Þjóðólfur - 17.03.1905, Blaðsíða 2
48
annars tungu, og mynda þannig sam-
band roilli þessara þriggja frændþjóða, er
séu allt of ókunnar hver annari. Ritar
hr. Patursson grein í »Dimmalætting« um
þetta efni og hefur auðsjáanlega mikinn
áhuga á málinu.
Samkoma í Reykjadal —
Minning stjórnarbótarinnar.
Heill og sæll Þjóðólfur minn!
Eg hefði viljað vera búinn að senda
þér línu fyrir löngu, en það hefur alltaf
dregizt, mest vegna þess, að fréttirnar
hafa alltaf verið litlar; þær eru það að
vísu enn, en um þessi ttmamót finnst
mér eg þurfa að senda þér kveðju, þakk-
læti fyrir stöðu þína í pólitíkinni þetta
síðasta ár, — eins og að undanförnu, —
og ósk.um heill og hamingju á hinu ný-
byrjaða ári. — Hinn i. febr. þ. á. héldu
Reykdælir samsæti í tilefni af því, að
fyrir ári síðan fengu Islendingar kröfur
sínar, um innlenda stjórn, viðurkenndar,
og að hin innlenda stjórn var þá búin að
sitja i ár að völdum. Þessir gestir voru
boðnir til samsætisins: Steingrímur Jóns-
son sýslumaður á Húsavík, Árni prófast-
ttr Jónsson á Skútustöðum, Benedikt Jóns-
son frá Auðnum, Sigurjón Friðjónsson á
Sandi, Jón kaupfélagsstjóri Jónsson á
Gautlöndum og Friðbjörn Bjarnarson frá
Grýtubakka; alls voru þar um 50 manns.
Stóð samsæti þetta yfir í 8 kl.st. og þótti
fara fram hið bezta, með ræðuhöldum og
söng. Ræðu fyrir minni stjórnarinnar hélt
Steingrímur sýslumaður, fyrir minni al-
þingis séra Helgi Hjálmarsson á Helga-
stöðum, fyrir minni þingmannsins Sigurð-
ur katipfélagsstjóri Sigfússon á Halldórs-
stöðum, fyrir minni þjóðarinnar Sigurjón
Friðjónsson. Þá hélt Árni prófastur langa
og ítarlega ræðu um stjórnarbaráttuna allt
frá 1851 og til þessa tíma, og Steingr.
sýslumaður hélt þá einnig langa ræðu,
um afstöðu þjóðarinnar gagnvart stjórn-
inni. Var báðum þessum ræðum fagnað
með dynjandi lófaklappi. Margir fleiri
héldu þar og ræður, svo sem: Ingólfur
læknir Gíslason, Haraldur bóndi Sigur-
jónsson á Einarsstöðum o. fl. —> írS'end-
ír^T^Pýsa^það.álit fram. -■rt'T' tilhlýðilegt
þætti, að 1. febr. yrði framvegis, eins og
rtokkurskonar þjóðmenningardagur fyrir
íslendinga, yrði hafður til fundahalda í
sveitunum (þar eð ekki er hægt, að
koma á héraðsfundum á vetrum), til minn-
ingar um þau rnikilsverðu umskipti á
stjórnarfari Islands, sem urðu 1. febrúar
1904.
Reykjadal í S.-Þingeyjarsýslu 2. febr. 1905.
Viðstaddur.
Afneitun dr. Valtýs.
Svolátandi greinarstúfur hefur oss verið
sendur til birtingar:
Herra ritstjóri I
Af því að sumir, sem við mig hafa
talað, hafa skilið ummæli Þjóðólfs um
greinar þær, er birzt hafa í blaðinu »Vort
Land« gegn ráðherra Islands, á þá leið,
að gefið væri 1 skyn, að þær mundu af
mínum rótum runnar, og skeð gæti, að
einhver legði trúnað á það, þá vil eg hér
með lýsa því yfir, að eg hef engan þátt
átt f þeim, hvorki beinlínis né óbeinllnis,
enda bera og greinarnar Ijóslega með sér,
að þær eru eingöngu af dönskum rótum.
