Þjóðólfur


Þjóðólfur - 17.05.1907, Qupperneq 3

Þjóðólfur - 17.05.1907, Qupperneq 3
ÞJÓÐÓLFUR. 83 móðir hennar hjá 'henni síðustu árin. Ragnheiður heit. var merkiskona, gáfuð vel og mikilhæf. Hinn 8. þ. m. andaðist Björn Guð- mundsson fyr bóndi á Brekku í Bisk- upstungum kominn hátt á áttræðisaldur. Hann var sonur Guðmundar bónda Guð- mundssonar á Brekku og Helgu Jónsdótt- ur prests Bachmann’s f Klausturhólurn Hallgrímssonar læknis. Son Bjöwis heit. er Björn hreppsnefndaroddviti og bóndi á Brekku, Þilskipaafli hefur verið í langlakasta lagi í þetta skipti á skipum þeim, er ganga héðan frá Faxa- flóa. Langhæstur afli mun vera um 25,000 hjá Birni skipstj. Ólafssyni frá Mýrarhús- um á skip hans samnefnt. Næst um 19 þús., en allur þorri skipanna að eins 10 til 15 þús. og mörg enn minna. Vetrarvertíðin hefur orðið mjög misjöfn á opna báta hér við flóann. Langhæstur afli hefur orðið hjá nokkrum mönnum í Garði, er mestan netaútveg hafa. Um 1200 þar hæst til hlutar. Minni afli hefur verið í Höfnum og f Grindavík, en þó dágóður yfirleitt. I Vogum og á Vatnsleysuströnd í meðallagi eða nálægt því. Austanfjalls (í Þorlákshöfn, á Eyrarbakka og Stokks- eyri) hefur vertíðin orðið með langlak- asta móti, mjög rýrir hlutir f öllum þeim veiðistöðvum, enda mjög ógæftasamt þar. Með „Ceres“ 11. þ. m. komu frá útlöndum M. Lund lyfsali og frú hans, Skúli Thoroddsen ritstj. og frú hans. Sigfús H. Bjarnarson konsúll frá ísafirði, Ólafur Árnasou kauþ- maður frá Stokkseyri, Pétur Ólafsson kaupm. á Patreksfirði, Konráð Stefánsson stúdent, Kofoed-Hansen skógfræðingur, Ólafur Benjamínsson verzlm. (frá Þing- eyri), Þorv. Benjamínsson verzlunarm. frá ísafirði, Solveig og Þórunn dætur Kr. Jónssonar yfirdómara, ungfrú Ragnh. Jónas- dóttir frá Sólheimatungu, Kristín Jóns- dóttir kaupkona í Rvík, enntremur frá Ameríku Benedikt Reykdal málari (bróð- ir Jóh. Reykdal verksmiðjueiganda 1 Hafn- arfirði). Hefur hann dvalið 19 áríVest- urheimi. Gullnafarinn kom nú loks með »Ceres«, svo að ald- rei fór svo, að hann kæmi ekki. En ekki verður byrjað á greptrinum ná þegar, því að umsjónarmaður þessa verks, Rostgaard verkstjóri, liggur sjúkur í taugaveiki. En líklega dregst það ekki mjög lengi úr þessu, að bæjarbúar fái vitneskju um auð- æfin 1 Vatnsmýrinni. „Vesta“ kom norðan og vestan um land frá út- löndum 13. þ. m. Meðal farþega á henni var Oddur Jónsson héraðslæknir í Mið- húsum á Reykjanesi, er hingað kom til að leita sér lækninga. Fréttabréf úr Suður-F’ingeyjarsýslu. Höfdahverji 24■ apríl. Tíðarfar. — Svipað galdraveðri. — Jarða- bætur. — Fjölgun vélabáta. — Síldveiðar Norðmanna. — Ungmennafélög. — Kaupstað- arsótt. — Manntjón). Það ber mjög sjaldan við að fréttir héðan sjáist í blöðunum, ættn þó fréttapistlar úr hverri sveit að birtast í blöðunum við og við til fróðleiks og skemmtunar. Veturinn, sem nú er að kveðja, hefur verið óvenjulega harður og hrottafenginn með suðvestan langstæðum hríðum, svo jafnvel eldri menn kveðast ei muna slíkt, en ekki hafa snjóþyngslin verið; samt gerði ákafa stórhríð 18. febr., er stóð yfir nærfellt 3 sól- arhringa, og hlóð niður fönn mikilli, reyndar í það eina skipti sem verulegt stórfenni hef- ur komið á þessum vetri; aftur hafa verið úrkomur og frost á víxl, svo öll jörð hefur verið reyrð í klakadróma (svelli þakin) við og við hafa komið mikil frost, en sjaldan staðið mjög lengi. A aðfangadag jóla 24. desbr. voru 20 stig á Celsius, og 9.—10. marz einnig 20. stig, en bjart veður og hægt. 18. jan. var ofsa hláka með 10 stiga hita, en daginn eptir stormur og kuldi með hríð- arfjúki. 