Þjóðólfur - 19.04.1907, Side 1

Þjóðólfur - 19.04.1907, Side 1
59. árg. Reykjavík, föstudagirsn 19. apríl 1907. 17. SíjórnarfrumYörpin. i. Það kvað vera mesti aragrúi frumvarpa, er stjórnin ætlar að leggja fyrir næsta þing, að mun fleiri en síðast, og voru þau þó 40 þátalsins. Milliþinganefndirnar íj fá- tækramálinu og einkum í landbúnaðar- málinu hleyptu tölunni þá fram. En nú er það aðeins kirkjumálanefndin ein, sem hjálpar stjórninni um nokkur stykki. Mælt er, að öll frumvörp kirkjumálanefndar- innar verði þó ekki lögð fyrir þingið af stjórninni t. d. frumvarpið um kirkjuþing- ið og frv. minnihlutans um afnám biskups- embættisins. Sumum hinna er lögð verða fyrir kvað og verða töluvert breytt, en ekki höfum vér enn séð þann frumvarpa- flokk, eins og stjórnin hefur skilið við hann. Það eru að eins 5 stjórnarfrumvörp, sem enn eru komin í ljósmál og send þingmönnum (og blöðunum) til athugunar. Þessi frumvörp eru ný læknaskipunarlög, ný vegalög, ný alþingiskosningarlög (hlutfalls- kosningar), lög um almennan elli- styrk og lög um skilorðsbundna hegningardóma og hegningu barna og unglinga. Með þremur fyrsttöldu frumvörpunum eru gerðar svo miklar og gagngerðar breytingar á gild- andi lögum um sama efni að það má kalla þau ný lög, því að þótt megin- stofn hinna gömlu laga haldist, þá eru breytingarnar svo víðtækar, að þær ger- breyta aðalstefnu gildandi laga. Einkum á þetta heima um vegalögin og kosning- arlögin, sem eflaust verða þýðingarmestu Iögin, sem lögð verða fyrir þetta þing og hin afleiðingaríkustu fyrir þjóðina, en mjög vafasamt, hvort það verður eindregið í heppilega átt, nái þau samþykki þingsins lítt eða ekki breytt. Um það verða eflaust talsvert skiptar skoðanir, eins og jafnan verður þá er um stórfelld nýmæli er að ræða. Þriðja málið er almenning skiptir og miklu er. 1. Lækníiskipunarmálió. I frv. stjórnarinriar er gerð sú höfuð- breyting á læknalögunum 13. okf 1899, að sleppt er allri flokkun læknisemoæH- anna (í 5 flokka) með raisháum launum (1300—1900 kr.). Nú á hver héraðs- læknir að fá 1500 k r. í árslaun o g allir hafa rétt til eptirlauna en eptir gömlu lögunum höfðu læknar í tveimur lægstu flokkunum ekki eptirlauna- rétt. Auk þessa eru skipaðir fastir að- stoðarlæknar í ísafjarðarkaupstað og Akur- eyrarhéraði með 800 kr. árslaunum og veifir ráðherrann þau embætti, en kon- ungur öll héraðslæknaembættin. Þeir héraðslæknar, er nú hafa hærri laun en >5°° kr. halda þvf sem fram yfir er, sem viðbót fyrir sjálfa þá. A sjálfum læknishéruðunum eru allvíða gerðar breytingar og hefur stjórnarráðið farið þar eptir tillögum landlæknis. En breytingarnar eru þessar. i. Reykjavíkurhérað minnkað þannig að Reykjavík fylgi að eins Seltjarnarnesið, Engey og Viðey og hinn annar hluti Seltjarnarneshrepps upp að EUiðaám og Fossvogi í stað þess að nú fylgir bænum allur Seltjarnarneshreppur, Bessastaða- hreppur, Garðahreppur og Mosfellshreppur. 