Þjóðólfur - 26.06.1903, Blaðsíða 3
103
þjóðernistilfinninguna". Á þessum aðal-
grundvelli eru fyrirlestrarnir byggðir. Eins
og höf. kemst sjálfurað orði, leggur hann
minni áherzlu á, að skýra frá viðburðun-
um sjálfum, en frá orsökum þeirra og af-
leiðingum.-------Það eru aðalstraumarnir
í sögu landsins, örlagaþráðurinn í lífi þjóð-
arinnar, sem einkenndur er og rakinn í
þessum fyrirlestrum og höf. tekst víða mjög
vel upp. Hann hefur ljósa og glögga sjón
bæði á sögu landsins í heild sinni, og
hinum einstöku stefnum, er einkenna sér-
stök tímabil í henni og skipta henni í
einskonar þætti. Honum tekst víðast hvar
vel, að halda þræðinum óslitnum og tengja
saman orsök og afleiðing viðburðanna á
hinum ýmsu tímabilum. Að vísu geta orð-
ið skiptar skoðanir um einstök atriði, eða
hvort niðurstaða sú, er höf. kemst að, sé
alstaðar sögulega hárrétt, en svo verður
jafnan um alla söguritun, er dregur álykt-
anir af viðburðunum og byggð er meira
á hugleiðingum og skýringum höf. sjálfs
(subjektiv), en á þurri frásögn um gang
viðburðanna sjálfra (objektiv). Það liggur
1 hlutarins eðli, aðfyrirlestrar þessirheyra
til hinni „subjektivu" söguritunaraðferð, en
þar er hættan jafnan meiri, að skakkar á-
lyktanir séu dregnar af viðburðunum, og
er það ekki nema á hinna beztu sagnarit-
ara færi, að fara þar ekki oflangt eða of-
skammt. Yér Islendingar eigum mjög fátt
af slíkum ritgerðum úr sögu vorri, og því
virðingarverðara er þetta stutta og kjarn-
orða yfirlit Jóns sagnfræðings um aðal-
drættina 1 sögu þjóðar vorrar frá byrjnn.
Mun margur hafa bæði skemmtun og gagn
af því, að kynna sér bók þessa, og verða
fróðari í sögu þjóðar sinnar eptir en áður.
Má því búast við, að hún seljistvel. Mun
það flestra manna mál, að höf. hafi með
bók þessari sýnt þá hæfileika, sem flesta
íslenzka sagnaritara hefur allmjög skort, og
að árangurinn af styrkveitingu þingsins til
hans hafi orðið hinn bezti.
Ávarp,
Hreppstjóri Guðm. Þorvarðarson
í Sandvík!
Þegar það fór að kvisast á kjörfundinum
að Selfossi, þann 3. þ. m., að ekkert þing-
mannsefnanna hefði náð helmingi greiddra
atkvæða, nema Hannes ritstj. Þorsteinsson,
en að ritstjóra séra Ólaf Ólafsson mundi
að eins vanta 1—2 atkvæði, riðuð þér í
snatri ofan í Flóa til þess að sækja atkv.
handa hönum. Þegar þér svo komuð apt-
ur, fullum 2 tímum eptir að lokið var at-
kvæðagreiðslu, og rákuð á undan yður
gamlan bónda, sem þér höfðuð auðvitað
kennt fræðin á leiðinni, kallaði eg til yð-
ar og spurði yður, hvort þér hefðuð verið
að sækja þetta atkvæði, sem séra Ólaf
vantaði. Þér svöruðuð með mesta þjósti,
að mér kæmi það ekkert við.
Eg held þetta sé dálítill misskilningur,
herra hreppstjóri! Víð mætum ekki sem
hreppstjóri og læknir á kjörfundi, heldur
sem kjósendur, og höfum þar báðir jafn-
an rétt.
Gerið svo vel, að líta í kosningalögin.
Þau segja skýrt, að þegar að eins einn
af fleiri frambjóðendum nær fullum helm-
ingi greiddra atkvæða, þá skuli kosið apt-
ur um hina. En þar stendur ekki orð um,
að einhver dugnaðarvargur skuli þá ríða
á stað til þess að smala mönnum í þeim
tilgangi, að kjósa einn ákveðinn fram-
bjóðanda, sem vantar eitt eða fá atkvæði.
Eg áleit þá og álít enn, að þér hafið ólög-
lega raskað úrslitum kosninganna, og þótt-
ist og þykist hafa fullan rétt til þess að
mótmæla slíku háttemi.
