Þjóðólfur - 01.05.1903, Qupperneq 3
71
Hafís á Húnafióa.
Siglingar tepptar.
Með hvalveiðabát, erkom af Vestfjörð-
iim í gær fréttist, að »Ská!holt« komst
ekki leiðar sinnar norður um land vegna
hafíss á Húnaflóa. Það lagði af stað frá
ísafirði 20. f. m., en komst þá ekki lengra
en norður undir Horn, fór þá inn á Að-
alvik og lá þar tii 22., reyndi þá aptur,
en komst þá ekki lengra en að Straurn-
nesi og sneri þar við til Isafjarðar og lá
þar enn 27. f. m. (á mánudaginn var).
Er mælt, að ekki hafi séð út fyrir ísinn
við Horn af hæstu fjöllum, ög fíóirtn að
innanverðu var að fyllast, því áð fregn
var komin um það úr Steingrímsfirði. Er
því sennilegt, að nú séu komin hafþök
fyrir Norðurlandi vestanverðu að minnsta
kosti, enda segir svo í bréfi af Skaga-
strönd 15. f. m. (hér fyr í blaðinu), að þá
þegar hafi allt verið fullt af ís úti fyrir
Skagafirði. Er þetta illur gestur oggeig-
vænlegur ofan á mikil vetrarharðindi víð-
asthvar um land, óg er Sennilegt, að'fs-
inn verði landfastur mjög lengi fram ept-
ir, og er þá ekki að því að spyrja,'hver
áhrif það hefur á vorgróða allan og vor-
hlýindi, ekki að eins á Norðurlandi, held-
ur hvarvetna á landinu.
Mislingap
hafa flutzt' með Norðmönnum ttl Ön-
undarfjarðar. Veiktusf 3 biirn á hval-
veiðastöðinni Sólbakka. Héraðslæknir
Andrés Fjeldsteð, er var staddur á ferð á
Flateyri, skpðaði þörnin og fyrirskipaði
þegar sóttkvíun á Fateyri allri, til að
hepta frekari útbreiðslu sýkinnar, og er
þvf vonandi, að takast kunni að hepta
hana. En ekki hafði sóttkvíunarfyrirskip-
unum læknis verið hlýtt sem skyldi, seg-
ir »Vestri«, og er það vítavert kæruleysi.
Mannalát. Bjarni Siggeirs-
son kaupmaður á Breiðdalsvfk, bróðir
ekkjufrú Stefaníu í Hraungerði, andaðist
á Seyðisfirði 18. marz, hálfsextugur að
aldri. Hann var kvæntur Jensínu, dóttur
séra Jóns Björnsens á Dvergasteini, og
eiga þau 2 börn á lífi uppkomin: Ólaf og
Jónínu. Bjarni heitinn var ötull maður
og bezti drengtir.
Látin er 3. f. m, að Ósi í Bolungar-vfk,
hjá tengdasyni sínum, Ólafi bóndá öíssurs-
syni, merkiskonan Sigríður Bjarna-
dóttir, ekkja Páls Halldórssonar, sem
bjó í Hnífsdal, en móðir Halldórs Páls-
sonar í Búð f Hnífsdal (drukknaði 1882)
og þeirra fleiri systkina, er öll voru hin
efnilegustu. —Sigríður heit. var komin nær
nfræðu. Var mesta tápkona og sómakona.
Prestvígsla.
Hinn 26. f. m. var cand. theol Bjarni
B. Hjaltested vígður aðstoðarprestur hjá
dómkirkjuprestinum hér séra Jóhanni Þor-
kelssyni.
Prestkosning
er um garð gengin að Tjörn á Vatns-
nesi, og var kosinn séra R. Magnús
Jónsson að Hofi á Skagaströnd með öll-
um atkvæðum þeirra, er fund sóttu.