Og til þess nú um leið að afstýra því,
að nokkur slíkur misskilningur geti risið
upp framvegis, ef slíkt kemur fyrir, vil eg
taka það skýrt fram, að eg fordæmi all-
ar tilraunir til að veikja stöðu ráðherrans
ú t á v i ð og skoða þær sem árás á okk-
ar ungu sjálfstjórn, sem öllurn íslending-
um ætti að vera annt um að styrkja sem
bezt. Líki mönnum ekki við ráðherrann
og vilji koma honum fyrir kattarnef, þá
á að berjast á móti honum á íslenzk-
u m vígvelli og láta hann falla fyrir ís-
lenzkum vilja. Á þeim vígvelli mun eg
ekki hika mér við að ráðast á hann,
hvenær sem inér virðist ástæða til En
að reyna að veíkja stöðu hans út á við,
eða á nokkurn hátt stuðla að því, /ið
hann félli fyrir útlendum vilja, er að
minni skoðun svo hættulegt fyrir sjálf-
stjórn vora, að eg mun aldrei geta átt
nokkurn þátt í því, hversu mikill and-
stæðingur minn sem ráðherrann kynni að
vera og hversu feigan sem eg kynni að
vilja hann sem stjórnanda landsins.
Mönnum er því óhætt að reiða sig á,
að eg mun engan þátt eiga 1 árásum á
ráðherra vorn f útlendum blöðum, hver
sem hann svo er, og allra sízt nafnlaust.
Og skyldi það nokkurn tíma fyrir koma,
að eg þættist knúður til að skrifa um
stjórnarfarið íslenzka í dönsk blöð eða
tímarit, þá skal það verða með mínu
fulla nafni undir, svo ekki sé um að
villast.
Þessa yfirlýsingu vona eg að þér takið
í blað yðar.
Khöfn 25. febr. 1905.
Valtýr Guðmundsson.
*
* *
Svo er að heyra sem dr. Valtýr hafi
heyrt það úr ýmsum áttum, að hann væri
bendlaður við níðgreinarnar um ráðherr-
ann f »Vort Land«, og sýnir það með-
allagi gott álit á honum sem pólitikus,
að honum skyldu almennt vera eignuð
slík launvíg. En nú hefur hann svarið
og sárt við lagt, að hann væri ekkert
við greinar þessar riðinn, og verður að
taka það trúanlegt(P), enda þótt hin pólitiska
fortíð hans hafi stundum verið nokkuð
blendin. En nú hefur hann hátíðlega
lýstþvíyfir, að hin pólitiska framtíðar-
barátta hans skuli vera hrein og bein og
háð í tullri dagsbirtu, og er það ágætt.
Svo á það einnig að vera. Og ráðherr-
ann mun naumast verða smeikur að skilm-
ast við hann á þeim vfí'yelli, verja 1
þar &&r3íi sinar. Hér er því um þýðing-
"aí’ínikla yfirlýsingu að ræða frá dr. Valtýs
hálfu, setn vonandi er, að hann standi
við. Og það má hann vita, að Þjóðólf-
ur mun fljótt komast á snoðir um, ef
misbrestur skyldi verða á þessum lofsam-
lega ásetningi doktorsins, því að blaðið
hefur fyr grafið upp hitt og þetta, er
leynt hefur átt að fara (sbr. höfundskap
»Hávarðar« og »Atla«-greinanna víðfrægu
í »ísafold« sutnarið 1902 o. m. fl.). Að
lokum skal þess getið, að oss þætti mjög
vænt um, ef dr. Valtýr vildi gera oss og
löndum sínum þann greiða, að skýra frá
því, hvaða þokkapiltur það er, sem stöð-
ugt er að nfða og rægja stjórn vora í
»Vort Land«, því að naumast er hann
danskur sá náungi. Það væri vel gert af
dr. Valtý að afklæða þann snáða frammi
fyrir þjóðinni, því að vér þekkjum engan
í Höfn annan en doktorinn, sem líklegri
væri til að hafa einhverja nasasjón af
þessu, enda ber yfirlýsingin alls ekki með
sér, að honum sé þetta ókunnugt, held-
ur að eins, að hann sjálfur eigi ekki
þátt í greinunum.
R i t s t j.
Mannalát.
Hinn 16. f. m. andaðist á Eskifirði
Carl Daniel Tulinius konsúll Svía
og Norðmanna á 70. aldursári, fæddur í
Slésvík 1. sept. 1835, kom rúmlega tvítug-
ur hingað til lands og kvæntist 1859 Guð-
rúnu dóttur Þórarins prófasts Erlendsson-
ar á Hofi f Álptafirði. Hún dó 30. ágúst
f. á. Elzti sonur þeirra er Þórarinn Er-
lendsson (Thor E.) Tulinius stórkaupmað-
ur í Khöfn. Tulinius konsúll hafði sjálf-
ur verzlun á Eskifirði 40 ár (frá 1863—
1903). Hann var mesti dugnaðarmaður,
höfðingi í lund og sæmdarmaður í hví-
vetna. Kona hans var og hin mesta á-
gætiskona. Eiga Austfirðingar bæði hér-
aðshöfðingja og valmenni á bak að sjá,
þar sem Tulinius konsúll var. Hann var
sæmdur riddarakrossi St. Ólafsorðunnar
af 1. fl.