Og hverju hafið þér svo áorkað?
Að líkindum svipt kjördæmið öðrum
þingmanninum á næsta þingi, og aflað
gömlum, heiðvirðum bónda athlægis og
lítilsvirðingar. Eg öfunda yður ekki af
árangrinum.
Eyrarbakka 19. júní 1903.
Asgeir Blöndal.
Hroðalegr morð og stjórn-
arbylting í Serblu.
Sú fregn hefur borizt frá útlöndum, að
aðfaranóttina 11. þ. m.hafi uppreisnarmenn
í Belgrad, höfuðstað Serbíu, ráðizt á kon-
ungshöllina og drepið þar Alexander kon-
ung, drottningu hans Draga og marga af
hirðmönnum, ennfremur tvo bræður drottn-
ingarinnar og-2—3 ráðherra konungsins.
Orsök þessa hryðjuverks, er herliðið beitt-
ist fyrir, er aðallega talin óánægja lands-
manna með konung og gerræði stjómar
hans, óvild gegn Draga drottningu, ervar
af lágum stigum og hafði miðlungi gott
orð á sér fyrir siðferði, þótti hún hafa vél-
að konung til giptamála, og reri síðan að
því öllum árum, að fá bróður sinn sam-
þykktan sem ríkiserfingja, þá er útséðvar
um, að hún ætti afkvæmi með konungi.
Til að koma í veg fyrir þetta ráðabrugg,
ætla menn, að stjórnarbylting þessi hafi
gerð verið, líklega meðfram sakir undir-
róðurs frá Pétri Karageorgevitsj fursta (f.
1844), er menn segja nú til konungs tek-
inn í Serbíu, en hann hefur jafnan gert
tilkall til ríkis þar, síðan faðir hans Alex-
ander Karageorgevitsj (f 1885), veltist þar
úr völdum, en hann var stjórnandi lands-
ins 1842—1858. — Alexander konungur,
sem nú var veginn, var sonur Mílans kon-
ungs 1. af Obrenovitsjættinni, er síðan
1816 hefur lengstum setið að völdum í
Serbíu.
Hin nánari atvik að þessum hroðalegu
vfgum verða frekar greind í næsta blaði,
þá er áreiðanlegar fregnir eru um þau
komin, því að í fyrstu hraðfréttum er opt
hætt við allmiklum rangfærslum á einstök-
um atvikum.
Málarallst í Danmörku (Dan-
marks Malerkunst) nefnist bók ein all-
merk, er „Det nordiske Forlag" hefur ný-
lega sent út nýtt boðsbréf að. í bók þess-
ari, er safnvörður Chr. Been telst útgef-
andi að, eru fallegar eptirmyndir af helztu
og merkilegustu málverkum Dana, og fylg-
ir þeim sögulegt yfirlit eptir listasögufræð-
inginn Emil Hannover. Nýir áskrifendur
að bókinni fá fyrst annað bindi hennar,
svo að þeirkynnast strax hinum alþekktu
listamönnum, er uppi voru um miðbik
aldarinnar, sem leið, t. d. Dalsgaard,
Sonne, Exner, Lundby, Skovgaard, Kyhn
o. s. frv. Bókin kemur nú að nýju út 1
20 stórum heptum, og kostar hvert 1 kr.
Læknapróf.
í fyrra dag (24. þ. m.) luku þeir Matt-
hías Einarson og Jón Rósenkrans við
fyrri hluta lceknaprófs á læknaskólanum.
Matthias fékk 66 stig og Jón SJ1!* stig.
Embœttisprófl
við prestaskólann luku 19. þ. m. þeir:
Ásgeir Ásgeirsson Eink. Stig.
með I 85
Lárus S. Halldórsson — I 81
Stefán Björnsson — II 76
Jón N. Jóhannesen — II 75
Verkefni í skriflega prófinu:
Skýring Nýjatestamentisins:
Jóh. 3, 8-
Trúfrœiti: Að gera grein fyrir hinni
svonefndu apokatastasis kenningu, og hrekja
mótbárur hennar gegn hinum kirkjulega
útskúfunarlærdómi.
Sidfræði: Hver er nytsemi og tilgangur
Iögmálsins?
Kirkjusaga: Grísku kirkjufeðurnir á
blómaöld guðfræðinnar.
Ræðutextar: Matt. 13, 31—33; Mark.
12, 41—44; Lúk. 10, 38—42; Jóh. 10, 22
—3o- ___________
Eldgosið.
