Þjóðólfur


Þjóðólfur - 16.10.1903, Qupperneq 3

Þjóðólfur - 16.10.1903, Qupperneq 3
167 einna mest að jarðabótum 1 Árness- og Borgarfjarðarsýslu, enda hafa bsendur í þessum sýslum borið úr býtum drjúgastan skerf af Ræktunarsjóðsverðlaununum. Væri mjög fróðlegt, að birtar væru í blöðunum skýrslur um dagsverkatölu þeirra bænda í hverri sýslu, er mest hefðu unnið að jarðabótum, t. d. á síðustu 5 árum, því að margs er getið opinberlega, sem ómerk- ara er. Þeir sem ganga á undan öðrum í ræktun landsins eiga skilið, að nöfnum þeirra sé haldið á lopti. Til þess að skýrslur þessar yrðu sem áreiðanlegastar, þyrfti jafnframt að tilgreina tölu verkfærra heimilismanna bóndans, því að miklu skiptir, hve mikinn vinnukrapt hver ein- stakur bóndi hefur, og hvernig efnahags- ástæður hans að öðru leyti eru, en auð- vitað verður slíkt aldrei séð til fulls af skýrslum einum. Samhliða dagsverkatöl- unni verður að taka tillit til efnahags mannsins, þá er uin verðlaun er að ræða. Vér höfum í höndum skýrslu úr Árnes- sýslu yfir jarðabóta-dagsverkatölu þeirra bænda þar, er nú fengu verðlaun úr Rækt- unarsjóðnum og nokkurra fleiri, er næst stóðu í þetta sinn, og sótt höfðu einnig um þau. Talan milli sviga er dagsverka- talan samanlögð á síðastliðnum 5 árum: Ágúst Heigason, Birtingaholti (588), Jóhannes Einarsson, Ormsstöðum (515), Jón Sigurðsson, Syðri-Gróf (425), Hannes Magnússon, Stóru-Sandvik (405), Símon Jónsson, Selfossi (393), Jón Sveinbjarnar- son, Bíldsfelli (388), Steinþór Eiríksson, Arnarhóli (380), Eggert Einarsson, Vað- nesi (371), Magnús Magnússon, Laugar- vatni (358), Sigmundur Jónsson, Vatns- enda (334), Magnús Guðmundsson, Haga {296), Guðmundur Guðmundsson, Hróars- holti (295), Þorvarður Jónsson, Meðalholt- um (293), Gísli Einarsson, Ásum (261), Gunnl. Þorsteinsson, Kiðjabergi (253). Þessir allir fengu nú verðlaun. En næstir þessum að dagsverkatölu voru: Guðrún á Hrauni (227), Ingvi Þor- steinsson, Snæfoksstöðum (210), Jón í Sandlækjarkoti (205), Jón Guðmundsson, Skeggjastöðum (171), Eiríkur á Kirkjuferju (160), Magnús í Arabæ (159), Gamalíel í Gróf (144). Þá er litið er á verðlaunaupphæðina, er hver verðlaunaþegi hefur fengið, sem skýrt er frá í síðasta blaði, þá er sum- staðar allmikil ósamkvæmni milli hennar og dagsverkatölunnar, er hlýtur að stafa af því, að búnaðarfélagið hafi haft annan mælikvarða en dagsverkin, t. d. efnahag marina, eins og rétt er, en sumstaðar verð- ur samt ekki séð, hvað fyrir félaginu hef- ur vakað, þá er t. d. menn likt efnum búnir, fá jafnmikla upphæð, enda þótt annar hafi unnið helmingi færri dagsverk en hinn, eða þá er einn bóndi (í Árnes- sýslu) fær 50 kr. verðlaun fyrir 425 dags- verk, en annar 75 kr. fyrir 261 dagsverk, og mun þó hinn síðartaldi vera fullt eins vel efnum búinn og hinn, eða öllu betur, eptir því sem oss er kunnugt um. Hér hljóta því að vera teknar til greina ein- hverjar aðrar framkvæmdir en jarðabætur við svona lagaða úthlutun. Er þessa hér getið til þess, að búnaðarfélag landsins gæti þess sem bezt, að beita hinni