Þjóðólfur - 02.11.1906, Page 2

Þjóðólfur - 02.11.1906, Page 2
184 ÞJÓÐÓLFUR. Jörðin Hliðsnes á Álptanesi ásamt Oddakotinu fest til kaups á tœkifcerisverði, og til ábúðar n. k. vor. Hún gefur af sér yfir 1 50 kr. um mánuðinn að meðaltali yfir árið, eins Og hún er nCl, ef viðunanlega er setin — auk 5°/o ársvaxta afsöluverðinu. — En mundi geta gefið af sér allt að 300 kr. um mánuðinn, með nauðsyn- legum umbótum. Sjá nánari auglýsing í „Reykjavík“ þ. 6. f. m. Semjið fyrir lok þ, m. við S. B. Jónsson í Lundi í Reykjavík. ÞJÓÐÓLFUR k«mur út einu sinni og stundum tvísvar í viku, 52—60 bloð um árið. Kostar hér á landi 4 kr. árg. Erlendis 5 kr. Gjalddagi 15. júlí ár hvert. Uppsögn skrifleg, bundín við áramót, verður »ð vera komin til útgefanda fyrir 1. október, annars ógild, enda sé kauþandi pá skuldlaus við blaðið. um að fyrirtæki það, sem hér er um að rseða, er stórnauðsynlegt og þýðingar- mikið fyrir sögu og bókmenntir þessa lands. Þá fyrst, er búið er að gefa út söguheimildir þjóðarinnar, verður sagt að fastur grundvöllur sé lagður undir sögu- rannsóknina, en það mun nú almennt viðurkennt hjá flestum þjóðum, að sögu- rannsókn og söguþekking eigi mikinn þátt í að vekja og glæða sanna þjóðrækni. Fram á þennan dag hefur söguheimildum vorum frá síðari öldum verið lítill gaumur gefinn. Þær hafa legið og liggja í söfn- um vorum lítt notaðar og lítt aðgengi- legar öllum þorra manna, og eru þær þó margar hvorttveggja í senn, bæði fróð- legar og skemmtilegar. Þannig mætti hér í þessu sambandi minna á rit eins og t. d. Biskupaæfir Jóns Halldórs- sonar, annála ýmsa frá 17. og 18. öld, morðbréfabæklinga Guðbrands biskups, skjöl og heimildir um Tyrkjaránið, ýmsar æfisögur merkra manna o. fl. Það er lítið útlit fyrir, að Bókmenntafélagið, sem allt til þessa hefur verið það eina félag hér á landi, er nokkuð hefur starfað 1 þessa átt, geti komizt yfir þetta allt eða sinnt því svo ræk.ilega sem æskilegt væri, enda hefur það félag í mörg horn að líta, og starfið á hinn bóginn svo um- fangsmikið, að vel mega tvö félög rækja það 1 senn, án þess að brjóta bág hvort við annað. Tilgangur þessa félags er eingöngu sá, að flýta fyrir útgáfu þeirra heimildarrita frá síðari öldum, ermerkust þykja og mest árlðandi fyrir sögu lands- ins«. Hér er allt tekið fram, sem taka þarf um tilgang og stefnu félagsins. En það áttti í byrjuninni mjög erfitt uppdráttar eins og eðlilegt var, því að félagsmenn voru ekki svo márgir að tillög þeirra hrykkju langt til mikils útgáfukostnaðar. Þingið 1903 neitaði og félaginu um lítils háttar fjárstyrk, og var því ekki annað fyrirsjáanlegt, en að það leystist upp, því að félagsmenn urðu vitanlega óánægðir yfir því, að félagið gaf ekki meira út en það gerði. Þó hleypti félagið sér í nokkr- ar skuldir á þeim árum og stjórnin ákvað, að leggja ekki árar í bát, þótt óbyrlega blési, fyr en reynt væri að nýju, hvort þingið 1905 synjaði enn um alla aðstoð. En eins og kunnugt er, veitti síðasta þing félaginu 600 kr. styrk hvort árið (1906 og 1907) rneð vissum skilyrðum. Nú færðist þegar meira fjör í félagið, þótt hagur þess sé ekki enn svo góður, að það geti ráðizt í stór útgáfufyrirtæki. En það er komið yfir verstu og hættulegustu skerin, og framtíð þess nokkurnveginn tryggð, með því að engum mun koma til hugar