2/ Héraðslæknir settur í Hafnarfirði og til hans umdæmis lagt það, sem tekið hefur verið frá Reykjavíkurlæknishéraði, og auk þess Kjalarneshreppur og Kjósar- hreppur. Kjósarhérað er því lagt niður, sem sérstakt læknishérað, en sá hluti Strandarhrepps (Hvalfjarðarströndin) er áður lá undir það, lagður til Skipaskaga- héraðs og Þingvallasveitin við Grímsnes- hérað. 3. Mýrahéraði, er heita skal Borgar- neshérað, breytt þannig, að Borgarhrepp- ur er tekinn frá Borgarfjarðarhéraði og lagður til þess héraðs, en Miklholtshrepp- ur aptur lagður frá því til Stykkishólms- héraðs. Læknissetur skal vera í Borgar- nesi. 4. Nauteyrarhérað sameinað við ísafjarð- arhérað og aðstoðarlæknir skipaður á Isafirði. 5. Höfðahverfishéraði skipt í tvent, þannig að vesturhluti héraðsins, vestan- megin Eyjafjarðar verði sérstakt læknis- hérað að viðbættum innri hluta Arnar- neshrepps og Skriðuhreppi og nefnist það Svarfaðardalshérað, (í ástæðum stjórnar- innar en Arnarneshérað í frv.), en austur- hlutinn austar fjarðarins fái etri hluta Hálshrepps í viðbót og haldi hinu gamla nafni Höfðahverfishérað. Nær það hérað því að eins yfir Grýtubakkahrepp og Hálshrepp. Stungið er upp á, án þess það sé sett beinlínis í frumvarpið, að á- stæða væri til að leggja Svalþarðsstrand- arhrepp frá Akureyrarhéraði til Höfða- hverfishéraðs og sæti þá héraðslæknirinn rétt fyrir innan Fnjóská í Laufási eða á Þorsteinsstöðum. 6. Lagt er til að Breiðdalshreppur leggist frá Fáskrúðsfjarðarhéraði til Beru- fjarðarhéraðs með því að þar sé miklu minn'a að gera fyrir lækni, vegna þess að sjúkrahús sé á Búðum í Fáskrúðsfirði og þangað sæki fjöldi útlendra fiskimanna. 7. Loks er lagttil, að Álptavershreppur fyjgi Síðuhéraði en ekki Mýrdalshéraði, með því að Kúðafljót sé talin öllu minni torfæra en Mýrdalssandur en leiðin úr Álptaveri álíka löng austur á Síðu, eins og út í Mýrdal. Tala 'æknishéraðanna er 43 eptir þessu nýja frv. oT er það sama sem nú er eptir að Blldudais éraði var bætt við á síðasta þingi. I stað i'jósarhéraðs og Nauteyrar- héraðs, sem legg^st niður, kemur Hafnar- fjarðarhérað og klofningurinn úr Höfða- hverfishéraði með viðai ka (Arnarneshérað eða Svarfaðardalshérað. Stjórnarráðinu telst svo .;1, að launaupp- hæð þessara 43 héraðslæki 3 og tveggja aukalækna (aðstoðarlækna) é svo að segja alveg jöfn þeirri upphæð, s^m nú er lögð til að launa hæknum, og þó 400 kr. lægri um árið, er frá líður og læknar, sem nú hafa hærri laun en 1500 kr. eru farnir frá. Þótt allir læknarnir eigi nú að komast á eptirlaun og laun hinna lægstlaunuðu séu lækkuð um 200 kr., álítur landlæknir samt þetta ekki nóg til þess að fá nýta menn í öll eða flest læknahéruðin. H;fur hann því farið fram á, að breytt sé ákvæð- unum um borgun fyrir læknisverk þannig að héraðslæknar séu ekki bundnir við ákveðinn óhreyfanlegan taxta, sem settur sé í gömlu lögunum, er sé mjög lágur, heldur sé héraðslæknum heimilað að taka borgun fyrir verk sín nokkuð eptir mati, miðað annarsvegar við vandasemi verks- ins og hinsvegar við efni og ástæður gjaldanda, eins og gert