3. marz gerði ákaflegt óveður fyrst af suðvestri, en gekk í norður, er á daginn leið, var sá bylur svo skjótur og snarpur að eg man ei að annað eins skafrok hafi komið nú í nokkur ár, úr hjarnfönnunum reif og þyrlaðist skarinn í allar áttir svo ferðamenn máttu varla komast leið sína, og Ægir var ógurlegur ásýndar. Um kveldið slotaði veðr- inu, og var blíðalogn daginn eptir; eigi er ólíklegt, að þegar vantrúarþokan og galdra og draugatrúin voru á sínu hæsta stigi, að slíkur fellibylur mundi hafa verið álitinn göldrum og fjölkyngi að kenna. Þannig hefur þá tfðin verið þennan vetur- inn (til 25. marz) og er ei furða þótt okkur bændunum væri ekki farið að lítast á blik- una, eptir allan harðinda’ kaflann, stormana hríðarfjúkin, frostin og storku bræðingana, og eiga svo kannske von á öðru eins vori og í fyrra, eptir allt saman, en 25. marz, brá til sunnanáttar og hlýinda, og hefur nú að mestu tekið upp snjó úr byggð, frost er að vísu öðru hvoru, en stillur, og er byrjað að vinna á túnum, og jafnvel sum- staðar að jarðabótum. Þegar tíðarfarsum- skiptin komu duttu mér í hug þessar hend- ingarEggerts Ólafssonarum ísland: „Hefja mun guð í gæfu, gott stand það land". Mikill áhugi eríbændumað vinna að jarða- bótum, einkum þúfnasléttum og girðingum, og virðist sá áhugi vera að færast í aukana um land allt; en bændur hafa í mörg horn að líta, og eru fáliðaðir, svo eigi er að búast við skjótum umbótum „sígandi lukka er bezt“ segir máltækið. 1950 ætti þó öll tún að vera orðin alsléttuð á Islandi, komi eng- inn apturkippur í þetta, sem vonandi ekki verður. Mótorbátar þjóta nú upp sem gorkúlur allt í kringum fjörðinn (Eyjafjörð) og á þeim byggir nú margur sína framtíðarvon, hvað efnahaginn snertir; það er sízt að lasta að sjávarútvegurinn taki framförum, en á hinn bóginn dylst engum, að vinnukraptur sveit- arinnar dregst að sjónum, svo til vandræða horfir. Þá eru síldarveiðar Norðmanna, sem taka vjnnukrapt frá sveitunum þangað, f sfld- arselin fer fólk eigi allfátt einkanlega kvenn- fólkið, sagt er að þær komi með fullar „kjölturnar" af peningum þaðan, og er það í sjálfu sér gott og blessað, við það eykst peningastraumurinn í landinu, en hvort þeír peningar vega meir en á móti því böli eða þeim ófögnuði, sem af þeirri atvinnu hefst, þegar öllu verður á botninn hvolft, er ekki gott að segja. Ungmennafélag stofnuðu nokkrir ungir menn hér vorið 1905, hefur það milli 20. og 30 meðlimi bæði pilta og og stúlkur. Til gangur þess er meðal annars, að auka lestr- arfýsn unglinganna, einkum á að kynnast fornsögum vorum, og hefur keypt allar Islendingasögur, ritverk Jóns sagnfr. Jóns- sonar og fleiri bækur. Félagsskapur þessi er hinn þarfasti, og ætti að ryðja sér til rúms hið fyrsta, þvf unglingarnir, sem eru framtíðarfólk, læra eflaust að hugsa meira, og sjóndeildarhringur þeirra víðari en ella. Hver veit líka nema þessi félagsskapur verði meðal til þess að lækna kaupstaðarsóttina, sem er að verða sannkölluð landplága fyrir sveitina, og til að eyða sundrunginni, þessari gömlu ólánsfylgju islenzku þjóðarinnar. Fé- lag þetta heitir „Dagsbrún", og er elzt allra ungmennafélaga hér á landi, það hefur haft fremur góð áhrif á sveitina, þótt það hafi eigi borist einsmikið á ogsum ungmennafélög, sem síðan hafa verið stofnuð. Hinn 23. f. m. fórst bátur með 3 mönn- um af Látrarströnd. Formaður Bjarni Gunn- arsson Steindyrum lætur eptir sig ekkju og 4 börn öll í ómegð; hinir voru unglings- menn um tvítugt. Enginn þeirra mun hafa verið vátryggður, og ætti þetta slys að verða til að kenna mönnunr að tryggja líf sitt. Til Islenciing’a. *»« lupinönii eru langódýrastar í verzlun und- irritaðs. T. d.: Stofuskrár á 70 au. Hjarir “ífj" parið á 35 — Hurðarhúnar br. frá 60 — Nú er það alkunnugt orðið, að tillögur Stúdentafélagsins um íslenzkan fána hafa fengið hið bezta gengi um land allt. Skjótum vér því til allra góðra Islend- inga, að draga hinn íslenzka fána á stöng á fæðingardegi Jóns Sigurðssonar, i7.júní næstkomandi. Reykjavík 14. maí 1907. Fyrir hönd Stúdentafélagsins. Benedikt Sveinsson, Bjarni Jónsson frá Vogi, Guðm. Finnbogason, Magnús Einarsson, Matth. t’órðarson. do. amerískir — 45 — og annað eftir þvi. U tanhúss-asfaltgiappi, iTillun. 