Þjóðólfur - 01.09.1905, Page 1
57. árg.
Reykjavík, föstudaginn 1. september 19 05.
Jts 37.
Verzlunin ,EDINB0RG‘ í Reykjavík
fær alltaf nýjar birgðir af vörum.
L VEFNAÐARVÖRUDEILDINA eru nýkomin fín og falleg fataefni handa karl-
mönnum. Ljómandi kjólatau, léreft og sirz kanda konunum. Slipsi handa
stúlkunum. Leikföng handa börnunum.
í NÝLENDUVÖRUDEILDINA: matvörur, kryddvörur, leirvörur handa húsmæðr-
unum. — Ymsir óáfengir drykkir handa Templurunum. — Harmonikur,
Graphofonar og Graphofonvalsar „fyrir fólkið".
í SKÓFATNAÐARDEILDINA: skór handa körlunum, konunum og b'órnunum.
í PAKKHUSDEILDINA: matvörur handa heimilunum. Kaðlar, línur, netagarn og
segldúkur handa útgarðarm'ótiuunum og ótalmargt fleira.
Bezt að spyrjast fyrst fyrir um vörur og verð á þeim
í verzlun EDINBORG.
Vígsla Sogsbrúarlnnar.
Laugardaglnn 9. september
kl. 2 e. h. verðurbrúln á Sog-
inu hjá Alviðru aO öllu for-
fallalausu opnuO tll umferðar
fyrir almenning af H. Hafstein
ráOherra.
Fyrirtaks kaup,
Lítilli klœðaverksmiðju, sem er feng-
in úr þrotabúi, ætlar hinn núverandi
eigandi að breyta og nota til annars,
og verða því vélarnar seldar fyrir upp-
boðsverðið. — Vélarnar eru yfirleitt í
fyrirtaks standi. Lysthafendur eru
beðnir að senda svo fljótt sem unnt
er tilboð mrk. „Fabrik 4169“ til Aug.
J. Wolff & Co Ann. Bur. Kjöben-
havn.
Frá alþingi.
IX.
AOflutningsbann. Nefndin í þvl máli
(Guðl. Guðm., G. Bj. (frs.), Árni J., M.
Andr., Tr. G.) er öll á einu máli um það,
að áfengisnautn sé þjóðfélaginu til einskis
gagns, en baki því hinsvegar mikið ógagn,
þar sem hún hefur í för með sér bæði
fjársóun, vinnutjón, heilsuspjöll og siðferð-
isspjöll, svo að mikið kveður að, þegar á
allt þjóðfélagið er litið. Þjóðin sé að vísu
komin lengra áleiðis en flestar aðrar þjóð-
ir í því efni að útrýma áfengisnautninni,
enda séu erfiðleikarnir líka hér margfalt
minni en víðast hvar annarsstaðar. Hér
sé auðgefið að færa sér í nyt einasta ör
ugga ráðið til þess að útrýma áfengisböl-
inu, með því að lögleiða aðflutningsbann
á, áfengi. Mótbárurnar gegn því séu ekki
á nægilegum rökum byggðar. Engu að
síður telur nefndin rétt og hyggilegt, að
áfengisnautnin sé þá fyrst afnumin til fulls
með aðflutningsbanni, þegar sú ráðstöfun
er orðinn vilji mikils meiri hluta t. d. að
minnsta kosti “/3 hluta þjóðarinnar, því að
þá fyrst mundu þesskonar lög koma að
tilætluðum notum. Til þess nú að rann-
saka, hvort tími sé kominn til slfkrar laga-
setningar, álítur nefndin bezt henta, að
Öllum kosningabærum mönnum verði veitt-
ur kostur á að greiða atkvæði um málið;
ætlast hún til, að atkvæðagreiðslan verði
leynileg og landstjórnin gangist fyrir henni.
Neðri deild hefur samþ. þingsályktun um
að skora á stjómina að láta slfka at-
kvæðagreiðslu fara fram samhliða næstu
almennum kosningum.
Uudirskriptarmálið var til umræðu í
efri deild á mánudaginn (28. f. m.). Höfðu
Valtýingar þar í deildinni borið fram
þingsályktunartill. samhljóða þeirri, er bor-
in var fram af félögum þeirra í neðri
deild. Jóhannes sýslumaður talaði fyrir
henni og ráðherra svaraði. Lauk svo, að
xökstudd dagskrá, samhljóðu þeirri, sem
samþ. var f n. d., var samþ. með 6 atkv.
(Valtýingar voru gengnir af fundi).
Fjárlögin urðu fyrir allmiklum breyting-
um í efri deild. Meðal annars strykaði
hún út flestar fjárveitingar til vegagerða
og um fjárveitinguna til ritsímaálmunnar
til ísafjarðar hefur þegar verið getið hér í
blaðinu. Þegar málið kom fyrir neðri deild
aptur voru ýmsar af breytingum efri deildar
í burtu felldar, (þar á meðal tjárveitingin til
ísafjarðarálmunnar). Efri deild lét sér þó
þettá lynda og samþykkti frv. óbreytt —
hálfnauðug þó — á mánudaginn, svo að
það fór ekki í sameinað þing. Hér skal
nú getið um hverjar breytingar eru helzt-
ar orðnar á fjárlögunum frá því, er neðri
deild skildi við þau í fyrra skiptið og get-
ið var í næstsfðasta blaði.