Það er nú talið áreiðanlegt, að stöðvar
eldgossins eystra séu í Skaptáijökli milli
Grænafjalls ög Hágangna, en ekki í Skeið-
arárjökli, eins og fyrst var ætlað. Hefur
Guðlaugur sýslumaður Guðmundsson, sem
nú er nýkominn að austan skýrt svo frá,
að gosunum haldi áfram annan og þriðja
hvern dag, og að öskufall nokkurt hafi
orðið 1 Öræfum, en lítt eða ekki á Síð-
unni. Úr Árnessýslu víða hafa menn séð
reykjarmökkinn af gosinu og jafnvel eld-
neistaflugið. Landskjálfta hafa menn enn
ekki orðið varir við í sambandi við gos
þetta.
Þilskipin héðan úr bænum hafa flest
fengið meðalafla frá lokum, um 1000 á
hvern háseta undir færi, sem er réttasti
mælikvarði til að miða við, því að hlutar-
hæðin alls á hvert skip sýnir ekki hið
rétta hlutfall, af því að hásetatalan á skip-
unum er svo mismunandi. Sum þilskipin
hafa 1 þetta sinn aflað með minnsta móti,
en fá eða engin afbragðsvel.
Mannalát. Hinn 29. apríl sfðastl.
dó á Nýjabæ á Eyrarbakka J ó n M a g n -
ússon sonur merkishjónanna þar Magn-
úsar Magnússonar og íngigerðar Jónsdótt-
ur. Hann var fæddur 12. marz 1875, °o
lá hann veikur 3 síðustu ár æfi sinnar.
Hann var bindindisfrömuður hinn mesti
og hvers manns hugljúfi. S.
Soramark
ísafoldarritstjórans er auðþekkt á grein
með yfirskript „Oflangt farið" í valtýska
málgagninu 20. þ. m. Ritstj. kallar sig
,,Stjórnarbótarvin‘‘(l), en atferli hans á síðustu
tímum sýnir Ijósast, hvort hann á það nafn
með réttu. Vonzkan í manninum snýst ein-
göngu að Þjóðólfi, af því að hann ljóstraði upp
„forsendingu" Jóns Jenssonar. En það ger-
ir ekki mikið til, þótt maðurinn ausi mold
yfir höfuð sér, því að hann moldar ekki
Þjóðólf með því sparki, þótt hann langi til,
heldur sjálfan sig og álit blaðs síns, sem
aldrei hefur burðugt verið, en þó stórhrakað
á síðustu árum, svo að menn eru alveg
steinhættir að taka nokkurt mark á ummæl-
um þess í pólitík, og tillögur þess því einskis
virtar,endaviðurkenna flokksmenn mannsins
sjálfir, að hann og hans blað hafi með rithætti
sínum og fávfslegri framkomu unnið flokkn-
um mikið ógagn og stuðlað að því, aðjarð-
syngja valtýskuna þeirra og sundra liðinu.
Það skiptir því ekki miklu, hvoru meginn
hryggjar náungi þessi liggur. Að minnsta
kosti er honum ofraun að geta unnið Þjóð-
ólfi nokkurn geig með fúlyrðum sínum. Hann
hefur spreytt stg á því til hlítar, karltetrið.
Bæiarskrá Reykiavíkur 1903
er nýkomin út. Fyrst er þar heimilaskrá,
er hún að mestu rétt. Kalkofnsvegur sést
þar hvergi, en Höfn og Sölfhóll, er verða
að teljast við þá götu, eru talin við Hafn-
arstræti. Iðnó er talin í Pósthússtræti en
er í Vonarstræti. Barnaskólann finnst mér
réttast að telja f Lækjargötu, en ekki við
Laufásveg eins og gert er. Fleira er þar
af slfku.
Þá er nafnaskrá. Hún er öll meira og
minna röng og ósamkvæm. Waage Hall-
dóra er talin hér í bæ, en hefur ekki verið
hér í meira en ár, og svo er um fleiri, en
aptur vanta þar ýmsa bæjarbúa. Auk þess
er mjög mikil ósamkvæmni í henni. Susie
Briem er t. d. talin með Briem, en Eiríkur
Briem með Eiríkum og svo er á ótal stöð-
um. Er það slæmt, því fyrir það er mikið
verra að nota bókina. Þorvaldur er talinn
á undan Þórði, þvert á móti því, sem er
gert yfirhöfuð f íslenzkum nafnaskrám, og
það með engum rétti. Ef bæjarskráin á að
eiga framtíð fyrir höndum, verða útgefendur
hennar að vanda meir nafnaskrána en hér
hefur verið gert. Þá tekur við félagaskrá og
stofnana. Þar eru líka talsverðar villur, og
sérstaklega óftrilnægjandi upplýsingar. Við
dómkirkjuna er sleppt bæði umsjónarmanni,
gjaldkera og aukapresti, og þurfa þó víst
fleiri að vita, hver og hvar gjaldkerinn er,
heldur en t. d. hringjarinn eða organleikar-
inn, sem báðir eru taldir.