að svipta það þeim fjárstyrk, er það nú nýtur, enda munu menn betur og betur sannfærast um það, er stundir líða, að félag þetta hefur ekki verið að þarf- lausu stofnað. Verkefnin, sem fyrir því liggja, eru mörg og mikil, og ekki óhugs- andi, að því vaxi einhvern tíma svo fisk- ur um hrygg, að þaðgeti t. d. með auknum styrk tekið að sér útgáfu Lögþingisbók- anna og útgáfu íslenzkra annála frá 17. og 18. öld., sem væri afarþarft verk og nauðsynlegt, en þyrfti mjög mikinn undir- búning og nákvæmar vísindalegar rann- sóknir á öllum þeim sæg annálahandrita, sem til er frá þeim tímum. En fyrst um sinn getur félagið ekki hugsað svo hátt, og verður að láta sér nægja smærri verkefni. Síðan félagið var stofnað, hefur það gefið útMorðbréfabæklinga Guð- brandsbiskups 4 hepti með fylgi- rkjölum, 3 hepti af Biskupasögum sérajónslærða í H í ta r d al, A1 da- farsbók Páls lögmanns Vída- líns (mjög fróðlegan annál frá 1700— 1709) og byrjað á frásögnumum Tyrkjaránið (1. hepti). Auk þess hafa félagsmenn fengið 2 stór hepti af »Skrá um skjöl og bækur í Landsskjala- safninu«. Allar þessar bækur, samtals 66 arkir, fá nýir félags- menn, sem nú gangaífélagið og borga 5 kr. árstillagfyrir þetta ár (1906) (æfitillag 50 kr.). Menn ættu því að sæta þessum vildar- kjörum, meðan þau standa til boða og ganga hópum saman í félagið, enda hef- ur félagatala aukizt mjög mikið þetta ár og eykst enn væntanlega mikið, þá er almenningi verður kunnugt um þetta kostaboð. En menn ættu að hraða sér með það nú fyrir nýár, því að óvíst er að tilboð þetta verði látið lengur standa. Með því að ganga í félagið gera menn tvennt í senn: styðja gott og þjóðlegt fyrirtæki og eignast sjálfir góðar, fræð- andi og ódýrar bækur. Beiðni um upptöku í félagið sendist formanni þess, dr. Jóni Þorkelssyni land- skjalaverði, en tillög greiðast gjaldker- anum Guðm. bóksala Gamalíelssyni 1 Reykjavík. í hálfum hljóðum. Smápistlar eptir Örvar-Odd. II. Kn útar. Það eru margir og flóknir knútar í lífi manna, stórir knútar og litlir knútar, sem opt verður erfitt að leysa, og sumum svo háttað, að þeir eru óleysanlegir mennsk- um mönnum. Slíkir knútar eru opt riðnir á ýms málefni, er ahnenning varðar, og á hitt og þetta er einstaklinga skiptir mestu. Það er t. d. mesti fjöldi af slík- um knútum hér í bæ. Einn knúturinn, sem virðist þybbinn að fá leysingu á, er t. d. Rauðarár-Grotti, sem nú hefur malað gull úr grjótinu hér umhverfis bæinn sam- fleytt þrjú ár, án þess nokkur viti fyrir hvern hann hefur malað, eða hvort hann hefur malað nokkuð eða ekki neitt af hinum þétta leir í vasa eigendanna. En við þennan knút eru líka fleiri knútar riðn- ir, þar á meðal sá knútur, er hefur riðið svo marga og flókna knúta á málefni bæjarins, að engin tiltök eru að leysa þá, og bærinn stendur því ráðalaus uppi, því að í bæjarstjórninni er enginn Alexander mikli til að höggva þá í 'sundur, nema ef vera skyldi nýi yfirbunumeistarinn, sem kunnur er að kyngi mikilli og leys- ingu ýmissa vandræðaknúta af sjálfum sér. En sjálfur knútameistarinn, sá er kann svo haglega knúta að knýta, trónar í tign sinni hæst á Gimli uppi, og er engum fært í þann helgidóm upp, nema sanntrúuðum mönnum, er syngja saltarann og »pater noster« kvelds og morgna og heita á Sankti Knút hinn danska sér til árnaðar. En