Þjóðólfur - 10.03.1905, Qupperneq 3
43
áður en nokkur sjúklingur var kominn í
það, segir »Norðurl.«
Skarlatssótt
hefur að nýju gert vart við sig á Akur-
eyri og Svalbarðsströnd, án þess á henni
hefði bólað fulla 2 mánuði.
Stjórnar afmœll.
Ársafmæli nýju stjórnarinnar var hald-
ið hátíðlegt á Akureyri 1. f. m. með
skemmtisamkomum og miklum ræðuhöld-
um, og átti það vel við. Eru Akureyr-
ingar fjörmenn miklir og gleðimenn, og
auðsjáanlega mjög hneigðir fyrir veizlu-
höld og ræðuhöld.
Kong „Trygve"
fór héðan til útlanda 7. þ. m. Með
honum tók sér far til Hafnar Þorvaldur
prófastur Jónsson á Isafirði. Ennfremur
Sveinn Sigfússon kaupm., Chr. B. Eyjólfs-
son ljósmyndari, Pétur Ólafsson verzl.stj.
frá Patreksfirði, Torfi Tómasson verzlm.
frá Stykkishólmi, Gundersen skipstj. af
»Scandia« með 5 hásetum o. fl.
Nýtt þingmannsefni
kvað verða í kjöri á Akureyri auk
Magnúsar Kristjánssonar, svo að hann
verður ekki einn um hituna. Það er
Guím. læknir Hannesson, sem kvað eiga
að fylla skarð Páls Briem fyrir Valtýinga,
hvernig sem það gengur. Akureyringar
ættu nokkurnveginn að geta metið þing-
mannshæfileika þessara þingm.efna hvors
um sig. Þeir ættu að þekkja báða menn-
ina nógu vel til þess. Það er vonandi
að Akuieyrarbúar verði ekki til þess, að
fjölga pólitiskum æsingamönnum á þingi,
því að þar eru fullmargir fyrir í valtýska
hópnum.
1 villu og svíma
eins og optar veður ritstj. „Þjóðv." í s(ð-
asta blaði sínu 7. þ. m., þar hann telur Jón
Laxdal verzlunarstjóra höfund „pistilsins af
ísafirði" er birtist í Þjóðólfi 10. febr. Hr.
J. L. á engan þátt í þeirri grein, svo að
ritstjóri „Þjóðv." verður að senda einhverj-
um öðrum fsfirðing kvittun eða þakkarávarp
á sína vísu fyrir þá goðgá(!).
Páll Einarsson
sýsltimaðtir t Gull-
bringu- og Kjósar-
sýslu
Gerir kunnugt: Mér hefur tjáð
Páll Vídalín, fyr bóndi í Laxnesi í
Mosfellssveit, en nú til heimilis í
Reykjavík, að hann sé Þbieyddur sam
kvæmt konunglegu leyfisbréfi, er hann
hefur fengið í dag, að fá ógildingar-
•dóm á skuldabréfi, útgefnu 22. maí
1889 af Guðmundi Olafssyni til handa
Magnúsi Ólafssyni fynr 1800 króna
skuld nteð I. veðrétti í jörðinni Lax-
nesi í Mosfellshreppi, en skuldin sam-
kvæmt bréfi þessu er borguð að fullu
og skuldabréfið glatað, áður en það
var afmáð úr veðmálabókinni.
Því stefnist hér með, með árs og
dags fresti þeim, sem kynni að hafa
ofangreint skuldabréf í höndum, til
þess að mæta á manntalsþingi Mos-
fellshrepps árið 1906, er haldið verð-
ur í þinghúsi hreppsins dag þann, er
síðar verður auglýstur, til þess þar og
þá að koma fram með téð skuldabréf,
og sanna heimild sína til þess. Að
öðrum kosti mun stefnandinn krefjast
þess, að skuldabréfið verði dæmt dautt
og marklaust, þannig að afmá megi
það úr veðmálabókinni.
