Þjóðólfur - 04.08.1905, Side 3

Þjóðólfur - 04.08.1905, Side 3
ÞJÓÐOLFUR. Þjóðræðissýningin á Austurvelli. Samkoman á Austurvelli mun hafa átt að vera höfuðnúmerið í herhlaupinu i. ágúst. Hve áhrifamikil sjón mundi það vera, að sjá allan bændalýðinn standa frammi fyrir hinni forkláruðu ásjónu Garðaklerksins, og afneita stjórninni og öllu hennar athæfi. En „allar byssur klikkuðu", þegar á átti að herða, og vesallegri mótmælasamkomu munu varla nokkur dæmi til. Þessi merki- lega samkoma hófst með því, að séra Jens steig upp á bekkinn hjá Thorvaldsenslíkn- eskinu og skýrði frá tilsvörum ráðherrans við sendinefndina. En svo var snildin mik- il á framsetningunni, að sumir áttu bágt með að átta sig á, hvernig svörin hefðu faliið. Sumir héldu jafnvel, að ráðherrann hefði alveg gugnað, líklega ekki getað stað- izt hina guðlegu mælsku Garðaklerksins, og faliið til fóta sendinefndinni. Þó varð hin skoðunin ofan á, að hann hefði engan bilbug látið á sér finna, og guðdómskraptur séra Jens hefði hér reynzt algerlega ófull- nægjandi. Þegar Jens hafði loks stunið upp sfðustu orðunum, var farið að leika á lúðr- ana þjóðsöng Frakka og þótti öllum það góð viðbrigði eptir alla áreynsluna við að tína saman orðin, sem hrutu af vörum klerksins. Brátt fóru nú ýmsir götudrengir úr Rvík að hrópa allskonar stráksskaparorð, en bændurnir vissu ekki almennilega hvað- an á sig stóð veðrið eða hvað til bragðs skyldi taka. En þá stóð upp skörungurinn Þorsteinn Thorarensen á Móeiðarhvoli, hæfi- lega hýrgaður innvortis, og leysti þá úr læðingi. Baðaði hann út höndunum og hrópaði: „Niður með þá stjórn, sem ekki vill þjóðarviljann". Þetta þrítók hann, en ekki entust menn til að taka undir það með honum nema tvisvar. Enda var það hreinasta ofætlun, að gera táð fyrir slíkum áhuga af þessari samkomu og sýnir það, hvf- líkur stórræðamaður Þorsteinn er. En þessi hetjuskapur hleypti þó fjöri í guðsmenmna. Biskupsfrændinn, sem leigður hefur verið af landsfé til þess að rannsaka ritninguna, fylltist guðmóði og færðist í aukana. Varð honum þá að orði, að nú ætti að syngja Islendingabrag, enda fellur þessum. drottins strfðsmanni lfklega betur að kyrja hann heldur en Davíðssálma. Hann fékk nú þessa ósk sína uppfylta og var lagið leikið á hornin, nokkrar hræður kyrjuðu undir, en prestaöldungurinn séra Stefán á Mosfelli, stóð upp á bekk og „dirigeraði". Var það ógleymanleg sjón, sem ætti skilið, að As grfmur gerði ódauðlega, að sjá þennan lieljarklerk þrunginn af anda guðsins (Bakk- usar) löðrunga loptið f allar áttir eptir hljóð- fallinu í íslendingabrag. Ekki voru þeir, sem teymt höfðu bænd- urna þarna inn á völlinn, að hafa fyrir því að halda ræður og skýra málin fyrir þeim, heldur létu þeir götustrákana talca við allri stjórninni, því það verður ekki talið, þó að Guðmundur Finnbogason hafi verið eitthvað að fimbulfamba hér sem annarsstaðar. Honum hefur líklega þótt bændurnir vera nokkuð skammt komnir f lýðmenntuninni, að taka ekki meiri þátt en þeir gerðu í hinum andlegu íþróttum götu- strákanna. Þeir sem mest bar á á samkomu þessari, voru vinnumenn „generalsins“ (Isaf.