Hinn 26. janúar andaðist Eirfkur
Einarsson bóndi í Bót í Hróarstungu,
einhver hinn merkasti og efnabezti bóndi
í Fljótsdalshéraði, og bjargvættur sveitar
sinnar; hafði gert miklar jarðabætur á
jörð sinni. Hann dó úr lungnabólgu ept-
ir fárra daga legu.
Manntjón.
I síðasta blaði var þess getið, að 4
menn hefðu orðið úti á Austfjörðum í
sunnudagsstórhríðinni 8.jan. Tveirþeirra
voru úr suðurfjörðunum: Finnur Vigfús-
son frá Eskifirði og Bjarni Eiríksson frá
Bakkagerði í Reyðarfirði, báðir hnignir á
efra aldur. Hinir tveir voru frá Hauks-
stöðum á Jökuldal: Pétur Jónsson ungur
maður og Sigmar Hallgrímsson á 13. ári;
höfðu verið sendir út á Héraðssanda að
sækja matvöru og voru á heimleið, er
hríðin skall á. Höfðu heyrzt köll til
þeirra á sunnudagsmorguninn frá 2 bæj-
um 1 Hróarstungu, að því er »Austri«seg-
ir. Fundust lík þeirra daginn eptir nokkru
fyrir innan Hallfreðarstaði.
Bruni.
Hinn 20. jan. brann verzlunarhús Gríms
Laxdals kaupmanns á Vopnafirði til kaldra
kola. Var húsið eign pöntunarfélags
Vopnfirðinga, en leigt Grími kaupm. Hús
og vörur vátryggt.
„Ceres“
kom hingað frá útlöndum og Austfjörð-
um 12. þ. m. og með henni allmargir
Austfirðingar, þar á meðal Georg Georgs-
son læknir frá Fáskrúðsfirði, Hansenkon-
súll frá Seyðisfirði, Magnús Jónsson kenn-
ari frá I "sdamóLi' *o. m. fl.
„Laura“
kom hingað frá útlöndum að morgni
13. þ. m. með fjölda farþega, þar á með-
al voru kaupmennirnir: Ásgeir Sigurðsson
með frú sinni, Th. Thorsteinsson konsúll,
Jón Brynjólfsson ogjónatan Þorsteinsson,
ennfremur Halldór Júlíusson cand. jur.,
Sturla Guðmundsson stud. rnag., C. Fred-
eriksen yfirbakari, frk. Guðrún Sigurðard.
(Rvík), frk. Guðmunda Nielsen (Eyrar-
bakka), frú Gunnhildur Thorsteinsson
(Bíldudal), P. J. Thorsteinsson kaupmað-
ur (Bfldudal) o. fl.
„Nanna“
aukaskip frá Thorefélaginu kom 13. þ.
m. Það hafði enga farþega, en nærfull-
fermi af vörum.
Ranghermi Ingólfsritstjórans.
í síðasta tölubl. „Ingólfs" 12. þ. m. stend-
ur framhald'af grein með yfirskript: „Svar
til hr. Tr. G.“; en af þvf að dálitið í grein
þessari snertir Framfarafélag Reykjavíkur,
leyfi eg mér, sem einn af meðlimum Fram-
farafélagsins, að gera við hana stutta at-
hugasemd.
Blaðið segir meðal annars, að í vetur hafi
verið höfð sú aðferð, að auglýst hafi verið
sem fundarefni bæjarmál, en svo talað um
ríkisráðssetu og stjórnmál. Þessu leyfi eg
mér að mótmæla sem alveg ósönnu.
Eg hefi sótt flesta fundi í Framfarafélaginu,
og hefur þar aldrei með einu orði verið
minnst á rfkisráðssetu eða stjórnmál, heldur
fylgt dagskrá, og er það næsta merkilegt,
að heiðvirðir blaðstjórar skuli leyfa sér að
flytja önnur eins ósannindi og þetta út um
allt land.
