Þjóðólfur - 14.12.1906, Page 1

Þjóðólfur - 14.12.1906, Page 1
58. árg. Um slátrunarhúsið og fleira, Fátt heyrist talað um framkvæmd á því máli síðan í fyrra vetur, er slátrunar- húsnefndin sat á rökstólum í Reykjavík; en eptir því sem maður segir manni, munu þó bændur hafa á því allmikinn áhuga, einkum í þeim sveitum, þar sem áður eru stofnuð smjörbú, og er það eðlilegt af tvennu. Fyrst hafa bændur þar áþreifanlegasta sönnun fyrir því, hverju vöruvöndun og félagsskapur hafa komið til leiðar, sem er smjörið. Og annað, að þar eru helztu brautryðjendur búnaðarframfaranna yfirleitt. Eg ætla ekki að fara að lýsa fyrirkomulagi slátr- unarhússins né rekstri þess, því til þess eru margir mér miku færari menn, en eg vildi leggja áherzluna á það, að þótt enn- þá sé hvorki sýnt né sannað reiknings- lega, að slátrunarhúsið hafi þá hagsbót í för með sér, sem menn gera sér vonir um, þá er það í alla staði sennilegt, þegar litið er á málið frá fleiri hliðum, og að öðru leyti athugað það, sem sér- staklega er haft á móti því sem óþörfu. Það sem slátrunarhúsið aðallega verður að hafa fyrir augum, er vöruvöndun, sem að sjálfsögðu eykur eptirspurn og um leið hærra verð. Leitum eptir markaði í út- löndum fyrir vel verkaðar Qárafurðir, kjöt og gærur — tilraunir með sölu á kældu kjöti og ( ls, einnig söltuðu og ef til vill niðursoðnu. Fækkun á óþörfum milliliðum er nauðsynleg, ekki eingöngu á hinum venjulegu kjötmöngurum, heldur hinum mörgu fjárpröngurum, sem kaupa af bændum og selja aptur fjárkaupmönn- um. Þessa tvo milliliði verða fjáreigend- ur og kjötkaupendur að fæða og fylla pyngju þeirra, því allir vilja græða og gera, eptir því sem þeir eru duglegir. Einnig þarf slátrunarhúsið að koma á meiri reglu með fjárrekstrana, svo nú- verandi markaður verði ekki svo fylltur á stundum, eins og opt hefur orðið, og aíðast í haust, að nærri öll kjötsala stöðv- ast. Hafa þá kjötmangarar ekki haft önnur ráð, en að færa verðið hver niður fyrir annan, eða rokið til að salta, í þeirri von að síðar seldist; en hvort það kjöt hefur orðið til að hækka verð eða því til meðmæla utan lands eða innan, er óþarft að fara mörgum orðum um. Lík- indi eru til, að minni kostnaður yrði við slátrun, þegar hún væri mest rekin á eina hönd og með sem fullkomnustum áhöldum, og síðast en ekki sízt algerður sparnaður markaðshaldara og þeirra mörgu sendisveina, sem kosta mikið fé, en sem undir núverandi fyrirkomulagi hlýtur allt að leggjast á fjárverzlunina og ýmislegt fleira. Það sem sumir hafa á móti slátrunar- húsi, er það, að markaður sé ekki nægur í Reykjavík og þar í kring, sem eg og fleiri eiga bágt með að samþykkja, því að opt hefur fé verið þvælt port úr porti dag eptir dag, af því að enginn vildi kaupa, fyr en að lokum, að menn hafa orðið að selja það hrakið og hungrað með afföllum. Er þetta nógur markaður? Nei, og aptur nei! Og þótt nú kaupmenn kaupi féð á Reykjavík, föstudaginn 14. desember 1906. Jú 56. endanum, eins og áður er skýrt frá, og sem stundum virðist gert af hálfgerðri gustuk við seljanda, skyldu þeir þá gera það að gamni sínu, að láta hafa í vörzlu stundum sem skiptir þúsundum, og sem kostar þó mörg hundruð krónur, og þar á ofan leggur féð af og hrekst, jafnvel þótt geymt sé ( góðu haglendi, að eg ekki tali um, þegar það er í stórhópum viku eptir viku á hinum annáluðu hrossa- högum í og í grennd við Reykjavík. Sú rýrnun nemur víst á hverju hausti meir en menn gera sér í hugarlund, — og þetta er svo kallaður nógur og góður markaður. Svo segja kaupendur, að kjötið sé dýrt. Getur vel verið frá þeirra bæjardyrum, að það sé. Þeim er heldur ekki láandi, þótt þeir vilji fá það sem ódýrast. En hafa ekki bændurlkömu þörf og skyldu við sjálfa sig fyrir pví, að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að