Þjóðólfur - 23.12.1903, Page 2
203
Snðnr-Þing'eyjarsyslu (Höfðahverfi) 23. nóv.
Sumarið, sem nýlega er um garð gengið
hefur verið eitt hið versta hér á Norður-
landi, sem menn muna eptir vegna sífeldra
kulda og úrkomu. I ágúst voru fjöllin hvít
af snjó ofan í miðjar hlíðar, og stundum al-
snjóað. Samt náðust töður hér í ágústlok,
auðvitað mjög hraktar, en samt ekki ónýtar.
Afleiðingin verður þvf heyskortur, ef ekki
verður því betri vetur, því heyin hafa skemmst
í hlöðum í stórrigningunni 5. sept. og 19.
Og 20. okt. Otíðin dróg, sem von var, mjög
úr heyskapnum, svo hann varð heldur rýr.
Skepnur í rýrara lagi og verðið minna en í
fyrra, 100 pd. kind um 10 kr., 13 í fyrra.
Það sem af er vetrinum hefur verið gott,
jörð auð enn. Aflaleysi dæmalaust hefur
verið í baust og vetur, og má nú heita dauð-
ur sjór. Samt nefnir enginn Ameríkuferðir.
— Lítið eitt vil eg minnast á þingið í sum-
ar. Eg verð að segja eins og blöðin hafa
tekið fram, að það hefur verið framfaraþing
að því er stjórnarskrármálið, menntamál og
samgöngur snertir, en óþarfir virðast mér
sumir bitlingar, sem þingið hefur veitt. Auð-
vitað ætla eg ekki að fara að gera það að
blaðamáli, hverjir óþarfastir muni vera. En
útgjöldin eru svo mikil, að þingið má ekki
*
sinna óþarfabitlingum. Hneyksli hefði verið
fyrir þetta framfaraþing, hefði það samþykkt
til fullnaðar tillöguna um þegnskylduvinnuna,
en sem betur fór varð henni ekki framgengt,
enda hefði það orðið óvinsælt, sem maklegt
er, því þetta yrðu þvingunarlög, svo eg er
alveg hissa, að jafn skynsamur maður sem
hr. Hermann skyldi bera slíkt fram. Það
verður að finna einhverja heppilegri aðferð
til að yrkja landið með.
Eptlrmæli.
Hinn 21. sept. þ. á. andaðist að heimili
sínu Þórustöðum í Ölfusi Snorri bóndi
Gíslason. Hann var fæddur á Krögg-
ólfsstöðum í Ölfusi 28. marz 1828. Foreldr-
ar hans voru Gísli hreppstjóri á Kröggólfs-
stöðurn Eyjólfsson hreppstjóra á Kröggólfs-
stöðum, Jónssonar á Þurá, Eyjólfssonar prests
á Snæfoksstöðum Björnssonar og Solveig
Snorradóttir úr Engey, Sigurðssonar í Engey
Guðmundssonar. Hann byrjaði búskap á
Vötnum í Ölfusi 1860, bjó síðan á Stóra-
hálsi í Grafningi með systur sinni til 1866.
En árið 1867 6. júní kvæntist hann eptirlif
andi ekkju sinni Kristínu Oddsdóttur bónda
-á Þúfu í Ölfusi, Björnssonar hreppstjóra á
Þúfu Oddssonar. Flutti að Völlum í Ölfusi
vorið 1868 og síðan að Þórustöðum 1871 og
bjó þar síðan um full 32 ár, til þess hann
andaðist. Hann eignaðist 10 börn og dóu
2 þeirra á æskuskeiði, en 8 lifa, þar af 2
dætur giptar. Snorri sál. var stakur reglu-
maður, sístarfandi meðan kraptar entust,
smiður góður á tré og járn, ástríktir eigin-
niaður og góður faðir barna sinna, síglaður
á heimili sínu, skemmtinn í viðræðum og
fróður, einkum í sögu fósturjarðarinnar, hafði
þó ekki notið menntunar í æskunni fremur
•en aðrir alþýðumenn um þær mundir. Hann
var sérstakur friðsemdar- og stillingarmaður,
en kom þó vel fram áformum sínum. Þrátt
fyrir mikla ómegð bjó hann jafnan fremur
vel, en var mjög þrotinn að heilsu hin síð-
ustu ár æfi sinnar, einkum síðan 1896, en
bar jafnan sjúkleika sinn með þolinmæði og
sálarrósemi. Heimili hans var alkunnugt
fyrir gestrisni og greiðasemi, og var hann
því mörgum að góðu kunnur. Hans er því
sárt saknað af öllum þeini, sem nokkuð til
hans þekktu. J.
