Þjóðólfur - 20.01.1905, Blaðsíða 2
13
(var tekið frá Kínverjum 1895) og skaðinn
því ekki svo mikill sem ella.
Eystrasaltsfloti Rússa mun nú allur vera
kominn austur í Indlandshaf. Nokkur
hluti hans fór í gegnum Suez-skurðinn, en
hinn suður fyrir Afríku. Hvort þessar
deildir hafa enn náð að sameinast er ó-
kunnugt, en úr þessu virðist flotinn eiga
harla lítið erindi austur og hefur þess því
verið getið til, að hann mundi þegar verða
kallaður heim aptur. Frétzt hefur, að
Japanar hafisentflota undir forustu Uriu
flotaforingja suður til Malakka til þess ef
til vill að taka á móti rússneska flotanum
þar í sundunum. n»
Úr Mandsjúríinu er ekkert að frétta,
ekkert gerst þar nema lítilsháttar smábar-
dagar, sem engu skipta.
Rússland. Óánægja og óeirðir út af
stríðinu verða æ tíðari á Rússlandi.
Nýliðar þeir, sem kallaðir eru austur til
Aslu gera opt af sér ýmsan óskunda og
láta það ótvlræðlega í Ijósi, að þeim sé
allt annað en Ijúft að láta brytja sig nið-
ur þar eystra „fyrir keisarann og föður-
landið". Um jólaleytið reyndi nýliðasveit
ein að sprengja í lopt upp tvær smáar
járnbrautarbrýr til þess að hindra herflutn-
ingana austur til Asíu. Herlið kom þá
að og réðst á þá og hófst skæður bar-
dagi. Nokkrir af herforingjunum féllu og
margir af nýliðunum. Við brýrnar tókst
að gera aptur eptir skamman tíma. —
í Pétursborg var fundur haldinn skömmu
fyrir nýárið til þess að mótmæla stríðinu
og skora á stjórnina að semja frið. Með-
al fundarmanna voru vísindamenn, lista-
menn og margir aðrir merkir og mætir
menn.
í síðasta fréttabréfi var getið um kröf-
ur þær um breytingar ástjórnar-
farinu, er fulltrúaþing semstvóanna (hér-
aðaþinganna) gerði í nóvembermánuði.
Síðan hefur hver fregnin borizt á fætur
annari um samskonar kröfur hvaðanæfa
frá Rússlandi, ekki einungis frá hinum
lægri stéttum ogstúdentum, heldur einnig
frá tignum og hátt settum mönnum. Bæj-
arstjórnin í Moskva, sem telja má „fína“
samkomu undir forsæti Galizin fursta hef-
ur samþykkt ávarp til stjórnaiinnar er fer
í líka att. Bæjarstjórnin í Pétursborg fór
að dæmi hennar og sama varð ofan á á
fjölmennum fundum meðal lögfræðinga,
bæði í Moskva og Pétursborg. Jafnvel
rússneskir aðalsmarskálkar hafa látið sömu
ósk í ljósi á fundi, er þeir áttu með sér í
öndverðum desembermánuði. Ennfremur
hafa stúdentar og almenningur haldið
fundi á strætum og hefur það stundum
orðið til þess, að lögreglan hefur skorizt 1
leikinn. 11. des. sló þannig í bardaga á
götunum 1 Pétursborg og hinn 18. fór á
sömu leið í Moskva. Svo sem við mátti
búast bar lögreglan hærra hlut, enda fengu
óróaseggirnir óspart að kenna á því. Jafn-
vel í sjálfri rússnesku stjórninni hafa heyrzt
raddir um, að nauðsynlegt væri að taka
nokkurt tillit til þjóðarviljans og slaka dá-
lftið á taumunum. Það er þannig alkunn-
ugt, að innanríkisráðgjafinn, Sviatopolsk-
Mirski, hefur barizt fyrir því, og nokkra
stoð hefur hann í þvf efni fengið hjá
VVitte forseta ríkisráðsins. En þar er við
ramman reip að draga, því að Pobedon-
oszeff, formaður sýnódunnar helgu og
Muravieff dómsmálaráðgjafi hafa þar enn-
þá mikið að segja og þeir vilja ekki heyra
talað um hinar minnstu endurbætur á
stjórnarfarinu. A fundi, sem ríkisráðið
hélt 15. des. til þess að ræða um þetta
mál, er mælt, að hann hafi sagt, að af-
nám einveldisins væri synd gegn guðs lög-
um. A afmælisdag keisara (20. des.)