-Bj.) og og aðrir götustrákar. Hrópuðu þeir: „Nið- ur með föðurlandssvikarana" og önnur álfka prúðmannleg orð. Var auðséð á ýmsum bændunum, að þeir kunnu illa við sig í þessum hóp, og mundu víst helzt hafa ósk- að, að þeir hefðu aldrei látið narra sig í slíkan leiðangur. Enda kom það f ljós, þegar „generalinn" fór að bjóða þeim að koma til fundar í Búruhúsinu seint um kveldið til þess að geta kvatt þá, þá varð einum þeirra að minnsta kosti það á, að segja upphátt við sjálfan sig: „Og eg held maður sé búin að bíða nógu lengi“. Hann hefur líklega hugsað til töðunnar heima hjá sér, enda var brakandi þerrir, og hefur honum þótt óþarfi að vera að bíða heilan góðviðrisdag ennþá eptir kaffi og súkkulaði þjóðræðisfélagsins. Það má annars heita í meirá lagi óskammfeilið, að narra þannig heilan hóp bænda til þess að þjóta til einskis gagns, en sjálfum sér til minnkunar, suður til Reykjavíkur um hásláttinn, og eyðileggja þannig fyrir þeim 4—5 beztu dagana af sumrinu. Þá mun líklega ein- hverja muna um minna; að minnsta kosti er svo að sjá, þegar þeir telja það óþol- andi álögur, sem þeir fái ekki undir risið, ef kaffipundið hækkar um 3 aura vegna tollhækkunarinnar. Jafnvel þótt þeir fái ein- hverja þóknun fyrir vinnutapið, þá getur það trauðla bætt skaðann að fullu. Það væri því ekki nema eðlilegt, að brúnin kynni að síga á einhverjum, þegar hann er kominn heirn og fer aðgera upp reikning- inn. En svo eg víki aptur að skrípaleiknum, þá voru götudrengirnir ( sjöunda hirnni og brunnu af löngun eptir að gera einhvern „skandala". Héldu þeir nú upp að þinghúsi með alls- konar miður fögrum hvatningarorðum, og sendu þingmönnum þeim, sem staddir voru uppi á svölunum, tóninn. Einn upprenn- andi námsmaður og listamaður gekk þar t. d. um og var að telja menn á að hrópa: „Niður með þingið", en enginn vildi þó verða til þess, og sjálfur áræddi hann það ekki. Loks ruddust allmargir af þessu fríða liði inn í þinghúsið, en hörfuðu bráðlega út aptur, enda var lögreglan þá farin að spyrjast fyrir um nöfti þessara pilta. Mun þá ekki hafa langað til að fá nokkurra ára vist hjá Sigga, og þótt ráð- legast að gera ekki frekar að. Bændurnir höfðu nú flestallir tínzt f burtu og mönnum fór nú að leiðast að horfa á þessi meiningarlausu skrípalæti, og höfðu sig á brott, en þegar áhorfendurnir voru farnir, þótti götudrengjunum heldur ekki neitt „púður" í að vera að þessu Iengur og höfðu sig líka á brott. Þannig endaði þessi makalausa mótmæla- samkoma gegn stjórninni, sem „generalinn" og legátar hans höfðu verið að undirbúa í marga daga, og smalað til um allar sveitir meðal sinna flokksmanna. Þessi samkoma varð ekki annað en'„grfn“ fyrir fólkið á kostnað Þjóðræðishersins, sem veitti mót- stöðutnönnum sínum hér svo einstaklega gott tækifæri til þess að brosa að einfeldni hans og barnaskap. Ahorfandi. JÞjóðræðislierinn. Félag eitt er stofnað hér í bænum, sem nefnist „fijódrœdisféfag". Er Ísafoldar-Björn helzti frumkvöðull þess. Hann er nú orð- inn laus við prentun og umsjón á útgáfu Þingtíðindanna, og má geta nærri, að hon- um muni hafa verið kærkomið, að þeirri byrði hefur verið af honum létt, svo að hon- um gefst tóm til að gefa sig við stofnun og stjórn þessa mikilvæga félags. Sumir segja, að fyrirmynd félagsins muni hafa verið Snörufélagið í Fíladelfíu, sem Björn hefur svo fagurlega lýst í ísafold fyrir skömmu, en hvað stjórnina snertir, er það í lfku sniði og Hjálpræðisherinn, enda á það