Tekjuhallinn er því nær hinn sami,
en þó lítið eitt hærri eða rúm 200 þús. kr.
Fellt íburtu hefur verið 10 þús. kr.
styrkur sfð. á. til þess að koma upp heima-
vistarbarnaskólum utan kaupstaða og 3
þús. kr. styrkur f. á. og 5 þús. síð. á. til
sýslunefnda til þess að halda uppi fræð-
andi og vekjandi fyrirlestrasamkomum
til sveita á vetrum.
Lækkaðar hafa þessar fjárveitingar
verið: Til unglingaskóla úr 2500 og 3000
kr. niður í 1500 og 2500 kr., til búnaðar-
skóla úr 12,100 og 11,600 kr. niður í 11,800
og 9,900 kr., til utanfara iðnaðarmanna
úr 2200 kr. niður í 1500 kr. á ári og til
kveldskóla fyrir iðnaðarmenn á Isafirði
úr 800 kr. niður í 600 kr. á ári.
Hækkaðar hafa verið þessar fjárveit-
ingar: Verðlaun fyrir útflutt smjör úr 15
þús. upp í 18 þús. kr. á ári, til útrýming-
ar fjárkláðanum úr 5 þús. kr. f. á. upp í
20 þús. kr. f. á. og 10 þús. kr. síð. á. og
laun yfirmatsmanna á gæðum fiskfarma úr
800 kr. upp í 1000 kr. á ári til hvors þeirra.
Þessar nýjar fjárveitingar hafa ver-
ið settar inn : Til þess að koma upp sótt-
varnarhúsi á Seyðisfirði 5 þús. kr. t. á.,
styrkur til að koma upp heimavistar- og
heimangöngubarnaskóla á Vopnafirði helm-
ingur kostnaðar, allt að 5 þús. kr. f. á.,
utanfararstyrkur til Margrétar Fr. Bjarna-
dóttur til fullkomnunar í námi við heyrn-
ar- og málleysingjastofnunina í Kaupmanna-
höfn 400 kr. f. á., til unglingaskólans á
Heydalsá í Strandasýslu 400 kr. á ári, til
viðbótar við samskot til minnisvarða Jón-
asar Hallgrímssonar 2000 kr. sfð. á., til
mag. art. Ágústs Bjarnasonar til þess að
gefa út heimspekilega fyrirlestra 50 kr. f.
örkina allt að 600 kr. á ári, til Jóns Sig-
urðssonar tit að stunda rafmagnsfræði í
Khöfn 400 kr. á ári, til Björns Pálssonar
til að stunda rafmagnsfræði á Harward
háskóla 600 kr. f. á. og 250 kr. síð. á., til
Hólmfrfðar Árnadóttur til þess að stunda
kennaranám í Khöfn 500 kr. f. á. og til
Lárusar Jóhannssonar Rist tilþess að ljúka
leikfimisnámi 350 kr. f. á.
Ræktunarsjóðnrinn. Frv. um breyt. á
Ræktunarsjóðslögunum var loks samþ. í
sam. þ. þinglokadaginn (29. f. m.) eptir
. hrakninga fram og aptur milli deildanna.
Ágreiningsefnið var það, að efri deild setti
inn í það ákvæði um, að sjóðurinn skyldi
greiða 4% vexti í landsjóð af andvirði
þjóðjarða þeirra, sem seldar verða eptir
1. jan. 1906. Þetta vildi n. d. ekki fallast
á og færði vextina niður í 2%, en e. d.
færði þá aptur upp í 3% óg þannig var
frv. samþ. í sam. þingi.
Kennaraskólinn. Þetta frv. var einnig
að hrekjast á milli deildanna og var Ioks
fellt í sam. þ. þinglokadaginn. Eins og
getið hefur verið áður um hér í blaðinu
var ágreiningsefnið milli deildanna það,
að neðri deild vildi hafa skólann í Reykja-
vík, en efri deild vildi hafa hann í Flens
borg og í sambandi við gagnfræðaskólann
þar. I sam. þ. var fyrst samþ. breyt.till.
um að hafa skólann í Hafnarfirði, en önn-
ur breyt.till. um að hafa skólann f sam-
bandi við gagnfræðaskólann þar var felld.
Með frv. í þessari mynd greiddu svo 25
atkv., en 13 á móti og var það þar með
fallið, með því að til samþykktar í satn.
þingi þarf “/3 hluta atkv. Þeir 13, er atkv.
greiddu á móti málinu voru: Árni Jóns-
son, Bj. Bjarnarson, Gutt. Vigfússon, Jóh.