sé í öðrum lönd- um. Stjómarráðið hefur fallizt að mestu á þessa tillögu landlæknis og um það hljóðar 4. gr. frv., sem er svo látandi í heild sinni: 4. gr. Þegar samkomulag næst eigi og ágreiningur verður, skal fara um borgun fyrir störf héraðslækna samkvæmt gjaldskrá, er ráðherra semur með ráði landlæknis. Gjaldskrá þessi skal vera þannig, að lág- mark hennar sé yfirleitt eigi hærra en borg- un sú, sem ákveðin er fyrir læknisverk í 4. og 5. gr. laga 13. okt. 1899 nr. 24. eða sem næst eptir tiltölu við það, er um önnur læknisstörf er að ræða, en þau, er þar eru nefnd, og hámark hennar eigi meira en lág- markið margfaldað með tölunni 3. Fara skal eptir lágmarki gjaldskrárinnar, er vitan- legir fátæklingar eiga í hlut, eða greiða skal fyrir læknisverk af almannafé. Að öðru leyti skal ákveða gjaldið eptir ástæðum öll- um innan þeirra takmarka, sem gjaldskráin setur. Auk þessa er borgun fyrir ferðir lækna í þarfir einstakra manna hækkuð frá þvf sem nú er, þannig að bætt er við 75 a. fyrir 1. klukkustund terðarinnar 50 a. við aðra og 25 a. við 3. klukkustundina. Nú er borgunin 25 a. fyrirhverja klukkustund, jafnt á nóttu sem degi, og fyrir 10 klukku- tíma ferð fær því læknir nú 2 kr. 50 a., en eptir þessu nýja frv. 4 kr. og auk þess er læknum eptir þessu frv. heimiluð helmingi hærri borgun fyrir næturferðir frá náttmálum til miðsmorguns, eða 7 kr. 50 a. fyrir 9 klstferð á þeim tíma. Um þessa breyting m. fl. hljóðar 5. gr. frumv. Það verður að líkindum 4. og 5. gr., sem einna helxt verða athugaðar í frv. þessu á næsta þingi og mest umtal um. Annars virðast breytingar frv. á sjálfri læknaskip- uninni víðasthvar heppilegar og eflaust samkvæmt óskum margra, og launajöfn- uðurinn sanngjarn. Sú stefna er hvort sem er ríkjandi nú í launalöggjöfinni að gera öllum sem jafnast undir höfði, en sá galli fylgir því hins vegar, að ekki verður þá unnt að launa ágæta embættis- þjónustu eða láta dugnaðar- og hæfileika- manninn bera meir úr býttum en hvern ó- valinn ónytjung, eða að minnsta kosti ekki svo, að nokkru verulegu nemi. Vit- anlega verða aukatekjur lækna í hinum ýmsu læknahéruðum jafnan nokkuð mis- munandi eptir stærð þeirra og fólkstjölda, en ekki mun það samt muna sérlega miklu, þá er frá eru skilin stærstu kaup- staðahéruðin. 2. Alincnnur ellistyrkur. Frv. þetta er gagngerð breyting eða réttara sagt útfærsla á alþýðustyrktarsjóðs- lögunum 11. júlí 1890 og virðist vera góð réttarbót. Fátækramálanefndin frá 1901, er reyndar hafði lokið störfum sínum í hitteðfyrra sendi stjórninni uppkast af frumvarpi til laga um eptirlaun hinnar íslenzku þjóðar eptir Pál amtmann Briem, er fundizt hafði eptir hann látinn, og hafði nefndin fallizt á frumvarp þetta í höfuð- atriðunum og mælt með því, að það yrði tekið til athugunar. En stjórnarráðinu „virtist ógerningur að leggja út á þá leið“, sem farin var í þvf frumvarpi, og hefur því stungið því alveg undir stól, en kem- ur í þess stað með þetta frumvarp, og gerir meðal annars þá grein