bjuggust menn við, að hann mundi gefa
út boðskap til þegna sinn.i og svara þeim
bænaskrám, er hann hefur fengið um þetta
mál. Boðskapurinn kom þó ekki fyr en
nokkrum dögum síðar. Þessi boðskapur
gefur von um ýmiskonar umbætur, en er
þó svo óákveðið orðaður, að leggja má
út á marga vegu. En það er skýrt tekið
fram, að við einveldinu 'verði ekki hagg-
að. Helztu umbæturnar, sem gert er ráð
fyrir snerta bænduma og þakka menn
þau ákvæði einkum Witte. Þá er einnig
talað um aukið trúarbrágðafrelsi, breyting-
ar á tilskipunum, er takmarka réttindi
ibúa einstakra héraða í ríkinu og að end-
ingu um aukið prentfrelsi „innan ákveð-
inna lögbundinna takmarka". Allar eru
þessar umbætur bundnar ýmsum skilyrð-
um og takmörkunum, svo að framkvæmd-
irnar má telja mest undir því komnar,
hver stefna verður ofan á í rússnesku
stjórninni. En harla lítil von er um, að
mikið verði aðgert, ef það reynist satt, sem
fréttist í gær, að Sviatopolsk-Mirski hafi
sótt um lausn frá embætti.
1. des. var birt í blöðum um endilanga
Norðurálfuna allmerkilegt skjal, er gaf til
kynna, að fulltrúar ýmsra pólitiskra flokka
og þjóða í hinu rússneska ríki hefðu gert
samband meö sér til þess að reyna með
sameinuðum kröptum að hnekkja hinu rúss-
neska einveldi og kúgun þess, án tillits
til margskonar ágreinings og skoðanamuna
innbyrðis. Á þingi því 1 París, þar sem
þetta gerðist voru fulltrúar frá Finnum,
Pólverjum, Armeníumönnum, Georgíu-
mönnum og frá ýmsum framsóknar- og
byltingafélögum í Rússlandi sjálfu. Þau
grundvallaratriði, er allir voru sammála
um voru þessi: 1) afnám einveldisins og
apturköllun allra ólöglegra tilskipana á
Finnlandi. 2) í stað einveldisins lögbund-
in stjórn, er hvíli á ahnennum kosníngar-
rétti. 3) sjálfstjórn fyrir hinar einstöku
þjóðir og Iagaleg vernd þjóðernis þeirra.
Fyrir öllu þessu vilja hinir mörgu og
sundurleitu flokkar berjast i bróðerm.
Dómur er nú fallinn yfir banamanni
Plehves, Sassonoff, og er hann dæmd-
ur til æfilangrar þrælkunar. Annars geng-
ur sá orðrómur í Sviss, að Sassonoff hafi
komist þangað úr klóm Rússa og enskur
fréttaritari kveðst jafnvel hafa haft tal af
honum í Ziirich. Ennfremur er það talið
þessu til sönnunar, að maður sá, er dæmd-
ur var í Pétursborg hefur verið straxnáð-
aður og rúfsing hans lækkuð.
Maður sá, sem stal likneski guðsmóður
úr dómkirkjunni í Kasan í fyrravetur hef-
ur nú verið dæmdur til 12 ára þrælkunar.
Finnland. Finnska þingið kom saman
9. des. Þeir meðlimir þingsins, er gerðir
höfðu verið landrækir fengu leyfi að koma
aptur til Finnlands til þess að sitja á því.
Við . þingsetninguna var lesinn upp boð-
skapur keisara og var þar tekið fram, að
það væri óbifanlegur vilji hans, að tilskip-
anir, er tengja ættu landið nánara við
Rússland (t. d. um varnarskylduna, inn-
leiðslu rússnesku i stjórnarskrifstofurnar
og aðgang Rússa að embættum á Finn-
landi o. fl.) héldust í gildi framvegis, en
aptur væri honum ljúft, að afnema svo
fljótt sem unnt væri þær bráðabirgðaá-
kvarðanir, sem gerðar hefðu verið til þess
að bæla niður mótspyrnuna gegn þessum
stjórnarbreytingum (t. d. alræðisvald land-
stjórans í sumum málum). Svarið upp á
þetta kom von bráðar og allótvírætt. All-
ar (4) deildir þingsins sendu 15. des. for-
setum sínum mótmæli undirrituð af flest-
öllum þingmönnum gegn hinum ólöglegu
tilskipunum og kröfu um, að réttindi þjóð-
ar og þings verði þeim fengin aptur óskert
í hendur.