Jóhannesson, Jón Jakobsson, Jón Jónsson,
Júl. Havsteen, Magn. Stephensen, Pétur
Jónsson, Sk. Thoroddsen, Tr. Gunnarsson,
Þórarinn Jónsson og Þorgr. Þórðarson.
Yllrskoðunarmenn landsreikning.mna eru
kosnir Hannes Þorsteinsson ritstjóri
(endurkosinn) af neðri deild og G u ð j ó n
Guðlaugsson alþm. af efri deild.
Gæzlustjóri söfnunarsjódsins hefur
Magnús Stephensen landshöfðingi
verið kosinn af neðri deild.
Eudurskoðandi landsbankaas er endur-
kosinn af sam. þingi Jón Jakobsson
bókavörður.
I Byggingarnefnd til aðstoðar landstjórn-
inni við byggingu bókasafnhússins og breyt-
ingu á alþingishúsinu voru kosnir í sam.
þingi þinglokadaginn Tryggvi Gunn-
arsson, Guðm.Björnssonog Jón
Jakobsson.
Þjóðvi nafélagsstjórnin var endurkosin
af þinginu á þriðjudaginn: Tr. Gunnars-
son (form.), Eir. Briem (varaform.), B. M.
Olsen, Hannes Þorsteinsson og Jón Jak-
obsson.
Lög frá alþingi:
30. Lög um beitutekju. (Sérhver sá, er
heimild hefur til fiskiveiða í landhelgi,
má á land setja skelfisksbeituverkfæri
og farvið af skipi sínu, þar sem ekki
er friðlýst æðarvarp, selalátur eða ár,
sem laxveiði er í, og skal hann greiða
1 kr. fyrir sólarhring eða sketnmri
tíma, sem hann tekur beitu. Eigt má
taka beitu í netlögum nema með leyfi
jarðaábúanda).
3t. Lög um innköllun seðla landsjóðs ogút-
gdfu nýrra seðla.
1. gr. Kostnað við gerð og endurnýjun
seðla þeirra, sem landstjórninni er heim-
ilt að gefa út fyrir landsjóð samkvæmt
lögum 18. sept. 1885 og lögum 12. jan.
1900, skal eptirleiðis greiða af tekjum
bankans. Stjórnarráðinu skal heimilt að
innkalla þá seðla, sem út hafa verið gefn-
ir samkvæmt nefndum lögum og konungs-
úrskurði 20. maí 1886, með ársfyrirvara,
þannig, að þeir verði ógildir, þegar sá inn-
köllunarfrestur er liðinn. Auglýsing ttm
innköllunina skal birt í Stjórnartíðindun-
um og í blaði því á Islandi, er flytur op-
inberar auglýsingar, svo og í Ríkistíðind-
unum í Kaupmannahöfn, og auk þess les-
in upp á kirkjufundum í sveitum á þann
hátt, sem fyrir er mælt í tilskipun 8. okt.
1824, 2. gr.
2. gr. Jafnóðum og þeir landsjóðsseðl-
ar, sem nú eru í gildi, koma inn til lands-
bankans, eptir að út er komin auglýsing
utn, að nýjar seðlategundir hafi verið út
gefnar skal landsbankinn skila þeim til
landstjórnarinnar, og fær í staðinn jafna
upphæð í nýjum seðlum, og heldur bæði
stjórnarráðið og landsbankinn skrár, er
sýni seðlaskiptin. Þegar liðið er 1 ár frá
því er innköllunarfrestur var á enda, skal
líta svo á, sem þeir af hinum gömlu seðl-
um, sem ekki eru til innlausnar komnir,
séu glataðir, og afhendir landstjórnin þá
landsbankanum í nýjum seðlum upphæð
þá, sem vantar á, að 750,000 kr. hafi verið
innleystar í gömlum seðlum. Upphæð
þessa skal færa til ágóða í reikningum
bankans.
32. Lög um vátrygging sveitabœja og ann-
ara húsa í sveitum, utan kauptúna.
1. gr. Sveitarfélögum á fsl. er heimilt
að stofna með skylduábyrgð brunabótar-
sjóöi fyrir bæi og hús í hreppum utan
kauptúna. Lög þessi tiltaka verksvið þeirra,
en fyrirkomulagið skal ákveðið í reglugerð.
17. gr. Nú hafa 13 hreppar tilkynnt
stjórnarráði Isl., að þeir hafi stofnað bruna-
bótasjóð samkvæmt lögum þessum, og
skal það jafnskjótt stofna sameiginlegan
brunabótasjóð fyrir sveitahíbýli á íslandi.
Er hlutverk hans að veita endurtrygging
brunabótasjóðum hreppanna. Til stofn-
unar þessa sjóðs veitast 10,000 kr. úr land-
sjóði.
33. Lög um aívinnu við sig/ingar. (Sjá 29.
tbl. Þjóðólfs).
34. Lög um löggilding verztunarstaðar að
Skildinganesi við Skerjafjörð.