Munið eptir
að panta Þjödólf
nú frá nýárinu.
Mikil kostaboð
handa nýjum kaupend-
um.
Fasteignir fyrir hálfvirði
Tvö stór tún, vel ræktuð. Þrjú í-
búðarhús vel vönduð, bruttótekjur ár-
lega 10—n°/o af söluverði. Utborg-
un við samning 300—500 krónur.
Býður nokkur betur,
Gísli Þorbjarnarson.
Froclama.
Samkvæmt lö’gum 12. apríl 1878
og opnu bréfi 4. janúar í86i, er hér
með skorað á alla þá. sem telja til
skuldar í dánarbúi hjónanna Sigurðar
Stefánssonar og Guðlaugar Ólafsdótt-
ur frá Steindyrutn. sem önduðust þar
20. okt. og 14. des. 1902, að lýsa
kröfum sínum og sanna þær fyrir
skiptaráðandanum í Þingeyjarsýslu, áð-
ar 6 mánuðir eru liðnir frá síðustu
birtingu þessarar auglýsingar.
Skrifstofu Þingeyjarsýslu.
Húsavík 28. nóv. 1903.
Steingrímur Jónsson.
Gjöf Jóns Sigurðssonar.
Samkvæmt reglum um »Gjöf Jóns
Sigurðssouar«, staðfestum af konungi
27, apríl 1882 (Stjórnartíð. 1882. B.
88. bls.) og erindisbréfi samþykktu á
alþingi 1885 (Stjórnartíð. 1885 B. 144.
bls.) skal hér mnð skorað á alla þá,
er vilja vinna verðlaun af téðutn sjóði
fyrir vel samin vísindaleg rit viðvíkj-
andi sögu landsins og bókmenntum,
lögum þess, stjórn eða framförum, að
senda slík rit fyrir lok febrúarmánaðar
1905 til undirskrifaðrar nefndar, sem
kosin var á alþingi 1903 til að gera
að álitutn, hvort höfundar ritanna séu
verðlaltna verðir fyrir þau, eptir til-
gangi gjafarinnar.
Ritgerðir þær, sem sendar verða í
því skyni að vinna verðlaun, eiga að
að vera nafnlausar, en auðkenndar með
einhverri einkunn. Nafn höfundarins
á að fylgja í lokuðu bréfi með sömu
einkunn, sem ritgerðin hefur.
Reykjavík 15. desember 1903.
Bj'órn M. Ólsen, Eiríkur Briem,
Magnús Stephensen.
Af l»ví eg hef fengið einkaleyfi fyrir
að skjóta í Gróttu, þá fyrirbýð eg öllum
að skjóta þar án mfns leyfis.
Gunnlaugtir Pétursson.
Reykjarpípur
— mikið úrval —
í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Auglýsing
um kaupmála hjóna.
Þinglesnir hafa verið í bæjarþingi
Reykjavíkur kaupmálar:
x. 5. nóvbr. 1903. Milli hjónanna
Th. Thorsteinssons kaupmanns í
Reykjavík og konu hans Kristjönu
Thorsteinssons, dagsettur 27. oktbr.
s. á., með konunglegri staðfesting
frá 2. desbr. næst eptir.
2. 19. nóvbr. 1903. Milli hjónanna
Kristjáns kaupmanns Kristjánsson-
ar í Reykjavík og konu hans Sig-
urlaugar Traustadóttur, dagsettur
2. þ. m., með konunglegri stað-
festing frá 3. s. m.
