Þjóðólfur - 27.11.1903, Qupperneq 3
studda með sönnum dæmum og æfisögu-
brotum ágætismanna, láta ekkert tæki-
færi ónotað til að leiða börnunum fyrir
sjónir á hvern hátt þau geti bezt komizt á-
fram í heiminum, glæða hjá þeim ætt-
jarðarást og þjóðræknistilfinningu, vilja-
krapt, þolgæði og staðfestu, brýna fyrir
þeim, að öll vinna, hver staða sé jafn-
heiðarleg, ef hún miðar til að efla heill
og blessun hvers einstaklings og heillar
þjóðar. Þannig löguð kennsla þyrfti að
fara fram í öllum skólum landsins, en því
miður er það ekki, sem stafar bæði af
vankunnáttu kennaranna og áhugaleysi
þeirra. Þér ungu menn og konttrl, sem
eigið langa ófarna lífsbraut fyrir höndum
með mörgum bröttum fjöllum og straum-
hörðum ám, lesið þér bókina: sHjálpaðu
þér sjálfur« og bækurnar: »Auðnuveg-
urinn«, »Fullorðinsárin« »Foreldrar og
börn« og margar jafngóðar bækur, sem
til eru hér á landi. Breytið svo eptir
heilræðum þeim, sem gefin eru í nefnd-
um bókum; það er hægt, því þau eru
sannleikur,. staðfestur með margra ára
reynslu.
Aðalskilyrðið fyrir því, að útflutningur
manna héðan af landi til Anteríku fari
minnkandi, er, að menntun alþýðu vaxi
bæði í verklegu og bóklegu, að kjarkur,
viljaþrek, þolgæði og staðfesta verði fast
ríkjandi í hugum manna. og síðast en
ekki sízt, að ættjarðarástin fari vaxandi.
En til þess að þetta verði ríkjandi í huga
þjóðarinnar, þurfa kennarar og forvígis-
menn hennar að nota öll tækifæri og láta
engin velsæmismeðul ónotuð til að inn-
ræta þjóðinni þessa kosti. — Þér húsfeð-
ur og mæður! Er ekki ísland fósturjörð-
in yðar ? Hafið þér ekki lifað æskuár
yðar á Islandi? Er yður ekki skyldast
að vinna á Islandi. Hafið þér ekki bund-
ist tryggðaböndum við ástvini yðar á Is-
landi? Eru ekki allar endurminningar f
hjarta yðar um sterka kappa og forna
fræ^ð, um fátna vini og skyldmenni
bundnar við Island? Er ekki allt, sem
yðnr hefur verið fagurt háleitt og gott
bundið við Island ? Ef þér svarið öllum
þessum spurningum játandi, sem þér mun-
uð eflaust gera, ef þér ekki látið hugsun-
arleysið blinda yður, hv( afneitið þér þá
fósturjörðinni og öllu þessu og farið til
Ameríku? — Amerikuferðirnar eru ískyggi-
legur faraldur fyrir viljaþrek, þolgæði og
staðfestu þjóðarinnar.
Nýi bankinn.
Nú með »Laura« kom framkvæmdar-
stjóri banka þessa, og heitir Einil Schou.
Hann er itm þrítugt, og hefur verið síð-
ustu 5 árin í þjónustu verzlunarhússins
Rubin & Bing, er einna mestan þátt hefur
átt f stofnun bankans.
Eptir því sem »Politiken« 14. þ. m.
skýrir frá, er bankastjórinn nú hingað
kominn til að undirbúa bankastofnunina
hér, með því að ráða starfsmenn, útvega
húsnæði, komast 1 samband við fólk, og
rannsaka, hvernig hér er umhorfs, áður
en bankinn taki til starfa, sem naumast
geti orðið fyr en snemma á næsta ári,
vegna prentunar nýju seðlanna. Á seðl-
unum kvað eiga að vera bæði mynd kon-
ungsins og hið nýja skjaldarmerki vort,
valurinn. I bankaráðinu eru aukíslands-
ráðherrans, sem sjálfkjörins formanns:
P. O. A. Andersen deildarstjóri í 2. deild
fjármálaráðaneytisins, L. Arntzen hæsta-
réttarmálafærslumaður og Kjelland Thor-
kildsen forstjóri centralbankans í Krist-
janíti, ennfremttr 3, er alþingi hefur valið:
Lárus Bjarnason sýslumaður, Sigfús Ey-
mundsson bóksali og Sigurður Briem póst-
meistari. Á hver þessara 6 fulltrúa að fá
1000 kr. í árslaun, samkvæmt reglu-
gerð bankans, sem þegar kvað vera full-
samin og staðfest af Alberti, án þess að
hérlendu bankaráðsfulltrúunum hafi gefizt
kostur á að kynna sér hana áður.