Enskt botnvörpuskip
»Adeline« frá Hull strandaði aðfara-
nóttina 18. f. m. (sömu nóttina sem Glas-
gow brann) við Hafnarbjarg 1 Hafna-
hreppi. Skipverjum varð bjargað af öðru
botnvörpuskipi. Stranduppboðið þar syðra
haldið í dag
„Satt er bezt .
f grein með fyriráögninni: „Glasgow-brun-
inn" í 21. tölublaði ísafoldar, 25. apríl þ. á.,
fræðir ritstjórinn lesendur sína um það, að
meðal þess sem vátryggt var af því sem
fórst í brunanum, hafi verið nokkuð afefni-
við í hús, og það hafi átt embættismaður
einn hér í bænum, „er tók sig til og vá-
tryggði, er þar kviknaði eldur fyrir nokkr-
um vikum, en fyr ekki". Það virðist nú að
vera næsta þýðingarlftið í sjálfu sér, og lít-
iil fróðleikur fyrir lesendur ísafoldar að fá
vitneskju um það, hvenær þessi efniviður
MUSTAD-MBSKt MARGARlN
ER BÚIÐ TIL ÚR HINUM ALLRA BEZTU EFNUM,
OG MEÐ OPINBERU EPTIRLITI.
Mustad’s norska margaríii
hefur í sér fólgið jafnmikið næringargildi sem fínasta smjör, og getur þvt alveg
komið í stað þess.
Mustad’s norska margarin
er bezta margarín ið, sem fjytzt í verzJanir. Þessvegna
Kaupið Mustad’s norska margarín.
var vátryggður; en úr því að ritstjóranum
hefur þótt þetta atriði máli skipta, þá hefði
mátt búast við, að hann segði satt og rétt
frá því, en það er öðru nær en svo sé.
Sannleikurinn er sá, að efniviður þessi var
fluttur hingað með gufuskipinu „Morsö" í
desember í vetur, og eigandinn vátryggði
hann, þegar er hann var kominn í liús —
brunabótaskírteinið er dagsett 16. desember
1902 — en það var meira en 3 mánuðum
seinna — 25. marz 1903 — að eldur sá
kviknaði, sem ritstjóri ísafoldar vill téljá
mönnum trú um, að hafi verið tilefni til
þess, að eigandi viðarins „tók sig til" og
vátryggði.
Kunnngur.
Kjörþing
fyrir Árnessýslu verður haldið að Sel-
fossi miðvikudaginn 3. júní þ. á. og
byrjar á hádegi, Á þar fram að fara
kosning á 2 alþingismönnum fyrir
kjördæmið fyrir næstu 6 ár, samkvæmt
opnu bréfi 25. sept. f. á. og lögum
um kosningar til alþingis 14. sept.
1877.
Skrifstofu Árnessýslu, 21. apríl 1903.
Sigurður Ólafsson.
Bókbands-
verkstofa
ný verður opnuð í þessum máhuði f
Hafnarstræti.
Guðm. Gamalíelsson.
MÖBLUR vandaðri að efni
og smíði, en menn enn þá geta feng-
ið hér á landi, pantar undirritaður frá
einni af hinum beztu Möbluverksmiðj-
um í Danmörku. Komið og lítið á
teikningar og sýnishorn.
GUflM. (f AMALÍ ELSSON.
Hafnarstræti. Reykjavík.
Þar sem líkur eru til, að þessar við-
skiptabækur við „sparisjóð Húsavíkur"
hafi glatazt í eldsvoðanum á Húsavík
2.6. nóv. f. á., allar samkvæmt inn-
leggsbók A: nr. 3 bls. 5, nr. 4 bls. 7,
nr. 48 bls. 70, nr. 49 bls. 71, nr. 54
bls. 76, nr. 69 bls. 91, nr. 70 bls. 92,
nr. 92 bls. 114, nr. 107 bls. 129, nr.
112 bls. 134, nr. 118 bls. 140, nr.
120 bls 142 og nr. I24bls. 146, stefn-
ist hér með samkvæmt tilskipun 5. jan.
l874þeim,sem kynnu að hafaofantaldar
viðskiptabækur undir höndum með 6
mánaða fyrirvara til þess, að segja
til sín.
I stjórn sjóðsins
Jónas Sigurðsson, Bjarni Bjarnarson.
Uppboðsauglýsing,
Miðvikudaginn 6. tnaf næstkomandi
verður opinbert uppboð haldið á Bakka
við Bakkastíg hér í bænum og þar
selt timburbrak úr skipinu „Randers"
o. fl.
Uppboðið byrjar kl. 11 árdegis og
verða söluskilmalar birtir á uppboðs-
staðnum á undan uppboðinu.
Bæjarfógetinn í Reykjavík
29. apríl 1903.
Halldór Danielsson.