19 ferálnir, kr. 3,40—3,00. Stærri og margbreyttari birgðir en annarstaðar hér í bæ. B. H. Bjamason. Spltalinn í Laugarnesi óskar eptir, að gert sé verzlunartil- boð í eptirfylgjandi vörur: Rúgmjöl, byggmjöl, hveiti, hrís- grjón, haframjöl, kartöflumjöl, sago- grjón stór og smá, baunir (klofn- ar), smjörsalt, kaffi, export, te, hvíta- sykur (höggvinn) púðursykur,sveskj- ur, rúsínur, tvíbökur, kirsiberjasaft súr, grænsápa. sóda, ofnkol og steinolíu. Tilboðin þurla að vera komin fyrir 1. júní næstk., og það tilboð, sem gengið er að, gildir fyrir báða hlutaðeigendur frá 1. júní og til 1. júní 1908. Allar vörurnar þurfa að vera vel vandaðar. Kol og steinolía sé afhent á spítalanum fyrri bluta sumars. Hver sem vill gera tilboð getur fengið nánari upplýsingar hjá und- irrituðum. Sömuleiðis er óskað eptir, að bakarar bæjarins hafi sent tilboð sin fyrir sama tíma um sölu á fransk- brauðum og sigtibrauðum, og um bökun á rúgbrauðum. Laugarnesi, 15. maí 1907. llermaiin Jónasson. Til glaðnings og hressingar. "Víst er það, að hvergi hér i bæ fæst annað eins úrval af góðum vínum, sem í verzlun undirritaðs. Þar fást vín frá heimsins beztu vínsöluhúsum, þar á meðal alveg óviðjafnanlegt Portvín: Sanatario fl. á 3,50, Sherry 10 teg., þar á með- al hið viðfræga Sherry Ideal fl. á 3,00, hvít og rauð Borðvín, Líkör- ar 20 teg., Cognac frá Louis de Salignac & Co. o. fl., 8 teg., Whisky fjölda teg., Ö1 frá Tuborg og Carls- berg, Messuvín, Akvavit, m. m. ókeypis vinskrá, ef um er beðið. B. H. Bjarnason. Veiðiáhöld: Stengur, Færi, Hjól, Önglar, Topp- ar, Kastlínur o. fl. Langódýrast í verzlun B. 11. BJARM§OI. Sumarsj öl, Barna- og iinglingaliiifur, margar tegundir. Margt einkar hentugt til FERIIIIIGARGJAFA, o. fl., o. fl., er nú nýkomið í verzl- unina í húsi Björns Símonarsonar Vallarstrœti 4. Almannarómur : Bezt er að verzla við Ben. S. Pór. Reynslan kennir það hverjnm, er reynir, að bezt sé — það borgi sig bezt, — að eiga öll víuKaup og brennl- vínskaup við vínverzlun Ben. S. Pórarinssonar. Niðursoðin matvæli, Ávextir í dósum, Ostar, Pylsur, Kex og Smá- kökur, Chocolade, Cacao, Hveiti, Sago, Saft, Kryddvörur, Sælgæti og annað, sem útheimtist til hátíða- breytni, fá menn hvergi betri né ódýrari en í verzl. j). íj. Sjarnason. Veggjapappír (tapet) 10—15% undir verði þeirra manna, sem lægst selja. 20 mis- munandi gerðir í verzl. B. H. BJARNASON. jók húframleiðslu ÍO þús. bænda síðastl. ár. Meira næst. ALFA ber með réttu nafnið y>hið bcztaci. Brúkið þessvegna ALF A MARGARINE Sunnudaga: Kl. 61/* e. h. Fyrirlestur. Midvikudaga: Kl. 8V4 e. h. Bibliusamtal. Laugardaga: KI. n f. h. Bœnasamkoma og bibl'tuiestur. Peir kaupendur Pjóðólfs hér í bænum, er skipt hafa um bú- staði nú á krossmessunni, eru beðnir að tilkynna það á afgreiðslu blaðsins, svo að þeir geti fengið blaðið með skilum. Frímerki í skiptum. Hver sem sendir mér frímerki frá sínu eigin landi, fær aftur jafnmörg ogjafnverð- mæt frimerki annara landa, Eg kaupi einnig í stórum stíl allar frímerkjategundir. Tilboð eða skipti-frímerki óskast sent Heinr. Kriimer, Leipizg, Nordstr. 24, Germania.

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.