Mannalát.
Hinn 11. þ. m. varð Jóhann Georg
Möller kaupmaður á Blönduósi bráð-
kvaddur (af hjartaslagi). Hné hánn nið-
ur, er hann ætlaði að ganga heim afskrif-
stofu sinni kl. 8 um kveldið og var lið-
inn eptir fáar mínútur. Hans er þannig
minnst 1 bréfi til ritstjóra þessa blaðs, rit-
uðu sama kveldið og M. lézt:
»Möller er maður, sem mun verða sakn-
að af mörgum, því hann var framúrskar-
andi hjálpsamur og brjóstgóður við fá-
tæka menn, og mun óhætt að fullyrða,
að hann hafi engan synjandi látið fara
frá sér.
Möller varð 55 ára. Kona hans er
Alvilda fædd Thomsen og áttu þau 6
börn á lífi, 4 syni og 2 dætur, og er önn-
ur þeirra Lucinde kona Gíslá sýslumanns
ísleifssonar á Blönduósi. — Möller var
ágætur heimilisfaðir, og sparaði ekkerttil
menningar börnum sínum. Heimili þeirra
hjóna var orðlagt fyrir gestrisni og alla
rausn«.
Hinn 3. þ. m. andaðist eptir langan
krankleik Jóhann Frímann Sig-
valdason 1 Mánaskál, fyrrum hrepp-
stjóri í Bólstaðarhlíðarhreppi, einn meðal
merkustu bænda í Húnavatnssýslu. Verð-
ur æfiatriða hans síðar getið nánar.
Maflur varO útl
sunnudaginn 15. þ. m. á Lambeyrar-
hálsi millum Tálknafjarðar og Patreks-
fjarðar. Hann hét Friðrik Frið-
riksson og átti heima á Bíldudal, var
sendur þaðan með skipskjöl til Patreks-
fjarðar. Fannst daginn eptir örskammt
frá bæjum 1 Patreksfirði. Bleytukafald var
um daginn, er hann varð úti. Ætla
menn, að honum hafi orðið illt og lagzt
fyrir. Hann var dugnaðarmaður, roskinn
nokkuð að aldri. Lét eptir sig 8 börn.
Dáin
er úr lungnatæringu á Landakotsspítal-
anum 16. þ. m. Ragnheiður Péturs-
dóttir (frá Hríshóli í Reykhólasveit
Gestssonar). Hún var alllengi við dauf-
dumbrakennslu hjá séra Ólafi Helgasyni
á Stóra-Hrauni og leysti það starf ágæt-
lega af hendi. Hún var mesta efnis-
stúlka, gáfuð og vel að sér.
PóstskipiO „Laura"
kom hingað að kveldi 24. þ. m., og
með henni H a n rðfe s Hafstein, ís-
landsráðherrann nýi, sem á að verða,
ennfremur Emil Schou bankastjóri við
nýja bankann, danskur maður.
»Laura« bregður sér héðan snöggva
ferð vestur á Isafjörð með Hannes Haf-
stein, en hann kemur svo suður aptur
annaðhvort með aukaskipi Thorefélagsins
í desember, eða landveg í janúar. En
með »Laura« ( febrúar siglir hann til
Hafnar til að gera það sem gera þarf
ytra, koma þar skiptilagi á skrifstofuna og
sinna öðrum raðherrastörfum, er Alberti
kann að láta bíða hans, t. d. staðfesting-
ar einhverra frumvarpa frá alþingi o. s. frv.
Af flutningi ráðherrans hingað til lands
leiðir og að sjálfsögðu, að skjalasafn (sl.
ráðaneytisins þar, verður að flytjast hing-
að heim, og ætti nýi ráðherrann að vera
sem kröfuharðastur 1 þeim efnum.