RIBS
35 aura stk., selur
Einar Helgason.
af góðu íslenzku
SM J ÖRl
fæst í verzlun
BJÖRNS ÞÓRÐARSONAR.
fást yönduð 0g ódýr hjá
Jónatan Þorsteinssyni.
31 Laugaveg 31.
Skiptafur.dur
í þrotabúi Helga kaupmanns Helga-
sonar verður haldinn á bæjarþingstof-
•unni laugardaginn 9. maí næstkom-
andi á hád., til að gera ráðstafanir um
fasteignir búsins og skip.
Bæjarfógetinn í Reykjavík,
30. apríl 1903.
Halldór Daníelsson.
Gólf- Bor3-
Vaxdúkur ♦■♦
nýkominn í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Samfagnaðarkort
Veggmyndir.
Þeir, sem útsölu hafa á samfagnað-
arkortum og veggmyndum, þurfa eigi
hér eptir að panta frá útlöndum, held-
ur að eins snúa sér til undirritaðs, sem
selur það með innkaupsverði, sam-
kvæmt umboði.
Guðm. Gamalíelsson.
Hafnarstræti. Reykjavík.
f á s t , í
verzlu n
Sturiu Jónssonar.
Aptur eru komnar nýjar birgðir
af hinu alkunna
Mustad’s norska margaríni
til Guðm Olsen
URTAPOTTAR
nýkomnir í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Fyrri hluta desembr.mán. f. á. rak
á Merkurfjöru f Vestur-Eyjatjallahreppi
járndufl, toppmyndað í annan endann,
3 áln. á lengd og 2 áln. að þvermáli,
með járnkeðju nál. 10 faðma á lengd.
Hér með er skórað á eiganda vog-
reks þessa, að segja til sín innan árs
og dags frá síðustu birtingu vogreks
þessa, sanna fyrir amtinu heimildir sín-
ar til þess og taka við andvirði þess
að frádregnum kostnaði og bjarglaun-
um.
Skrifstofu Suður- og Vesturamtanna.
Reykjavík 17. apríl 1903.
J. Havsteen.
-----K A U P I Ð----
NORSKA MARGARÍNIÐ
frá hinni nafnkunnu MUSTADS-verk-
smiðju. Það fæst í tveim tegundum hjá
Jóni Þórðarsyni.
R ♦♦♦♦♦♦♦♦
ammalistar
mjög ódýrir
fást í verzlun
Sturlu Jónssonar.
VAÐSEKKl R
♦♦♦♦♦♦♦
OG
Handtöskur
♦ ♦♦♦♦♦♦♦
nýkomnar í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Kjörþing
verður haldið í Goodtemplarahúsinu í
Hafnarfirði laugardaginn þ. 6. júní
næstkomandi kl. 12 á hádegi, til þess
að kjósa tvo alþingismenn fyrir
Gullbringu- og Kjósarsýslu til næstu
6 ára.
Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu
15. apríl 1903.
Páll Einarsson,
Eg undirritaður hef síðastliðin 2 ár
þjáðst af mjög mikilli taugaveikl-
u n, og þótt eg hafi leitað ýmsra lækna,
hef eg ekki getað fengið heilsubót.
Síðastliðinn vetur fór eg því að neyta
Kí na-1 ífs-el ixírs frá hr. Walde-
mar Petersen í Frederikshöfn, og
er það sönn ánægja fyrir mig að votta,
að eg eptir brúkun þessa ágæta bitt-
ers, finn á mér mikinn bata, og von-
ast eptir að verða albata með stöð-
ugri notkun Kína-lífs-elixírsins.
Feðgum (Staðarholti) 25. apríl 1902.
Magnús Jónsson.
KLNA-LIFS-ELIXÍRINN fæsthjá flestum
kaupmönnum á Islandi, án nokkurrar toll-
hækkunar, svo að verðið er öldungis sama
sem fyr, 1 kr. 50 a. flaskan.
Til þess að vera vissir um, að fá hinn
ekta Klna-llfs-elixír, eru kaupendur beðnir
v.p.
að líta vel eptirþví, að p : standi á flösk-
unum 1 grænu lakki, og eins eptir hinu skrá-
setta vörumerki áflöskumiðanum: Kínverji
með glas í hendi, og firmanafnið Walde-
mar Petersen.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsaon, cand. theol.
Prentsmiðja Þjóðólfs.