Afgreiðslustofu landshöfðingja,
Reykjavík 22. desbr. 1903.
Jón Magnússon.
Alnavara
mjög ódýr og fjölbreytt kom nú með
„Laura". Nýtt með hverri
póstskipsferð.
Sturla Jónsson.
JJentugar J'ólagjaflr.
Myndir (ekki glansmyndir) eptir
teikningum og málverkum frægustu
listamanna, fást hjá
Guðm. Gamalielssyni.
Leirtau
Nýkomið í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Hollenzkir
VINDLAR
ágætir og ódýrir eptir gæðum
og
hollenzkt
Reyktóbak
fyrirtaksgott og ódýrt
í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878
og opnu bréfi 4. janúar t86i, er hér
með skorað á alla þá, sem telja til
skuldar í félagsbúi hjónanna Indriða
ísakssonar og Jakobínu Þorsteinsdótt-
ur frá Keldunesi, er önduðust þar 10.
febrúar þ. á. og 26. des. f. á., að lýsa
kröfum sínum og sanna þær fyrir
skiptaráðandanum í Þingeyjarsýslu, áð-
ur 6 mánuðir eru liðnir frá síðustu
birtingu þessarar auglýsingar.
Skrifstofu Þingeyjarsýslu.
Húsavík 28, nóv. 1903.
Steingrímur Jönsson.
A síðastl. hausti var mér dregið hvítt
hrútlamb með mínu marki: stýft á hálft
af apt. fjöður fr. h., stýft á hálft af apt.
fjöður fr. v. Lamb þetta á eg ekki og gefi
réttur eigandi sig því fram og sanni eign
sír.a og semji um markið.
Lækjarbotnum 4. desbr. 1903.
Pdll Gestsson.
Myndarammar,
margar sortir, mjög ódýrir.
Sturla Jönsson.
Undirskrifaður vill eignast tvo góða
klárgenga fola, 48—50 þuml. á hæð,
2—3 vetra, af góðu kyni, samlita, helzt
steingráa, áreiðanlega gallalausa og ófælna.
Tiiboð (á ensku), er nefni: verð lit og
aldur, sendist til W. Hollmann, Post
restante, Belfast. Ireland.
Jólagjafir
hentugar fyrir börn og fullorðna, fást
Rúðugler
margar stærðir,
mjög ódýrt.
Sturla Jónsson.
LotteríseOIar sendast gegn borg-
un fyrirfram. í þessurn drrtttflokki eru
118,000 hlutir, 75,000 vinningar. Verð:
1. dráttur 1 kr., 2. 1 kr. 50 a., 3. 2 kr.,
4- 3 kr., 5. 3 kr. 60 a., 6. 4 kr. hvert
númer. Vinningarnir sendast þeim, sem
vinna, ef óskað er. 2. dráttur fer fram 18.
og 19. nóvember, 3. dráttur 16. og 17.
desember.
Thomas Thomsen
yfirríttarmálaflutningsmaður.
Gl. Strand 48. Köbenhavn K.
Löggiltur hlutasali fyrir: „Almindeligt
dansk Vare- og Industrilotteri".
LAMPAR
nýkomnir með „Laura",
Sturla Jónsson.
og vasaklútailmefni — nýjasta tízku-
ilmefni — ættu allir að kaupa.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand, theol,
Prentsmiðja Þjóðólfs.
mjög ódýrar.
STURLA JÓNSSON.
Kunnugt gerist,
--------------------- þ
að við undirritaðir rekum í félagi verziun á
íslandi undir ,firma‘-nafninu
Verzlun Sigurðssona.
Búðardal og Kaupmannahöfn, árið 1903.
Björn Sigurðsson, Bogi Sigurðsson.
Kaupið engin önnur orgel
en frá Aktiebolaget J. P. Nyström, Karlsstad, Svíþjóð,
sem sökum sinna ágætu kosta hafa fengið alheimsorð á sig.
Hljóðfæri til sýnis hjá umboðsmanni verksmiðjunnar
hr. Markúsi Þorsteinssyni, Reykjavík,
sem gefur nánari upplýsingar.