GufuskipafélagiO „Thore'
hefur nýlega keypt nýtt skip, »Scot-
land«, frá Kristjaníu. Það er að eins 13
ára gamalt, vandað og stórt (1000 tons
farrými). Á 1. plássi geta verið 50 far-
þegar, og 2. og 3. káeta eru einnig rúm-
góðar. Skip þetta á að vera 1 förum til
Reykjavíkur og Vesturlandsins, en »Kong
191
Inge« gengur til Austur- og Norðurlands-
ins. Þetta nýja skip félagsins er miklu
stærra en »Kong Inge« og eflaust að ölltí
hið vandaðasta.
Ný lög
frá alþingi staðfestjaf konungi 23. f. m.:
18. Fjárlög fyrir árin 1904 og 1905.
19. Fjáraukalög fyrir árin 1902 og 1903.
20. Lög um heilbrigðissamþykktir fyrir
bæjar- og sveitarfélög.
21. Lög um varnir gegn berklaveiki.
22. Lög um frestun á framkvæmd laga
25. okt. 1895 um eimskipaútgerð lands-
sjóðs.
23. Lög um viðauka við lög um meðgjöf
með óskilgetnum börnum o. fl. frá
12. jan. 1900.
24. Viðaukalög við lög 13. sept. 1901 um
breyting á tilsk. 20. apríl 1872 um
bæjarstjórn í Reykjavlk.
25. Heimildarlög um áfangastaði.
26. Lög um breyting á lögum um vegi
13. aprfl 1894.
27. Lög um breyting á 1. gr. í lögum 2.
okt. 1891 (laun bankabókarans).
Hinn 10. þ. m. staðfest:
28. Lög um gagnfræðaskóla á Akureyri.
29. Lög um leynilegar kosningar og hlut-
fallskosningar til bæjarstjórna í kaup-
stöðtnn.
30. Lög um lífsábyrgð fyrir sjómenn, er
stunda fiskiveiðar á þilskipum.
Hinn 13. þ. m. staðfest:
31. Lög um ráðstafanir til útrýmingar fjár-
kláðanum.
Hnnayatnssýslu (austanverðri) 8. nóv.
Héðan er fátt tíðiuda. Tíðin hefur verið
fremur stormasöm og óstillt í haust, norð-
austanrok og kuldar og töluverð snjókoma
síðari hluta okt.; en með byrjun þ. m. gekk
áttin til suðurs og þýddi, svo nú er snjó-
laust orðið með öllu, en afaróstillt veður,
stormar og úrfelli. Síðan um réttir hefur
enginn afli verið hér við flóann austanverð-
an nema í Nesjum og þó lítill þar vegna
ógæfta, enda mjög lágir hlutir komnir þar,
um 700 hæst sfðan um réttir og afarlang-
sótt síðustu róðrana, og almennt álitið, að
fiskurinn sé á förum. Lítur því allilla út
að þessu leyti, þv! fiskur hefur opt haldizt
hér fram undir nýár og margir haftgott af.
Og nú var sumaraflinn einnig með lang-
minnsta móti vegna ógæfta og svo þess,
hve fiskur kom seint. — Hey eru einnig
með langminnsta móti hér á útkjálkunum
og víða illa verkuð, var og víða skorið af
heyjum, einkum kýr og lömb. Fjársala (
kaupstað varð þó með langminnsta móti,
bæði hér og ! Skagafirði, og mun það liggja
bæði í því, að lömbum var fargað fremur
en fullorðnu fé, og svo því, að verð var
lægra en áður: Kjöt 13, 15, 16 og 18 a.,
mör 20 au. Aptur voru gærur í allháu verði:
25—28 a.
Nú eru komnir eirkatlarnir og tóbakið til
fjárböðunarinnar, sem enginn veit um hve-
nær fer fram, enda held eg flestum segi
torveldlega hugur um útrýmingu fjárkkláð-
ans með þeirri aðferð, sem hafa á með því
að skipta landinu niður í mörg lækninga-
svæði og láta svo allt vaða saman á sumr-
um sjúkt og heilt, en við hverju er að bú-
ast, þegar demba á öllu útlendu öldungis
atiiugalaust yfir landið, og er þetta einn á-
vöxturinn af framfaragaspri Páls Briems og
annara svo greinilegur sem hann er. En
mér virðist gilda einu, þótt þjóðin fái að
reka nefið í við það, að elta slíka forustu-
gemsa, og er óvíst, að sú reynsla fengist á
hentugri né ódýrari hátt með öðru móti en
þessu fjárkláðaherhlaupi. — — — —
Hvernig er það ? Er hlutabankinn lög-
lega stofnaður ? Átti hann ekki að vera
stofnaður á sínu heimili ( Rvík fyrir 1. okt.?
