Til þessarar ó-
nýtingar eru þrír vegir: einn sá, að
fella frumvarpið algerlega og samþykkja
ekkert í staðinn. Þá er stjórnarbótar-
málið dautt og allt stendur sem áður.
Þessi vegur mun vera næst að skapi
Valtýs-fleyganna. Annar vegurinn er
sá, að fella frumvarpið frá 1902, en
samþykkja valtýskuna frá 1901. Þessi
vegur mun vera mest að skapi Valtý-
inga. ' Eru þá líkur til, að það frum-
varp yrði samþykkt á aukaþingi 1904,
ef Valtýingar yrðu þá í meiri hluta.
Þá væri þeim skemmt. Þriðji vegur-
inn er sá, að fella ur frv. 1902 orðin
„í ríkisraðinu". en samþykkja það að
öðru leyti. Þessi vegur mundi vera
að skapi margra heimastjórnarmanna,
ef sjáanlegur væri nokkur vegur til
þess, að frv. þannig lagað fengi vil-
yrði um staðfestingu. En því fer harla
fjarri að svo sé. Þá færu fram nýjar
kosningar og aukaþing yrði haldið
1904. En hvað ætti þingið þá að
gera, gagnvart skýlausri neitun ráð-
gjafans. Annaðhvort að samþykkja
það aptur, og svo aptur á þinginu 1905
og á aukaþingi 1906, á þingi 1907,
á aukaþingi 1908 o. s. frv. o. s. frv.,
eða samþykkja þá frv. frá 1902 eða
valtýskuna. og fá það staðfest eptir
þing 1905. Allir þessir vegir eru harla
óaðgengilegir. Hið helzta sem nokk-
urt vit væri í, ef hér væri um nokk-
urn voða að tefla fyrir landsréttindi
íslands, væri samþykkt á frumvarpinu
þing eptir þing um óákveðinn tfma
þrátt fyrir stöðuga neitun stjórnarinnar
eða þá, að láta málið algerlega niður
falla, og bíða betri tíma, hversu langt
setn þeirra yrði að bíða. En hvor-
uga þá leið mun þjóðinni þykja til-
tækilegt að fara. Menn verða að hafa
það hugfast, að afleiðingin af þvf, ef
nú yrði farið að grauta í gerðum þings-
ins 1902 yrði nánast sú, að ryðja val-
týskunni braut. Þess vegna eru einn-
ig sumir Valtýingar ákaflega hlynntir
því, að nýja flokknum takist eitthvað
að sundra heimastjórnarflokknum, þótt
þeir þori ekki að láta bera mikið á
því opinberlega. Þess vegna verður
litli flokkurinn nýi sér óvitandi lfklega
ekkert annað en fleygur f höndum