nú að verða hjálpræði hinna sameinuðu til þess að ná völdum á landi þessu, og úthluta sérhverjum réttilega það, sem honum ber, af þeim gæðum, er þá falla í þeirra skaut. Markmið félagsins virðist vera að vekja svo miklar æsingar í helztu stórmálum þjóð- arinnar, að menn ekki fáist til þess að at- huga málin með stillingu og skynsemi og leiti nauðsynlegra upplýsinga, ‘ heldur ham- ist í blindni og þyrli upp sem mestu ryki í kringum sig. Æzti „general" félagsins er „þjóðarfrömuðurinn" Isafoldar-Björn, en svo koma skör lægra hver af öðrum, majórar, óberstar o. s. frv. allt niður að sveitarfor- ingjum, sem hafa dálftinn hóp til að passa upp á, svo að þeir villist ekki úr hjörðinni. En Einar er brúkaður sem „aðjutant", til þess að nota í hvað sem er, ef á þarf að halda. Má geta því nærri, að þessi her muni all ægilegur, þegar hann ryðst fram með sjálfan „generalinn" og „aðjutantinn" f broddi fylk- ingar, og lætur óspart rigna „patent“-kúlunum úr hinu ríkulega sIagorða-„magasíni“ fsa- foldar. n. n. Mannalát. Hinn 24. f. m. andaðist Gtiðmundur Auðunsson, fyr bóndi á Jafnaskarði í Stafholtstungum og Lækjarkoti í Borgar- hrepp, fæddur 5. apríl 1834, kvæntur Guð rúnu Bjarnadóttur, átti 6 börn með henni. Fyrirmyndar bóndi að útsjón og fram- takssemi. Gestrisinn og vinsæll. Bezti ráðanautur fátækra granna sinna. Sérlega hagsýnn og auðsæll. Hreppsnefndarmað- ur í mjög mörg ár, fyrst í Stafh.tungum síðar f Borgarhrepp. — Verður jarðaður á Borg 5. ágúst. (E. F.). Veitt læknishérað. Hornafjarðarlæknishérað er 6. f. m. veitt Halldóri Gunnlaugssyni cand. med. Riddarar af dannebrogsorðunni eru orðnir Jón Helgason prestaskólakennari, Zophonías prófastur Halldórsson í Viðvík og L. Zöllner stórkaupmaður. „Kong Trygve“ kom hingað frá útlöndum 31. f. m., og með honum nokkrir farþegar, þar á meðal Halldór Gunnlaugsson cand. naed. og frú hans. Chr. Fr. Nielsen agent, Hans Hansson, Sig. Jónsson járnsmiður, Sveinn Björnsson stúdent, frk. Leopoldína Hall- dórsdóttir (Daníelss. bæjarfóg.), frú Inger Östlund og móðir hennar, frk. Dagmar Bjarnason (frá París) norskur verzlunarm. Gundersen. Til Vestm. F. A. Bald með franskan spftala, sem á að byggja þar, Asgrímur Jónsson málari (frá Vestmanna- eyjum) o. fl. Mislingaveikt barn (norskt) var á skip- inu, hafði fengið mislingana á leiðinni. Var það þegar sett í sóttvarnarhald hér og allir þeir á skipinu, er ekki höfðu áður fengið mislingana. „Botnia“ kom í fyrradag snemma frá útlöndum, með tnarga útlenda ferðamenn, en '>Hól- ar« í fyrrakveld austan um land. Þýzkt herskip kom hingað í gærmorgun. „Modesta“ (Gjestsen), aukaskip Thorefélagsins, kom hingað frá Leith 2. þ. m. með vörur hing- að til Reykjavíkur. Skipið fer héðan til Keflavíkur og Eskifjarðar. Sjómannablað. Matthías Þórðarson skipstjóri er tekinn að gefa út mánaðarrit tim fiskiveiðar og farmennsku, er nefnist »Ægir«, og er fyrsta blað þess komið út fyrir skömmu. Er þar meðal annars allfróðleg skýrsla um, hvað Norðmenn geri til eflingar fiski- veiðum sínum, um fiskiklak o. fl. Verð blaðsins er 2 kr. um árið. Lausn frá embætti hefur Þorsteinn Jónsson héraðslæknir í Vestm.eyjum sótt um frá 1. okt. næstk. Ný frumvörp auk þeirra, sem nefnd hafa verið: Löggilding verzlunarslaðar í Skildinganesi. Flm.: Ág. Flygenring og