En hvað um það, hann ætti ekki að geta
unnið neinn geig, þv! ólíklegt er, að nógu
m a r g i r ódrengir flækist inn á þingið til
þess að afnema landsbankann eða auka
hlunnindi hlutabankans á nokkurn hátt, en
óhætt er um það, að þeir, sem spyrna vilja
við þeirri óhæfu, mega vera á verði, því
varla verða sparaðar tilraunir ! þá átt, ef
dæma skal eptir þeirri einurð, sem þetta
bartkamál hefur verið flutt með frá upphafi.
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878
og opnu bréfi 4. jan. 1861 er hér með
skorað á alla þá, sem telja til skuldar
í dánarbúi P. A. Brække frá Eskifirði,
sem andaðist 15. apríl þ. á., að lýsa
kröfum sínum og sanna þær fyrir
skiptaraðandanum í Suður-Múlasýslu,
áður en 12 mánuðir eru liðnir frá síð-
ustu (3.) birtingu þessarar innköllunar;
Með sama fresti er skorað á erfingja
áðurnefnds P. A. Brække að gefa sig
fram og sanna erfðarétt sinn fyrir und-
irrituðum skiptaráðanda. —
Skiptarað indinn í Suður-Múlasýslu.
Eskifirði, 2. oktbr. 1903.
A. V. Tulinius.
Uppboðsauglýsing,
Húseignir dánarbús P. A. Brække
á Eskifirði, íbúðarhús á Eskifirði og
verskáli á Út-Stekk við Reyðarfjörð,
verða seldar við 3 opinber uppboð. —
1. og 2. uppboðið á báðum húseign-
unum verða haldin á skrifstofu sýsl-
unnar á Eskifirði mánudagana 1. og
15. febrúar n. á. kl. 12 á hádegi, en
þriðja uppboðið á húseigninni á Út-
Stekk á henni fimmtudaginn 3. marz
n. á. kl. 1 ept.ir hád., og þriðja upp-
boð á húseigninni á Eskifirði í því
föstudaginn 4. marz n. á. kl. 12 á há-
degi. —
Söluskilmálar verða til sýnisdegi fyr-
ir 1. uppboðið á skrifstofunni.
Skrifstofu Suður-Múlasýslu.
Eskifirði 2. oktbr. 1903.
A. V. Tulinius.
Proclama.
Með því að „ísfélagið á Stokkseyri"
hefur selt fram eignir sínar til gjald-
þrotaskipta, þá er hár með skorað á
alla þá, er telja til skulda hjá félag-
inu, að lýsa kröfum sínum og sanna
þær fyrir skiptaráðandanum f Árnes-
sýslu áður en liðnir eru 6 mánuðir frá
síðustu birtingu auglýsingar þessarar.
Skrifstofu Árnessýslu.
14. nóvember 1903.
Sigurður Ólafsson.
Mógrár hestur
5 vetra, með ljósan blett i enni, mark:
heilrifað vinstra (heldur en hægra), tapað-
ist frá F’ífuhvammi seinni part októberm.
Sá, er hitta kynni hcstinn, er beðinn að
koma honum til Sigurjóns snikkara Ólafs-
sonar við Amtmannsstíg 5 1 Rv(k gegn
ríflegri þóknun.
Hjá undirskrifuðum geta 1—2 efnilegir
unglingspiltar 15—18 ára gamlir, fengið
kennslu í skipa- og bátasmíðum, og jafn-
framt kennslu í þv( að sm(ða trébrýr yfir
vatnsföll og fleira af hinu stærra trésndði.
Reykjavfk 25. nóvember 1903.
Vesturgötu M 51 B.
Bj arni Þorkelsson.
(skipasmiður).
„ ii. ,. ■■■■■!■■. 11 ■ ■■ ,1. 1
Alþýðuíyrirlestrar
Stúdentafél agsins.
Sunnudaginn 29. þ. m. kl. 5. e, h. í
Iðnaðarmannahúsinu.
Bjarni Jónsson: Ég og j>ú.