meistarinn er svo forvitri, að hann skynjar það af anda- gipt sinni, hvernig sá og sá er innan rifja og hvað hver hugsar um hann. Heyr- ist opt blásið í lúður fyrir hann og gera það sveinar hans. Hafa þeir leirpípur margar og þungar, er þeir rogast með um allan bæinn og selja dýrum dómum. Telja þeir fólki trú um, að pípur þessar séu hið mesta þarfaþing og kosti svo sem ekki neitt, en þegar þær séu komnar um allan bæinn, verði alstaðar jafn hreint og jafnhvítt eins Og hjá meistaranum á Gimli. Og Gimli hækkar og hækkar, rís hærra og hærra frá foldu, eptir því sem pípna- hlaðinn lækkar. En svo eru til ótal fleiri knútar, enn meiri vandræðaknútar, þar á meðal einn, tuttugu ára gamalt handbendi höfuðstað- arins, er kalla mætti stóra knút bæjarins, og óslítanlegur er og óleysanlegur með öllu frá bæjarstjórninni, nema einhver Herkúles væri nú uppi. En því er ekki að heilsa. Og þessi stóri knútur ervold- ugri en allir aðrir bæjarins knútar og fjölkunnugri, því að slagæðar bæjarins sameinast í þessum æðaknút, sem engin hreyfing gengur út írá, þar hverfur allt eins og ofan í sandinn, og sést ekki fram- ar. En bæjarstjórnin horfir í gaupnir sér og veit ekkert hvað orðið hefur af öllum þeim mikla krapti, er út af henni hefur gengið. Og allar framkvæmdirnar lenda þannig í einum knút, einni óleysanlegri flækju, sem enginn botnar í, og til þess að gera vafningana enn flóknari, koma hinir og þessir smáknútar með sína vizku og sinn vef. Og alltaf verða knútarnir fleiri og flóknari. En það er alls ekki hætt við, að bæjarstjórnin geti losnað við þessa höfuðknúta sína, því að þessu er líkt farið eins og með áhangendur og dýrkendur skáldkonunnar litlu, Thit Jensen. Flestallir bæjarfulltrúarnir eru »Knytling- ar«, vilja alls ekki sjá af knútunum sínum, allra sízt af stóra knút þeirra, því að þeir þykjast víst naumast geta lifað knútalausir, þótt bæjarmenn flestir séu á þeirri skoðun, að knútar séu sjaldn- ast mikið til bóta. En hvað tjáir að tala um það. »Knútarnir« eru margir alstað- ar, stórir og smáir, margar snurðurnar, margar misfellurnar, er menn verða að sætta sig við, og þess vegna er engin furða, þótt stjórn bæjarmálefna vorra sé mesta knútabasl. Það er víðar pottur brotinn en hér. Eg vonast til að »Plausor« kunningi minn yrki nú smellinn óð um alla þessa vandræðaknúta, sem vér getum ekki Ieyst á lífsleið vorri, yrki nýja Knytlingadrápu, öllum Knytlingum og knútavinum bæjar- ins til yndis og ánægju. Bókaverzlun Gyldendals í Kaupm.höfn er byrjuð á alþýðuút- gáfu af öllum skáldritum Henriks Ib- sen’s, og á hún að koma útÍ3oheptum, er kosta 50 au. hvert, og kostar þá öll útgáfan 15 krónur. Allir, sem unna skáldskap Ibsens hér á landi, og þeir munu ekki allfáir, ættu að nota þetta tækifæri til að eignast öll skáldrit hans. Nú er Gyldendal einnig byrjaður á að gefa út öll skáldrit Holgers Drach- m a n n s, og er 1. heptið komið hingað til sýnis. Það kom út á 60. afmælisdegi skáldsins 9. f. m. Þessi útgáfa verður öll um 70 hepti, 5 arkir stórar hvert og kostar 50 aura, eða alls 35 krónur. En bókhlöðuverð allra skáldrita Drachmanns er nú um 170 krónur, svo að verðmunur- inn er allmikill. Bóksalar hér taka á móti áskriptum að báðum þessum út- gáfum. Nýjasta skáldsaga Björnstjerne Björnson’s heitir »Mary«, og kom út