Þjóðólfur


Þjóðólfur - 06.01.1905, Qupperneq 1

Þjóðólfur - 06.01.1905, Qupperneq 1
OLFUR. 57. árg. Reykjavík, föstudaginn 6. janúar 1905. Jú 2. LaNDSBAN KINN greiðir vexti af sparisjódsfé fl4°'o~há I. jan. 1905 og af fé á hlaupareiknmgi eptir samkomulagi. Gefa má ávísanir á fé í hlaupa- reikningi, en nota verður til þess eyðu- blöð, sem fást í bankanum. Avísanagjald til Kaupm.hafnar er fyrir hverjar ioo kr. io a. (minnsta gjald 25 a.) og til Noregs, Englands, Hamborgar og Ameríku 20 a. (minnsta gjald 50 a.). Seðlar landsbankans eru teknir af- fallalaust í „Landmandsbanken" í Kaupmannahöfn. Tryggvi Gunnarsson. Skattamál. V. Smjörlíkistollurin n. »Að fara að leggja toll á srojörlíki, til þéss að styðja smjörframleiðsluna, mundi alls ekki verða að tilætluðum notum, held- ur til ógagns eins. Það yrði til þess, að leggja allþungan skatt á sjómannastéttina og fólk við sjávarsíðuna, að eins til hags- muna fyrir þá bændur, sem framleiða lé- legasta smjörið, og mundi þá jafnframt verða til þess, að draga úr áhuga manna á að búa til gott smjör, sem nú virðist eiga góða framtíð fyrir höndum. Land- búnaðurinn íslenzki ætti { tollmálinu að taka sér landbúnað Dana til fyrirmyndar. Danmörk er eitt af þeim fáu löndum, sem ekki veitir landbúnaði sínum neina toll- vernd, og þó er Danmörk vafalaust ein- mitt það landið, sem bezt af öllum lönd- um Norðurálfunnar hefur sigrazt á þeim erfiðleikum, sem samkeppni annara heims" álfa hefur bakað landbúnaði Norðurálf- unnar. Löggjafarvaldið hefttr ekki með óeðlilegri verðhækkun látið það viðgang- ast, að landbúnaðurinn léti sér lynda, að birgja innlenda markaðinn, heldur hefur tolllrelsisverzlunin neytt bændurna til að vinna með röggsemi og atorku að því, sem samkvæmt staðháttum og Iegu lands- ins liggtir beint við fyrir það, að birgja enska markaðinn með smjöri, fleski og eggjum. Að þessu hefur löggjafarvaldið stutt með ríflegum fjárveitingum til alls, sem miðað gat til þess, að efla dugnað bændanna og bæta framleiðsluafurðir þeirra. I Danmörku ertt nú brúkuð um 45 milj. pund af smjörlíki á ári, og um 11 milj, punda af ódýru, útlendu smjöri, en engttm kemur til hugar að kvarta yfir því, að þetta leiði til þess, að »peningar fari út úr landinu«; allir sjá og játa, að það er til stórkostlegs hagnaðar fyrir þjóð- félagið fjárhagslega, að geta sjálfir notað þessar ódýru vörur, af því að það gerir mönnum mögulegt, að beina allri smjör- gerð sinni í þá átt, að framleiða sem allra bezta vöru, og selja svo af henni 160 milj. punda á ári til útlanda fyrir 152 milj. króna í peningum, sem koma inn í landið. Jafnöfugur og smjörlíkistollurinn mundi og tollur á vefnaðarvöru reynast, ef menn með honttm ætluðu sér að efla innlendan baðtnullariðnað eða ullariðnað. Islenzki markaðurinn er alltof lítill til þess, að þar sé hægt að reka baðmullariðnað með nokkrum hagnaði. Ullariðnaðurinn er sjálfsagt miklu eðlilegri fyrir landið, og ætti því að geta þrifizt án tollverndar. Ur fyrstu erfiðleikunum við að koma hon- um á fót gæti landsjóður, eins í þessari sem í mörgum öðrum atvinnugreinum, bætt á margan hátt, enda er mönnum fullkunnugt um það á Islandi, hver ráð eru til þess: ódýr lán, verðlaun og því um líkt. Reynist slík hjálp ekki nægileg til þess, að unnt sé að reka atvinnuna með hagnaði, þá eiga menn að láta hana eiga sig og ekki harma, þótt hún detti úr sögunni, því reynslan hefur þá sýnt, að fjáraflið og vinnukrapturinn geta grætt meira á því, að vinna að öðrum atvinnu- greinum. En það dugar ekki að láta alla þjóðina borga skatt með verndartollum, til þess að halda slíkri atvinnu uppi. Þetta er yfirleitt ein af hinum miklu hættum við tollverndina, að menn sjá ekki, hve mikið hún í raun og veru kost- ar þjóðitia við það, að vörurnar verða