Þjóðólfur - 06.09.1907, Side 1

Þjóðólfur - 06.09.1907, Side 1
59. árg. Reykjavlk, föstudaginn 6. september 1907 M 39. Alþing-i. VIII. Nefndarálit meiri hlntans í stjórnarskrármálinu. Nefnd sú, er háttvirt deild hefur falið frv. þetta til íhugunar, hefur eigi getað •orðið á eitt mál sátt. Meiri hluti nefndarinnar telur eigi heppi- legt, þvi síður nauðsynlegt að þ e 11 a þing afgreiði frá sér lög um breyting á hinni gildandi stjórnarskrá. Svo sem kunnugt er, hefur verið sett nefnd manna af hálfu bæði alþingis og hins danska ríkisþings, og eiga nefndir þessar að semja og bera upp fyrir kon- ungi tillögur í lagafrumvarps formum um stöðu Islands í Danaveldi, eða um sam- band íslands og Danmerkur. — Að vísu er eigi hægt að spá neinu um það m e ð v i s s u, hver árangur verði af þessu nefnd- arstarfi, en þess munu allir Islendingar vænta, að árangurinn verði sá, bæði að fleiri mál verði lögð undir forráð alþing- is, og að löggjöf og stjórn landsins verði trygt fullkomið sjálfstæði í öllu því, er landið varðar sérstaklega. —Þessa vænta menn, og telja má sennilegar líkur til, að þessar vonir rætist. En fari svo, þá má telja það víst, að fyrirkomulagið á hinni æztu stjórn íslands og aðstaða hennar bæði gagnvart kon- ungi og stjórn sambandslandsins geti eða jafnvel hljóti að verða fyrir breytingum. Eins og mál þetta nú horfir við, er þvl mjög sennilegt, að jafnhliða því, er frum- varp sambandsnefndarinnar verður til með- ferðar á alþingi, væntanlega 1909, hljóti að verða því samferða frumvarp um breyt- ing á stjórnarskránni, ef til vill gagngerð endurskoðun hennar. Ef frumvarp það, er fyrir liggur, eða eitthvert frumvarp um breyting á stjórn- arskránni, næði samþykki þessa þings, væri skyldugt, að leysa upp þingið þ e g a r í stað (61. gr. stjórnarskrárinnar) og mundi þá stjórnin, samkvæmt fastri venju og ákvæðum 8. gr. í stjórnarskr., telja sér skylt, að boða til kosninga í júnf 1908 og kveðja til aukaþirrgs í lok júlí eða ibyrjun ágústmán. 1908. Hið reglulega alþingi kemur saman 15. febrúar 1909 — rúmum 5 mánuðum ept- ir lok aukaþingsins, væri til þess kvatt — og til þess er ætlazt, að alþing 1909 fái tillögur eða frv. sambandsnefndarinnar til jneðferðar. Svo framarlega, sem tillögur sambands- >nefndarinnar leiða til þess, að endurskoða þurfi stjórnarskrána 1909 — sem eins og áður er fram tekið, má telja því nær alveg víst eða mjög sennilegt, — þá er -öllum kostnaði og fyrirhöfn þjóðarinnar við kosningarí júní 1908, og öllum kostn- aði við aukaþingið 1908 fullkomlega á glæ kastað og til alls engra nota, hvorki fyrir þjóðina né stjórnarskrármálið sjálft. — Þetta mundi því vera næsta óráðlegt. Svo er og annað atriði, engu þýðing- arminna, er vel verður að athuga. Til þess er ætlazt, að tillögur og frum- varp sambandsnefndarinnar verði kunn- ugt þjóðinni á næsta ári, svo snemma, að þjóðin geti haft hliðsjón af þessum til- lögum við almennar kosningar á næsta hausti. Á það hefur verið lögð rík á- herzla, að þjóðinni yrði með almennum kosningum gefinn sem beztur kostur á, að láta 1 ljósi sinn vilja um sambands- málið, og meiri hluti nefndarinnar álítur nauðsynlegt, að alt verði gert sem hægt er, til þess að þjóðinni verði það mál svo vel kunnugt, sem föng eru á, fyrir hinar næstu almennu kosningar til alþing- is, 1908. Það mál, hið þýðingarmesta mál, sem um langan aldur hefur verið til meðferð- ar, á mestu að ráða við hinar næstu al- mennu kosningar. Yrði nú stjórnarskrárbreyting samþykt á þessu þingi og kosningar færu fram í júnf 1908, þá er þessum grundvelli kosn- inganna alveg raskað. Þá væri alls ómögu- legt, að þjóðin gæti haft nokkra hliðsjón af sambandsmálinu við kosningarnar, því gerðir nefndarinnar verða eigi kunnar fyr- ir þann tíma. En af því mundi aptur leiða það, að þingið 1909, sem fyrst ætti að fjalla um sambandsmálið, væri kosið með allt annað fyrir auga og hefði því ekki nægilega traust umboð þjóðarinnar í því máli, þar sem mest ríður á þvf. — Þetta mundi og leiða til þess, að rýra á- hrif þjóðarinnar á og atkvæði hennar um sambandsmálið. Nú er til þess ætlazt, að þjóðin geti haft það mál sérstaklega fyrir auga við tvennar kosningar: hin- ar almennu kosningar 1908 og við kosn- ingar til aukaþings 1910, þar sem gerðir þingsins 1909 í því máli koma til fulln- aðar-úrslita. Færi nú kosningar fram í júnf 1908, áður en tillögur sambandsnefndarinnar eru þjóðinni kunnar, gæti