mestu vandvirkni og samvizkusemi við þessar verðlaunaúthlutanir eptirleiðis. Þar á og má ekki komast að nokkur ójöfnuður eða hlutdrægni. Krá útlöndum eru engin markverð tíðindi, að þvf er séð verður af nýjustu ensk- um blöðum. Þeim verður tíðræddast um ráðaneytisskiptin þar. Hertoginn af Devon- shire hefitr nú einnig fengið lausn úr stjórn- inni, svo að nú eru allir mótstöðumenn Cham- berlains burtu úr ráðaneytinu. Balfour vildi fá Milner landstjóra í Suður-Afríku í sæti Chamberlains, en Milner neitaði. Sá heitir Alfred Lyttelton lávarður (f. 1857). sem orð- inn er nýlendumálaráðherra í stað Chamber- lains. Hann er systursonur konu gamla Glad- stones. Hermálaráðherra er Arnold Forster (f. 1855, áðuríráðaneyti Salisbury’s), en Brod- rick hefur þokað úr því sæti og er orðinn Indlandsráðherra í stað Hamiltons, er frá fór. Austen Chamberlain, er var póstmálaráð- lierra, hefur sleppt þvf embætti og tekið em- bætti Ritchie’s í ráðaneytinu. Sá heitir Stan- ley, sem orðinn er póstmálaráðherra (f. 1865). Sæti hertogans af Devonshire var óskipað er síðast fréttist. — Japanár hafa stöðugt herbúnað mikinn og haldið, að þeir muni þá og þegar leggja í Rússann á Kóreu. Komin frétt um, að ófriður sé hafinn, en bor- in aptur til baka. Á Balkanskaga allt við sama. — Nýtt ráðaneyti myndað í Serbfu. Gruitch hershöfðingi er ráðaneytisforseti og bera menn mikið traust til hans. — Ríkis- þingíð danska sett 5. þ. m. Forsetar og varaforsetar-í landsþinginu og fólksþinginu endurkosnir. Með helztu laganýmælum tal- ið frv. til laga um endurreisn Kristjánsborg- arhallar. „Ceres“ fór héðan vestur og norður um land áleiðis til Hafnar 10. þ. m. Með henni fór Þórður læknir Pálsson til héraðs síns í Axarfirði og kona hans Guðrún Björns- dóttir (ritstj.). Til Akureyrar fór frk. Ing- veldur Matthíasdóttir (skálds). Eptirmæli. Hinn 4. júní s'íðastl. andaðist að Frosta- stöðum í Blönduhlíð merkisbóndinn G í s 1 i hreppstj. Þorláksson 59 áragamall. Hann var fæddut á Yztugrund í sömu sveit, og ólst þar upp hjáforeldrum sínum, Þorláki bónda Jónssyni frá Hóli í Tungusveit og Sigríði Hannesdóttur prests að Rfp. Vorið 1865 byrjaði hann búskap á Yztugrund, og gipt- ist á því ári Sigríði Magnúsdóttur bónda frá Stóru-Seilu, Magnússonar prests að Glaumbæ; móðir hennar er María Hannes- dóttir prests að Ríp, og voru þau hjón því systrabörn. — Vorið 1872 fluttust þau hjón að Hjaltastöðum, og bjuggu þar þangað til vorið 1888, að þau fluttu að Frostastöðum og keyptu jörðina. Þau áttu einn son barna, Magnús að nafni, sem síðari árin hefur að nokkru leyti haft félagsbú með föður sínum, líkur honum að mörgu og bóndaefni mikið. Gfsli sál. naut eigi menntunar á æskuár- um, en hann var vel gáfaður, og aflaði sér því sjálfur allmikillar menntunar eptir að hann óx upp, og varð vel að sér í þeim greinum, sem bændum eru nauðsynlegastar. Hann var hreppstjóri f Akrahrepp 22 ár, mörg ár í hreppsnefnd og nokkur ár odd- viti, sáttamaður var hann öll sfn búskapar- ár. Öll þessi störf leysti hann vel og sam- vizkusamlega af