Auðvitað mun það eiga að vera til þess,
að rýra álit hr. bankastj. Tr. G., en þetta
er barnaskapur; hr. bankastjóri Tr. Gunn-
arsson er svo alþekktur um land allt fyrir
sinn tnakalausa dugnað bæði í landsmálum
og eins þeim málum, sem snerta einstök
héruð landsins, að á gerðir hans þarf„Ing-
ólfur" ekki að hugsa sér að geta kastað
nokkrum skugga.
Miklu fremur ættu Landvarnarliðar að
leitast við, að einhverju leyti, að feta í fót-
spor bankastjórans, og þó aldrei væri að
þeir næðu nema tánum, þar sem hann hef-
ur haft hælana, þá mundu þeir verða skoð-
aðir sem nýtir menn.
En meðan þeir vinna sér ekkert annað lil
frægðar, en að ausa auri beztu menn þjóð-
arinnar, þá verða þeir vegnir og léttvægir
fundnir,
Hvað hefur Landvarnarliðið unnið sér til
frægðar ?
Reykjavík 15. marz 1905.
Edilon Grímsson.
Eptirmæli.
Um húsfrú Matthildi heit. Ólafs-
dóttur í Vík f Mýrdai, er andaðist 6. (ekki
4.) f. m. (sbr. 10. blað) ritar nákunnug-
ur maður þar eystra á þessa leið:
„Matthildur sál. var óefað ein af mestu
dugnaðar- og sæmdarkonum, ekki einungis
þessarar sveitar, heldur að líkindum þessa
lands, — um það kemur vfst öllum saman,
er til þekktu. Suður-Víkur heimilið bar þess
jafnan ljósan vott, að því stýrðu jafnt innan
húss sem utan styrkar hendur, en jafnframt
móðurlegar. Hjónabandið var fyrirmynd;
ætíð voru þau hjón samtaka um allt, ekki
einungis í því að auka efni sín með framúr-
skarandi dugnaði, heldur og engu síður í
þvf, að láta aðra njóta góðs af velgengní
þeirra, og kom það fram í ótal myndum
Það var eins og Matthildur sál. teldi það
skyldu sína að liðsinna þeim, er bágt áttu,
bæði með góðum og ríkmannlegum gjöfum.
Einskonar . .þuag. undimliiá ia..;.iáí ,'uann-
dyggðar virtist stjórna störfum hennar. Ekk-
ert var henni fjær skapi en að láta mikið
á sér bera eða sýnast; öll framkoma henn-
ar bar vott um það. Heimilið varríki henn-
ar, og því stýrði hún með óvenjulegri snilld
ásamt manni sínum. Þaðan kom mörgum
styrkur og þangað var fyrst leitað, ef ein-
hvers þurfti við. — Foreldrar, er létu börn
sín frá sér, kepptust við að koma þeim að
Suður-Vík; það heimili hefur lengi veri(í
álitið bezt til menningar ungu fólki og fyrir-
myndar um flest hér nærlendis, enda mun
leitun á slíku sem því. Matthildur sál. virt-
ist jafnan koma fram, bæði við heimafólk
sitt og gesti með hlýrri alvöru, enda var sá
enginn, er eigi unni henni og virti. Þrátt
fyrir mjög bilaða heilsu síðustu árin virtist
hún jafnan ánægð, og væri hún spulð um
heilsufarið, sagði hún einatt brosandi: „mér
er að batna", eða „mér batnar bráðum",
og lýsir þetta einkarvel skaplyndi hennar.
Hennar er mjög saknað, ekki einungis af
vandamönnum nær og fjær, heldur einnig
af heimilisfólkinu, er unni henni sem beztu
móður, sveitungum hennar og öðrum, er
hana þekktu". G.
Sigurdur Sigurðsson, fyr bóndi f Lang-
holti í Flóa, andaðist hér í bænum 5. þ. m.
á 74. aldursári. Hann var fæddur í Vet-
leifsholtsparti í Rangárvallasýslu 5. septem-
ber 1831 og ólst þar upp hjá foreldrum sfn-
um : Sigurði Ólafssyni bónda þar (syni Ólafs
í Vetleifsholti Sigurðssonar Hafliðasonar í
Borgartúni Þórðarsonar ráðsmanns í Háfi
Þórðarsonar sýslumanns á Ingjaldshóli Stein-
dórssonar) og Ingveldi Þorsteinsdóttur, syst-
ur Filippusar á Bjólu, þangað til faðir hans
dó, en þá fluttist hann með ntóður sinni
út í Flóa að Oddagörðum og síðan að Lang-
holti. Þar bjó hann í rúm 40 ár eða til
1901. Hann var kvæntur Margréti Þor-