Good-templarreglan er talin frá i. febr.
og svo er um meðlimafjölda, en formenn
sumra stúknanna eru teknir frá i. maf, sem
er gersamlega rangt, þegar miðað er við i.
febr. Umdæmisstúkan er sögð að hafa 30
meðlimi, en hefur víst yfir 300 meðlimi, og
fulltrúar eru um 40, en ekki 30. Við holds-
veikraspítalann eru allir starfsmenn taldir,
nema gjaldkéri, er á að telja þar.
Vonandi, að næsta bæjarskrá verði gerð
betur úr garði. Æ
Svar til Sigurb], Guðleifssonar.
í 27. tölublaði ísafoldar 16. þ. m., hefur
Sigurbjörn Guðleifsson í Ólafsvfk ritað all-
langa ósanninda- og óhróðursgrein um mig,
sem ekki má vera ómótmælt, og skal eg
því leyfa mér að biðja yður, herra ritstjóri,
að leyfa eptirfylgjandi línUm rúm í.yðar
heiðraða blaði. Það, sem Sigurbjörn Guð-
leifsson segir um mig í grein þessari, lýsi eg
hér með helber ósannindi. Fyrst og fnemst
það, að eg hafi sagt frá réttarhaldi því, er
Sigurbjörn ritaði um í ísafold 24. jan. þ. á.,
og sem hafi verið, að séra Helga Ámasyni
í Ólafsvík viðstöddum, því að þar snýr Sig-
urbjörn hinu rétta í ósannindi, og er sann-
leikurinn sá, að það var séra Helgi Árna-
son, sem sagði frá réttarhaldinu, en eg var
viðstaddur. Sömuleiðis eru það ósannindi,
að eg hafi „auðkennt" Sigurbjörn Guðleifs-
son á nokkurn hátt, og heldur ekki sagt
eitt orð um það, að hjá honum „hafi brunn-
ið f Lækjarbotnum". En eg vonast til á
sínum tíma, að fá tækifæri til að hrinda af
mér því, sem Sigurbjörn Guðleifsson í Ólafs-
vfk hefur skrifað ósatt um mig. Og í fullu
trausti um það, legg eg niður pennann að
þessu sinni.
Ólafsvík 30. maí 1903.
Jón Jónsson.
(hreppstj.)
Veðurótta hefur verið mjög vætusöm
að undanförnu, optast stórrigning á hverjum
degi og kalsi allmikill í veðrinu, en nú far-
ið heldur að hlýna. Gróðri hefur farið all-
mjög fram þessa dagaua, en er þó enn í
minnsta lagi um þetta leyti árs.— Hafíshroði
allmikill er sagður á Húnaflóa, en líklega
hindrar hann ekki skipaferðir.
■HtiiiataiiiaraiiiiiaiiifiaiwaiiiaiaiiiiiaiiiiiiiaiaiaiiiaiiiimiiiftviiiititiiiiiiiiiMtflraiBi
ifliainiiiiiiiiiiiiaiflifliflMiiiiiiiiiflifliaifliaiaiaiaiflifliaiaiaia
ÓYENJULEG K03TAB0Ð
Þeir, sem gerast kaupendur a9
55. árg. ÞJÓÐÓLFS frá 1. ]úlí
næstkomandi, geta fengið síðari
hluta þess árgangs til ársloka
fyrir aðeins 2 krónur
og auk þess f kaupbæti;
tvö sögusöfn blaðsins sérprentuð
(11. og 12. hepti) með ágætum
skemmtisögum. En borgun (2 kr.)
"mrnmmmmm^^^mmmmmmmmmmmm^
verður að fylgja pöntuninni frá mönn-
um, sem ritstjðra blaðsins eru ekki
áður kunnir; áskriptin er jafnframt
bindandi allt næsta ár (1904).
OC Nýir kaupondur gefl sig
fram sem fyrst.