Svíþjóð og- Noregnr. Fyrst 7. des. var
Lagerheim utanríkisráðherra Svía og
Norðmanna veitt lausn og var embættið
fyrst um sinn fengið í hendur R a m s t e d t
ríkisráðherra, en 22. des. tók við því
Gyldenstolpe greifi, sem áður var
sendiherra í Pétursborg. Orsökin til þess,
að Lagerheim lagði niður embætti sitt
telja menn þá, að hann gat ekki komið á
samningum um konsúlamálið norska, sem
nú má telja strandað fyrst um sinn. Norð-
ménn hafa látið í ljösi, að ef konsúlamál-
ið yrði ekki komið á góðan rekspöl fyrir
janúármánaðarlok, þá mundi enginn Norð-
maðut koma til Stokkhólms til að taka
þátt 1 hinum norrænu fþróttaleikum, er
þar verða haldnir, þvl að þeir hefðu þá
ekki skap til, að tæma gleðibikara í höf-
uðstað Svía.
Nóbelverðlaununum var úthlutað 10. des.
að vanda af Óskari konungi. Þessir hlutu
verðlaunin:
Bókmenntaverðlaunin hlutu Fra-
deri Mistral (f. 1830), franskt skáld, er
þykir hafa lýst bændalífinu á Suður-Frakk-
landi betur en nokkur affnar á provenc-
alska (suður-franska) tungu og J o s é
Echegaray, spánskt skáld (f. 1833), tal-
inn einna merkastur sjónleikahöfundur
Spánverja.
Efnafræðisverðlaunin hlaut
William Ramsay prófessor í Lundún-
um (f. 1852). Hann hefur fundið ýmsar
nýjar lopttegundir (t. d. Helium, Neon,
Krypton og Xenon) og á síðustu tímum
hefur hann mikið fengist við rannsóknir
á radíum.
Eðlisfræðisverðlaunin hlautRay-
1 e i g h lávarður, prófessor í Lundúnum (f.
1842). Hann starfaði með Ramsay að
rannsókn andrúmsloptsins og fann með
honum lopttegundina Argon. Frægasta
verk hans er hljóðfræði (Theory of sound),
er þykir bera af öðrum ritum í þeirri grein.
Læknisfræðisverðlaunin hlaut
Pavlov, rússneskur læknir, er einkan-
lega hefur getið sér orðstír fyrir rannsókn-
ir sínar á meltingarfærunum.
Friðarverðlaunin hlaut loks ekki
neinn einstakur maður, heldur félag það
er nefnist „Institut de droit inter-
national", vlsindafélag, sem starfar að
því að efla og útbreiða millirfkjaréttinn.
Verðlaunin í hverri grein eru um 140
þús. kr.
Dnnmörk. M a d s e n hertnálaráðherra
hefur sótt um lausn nú um áramótin. Hef-
ur hann fært sem ástæðu fyrir því ósam-
lyndi við Jöncke flotamálaráðherra, en
aðrir þykjast þó fullvissir um, að hin eig-
inlega ástæða sé sú, að hann geti ekki
komið sér saman við fjárlaganefndina um
útgjöld til hersins. [Sjá frekar um ráða
neytið hér síðar 1 blaðinu].
„Politiken'1 hefur haft ritstjóraskipti
núna um nýárið. Dr. Edv. Brandes hef-
ur hætt ritstjórninni, en Henrik Cavling
og Ove Rode, er áður voru meðritstjórar
blaðsins, eru teknir við af honum. Blað-
ið heldur sömu stefnu sem fyr.
Rétt fyrir nýárið gerði allmikið óveð-
ur með byl víða um Danmörku. Sjór
gekk á land og gerði töluvert tjón. Á
Þýzkalandi varð einnig allmikið tjón af
óveðri þessu og náði það enda enn lengra
suður á bóginn.
Máli því, sem höfðað var gegn G u n -
del skipstjóra á Norge, er fórst í sumar
í Atlantshafinu er nú lokið fyrir sæ- og
verzlunarréttinum. Var Gundel sýknaður,
en þó látinn greiða málskostnað, með því
að í einstaka atriðum þótti hann ekki hafa
sýnt alla þá gætni, er heimta mætti.
Nýdánir eru Johan Bartholdy tón-
skáld ogHarald KolIing,er um 40
ár hafði verið leikari á „Lýðleikhúsinu"
(Folketheatret).