Til staðfestu nafn mitt Og embættis-
innsigli.
Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu,
20. jan. 1905.
Páll Einarsson.
Firma-tilkynnlng.
Samkvæmt lögum 13. nóvbr. 1903
um verzlunarskrár, firma og prokura-
umboð hefur eptirgreind firma verið
tilkynnt til innfærslu í verzlunarskrá
Suður-Múlasýslu:
Hlutafélagið „Det islandske Hval-
fangerselskab" rekur hvalveiðar frá
Svínaskálastekk í Reyðarfirði og hag-
nýtir sér þar veiðina. Samþykktir eru
gerðar 29. nóvbr. 1896. í stjórn fé-
lagsins eru: Adm. Direktör, Ásgeir
Guðmundur Ásgeirsson til heimilis í
Gentofte. — Stjórnarráð: x) Nathan
Heine formaður, 2) Emmerich Mathias
Ludvig Möller, 3) Waldemar Holm. —
Direktör eða formaður stjórnarráðsins
rita firmað hver fyrir sig. Höfuðstóll
er 280,000 kr. í hlutum upp á 4000
kr. er hljóða á nafn. 25% innborgað
24/i2 1896; afgangurinn er stjórnin
krefst þess. — Birting í Statstidende
í Köbenhavn.
Skrifstofa Suður-Múlasýslu.
Eskifirði 9. febr. 1905.
A. V. Tulinius.
Leirtau
selst mjög
ódýrt i verzlun
Sturlu Jónssonar.
Pálmasápa
Steinollumótorinn
,DA N‘
er bezti mótorinn, sem ennþá hefur komið til landsins.
Dan mötorinn fékk hærri verðlaun á síðustu sýningu en nokkur
annar mótor.
Dan mótorar, sem hingað hafa komið til landsins, hafa allir und-
antekningarlaust gefist ákaflega vel.
Undirskrifaður einkaútsölumaður Dan mótora á Suðurlandi gefur all-
ar nauðsynlegar upplýsingar viðv. verði o. s. frv., og útvegar einnig vandaða
báta smáa og stóra með mótor ísettum.
Reynslan hefur sýnt að bátur, sem eg hef útvegað, eikarbyggður með
6 hesta mótor, hefur hingað kominn verið að stórum mun ódýrari en hér
smíðaður bátur úr lakara efni. Bátur þessi er eikarbyggður með litlu hálf-
dekki að framan, ber ca. 80 til IOO tonna þunga og kostaði hingað upp kom-
inn ca. kr. 3300 — með mótor og öllu tilheyrandi; það hafa verið á honum
3 menn, og hefur hann verið brúkaður við síldveiði, uppskipun, til flutninga
og við fiskiveiðar, og hefur nú eptir ca. 4 mán. brúkun borgað liðlega helm-
inginn af verði sínu.
Allir, sem mótorafl þurfa að brúka, hvort heldur er í báta (smáa og
stóra), hafskip eður til landvinnu ættu að snúa sér til mín, áður en þeir festa
kaup annarsstaðar. Það mun áreiðanlega borga sig.
Stokkseyri 31. des. 1904.
r r
Olafur Arnason.
ÁTVINNA.
afaródýr eptir gæðum
í 2 pd. stykkjum 0,30 pr. pd., í l/a
pd. stykkjum 0,16. Fæst inn við
laugap hjá Jóni Guðmundssyni á
Laugalandi og á Sápuverkinu.
Með því að viðskiptabók nr. 176
við sparisjóðinn í Húnavatnssýslu hef-
ur glatazt, innkallast hér með sá, er
nefnda bók kann að hafa með hönd-
um, til þess að afhenda hana innan 6
mánaða frá fyrstu birtingu þessar aug-
lýsingar.
Stjórn sparisjóðsins í Húnavatnssýslu.
Blönduósi 10. febr. 1905.