fyrir því í ástæðunum við frv., að „heppilegra virð- ist að byggja á þeim grundvelli, sem þegar hefur verið lagður hér á landi í þessa átt, með því að færa út kvíar al- þýðustyrktarsjóðanna, láta þá ná til alls landsfólksins og þá jafnframt auka þeim tekjur, svo að þeir geti komið að veru- legum notum“. Og það virðist oss vera öldungis rétt stefna. Með því að mál þetta varðar allan al- menning birtum vér hér orðrétt þá kafla frumvarpsins, er mestu máli skipta og að- alefni þess er fólgið í, svo að menn geti sig á þeim mikilsháttar breytingum og umbótura, er frv. gerir á núgildandi löggjöf í sömu stefnu. 1. gr■ í hverjum kaupstað og hreppi á landinu skal stofna styrkarsjóð handa elli- hrumu fólki. I sjóð þennan rennur styrktar- sjóður handa alþýðufólki, sem til er í kaup- staðnum eða hreppnum. Sjóðir þessir skulu styrktir með árlegu tillagi úr landsjóði, er nemur 50 aurum fyrir hvern gjaldskyldan mann til sjóðsins það ár. 2. gr. Gjaldskyldir til ellistyrktarsjóðsins eru allir, karlar og konur, sem eru fullra 18 ára og ekki yfir 60 ára, nema þeir, er nú skal greina: a. Þeir, er njóta sveitarstyrks og aðrir, sem ekki geta unnið fyrir sér vegna veiklunar á sál eða líkama. b. Þeir, sem sæta hegningarvinnu. c. Þeir, sem hafa tryggt sér fé til fram- færslu eptir 60 ára aldur, að upphæð 150 kr. á ári að minnsta kosti. Greiðir karlmaðurinn 2 kr. og kvennmaðurinn 1 kr. á ári til sjóðsins. j. gr. í ellistyrktarsjóð rennur gjald fyrir leyfisbréf til lausamennsku samkv. 1. gr. í lögum nr. 3, 2. febr. 1894 um breytingá til- skipun um lausamenn og húsmenn á íslandi íó. maí 1863 og viðauka við hana. 4. gr. Hreppsnefndir skulu fyrir lok fe- brúarmánaðar ár hvert semja skrá um alla þá, er gjaldskyldir eru í hreppnum til styrkt- arsjóðsins. I kaupstöðum semja 3 menn, er bæjarstjórn kýs úr sínum flokki, skýrslur þessar. Á skrána skulu þeir settir, er lög- heimili hafa í kaupstaðnum eða hreppnum hinn 1. janúar; sé vafi um heimilisfang manns, skal hann settur á skrá í þeim kaup- stað eða hreppi, þar sem hann dvelur um áramótin. Á skrána skulu þeir settjr, sem eru fullra 18 ára hinn 1. janúar, og sömu- leiðis þeir, sem ekki eru fullra 60 ára hinn sama dag. í skránni skulu vera skýringar um gjaldskyldu manna til sjóðsins og skyldu manna til að inna af hendi ellistyrktarsjóðs- gjöld fyrir aðra. Skráin skal gerð samkvæmt fyrirmynd, er stjórnarráðið ákveður. Lögreglustjórinn í Reykjavík og hver prestur, að því er prestakall hans snertir, er skyldur til að senda nefndum þessum eptir- rit af fólkstalsskýrslum þeim, er þeir eiga að semja árlega. J. gr. Auk þess, sem gjaldendur eiga að greiða gjöld sín til ellistyrktarsjóðsins hver fyrir sig, þá eru mennn og skyldir til að leggja fram gjöldin fyrir aðra svo sem nú segir: a. Kvongaðir menn eiga að inna afhendi ellistyrktarsjóðsgjald fyrir konur sínar, meðan hjónabandinu er ekki slitið að lögum, enda séu þau til heimilis í sama hreppi.

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.