Þjóðólfur - 04.05.1906, Blaðsíða 1
58. árg.
Reykjavík, föstudaginn 4. maí
1906.
M 21.
Meðal alls þess „sælgætis“ sem fæst í
Verzi. EDlNBORGíReykjavík
má meðal annars nefna:
Cadbury’s Cream Chocol. í kössum á O, io, 0,25, 0,35 o. s. frv.
do. milk Cliocol. 1 plötum 0,50.
Kirsebær (kandiseruð 1,10
og allskonar á.vexti ferska og í dósum o. m. fl.
Nóg til af hinum annáluðu 1 j úffengu
svínslærum er allir sækjast eptir. —
Einnig nýmjóikurostar bráðfeitir á 0,75, 0,85 og 1,00 svo
og thebraud og kaffibrauö margskenar.
Sítron sodavatn og Mörk Carlsberg til að skola
matnum niður með, o. m. fl.
Vefnaðarvörubúðin að Jngólfshvoli'
er nú ein af stærstu vefnaðarverzlunum bæjarins, en þó að eins tveggja ára
gömul. Hefur verzlunin lagt aðaláherzlu á, að selja vandaðar, en þó ódýrar
vörur; enda hefur fólk kunnað að nota það, því alltaf fara viðskiptin við
hana vaxandi og verzlunin þar af leiðandi stækkað mjög mikið á svo stutt-
um tíma.
Vörurnar eru í ár sérlega vel valdar og ódýrar að vanda. Sérstaklega
■skal benda kvennfólkinu á SVUntutauín — kjóiatauin, og þá
eigi sízt á SJÖLIN, sem hvergi fást önnur eins.
Járnrúm frá 6 kr. Saumavélar frá 28 kr.
Útsala á öllu, sem eptir er af japönskum munum.
250/0 afsláttur! 250/0 afsláttur!
Útlendar fréttir.
Kaupmhöfn 20. apríi.
Jarðskjálftinn í San Francisco.
Miðvikudaginn 18. þ. m. kl. 5V4 vökn-
uðu bæjarbúar 1 San Francisco við
ógurlegan jarðskjálfta, sem er lýst þann-
ig, að fyrst hafi jörðin virzt sökkva,
síðan lypzt hátt í lopt upp og sokk-
ið svo aptur niður. Jarðskjálftakippur-
inn kom aptur, og á fáum mfnútum
umbreyttist stór hluti borgarinnar í rústir.
Göturnar hrundu saman og húsin lyptust
frá grunni eins og smáknettir og hrundu
saman með miklu braki yfir höfðum fbúa
sinna, sem annaðhvort drápust og lim-
lestust eða komust á flótta. Allt fólk
flúði, eins og geta má nærri, út úr 'núsum
þeim, er uppi stóðu, og sumt hálf nakið
upp úr rúmunum. En það var ekki nóg
með eyðileggingar þær, er jarðskjálftinn
olli, því skömmu seinna kom upp megn
eldsvoði hér og þar í borginni, er hefur
nú geisað þar í 2 daga samfleytt, og full-
komnað eyðileggingarverkið.
Ástandið í hinni eyðilögðu borg er,
eptir þeim hraðskeytum að dæma, sem
streyma hingað frá Amerlku, hið voðaleg-
asta sem hugsazt getur. Það er fullyrt að
um 5000 mannshafimisstlffið,
en flestir íbúar borgarinnar séu h ú s -
næðislausir eða fullar 300,000
manna; skaðinn af tjóninu er metinn
2000 miljónir króna.
Eins og áður er getið, brennur borgin
enn í 25 stöðum og slökkviliðið getur
ekkert ráðið við eldinn, vegna þess að
vatnsverkin eru eyðilögð. Allar opinber-
ar byggingar stórborgarinnar eru annað-
hvort hrundar til grunna eða brenndar
niður til ösku.
Ofan á allar hörmungarnar í borginni
bætist, að ræningjar og aðrir stórglæpa-
menn rup]a öllu og ræna, bæði lifandi
menn og lík hinna drepnu. Hver maður,
sem gripinn er í ránum eða þjófnaði, er
tafarlaust skotinn til bana.