Frakklaml. Uin mánaðamótin nóv.—
des. höfðu klerkar látið skólabörn sín
safnast um líkneski Jeanne d’Arc's í París
til þess að vegsama hana og ákalla gegn
kúgun hinnar núverandi stjórnar. Hinn
alkunni jafnaðarmannaforingi J a u r é s
gerði gys að þessu í blaði sínu og líktj
því við hina kátlegu stjórnarbyltingartil-
raun, er Dérouléde gerði um árið
og var dæmdur í útlegð fyrir. En
Dérouléde varð fokreiður af þessu og
skammaði Jaurés hinum verstu óbóta-
skömmum fýrir, en nú missti Jaurés líka
jafnvægið og hann, sjálfur friðarpostulinn,
skoraði Dérouléde á hólm. Þó að Dér-
ouléde sé landrækur, þá var samt ekki
amast við, að hann skryppi snöggvast inn
fyrir landaroærin til þess að afljúka svona
áríðandi erindi, og þó að einvígi sé með
lögum bannað á Frakklandi fengu þeir
þó óáreittir að eigast við. Annars var
einvígi þetta með öllu hættulaust. Hvor
skaut tveim skotum eitthvað út 1 loptið
og svo skildu þeir að því búnu.
8. des. dó Syveton þingmaður sá,
sem löðrungaði André hermálaráðherra
mjög skj'ndilega. Var fyrst látið í veðri
vaka, að hann hefði kafnað af kolasvælu
á skrifstofu sinni, en brátt varð það talið
fullsannað, að hann hefði ráðið sér sjálf-
ur bana og það eftir hvötum konu sinn-
ar, sem hafði fengið vitneskju um, að
hann héldi fram hjá henni með dóttur
hennar. Vakti þetta hið mesta hneykslí
og kærkomið umtalsefni fyrir blöðin. Kom
þá einnig upp úr kafinu ýmislegt fleira
hárugt í fari hans t. d. hafði hann dregið
í sinn sjóð allmikið fé frá „Bandalagi ætt-
jarðarvinanna", erhannvar framkvæmdar-
stjóri fyrir. Stjómarblöðin hlökkuðu mjög
yfir þessu og kváðu þarna mega sjá, hvern-
ig „patriótarnir" væru inn við beinið.
Járnbrautarslys varð á Norður-
Frakklandi 23. f. m. Einn vagn mölbrotn-
aði. Einungis 12 menn biðu þó bana, en
allmargir meiddust.
Fyrir nokkrum dögum var stolið 5 póst-
pokum úr járnbrautarlest. Ipokunumvar
gull, silfur og seðlar, er nam mörg hundr-
| uð þús. franka. Pokunum hafði verið
kastað út um glugga meðan lestin var á
ferðinni.
Austurríki. Nú um áramótin urðu
ráðaneytisskipti í Austurríki. Dr. v.
K o e r b e r, sem í 5 ár hefur gegnt hin-
um vandasömu stjórnarforsetastörfum þar
með allmiklum dugnaði fór nú frá völd-
um og bar fyrir sig heilsulasleik. Aðalá-
stæðan mun þó hafa verið sú, að hann
hefur ekki séð sér fært að halda niðri
hinum ævarandi deilum milli Þjóðverja
og Tékka, sem standa i vegi fyrir nytsörou
löggjafarstarfi. Fríherra v. Gau tsch er
orðinn ráðaneytisforseti í stað hans.
Ungverjaland. Samlyndið ( ungverska
þinginu hefur löngum verið harla bágbor-
ið og löggjafarstarfið gengið stirðlega, því
að minni hlutinn reynir að gera framgang
málanna sem erviðastan. Stjórnin hefur
því gert nokkrar breytingar á þingsköp-
unum, til þess að koma í veg fyrir þetta,
en minnihlutinn telur breytingarnar lög-
leysu eina. 13. des. létu þeir í Ijósi gremju
sína yfir þessu á alleinkennilegan hátt.
Um morguninn söfnuðust þeir saman í
þinghúsinu, hentu þjónunum, sem þar voru
á dyr, brutu alla stóla og borð, sem voru
í miðjum þingsalnum og réðust síðan að
forsetastólnum, en þar höfðu þá allmarg-
ir þingsveinar leitað hælis og bjuggust nú
til varnar. Eptir skamma en allharða við-
ureign urðu þingmennirnir ofan á, en
voru þó sumir sárir orðnir. Tisza ráða-
neytisforseti hefur ekki látið neinn bilbug
á sér finna við þetta tiltæki, heldur þvert
á móti gert ráðstöfun til sakamálsrann-
sóknar gegn sökudólgunum. Eins og geta
má nærri hefur samkomulagið ekki batn-
að eptir þetta. Nú hefur þingið verid
leyst upp og efnt til nýrra kosninga, þó
að ekkert fjárlagafrumvarp hafi orðið sam-
þykkt af þinginu.