Gísli fsleifsson. Pétur Scemundssen.
r
Alnavara allskonar
nýkomin í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Á sfðastliðnu hausti var mér dregin raud-
stjörnótt (ekki rauðskjótt) hryssa 3 v. með
mínu marki: blaðstýft aptan hægra, sýlt
vinstra og biti aptan. Þar eg á ekki hryssu
þessa, getur réttur eigandi vitjað hennar og
borgað áfallinn kostnað.
Deildartungu 2. jan. 1905.
Vigdís Jónsdóttir.
Skírnarkjólarnir margeptirspurðu
eru aptur komnir í Veltusund 1; verð : frá
2,75—6,00.
Kristfn .Tónsdóttir.
Kaup-tilboð óskast í velþekkt verzl-
unarhús ( miðbætium.
Eitt hið fegursta 'ibtíðarhús d bezta stað,
auk smærri og stærri húsa víðsvegar (bæn-
um. Allir lysthafar velkomnir.
Gisli Þorbjarnarson.
Eg kaupi mikið nf briikuðum
(stiinpluðum) frfmerkjum frá íslandi
og Danmörku gegn eptirkröfn. Tilboð
sendist
0. E. Simon, Aussig
Oesterreich.
Iðnaðarmannafélagið vill kaupa allt að
100 ten. föðmum af grjóti
til uppfyIlingar í Tjörnina.
Tiiboð sendist Magnúsi Benjamínssyni
úrsmið fyrir 2 0. þ. m .
Sö
“3
Qí
O*
CD
CO
&
Z3
crq
cz
Ekta Kína lifs eliíxr
hefur fengið gullmedalíur, þar sem
hann hefur verið á sýningum í Amst-
erdam, Antverpen, Brússei, Chicago,
Lundúnum og París.
Kína-lífs-elixir er því aðeins ekta,
að á einkennismiðanum stándi vöru-
merkið: Kínverji með glas ( hendi og
nafn verksmiðjueigandans: Waldemar
Petersen, Frederikshavn Köbenhavn,
og sömuleiðis innsiglið —þ— í grænu
lakki á flöskustútnum
Fœst hvarvetna fyrir 2 kr. fl.
Lífstykkin góðu
komin aptur í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Húfur og hattar,
mikið úrval, nýkomið í verzlun
Sturlu Jónssonar,
Hér með er skorað á skuldheimtu-
menn í dánarbúi Kristjáns Sigurðsson-
ar í Hákoti’ á Akranesi, er andaðist
19. f. m., að lýsa kröfum sínum og
sanna þær fyrir skiptaráðanda hér í
sýslu áður en 6 mánuðir eru liðnir
frá síðustu birtingu þessarar auglýs-
ingar.
Skrifstofu Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
17. febr. 1905.
Sigurður Þórðarson.
Verzlun
Jónat. Þorsteinssonar
31 Laugaveg 31
hefur alltaf nægar birgðir afhúsgögn-
urn og öllu þar til heyrandi.
Með næstu skipum er von á miklum
birgðum.
Lítið inn á Laugaveg ji.
Uppboðsaugiýsing.
Samkvæmt kröfu Lárusar Benedikts-
sonar uppgjafaprests, og að undan-
gengnu fjárnámi 15. þ. m., verður■ */«
húseignin nr. 1 í Lindargötu hér í
bænum, tilheyrandi Jóni kaupm. Helga-
syni, boðin upp og seld á 3 opinber-
um uppboðum, sem haldin verða kl.
12 á hád. föstudagana 10. og 24. n.
m. og 7. apríl þ. á. Tvö hin fyrstu
uppboðin fara fram á skrifstcfu bæj-
arfógeta, en hið síðasta í húseigninni
sjálfri. Söluskilmálar verða til sýnis
hér á skrifstofunni 2 dögum fyrir hið
fyrsta uppboð.
Bæjarfógetinn í Reykjavlk 24. febr. 1905.
Halldór Daníelsson.