dýrari, án þess að landsjóður hafi nokk- urn hag af því. Sem dæmi má nefna þá tollvernd, sem komið var á með síðustu tolllögum með vindlagerð; þar sem toll- ur á tóbaki var látinn vera 50 au. á pundi, en á vindlum 2 kr. á hverju pundi, þá var með því veitt tollvernd, er nam því nær i1/® kr. á hverju pundi af vindlum, sem búnir væru til á Islandi; og auðvit- að brugðu menn undir eins við, og komu á vindlagerð. Þar sem nú landsjóður fær ekki annan toll af þeim vindlum, sem búnir eru til á íslandi, en tóbakstollinn 50 au. á pundi, þá heftir hlutaðeigandi verksmiðjueigandi i’/j kr. af landsjóðnum á hvert pund af vindlum. Niðurstaðan verður þvl sú, að til hverra 2000 punda af vindlum, sem búnir eru til á Islandi, veitir landsjóðttr 3000 kr. styrk, sem 1 raun- inni ætti að telja til útgjalda i fjárlögun- um. Ef til vill staðhæfa nú verksmiðju- eigendurnir, að vindlagerðin verði ekki dýrari hjá þeim, en hægt sé að búa þá til fyrir erlendis, og þá verður landið í heild sinni auðvitað ekki fyrir neinu tapi við tollverndina; en þáer líka tollverndin alveg óþörf, og menn ættu sem skjótast að láta vindlatollinn verða það, sem til var ætlazt, og hann ætti að vera: skattur á vindlareykingum, sem ná má með því, að leggja jafnháan skatt áinnlendu vindla- gerðina eins og nú er lagður á hina út- lendu, sem sé i1/* kr. á hvert pund, auk þeirra 50 au., sem greiddir eru í toll af hverju tóbakspundi. Tollverndin er þvl hér sem annarstað- ar, þegar til lengdar lætur, annaðhvort óþörf eða skaðleg, og vilji menn af fjár- hagslegum ástæðum leggja toll á einhverja vöru, sem framleidd verður erlendis, ættu menn að leggja jafnháan skatt á fram- leiðslu þeirrar vöru innanlands. Sllkri skattálögu má auðvitað vel koma við við margar vörutegundir; þannig er t. d. í Danmörku greitt gjald af innlendri sykur- gerð, sem nokkurnveginn samsvarar toll- inum á aðfluttum sykri: þar er og skatt- ur á innlendri ölgerð og vínfangagerð. En við aðrar vörur er bæði erfitt og kostn- aðarsamt að koma við innlendri skatt- álögu, t. d. einkum við vefnaðarvöru, og er það því ærin ástæða gegn því, að leggja toll á þá vöru á Islandi«. Hér hefur nú verið tekinn aðalmergur- inn málsins úr grein hr. Krabbe’s um skattamálið, og geta nú landsmenn athug- að uppástungur hans. Höf. leggur að slð- ustu til, að skattamál landsins séu tekin til rækilegrar athugunar og umræðu í einu lagi, áður en farið sé að ráðast í breyt- ingar eða umbætur á þeim, og lýkur hann máli sínu á þessa leið : »Hvort fremur skuli kjósa fasteignarskatt en hækkun á hinum núverandi aðflutn- ingstollum, er spurning, sem tæplega verð- ur úr skorið með nokkurri vissu án frek- ari þekkingar á öllum aukaatriðum, en sá getur haft, sem býr í öðru landi. En þótt hægt sé að benda á nýja skattstofna handa landsjóði, mega menn ekki fyrir því láta leiðast til að hafa minna gát á útgjöldunum. Nýir skattar eru auðvitað ekki einungs óþægilegir, heldur líka, þeg- ar þeir verða þungbærir, beinlínis skað- legir fyrir þroskun og framfarir, með því þeir leggja hömlur á framleiðsluna og söfn- un fjárafla. Það ætti því aldrei að leggja á nýja skatta, nema þegar verulega nyt- söm og bráðnauðsynleg útgjöld verða til þess, að raska jafnvæginu, svo að annars yrði ekki hjá því komizt, að taka lán og hleypa sér 1 skuldir. Sem stendur er það eitt af því, sem bezt er við búskaparlífið á íslandi, hve ódýrt er að lifa þar; en menn þttrfa ekki að fara lengra en til Noregs, til þess að sjá, hve mjög menn geta með því, að gera dýrara að lifa, sem stafar af tollverndinni og með þungbær- um sköttum, sem stafar af alltof miklum útgjöldurn og lántökum, bæði hjá rlkinu og sveitastjórnum, stöðvað þroska og fram- þróun og eflt fólksflutninga úr landinu. Og útflutningsstraumurinn frá íslandi