hendi, og undu menn vel stjórn hans. Heimilisfaðir var hann ágætur, stjórnsamur mjög og ástsæll af hjúum sínum; sambúð þeirra hjóna var ætíð hin innileg- asta; hann var gestrisinn jafnt við alla, hvort sem þeir áttu að sér mikið eða lítið; frið- semi hans í allri stjórn, bæði á heimili og sveitarstjórn var viðbrugðið, og þó var hann skapmaður að náttúrufari, en hann sá fljótt, að hægra var að koma sínu fram með lip- urð og stillingu, enda heppnaðist honum það optast mjög vel. Hann var áhugamik- ill og bóndi með lífi og sál, og lét sér ekki nægja einungis að tala um framfarir, en framkvæmdi því meira, og munu Frostastað- ir lengi bera menjar áhuga hans og atorku. Jörðin var öll í kalda koli, þegar hann flutti þangað, en nú skarar hún fram úr öðrum bændabýlum hér í sveit, bæði hvað bygg- ingu og jarðabætur snertir. Þrátt fyrir mik- inn tilkostnað, græddi hann allmikið á bú- skap sínum, og bar mörg síðari árin liæst sveitargjald allra bænda f hreppnum, og mátti teljast ríkur maður eptir því sem hér gerist. Mörg sfðari ár æfinnar leið hann af brjóstveiki, og var opt mjög lasinn, en hann bar veiki sína sem hetja, og hélt gleði sinni og jafnaðargeði til hins síðasta, því skoðun hans á Iífinu var heilbrigð. — Gfsli sál. var mörg ár sannlcallaður höfðingi þessarar sveitar, og munu Akrahreppsmenn lengi minnast hans með virðingu og þakklæti, fyr- ir hið mikla dagsverk í þarfir félagsins. R. B. Auka- fundur í þilskipaábyrgð- arfélaginu við Faxaflóa verður haldinn laugar- daginn hinn 31. okt, þ. á. kl. 5 e. m. á Hotel Island. Umræðuefni*. skaðabæt- ur fyrir „Winifred“ sem sökk á Vestfjörðum í sumar. Áríðandi að allir mæti. Reykjavík G/io—'03. Stjórnin. Alþýðufyrirlestur. Laugard. 17. þ. m. heldur Jón Þorláksson cand. polyt. alþýðufyrirlestur í Iðnaðar- mannahúsinu kl. 8 e. h. um Rakann og kuldann. Nýkomnar margar tegundir af NÆRFATNAÐI úr skozkri alull; mjög hlýr og góður fyrir gigtveika. SKINNHA NZKA R fyrir kvenn- fólk og karla úr völdum skinntegund- um, sem ekki springa. MILLUMSKYRTUR hvítar og mislit- ar með gæða-verði. FLIBBAR og BRJÓST, allar stærðir. Mikið af fínum, Ijósum SLAUFUM og HUMBUGUM. Bindingsslipsi að eins 0,50 stk. Vetrarhúfup, ekta skinn með silkifóðri. HATTAR og HÚFUR o. m. fl. Mikið af fínum Yetrarfrakkaefnum — Alfataefnum — Buxnaefnum o. fl. Guðm. Sigurðsson. klæðskeri. TIL NEYTENDA HINS EKTA KtNA-LÍFS-ELIXtRS. Með því að eg hef komizt að raun um, að margir efast um, að Kína-lífs- elixírinn sé eins góður og áður, skal hér með leitt athygli að því, að elix- írinn er algerlega eins og hann hefur verið, og selst sama verði og fyr, sem sé 1 kr. 50 aur. hver flaska, og fæst hjá kaupmönnum alstaðar á íslandi. Ástæðan til þess, að bægt er að selja hann svona ódýrt, er sú, að allmiklar birgðir voru fluttar af honum til ís- lands, áður en tollurinn var lögtekinn. Neytendurnir áminnast rækilega um, að gefa því gætur sjálfs síns vegna, að þeir fái hinn ekta Kína-lífs-Elixír með merkjunum á miðanum : Kínverja með glas í hendi og firmanafninu Valde- mar