hjá Gyldendal í f. m. Er þar lýst uppvexti ungrar stúlku af góðum ættum, sem er eptirlætisgoð íöður síns og augnayndi allra pilta, en trúlofast að vilja föður síns ungum manni, er lengi hefur sótt eptir henni, en hún ekki verið neitt sérlega hrifin af, verður þunguð af hans völdum, en vill svo ekki heyra hann né sjá, af því að hún hefur heyrt um hann, að hann hafi við fleiri kvennmenn kenndur verið. Ætlar hún því að fyrir- fara sér í örvæntingu yfir hrösun sinni, en þeirri fyrirætlan er tálmað af manni, sem hún hafði áður hrundið frá sér. Hann býðst til að kvongast henni, og láta eins og ekkert hefði í skorizt. Og hún tekur því boði með fögnuði, og lengra nær sagan ekki. HeimboOi alþingis til dönsku ríkisþingsmannanna var tekið með fögnuði f danska ríkisþinginu, og létu þingmenn í ljósí þakklæti sitt með því að standa upp úr sætum sínum, þá er forsetarnir höfðu skýrt frá boðinu 16. f. m. Dönsk blöð segja, að af þessum 40 þing- mönnum, sem boðnir eru, muni 30 verða teknir úr fólksþinginu, en 10 úr lands- þinginu, og að allir stjórnmálaflokkar í báðum þingdeildum fái leyfi til að velja svo marga hver, að það samsvari stærðar- hlutfalli flokkanna innbyrðis, og þannig verði jafnt skipt á milli þingdeildanna og hvers flokks fyrir sig. Höfðu forsetarnir ráðgert að láta þegar velja nefnd manna til að gangast fyrir öllum undirbúningi þessa máls. Leifar af víkingaskipl frá fornöld eru nýfundnar hjá Randar- ósi í Danmörku. Segir »Politiken« 17. f. m., að það sé lengsta víkingaskip, er hingað til hafi fundizt, en breiddin sé um 7 V* alin, og rengurnar í því haldi sér vel. Næstl. vor fannst á sama stað spjót úr bronce o. fl. fornir munir. Slys. »Austri« skýrir frá því, að 6. f. m. hafi Magnús Sigurðsson bóndi í Kjart- ansstaðakoti f Skagafirði dottið af hest- baki og rotazt til dauðs. „Kong Inge" kom hingað frá útlöndum og Austfjörð- um 30. f. m. með um 250 farþega, mest sunnlenzkt kaupafólk af Austurlandi. Skip- ið fór héðan í gær norður um land á- leiðis til útlanda. GullbrúOkaup. [Eptir talsímaskeyti frá Blönduósi]. Hinn 30. f. m. var haldið á Blönduósi gull- brúðkaup hjónanna Páls bónda Ólafsson- ar á Akri og Guðrúnar Jónsdóttur. Um 70 manns voru í veizlunni. Sveitungar þeirra afhentu þeim að gjöf nál. 300 kr. í peningum og annað félag gaf þeim 50 kr. klukku. Þau hjónin eru að heita má jafngömul, 74 ára, hún fædd 22. júní 1832 (dóttir séra Jóns Jónssonar í Otrar- ardal, -j* 28. okt. 1832), en hann fæddur 9. sept. s. á,, (sonur Ólafs Jónssonar söng- manns á Gilsstöðum og Steinunnar Páls- dóttur prests á Undirfelli Bjarnasonar). Synir þeirra eru séra Bjarni í Steinnesi og Ólafur skrifstofustjóri í Kaupm.höfn. Akbrautarlagning. Það hefur lengi staðið til, enda verið mikil nauðsyn á, að lengja Þingvalla- brautina austur að Gjábakkastíg (Hrafna- gjá), því að Þingvallahraun er afarillt yf- irferðar. Nú verður verk þetta framkvæmt og brautarstefnan þegar ákveðin. Var Jón Þorláksson verkfræðingur þar eystra um næstl. helgi. Á Iagning brautar- stúfs þessa að vera lokið, áður en konungur kemur hingað að sumri. En brautin verður mjó og svo hagað, að breikka megi hana sfðar. Gert verður og við Gjábakkastíg, svo að hann verði fær vögnum, og allur vegurinn uustur á

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.