fá sem mest fyrir fé sitt? Jú, og svo eykst framleiðslu- kostnaðurinn ár frá ári. Lögin heimta meira hey og betri hús, kaupafólkið er hækkað í verði allt að helming, vinnu- fólk er lítt fáanlegt. — Allir miða við Reykjavík og þilskipin, og sumir við gullið. En um það hvað sé hæfilegt verð á kjötpundi, er ekki til neins að þrátta, heldur verður það að stjórnast eptir verði á kjöti á útlendum markaði, og hann verður að finna næstum því hvað sem það kostar, enda verður það eitt, sem hið væntanlega slátrunarhús hlýtur að leggja áherzlu á. Fyrir kaupmönnum er hætt við það dragist, þeim heldur engin knýjandi nauðsyn. Eg veit með vissu, að kaupstaða- og útvegsmönnum er slátr- unarhússtofnunin heldur um geð, af ótta fyrir að kjötið hækki í verði, og getur svo farið, að sá ótti sé ekki ástæðulaus. En hverjir hafa hafið baráttuna móti land- búnaðinum, með því að bjóða hátt kaup ? Þess vegna þurfa bændur nú að neyta allrar orku til að fá svo mikið fyrir vöru sína og hægt er, til þess að geta líka boðið og borgað hátt kaup, því þrátt fyrir yndi og, unað kaupstaðanna vilja margir enn vera í sveit, ef peningarnir eru jafnir. Að lokum vil eg minnast á það, að ætli það þætti flestum ekki fjar- stæða, ef einhver segði, að á íslandi væri nógur markaður fyrir saltfiskinn, og að það verð, sem þá myndaðist á honum fyrir meira framboð, en eptirspurn væri nóg. Jú, eg held það. Eins verður með kjötið, sem er aðalvara sveitanna, að verð það sem myndast fyrir meira fram- boð en eptirspurn, verður heldur lágt og þvingun fyrir seljanda, svo hann getur ekki boðið eins góð kjör og aðrir atvinnu- vegir og staðizt samkeppnina, sem nú er á milli svéita- og sjávarmanna. Eins og nú stendur, er því eina hugsanlega ráðið fyrir bændur að bindast samtökum og öflugum félagsskap til að koma slátrunar- húsinu upp, ef verða mætti til að koma aðalvöru þeirra í hærra verð og meira álit en hingað til hefur verið, og það sem fyrst. Að hika, er sama og tapa. Eggert Guðmundsson. 90 ára afmæli merkismannsins Magnúsar Jónssonar, fyrver- andi bónda f Snjallsteinshöfða á Landi héldu á því heimili, 2. nóv. þ. á., synir hans, Teit- ur og Jóhann, er þar búa stórbændur hin síðari ár og annast með umhyggju og sóma sinn háaldraða föður. Buðu þeir nokkrum hans vildustu vinum og veittu vel og rík- mannlega. Var öldungurinn við það tæki- færi, sem jafnan, aðdáanlega hress og ung- ur í anda. Mátti eins vel geta þess til, að io—20 ár hefði hann hlaupið einhversstað- yfir á skeiðfletinum, eða að fæðingarár hans væri fremur 1826 en 1816, sem kirkjubæk- urnar bera þó' með sér. Til minningar um rétt 90 ár að baki og öldungnum til glaðn- ings, gáfu gestirnir honum göngustaf vand- aðan með ástungnu nafni hans og aldri. Þakkaði hann gjöfina og þann sóma, er hún vottaði, með hugsun og orðum, sem heyra til nútíðinni, en ekki fornum, liðnum tím- um, eins og opt og eðlilega á sér stað hjá öldruðu fólki. Magnús hefur alla tfð fylgzt vel með tím- anum, haft yndi af bókum og áhuga mik- inn á framförum og nýbreytni allri, sem sam- rýmzt hefur skoðun hans. Enn þann dag í dag hefur hann glögga sjón til að lesa og binda bækur, smíða eitt og annað, sem hans var vandi fyr, en heyrn hefur hann nokkuð daufari, þó svo, að vel má við hann tala. Frá 1841 —1887 bjó hann sæmdarbúi í Snjallsteinshöfða með uppbyggilegri og sér samhentri konu, Margréti Teitsdóttur, þar fæddri og uppalinni, nú dáin fyrir 12 ár- um. Varð þeim 19 barna auðið. Má það með mörgu fleiru telja mikilsvert í lffsstarfi Magnúsar, hve börn hans, er upp komust, urðu hraust og þrekmikil — má s. )a af- burðamenn að vexti, kröptum og vinnuþoli. — 90 ára gamall á hann 40 barnabörn og 17 bamabarnabörn. Þess er einnig vert að geta, að þrfbura eignaðist hann með konu sinni eitt