Petersen, Friderikshavn, og YúL F. í grænu lakki ofan á stútnum. Fáist elixírinn ekki hjá þeim kaupmanni, sem þér verzlið við, eða verði krafizt hærra verðs fyrir hann en 1 króna 50 aurar, eruð þér beðnir að skrifa mér um það á skrifstofu mína á Nyvej 16 Köbenhavn. Yaldemar Petersen. Frederlkshayn. riÉR með er skorað á alla þá, sem enn þá skulda við fyrv. verzlunina »Edinborg« á Stokkseyri, að borga skuldir sínar, eða semja við mig um borgunina hið allra fy rs t a . Reykjavík, Grettisgötu 10 15. okt. 1903. Helgi Jóns son, (frá Stokkseyri). Á síðastliðnu vori hefur rekið á fjöru Staðarstaðar í Staðarsveit innan Snæ- fellsness- og Hnappadalssýslu stóra tunnu með rauðavíni. Hún er úr eik með 6 járnböndum og 2 svigagjörð- um, en ómerkt. Hér með er skorað á eigendur vog- reks þessa, að segja til sín innan árs og dags frá síðustu birtingu þessarar auglýsingar, og sanna fyrir undirskrif- uðum amtmanni heimildir sínar til þess, og taka við því eða andvirði þess, að frádregnum kostnaði og bjarglaunum. Skrifstofu Suður- og Vesturamtanna. Reykjavík 1. október 1903. J. Havsteen. Á síðastliðnum vetri hefur rekið á Hólkotstjöru í Staðarsveit innan Snæ- fellsness- og Hnappadalssýslu bugspjót (klífurbóma) úr furu, 19 álnir á lengd, 4. áln. af lengd þess er tréð ferstrent, en hitt sívalt; í mjórri endann er högg- ið gat, á lengd xji alin. Að öðru leyti er tré þetta ómerkt. Hér með er skorað á eigendur vog- reks þessa, að segja til sín innan árs °g dags frá síðustu birtingu þessarar auglýsingar, og sanna fyrir undirskrif- uðum amtmanni heimildir sínar til þess, og taka við því eða andvirði þess, að frádregnum kostnaði og bjarglaunum. Skrifstofu Suður- og Vesturamtanna. Reykjavík 1. október 1903. J. Havsteen. Prociama. Með því að J. P. Bjarnasen kaup- maður hér í bænum hefur framselt bú sitt til opinberrar skiptameðferðar sem þrotabú, er hér með samkvæmt skipta- lögunum 12. apríl 1878 og opnu bréfi 4. jan. 1861, skorað á alla þá, sem telja til skuldar hjá nefndum kaup- manni, að lýsa kröfum sínum og sanna þær fyrir skiptaráðandanum í Reykja- vík innan 12 mánaða frá síðustu birt- ingu þessarar innköllunar. Skiptafund- ur verður haldinn í búinu mánudaginn 26. þ. m. kl. 12 á hád. á bæjarþing- stofunni, til ályktunar um ráðstöfun á eigum búsins, skipun ráðsmanns o. fl. Bæjarfógetinn í Reykjavík 7. október 1903. Halldór Danielsson. Proclama. Hér með er samkvæmt lögum 12. apríl 187$, og opnu bréfi 4. jan. 1861 skorað á alla, er telja til skulda í dán- arbúi Þorsteins sál. Ólafssonar frá Búð- arhólshjáleigu, er drukknaði í Vest- manneyjum 22. júní þ. á., að lýsa kröfum sínum og sanna þær fyrir undir- rituðum skiptaráðendum, áður en liðnir eru 6 mánuðir frá síðustu birtingu aug- lýsingar þessarar. Einnig aðvarast allir þeir, er skulda téðu dánarbúi, að gefa sig fram innan sama tíma. Hlíðarendakoti í Fljótshlíð 1. okt. 1903. Fyrir hönd myndugra erfingja Sigurþór Ólafsson, Ólafur Ólafsson. Vel skotna fálka kaupir Júlíus J'órgense n Hotel ísland.

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.