Eins og nærri má geta, hafa menn um
öll Bandaríkin flýtt sér að veita hjálp á
allan hátt. Stjórnin í Washington hefur
þannig veitt 10 miljónir dollara til hjálpar
hinum nauðstöddu, 200,000 tjöld til skýlis
hinum húsviltu, ógrynni af matvælum og
mikið herlið hefur einnig verið sent til
San Francisco til hjálpar.
Vilhjálmur Þýzkalandskeisari og Fallieres
forseti Frakklands hafa þegar sent hlut-
tekningarskeyti til Roosevelts forseta.
Eldgos úr Vesúv. Eins og menn sjálf-
sagt hafa þegar frétt, hafa hin mestu eld-
gos úr Vesúv átt sér stað frá byrjun þ. m.
og fram í rniðjan mánuðinn, og gert afar-
mikinn skaða og manntjón í bæjum og horg-
um, sem liggja umhverfis þetta fræga
eldfjall. Margir bæir, svo sem Ottojano, er
hefur 19,000 Ibúa, og Guiseppe eyddust
með öllu, sömuleiðis umluktust bæirnir
1 orre del Greco og Boscotrecasse o. fl. af
glóandi hraunflóði og lögðust í eyði. Fleiri
bæir og borgir, svo sem Neapel, biðu
einnig ógurlegt tjón við þessi miklu eld-
gos og jarðskjálfta þá, er fylgdu með þeim,
í>eai kvað að 9. ög 10. apríl.
Öskufallið var svo feiknalegt, að jörð-
in huldist með 5 álna þykku öskulagi á
mörgum stöðum.
Prófessor Mattucci, sem hélzt við
á athugunarstöðinni á Vesúv allan tím-
ann, þrátt fyrir öll ósköpin, sem á gengu,
hefur skýrt frá, að eldlogarnir upp úr
fjallinu hafi verið 500 metra háir, og gló-
andi steinar hafi þeytst3ooo fet í lopt upp.
Skaðinn af eldgosum þessum á Italíu
er áætlaður um 500 miljónir króna; hér
urn bil 150,000 manns urðu húsviltir ‘og
sagt er að alls hafi 800 manns misst lífið.
Konungur og stjórn hafa gert allt til að
hjálpa hinum nauðstöddu, og sömuleiðis
hafa Frakkar, Þjóðverjar og Austurríkis-
menn rétt nágrannaþjóð sinni hjálpar-
hönd með fégjöfum.
Próf. Mattucci hefur fengið há heiðurs
merki fyrir hina ótrauðu framkomu sína.
Marokkofundnrinn. 8. þ. m. skrifuðu full-
trúar stórveldanna á alþjóðafundinum í
Algeciras undir gerðabók (protokoll) fund-
arins og var þá þannig lokiö hinum fræga
fundi um Marokko. I sfðustu fréttum
var getið um höfuðatriði og árangur fund-
arins, og þess að Þýzkaland eða réttara
sagt Vilhjálmur keisari hefði undir niðri
verið sáróánægður með úrslit hans. Þetta
kom og mjög greinilega í Ijosí þakkarhrað-
skeyti, er keisarinn sendi Goluchowski
utanríkisráðgjafa Austurrlkis fyrir þá hjálp
og aðstoð, er Austurríkisfulltrúinn hefði
veitt Þýzkalandi á fundinum í Algeciras.
Þessi orðsending hefur vakið mikið um-
tal og gremju, bæði á Italíu, sem engar
þakkir fékk, en þó einkum á Frakklandi
og Englandi.
Ungverjaland. Loks hefur Franz Jó-
seph keisara tekizt að mynda sér nýtt
ráðaneyti. Hinn nýi ráðaneytisforseti,
sem tók við völdum af Fejervary, heitir
Wekerle og einn af ráðgjöfunum er
Kossuth, sonur frelsishetjunnar frægu;
er af því augljóst, að keisaiinn hefur orð
ið að brjóta odd af oflæti sínu. Aptur á
móti er ekki hægt að segja, að Ungverjar
hafi að öðru leyti unnið mikið við slðustu
tveggja ára pólitiska baráttu sína og t. d.
verður þýzka töluð í ungverska hernum
eins og áður.
