Þjóðólfur - 15.12.1905, Page 3
221
ÞJOÐO LFUR
STANDARD
er bezta og ódýrasta lífsábyrgðarfélagið. Það stendur óhrakið. Eitt
af þeim félögum, sem vill keppa um það, er félagið Dan, en þegar þau eru
borin saman verður það þannig, að maður, er kaupir eins ódýra lífsábyrgð
og unnt er í báðum félögunum borgar fyrir 1,000 kr. lífsábyrgð á ári:
35 ára: 36 ára : 37 ára: 38 ára: 39 ára: 40 ára
í Standard: 22.80. 23.50. 24.40. 25.20. 26.10. 27.00.
í Dan 23.58. 24.46. 26.36. 36.36. 27.40. 28.49.
Þetta ætti að nægja til þess að sýtia, hve miklu ódýrara er að tryggja
sig í Standard; það sem Standard mælir sérstaklega með er tvöföld lífsábyrgð
og fjárábyrgð, sem er sérstaklega hentug en þó ódýr. Ekkert annað félag
hér hefur hana. Utvegið yður sem fyrst upplýsingar utn það efni.
Standard borgar meiri bónus en önnur félög.
Sérhver sá, er hugsar um framtíð sína eða sinna, ætti sem fyrst að
^ryggja sig í Standard, því með því getur hann séð sér og sínum borgið á
ellidögunum. Dragið það ekki til morguns.
Pétur Zóphöníasson,
Bergstaðastræti 3. (Heima 4—5 síðd.).
Beztu og ödýrustu jólagjafir
fást í
Brauns verzlun ,Hamburg‘
Bezta kaup á fötum.
Beztu kaup á hrokknum sjölum.
Mikið úrval af:
Allskonar BUXUM, NÆRFÖTUM og PEY8UM.
Svart silki, frá 5,65 og margar góðar, smekklegar og ódyrar vefnað-
arvörur, sem eru heppilegar í
Jólag{aiir.
Reykið Brauns vindla um jólin!
Fyrir Jölin!
verður áreiðanlega langbezt að kaupa
Skófatnað
hjá
L. G. Lúðvigssyni,
því hjá honurr. fæst að eins vandaður,
smekkklegur og ódýr skófatnaðlir
með miklum afslætti, alt að
»0
Notið tækifærið!
Bókaverzl. Guðm. Gamalíelssonar.
Handa unglingum;
SÖgur Og- æfintýri eptir H. C. Andersen. Steingrímur Thorsteinsson
þýddi; kosta 3 kr., í bandi 4 kr. Bók þessari hefur verið tekið með hinum
mesta fögnuði um land allt, enda fer þar saman snilld höfundarins og þýðandans.
Æfintýri eptir J. L. Tieck, þýdd af Jónasi Hallgrímssyni, Konráði
Gíslasýni, Stgr. Thorsteinsson og séra Jóni Þorleifssyni; kostar í bandi 85 aura.
Stutt kennslubók í íslendingasögfu handa byrjendum, eptir
Boga Th. Melsteð, með uppdrætti og sjö myndum; kostar í bandi 0,85.
Mannkynssaga handa unglingum, eptir Þorleif H. Bjarnason. Bók
þessi er að nokkru leyti þýðing á hinu ágæta söguágripi »Börnenens Verdens
Historie« eptir Johan Ottosen; kostar í bandi 1,50.
Æskan, barnablað með myndum, kemur út mánaðarlega, og auk þess
jólablað skrautprentað; kostar 1,20 árg.
Danskur
skófatnaður
frá
W, Scháfer
& Co.
í
Kaupmannahöfn
Skófatnaðarverksmiðja W. Scháfer’s & Co. í Kaupmannahöfn býr
til allskonar skófatnað, sem er viðurkenndur að gœðum og með nýtízku
sniði og selur hann nieð mjög lágu verði.
Af þessum góða skófatnaði eru úrvalsbirgðir í Reykjavík hjá herra
Þorsteini Sigurðssyni
Laugaveg 5.
Gólfteppi, Vaxdúkur
(á borð) af nýrri og fallegri gerð, mjög ódýr, er nýkomið í verzlun
J. P. T. BRYDES i Reykjavík.
Stór Jólabazar
er opnaður í J. P. T. Brydes-verzlun.
Margir ágætir munir.
Stór útsala.
10-50°|o afsláttur á álnavöru
verður til jóla í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Lux-Lampinn
........................
ber mesta og skærasta birtu af öllutn þeim ljósáhöldum, er nú höfum vér.
(Sjá bæjarljóskerið við Nýjubryggjuna og lampann í Brydesbúð með 500
hrertaljósa birtu hvort Og ljóskerið fyrir framan Brydesbúð með
120 kertaljósa birtu).
LUX-LAMPINN er einnig ÖdýrastUP og fæst af öllum
stærðum í verzlun J. P. T. Brydes í Reykjavík. Vanur
maður sér um að setja lampana upp og leiðbeinir kaupendum, hvernig á að
meðhöndla þá.
Auglýsing
um styrk til lögfræðings til þess að búa sig undir að verða
kennari við lagaskólann.
í 13. gr. IX fjárlaganna fyrir árin 1906 og 1907 er veittur 2500
kr. styrkur hvort árið til lögfræðings, til þess að búa sig undir að verða fast-
ur kennari og forstöðumaður við hinn fyrirhugaða lagaskóla. Þeir lögfræð-
ingar, sem hafa í hyggju að sækja um styrk þennan, verða að hafa sent
umsókn um hann til stjórnarráðsins innan 1. marz 1906.
Stjórnarráð islands 8 desbr. 1905.
Segl- og mótorbáta
af ýmsum stærðum frá einni hinni nafnkendustu bátasmlðastöð á Norðurlönd-
um geta menn hér eptir pantað hjá undirrituðum, sem hefur e i n k a-útsölu á
íslandi á bátum frá smfðastöð þessari. Nánari upplýsingar geta menn fengið
hjá mér í næstkomandi janúarmánuði, og nú þegar nægilegar upplýsingar,
til þess að bátar verði pantaðir. Ástæðan fytir því, að eg hefi tekið að mér
útsölu á bátum þessum, er sú, að nú á síðustu árutn hafa ýmsir menn, sem
ekkert skynbragð bera á sjómennsku né bátalag. verið að vasast í að
útvega mönnum hér á landi báta frá útlöndum, sem að lagi til standa að mutv
neðar en góðir íslenzkir bátar.
Reykjavfk 9. desember 1905.
Bjarni Þorkelsson
skiþasmidur.