er einmitt þvl miður orðinn svartasti blettur- inn, sem rás viðburðanna hefur myndað, ekki að eitts af því, að hann lamar vinnu- krapt landsins, heldur einnig af því, að ekki getur hjá því farið, að hann lami traustið á landinu og framförum þess í auguin annara þjóða, og þar af leiðandi veiki lánstraust þess«. Alþingis- og lögmannsbók Þóröar Iögmanns Guðmundssonar 15 70-- 1 6 0 5‘). I byrjun ársins 1837 rak Krieger, sem þá var stiptamtmaður hér á landi, augun í skrifaða bók eina, er var nr. 80 í skjala- safni embættis hans (safni stiptamtsins og suðuramtsins), sem hann hafði eitthvert hugboð um, að kynni að vera merkileg, án þess honum væri það þó fullljóst. 1) A bók þessari, sem skrifuð er nálægt 1650—1660 með hendi svipaðri Magnúsar lögmanns Jónssonar, eru einnig kongsbréf frá 1556—1645. Sýndi hann því bók þessa Steingrími biskupi Jónssyni og bað hann að segja sér um gildi hennar. Bókin lá hjá bisk- upi í eina tvo mánuði (febrúar og marz) 1:837, °g lét biskup þá hripa upp afskript af miklum hluta hennar, og skýrði því næst stiptamtmanni frá því, að bók þessi væri merkileg, því að hún væri eldri en hinar alkunnu óslitnu alþingisbækur og því hin elzta samanhangandi dómabók frá alþingi hinu gamla, er menn vissu til að segja. Þegar stiptamtmaður fékk það að vita, var hann ekki seinn á sér að átta sig á því, hvað gera ætti við bókina: Hún var ógeymandi og til einskis nýt hérálandi og því sjálfsagt að senda hana á eitthvert opinbert safn í Kaup- mannahöfn, og framkvæmdir á þvl lét hann ekki bíða, því að 18. apríl strax sama vor sendi hann bókina svona upp úr þurru til Rentukammersins til þess að gefa hana einhverju opinberu safni í Höfn, og fór því næst sjálfur alfari af landi héð- an um sumarið til Danmerkur, án þess — eptir því, sem nú verður séð — að gera nokkra skilagrein fyrir afhending embættisskjalasafns síns, þegar hann fór héðan. Eptir að nefnd lærðra manna í Kaup- mannahöfn (Kolderup-Rosenvinge og P'inn- ur Magnússon) hafði látið uppi álit sitt utn það, hvað gera skyldi við bókina, varð það úr, að hún var 31. okt. um haustið 1837 látin lenda í Ríkisskjalasafni Dana, sem þá var kallað Leyndarskjala- safn, og þess getið 1 skrám skjalasafnsins að eins, að bók þessi hefði komið »frá íslandi« 1837, og mátti af því orðatiltæki eins vel hugsa, að bókin hefði verið keypt frá íslandi eða þá gefin af ein- hverjum einstökum manni, en ekki reitt út úr skjalasöfnum landsins sjálfs. Eptir að reglugerð latidshöfðingja um landsskjalasafnið frá 10. ágúst 1900 var út komin, sem skipar svo fyrir, að rann- saka skuli, hvað kunni á ýmsum tímum að hafa slæðst eða verið tekið úr Land- skjalasafninu, og hvar það nú mundi nið- ur komið, svo að hægt væri að hafa heimt- ur á því, þá var því veitt eptirtekt, að þessi merkilega bók, sem kunnugt var orðið, að geymd var í Ríkisskjalasafni Dana, væri einmitt eign Landskjalasafns- ins í Reykjavík og hefði verið tekin það- an alveg ástæðu- og titefnislaust. Var því af Landskjalasafnsins hendi ritað til landshöfðingja 16. okt. um haustið 1900 um þetta efni, og af landshöfðingja gerð krafa til bókarinnar á hendur Ríkisskjala- safni Dana gegnum ráðuneyti ís- lands í Kaupmannahöfn, en — það gerði öldungis ekkert til þess, að halda frarn skýlausum eignarrétti s k j a 1 a s af n s i n s hér á 1 a n d i, enda var þá forstöðumaður ráða- neytis vors danskur maður, sem tók ekki að jafnaði stórlega væst upp á sig fyrir hagsmuni þessa lands, og gaf það þá- verandi rlkisskjalaverði Dana, dr. C. F. Bricka, djörfung til þess að berja öliu i vænginn gegn því, að afhenda íslandi bókina, svo að um það var þá þverneit- að. Og í prentaðri skýrslu Rlkisskjala- safnsins það ár er svo skýrt frá þessu

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.