Jón Ólafsson. Stofnun peningalotteris d íslandi. Flm.. Pétur Jónsson. Fellt frumvarp: Gjald til landsjóðs frd sýslufélögum, frv. milliþinganefndarinnar í fátækramálum, sem stjórnin lagði fyrir þingið, var fellt í n. d. 31. f. m. með 16: 9 atkv. (með nafna- kalli). Þingnefndir: Aðflutningsbann d dfengi (Nd.): Guðm. Björnsson, Árni Jónsson, Guðl. Guðm., Tr. Gunnarsson, Magnús Andrésson. fijóðjarðasala (Ed.): Þorgr. Þórðarson, Guðj. Guðlaugsson, E. Briem, Ág. Flygen- ring, Þór. Jónsson. Hefð (Nd.): L. H. Bjarnason, Guðl. Guðm., Ól. Thorlacius, Bj. Bjarnarson, Egg. Pálsson. Vdtrygging sveitabœja (Nd.): Pj.Jónsson, Þórh. Bjarnarson, ÓI. Briem, J. Magnús- son, Hannes Þorsteinsson. Lög frá alþingi: 12. Lög um skýrslur um alidýrasjúkdóma, (að stjórninni beri að annast um, að teknar séu árlega skýrslur um hina helztu alidýrasjúkdóma hér á landi). 13. Lög um að nema úr gildi l. I2/n—fy um porskanetalagnir í Faxafióa. 14. Lög um að stofna slókkvilið d Akureyri 141 »Taktu undir Indriði!« Svo er sagt, að þá er sendinefndin gekk frá ráðherranum og Garðaklerkurinn hafði skýrt vini sínurn Isafoldar-Birni frá svörum ráðherrans, þá hafi Björn karlinn hrópað fyrstur: „Niður með stjórnina", en þá er Undirtektirnar urðu engar, kallaði Björn: „Taktu undir Indriði!" og gaut um leið hornauga til Indriða nokkurs Indriðasonar, sem er prentsveinn hjá Birni, frændi Indriða Einarssonar og lftt að manni. Er sagt, að Indriði hafi svarað þessari áskorun húsbónda síns með „húrra". Síðan er þetta haft að orðtaki hér f bænum „Taktu utidir Indriði!" og er allmjög hlegið að. Útlendar fréttir o. fl. er er ekki komst að, kemur i næsta blaði, fyrri hluta næstu viku. Vorumerki. Skrás. 1905 nr. 2. Tilkynnt 26. júlí 1905 kl. 4,15 síðd. af Þorkeli Þor- kelssyni Clementz vélfræðing í Reykja- vík og skrásett 27. s. m. Elgshorn með fjórum kvíslum og stafirnir E L G milli kvíshnna: Vörumerkið á að eins að nota á reiðhjól og reiðhjólalinii, þar með tal- in reiðhjól með hreyfivélum (bifhjól) og motorvagnar (bifreiðar). Skrifstofu vörumerkjaskráritarans í Reykjavík 27. júlí 1905. Charles Lipman Köbenhavn V. Telegramadr.: „Manlip“ Modtager saltet Lammeköd, Fisk. Laks, Rogn og Rypcr, som betales med meget höje Priser. Reference: Den danske Landmandsbank, Vestetbro Afdeling i Köbenhavn. Þinghúsgarðurinn er opinn sunnud. 6. ágúst kl. 1—2V2 e. h. Leiðarvfsir til lífsáhyrgðar fæst ókeypis hjá ritstjórununi og hjá dr. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim, sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar upplýsingar. ' uaA O'V’masklner i storste % -*■ Udvalg til ethvert Brug, ;-s»í^5a^ Fagmands Garanti. — Ingen 'Mjrnnly Agenter. Ingen Filialer, derfor I Jrfi billigst i Danmark. — Skriv straks og forlang stor illustreret \ Prisllste, indeholder alt om Symaskiner, sendes gratis. G. J. Olsen, Kibenhavn. L Nikolajgade 4, mjyplf6 Einar M. Jónasson cand. jur. gefur upplýsingar lögfræðilegs efnis, flytur tnál fyrir undirrétti, gerir samn- inga, selur og kaupir hús og lóðir o. s. frv. Heima kl. 4—7 e. m. í Vest- urgötu 5 (Aberdeen). Bezt kaup Sköfatnaði í Aðalstræti ÍO. Til sölu ibúðarhús, og bæir i Reykjamk og jarðir í grendinni. Gísli Þorbjarnarson heima kl. 1011 og J 4

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.