Rússland hefur fengið nýtt ríkislán,
2225 miljónir franka að upphæð, einkum
í Frakklandi.
Castro forseti Venezuela hefur lagt
niður völdin, og var hann orðinn þreytt-
ur á að standa í stórræðunum. Var fyrv.
varaforseti Gomez valinn eptirmaður
hans.
Hinn frægi vfsindamaður próf. C u r i e
í París, er fann upp undramálminn „ra-
dium", andaðist 18. þ. m. Hann datt á
götu, en í sömu andránni var vagni ekið
ekið yfir hann. Hann var strax borinn
á spítala, en lézt þar af áverkanum eptir
nokkrar klukkustundir. Curie varð að
eins rúml. 40 ára gamall.
Frá Höfu. Þessa dagana dvelur k í n -
versk seadinefnd hér í borginni
sem er send áf stjórninni til þess að
kynnast menntun vesturlandaþjóða. Tign-
ustu meðlimir nefndarinnar er mennta-
málaráðgjafinn kínverski T s a i-H u n g-T s e
og jarlinn af Foutshov T u a n -F a n g.
Þessum herrum hefur verið tekið hér
með hinum mestu virktum. Friðrik kon-
ungur veitti þeim áheyrn, og íéllu þeir til
fóta honum. Líka hafa þeim verið haldn-
ar miklar og dýrðlegar veizlur og sýnt
allt það markverðasta, sem höfuðborgin
hefur að geyma.
10. þ. m. andaðist prófessor A x e l
H a s 1 u n d rúmlega 60 ára að aldri.
Hann var elztur og merkastur húð- og
kynsjúkdómalæknir Dana.
Nýlegalézt og hér í borginni hin fræga
leikkona frú Eckardt 67 ára gömul.
Hún var íslenzk í föðurætt, þremenningur
að frændsemi við Berg Thorberg lands-
höfðingja.
Til ritstjóra Skúla Thoroddsen!
í 3. tölublaði Þjóðólfs þ. á. birtu 102
kjósendur hér f Eyrarbakkahreppi trausts-
yfirlýsingu til meiri hluta þings og stjórn-
ar. vorrar, og lýstu jafnframt yfir því, að
þeir væru ósamþykkir hinum sffelldu og
ómaklegu árásum á stjórnina.
Ætla hefði mátt, að jafn hógvær yfir-
lýsing hefði annaðhvort verið látin ó-
átalin, eða þá að mælt hefði verið á móti
henni með rökum og sæmilegum ,orðum,
enda hefur hún verið látin hlutlaus af
öllum nema þér, sem í blaði þínu hefur
ritað afar illyrta grein í garð Eyrbekk-
inga.
Þú bregður oss um »þekkingarskort«
og sfádæma ræfilshátt«.
Því skal sízt neita, að menntun ýmsra
hér er á lægra stigi, en vera skyldi, en
svo er víða um land, einnig meðal þinna
eigin kjósenda. Hitt er jafn víst, að hérer
margt manna,sem fullfærir eru um að mynda
sér sjálfstæða skoðun á landsmálum af
lestri blaða og alþingistíðinda. Og hvað
sem því líður, þá brestur þig gersamlega
kunnugleik til þess, að geta með nokk-
urri sanngirni dæmt um menntun og
þekkingu kjósenda hér.
Þú telur sennilegt, að nokkrar stjórn-
arsleikjur hafi »narrað« menn til undir-
skriptanna. Það er leitt, að það sem þú
telur sennilegt, skuli vera ósatt, en því
er þó svo varið í þetta sinn.
Þeir sem máls hófu á þessari yfirlýs-
ingu, eru stjórn vorri lítt eða alls eigi
persónulega kunnugir, og menn hafa hér
sjaldan verið betur sammála en í þessu
yfirlýsingarmáli. Það þurfti því engan að
»narra« til undirskriftar.
. Vér Eyrbekkingar þykjumst hafa það
góðum mönnum á að skipa, að vér höf-
um jafnfullan rétt til, og eins mikið vit
á að láta í ljósi skoðanir vorar á lands-
málum, eins og ýmsir flokksmenn þínir,
sem á síðastliðnu sumri létu rigna yftr-