sinn. Má af öllu þessu ráða, að væru íslenzku bændurnir svo kynsælir al- mennt, sem Magnús á Snjallsteinshöfða, mætti fleira framkvæma, en færra ógert láta af ýmsu, er landi og lýð horfir til heilla og fólkseklan f sveitunum er slagbrandur í vegi fyrir hin síðustu árin. Verði hans æfikvöld friðsælt og fagurt! K u n n u g u r. Um blaða-ávarpið og tilorðningu þess, þykist ritstj. „ Þjóðviljans" þurfa að fræða lesendur sína í blaðinu 7. þ. m. Eign- ar hann það beinlínis samþykkt á einhverj- um „þjóðræðisfundi", er haldinn hafi verið 6. f. m. Þetta er alveg samskonar, eins og þegar „þjóðræðismenn“ og ritstj. „Þjóðv.“ sérstaklega var að eigna s é r árangurinn af þingmannaförinni í sumar með ofurlitlum til- styrk „Lögréttumanna". Hvað á slíkur barnaskapur að þýða? Eg gæti skýrt rit- stjóra „Þjóðv." frá því, ef eg vildi, hverja hlutdeild eg átti í stefnu ávarpsins, stefnu, sem aðrir ávarpsmenn hafa fallizt á og við- urkennt rétta eptir skilningi þess, jafnvel rit- stjóri „Þjóðv.“, enda þótt honum hafi tæp- lega verið það að skapi, því að mér leikur grunur á, þótt rnérsé það ekki „fullkunnugt", að einmitt h a n n hafi ætlað sér að fleyga inn í ávarpið áskorun um stjórnarskrárbreyt- ingarbaráttu nú þegar, eða að minnsta kosti um Þingvallafundarhald að vori o. s. frv. (sbr. Þjóðv. 15. f. m.), en að það hafi verið strykað út fyrir honum, og þess vegna sé einhver „gutti" í honum og hafi því ætlað að stríða mér með þessu „þjóðræðis- faðerni" ávarpsins. En mér stendur alveg á sama um það, því að eg skrifaði ekki undir það sem ávarp frá neinum sérstökum pólitískum flokki, heldur af því að eg taldi það ganga alveg í rétta átt sem samkomu- lagstilraun um kröfur vorar út á við gagn- vart Dönum, og af því, að það var, um ríkis- ráðsatriðið, í fullu samræmi við mína skoð- un, skoðun, sem eg hef haft frá því fyrsta, er „valtýskan" kom hér fram 1897, þótt eg eins og fleiri hafi ekki verulega barizt fyrir henni síðan 1902, þá er allir þingmenn urðu sammála um að taka ráðherra-búsetuna, þrátt fyrir Alberti-fleyginn — ríkisráðsset- una — er fáum þingmönnum mun hafa þótt meiri vábiti en mér, sem eg þá dró ekki heldur neinar dulur á. H. P. Qoll og heilnxm kenning. Gloðiii er aðalskilyrði þess, að að oss mönnum líði vel og vér verðum langlíflr á förðunni. Það er því óbrotin skylda vor, að gera allt sem í voru valdi stendur og vér framast megnum, láta oss líða vel og vera glaðir og lengja lífdaga vora. En til þess verðum vér að hafa hemil á ástríðum vor- um, og láta þær greyin ekki dansa lausbeizlaðar, og alltaf við og við að fá oss á flöskuna af hinum heilnæmu og styrkjaudi vínum og hrennivíni, er ávallt er að fá í víuverzlun Ben. §. IViraiins- sonar. Ársfundur IVirnleíf'afólags- Ins verður haldinn mánudaginn 17. þ. m. kl. 5 e. h. í húsi presta- skólans. Reykjavík, 12. des. 1906. Eiríkur Briem. * Annaðhvort fínasta rjóma- ^jbúasmjörj eða ALFA" Margarine. Uppboðsauglýsing. Húseignin nr. 61 við Grettisgötu hér í bænum með tilheyrandi lóð, eign Guðmundar Jónssonar, verður seld ept- ir kröfu Sigurðar E- Málmkvist, sam- kvæmt fjárnámsgerð, er fram fór 5. des. þ. á., á 3 opinberum uppboðum, sem haldin verða laugardagana 29. des. þ. á. og 5. og 12. jan. 1907, tvö hin fyrri hér á skrifstofunni, en hið síðasta á eigninni sjálfri. Veð- bókarvottorð og söluskilmálar verða til sýnis hér á skrifstofunni degi fyrir hið fyrsta uppboð. Bæjarfógetinn J Reykjavík, 13. des. 1906. llalldói* Daníelsson. Samkvæmt lögum um Söfnunar- sjóð íslands dags. 10. febr. 1888 16. gr. verður fundur haldinn á starfstofu sjóðsins í Lækjargötu 10 fimmtudaginn 20. þ. m. kl. 5 síð- degis til að velja endurskoðara fyrir hið komandi ár. Reykjavík, 13. des. 1906. Eiríkur Briem.

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.