hún að eins í eitt skipti — við kosningar til auka- þings 1910 — látið uppi sinn vilja um það mál við kosningar ogþá ekki fyrri en eptir það, er þing 1909, kosið á öðrum grundvelli, væri búið að fjalla um málið. Auk þessa gæti og af þessu leitt, að bæði sambandsmálið og endurskoðun stjórnarskrárinnar kæmist á fullkomna ringulreið, sem yrði til að spilla öllum árangri þess fyrir aukið frelsi lands og þjóðar. Það er hætt við, að þingið 1909 þættist standa þar höllum fæti gagnvart kjósendum landsins, umboðslaust af þeirra hálfu í máli, jafn stórvægilegu fyrir alda og óborna. — Ástæður þær, er nú eru taldar, virðast nægar til þess, að réttlæta þá skoðun meiri hlutans, að óráðlegt sé og óheppilegt að samþykkja á þ e s s u þingi breyting á stjórnarskránni. Það verður heldur eigi álitið, að nokk- ur brýn nauðsyn sé til þess einmitt á þ e s s u þingi, að breyta stjórnarskránni, þegar telja má nær því alveg víst, að hana verði hvort sem er að endurskoða eptir i1/* ár, og hvað sérstaklega snertir það ákvæðið, orðin »í ríkisráðinu«, er flm. frumvarpsins munu leggja hvað mesta áherzlu á, þá virðist frumv. um breyting á því atriði einnig geta beðið þingsins 1909. — Brottnám þeirra orða úr stjórn- arskránni, svo sem farið er fram á í frv., nægir ekki, eitt út af fyrir sig, [til þess að tryggja, frekar en nú er, yfirráð ís- lendinga með konungi einum, yfir lands- ins málum, en um það efni verða vænt- anlega tvfmælalaus ákvæði tekin upp í frv. það, er þingið 1909 fær til meðferð- ar. — Einnig er það hugsanlegt, að eitt- hvert annað fyrirkomulag á hinni æztu stjórn (t. d. landstjóri) verði lögleitt þá, svo að öll sú deila, er verið hefur um þetta atriði, falli burt af sjálfu sér. — Sumkvæmt þessu vill meiri hluti nefnd- arinnar því leggja það til, að hið fyrir- liggjandi frumvarp verði eigi frekar með- höndlað af þinginu að þessu sinni, og mun meiri hluti nefndarinnar bera upp tillögu þar að lútandi við frh. 1. umr. Neðri deild alþingis, 29. ágúst 1907. Guðl. Guðmundsson, Hannes Þorsteinsson, form. og frms, G. Björnsson, Jón Jónsson, Pótur Jónsson. Fallin fpumvöpp. Kosningalagafrumvarp stjórnarinnar (ný kjördæmaskipting og hlutfallskosn- ing) var f e 11 d i neöri deild við 3. umr. 31. f. m. með 12 atkv. gegn 11 (tveir greiddu ekki atkvæði), en úður við sömu umræðu var felld með jöfnum atkvæð- um (12 : 12) svo látandi rökstudd dag- skrá (frá Ól. Ólafssyni o. fl.): »Með tilliti til þess, að frumvarp til laga um breytingar og viðauka við lög um kosningar til alþingis frá 3. okt. 1903 breytir gagngert núverandi fyrirkomu- lagi við kosningar, en þjóðin á hinn bóginn hefur sýnt á siðustu þingmála- fundum, að hún hefur enn ekki áttað sig á málinu, og væntanlegt afnám kon- ungkjörinna þingmanna mundi innan skamms krefja nýrrar breytingar á kjör- dæmaskipun landsins, þótt frumvarpið yrði að lögum — og með trausti til þess, að stjórnin geri ráðstafanir til að málið verði sem bezt kunnugt og til umræðu meðal þjóðarinnar til næsta þings, — tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá« Með því að breytingartillögur meiri hl. nefndarinnar um skipting landsins í einmenningskjördæmi, voru áður felldar við 2. umr. málsins (sbr. síðasta blað), þá verður kjördæmaskipting sú, sem nú er, óhögguð. Hefði málið komizt upp úr neðri deild, sem líkur voru fyrir um stund, var lítill eða enginn vafi á því, að efri deild hefði fnllizt á það, en ýms- um neðri deildar mönnum þótti viður- hlutamikið að samþykkja jafn stórfellt nýmæli gegn vilja mikils meiri hluta þjóðarinnar, eins og hann hafði komið i ljós á þingmálafundunum flestum. En þess var getið, að svo kynni að fara innan skamms, að þjóðin óskaði eptir þessari breytingu, og þá væri sjálfsagt að lögleiða hana. En við fall frum- varpsins hyggja menn, að kosningabjarg- hringur nokkurra þingmanna hafi bilað allóþægilega, og virðast sumir naumast vera með hýrri bá síðan. í Nd. hefur og verið fellt frv. um lög- gilding verzlunarstaðar við eystri enda Viðeyjar móts við Gufunes og frv. til laga um breytingar á túngirðingalögun- um 19. des. 1903. í Ed. hefur fallið frv. til laga um dán- arskýrslur. BankamáliO. (hlutafláraukning íslands banka) var til 3. umræðu i Nd. 2. þ. m. Var, eins og fyr ekki nærri þvi komandi, að nokk- ur skilyrði yrðu sett bankanum í notum þessara auknu hlunninda og br.till. um 15°/o gjald til landsjóðs frá bankanum af ársarði hans, eptir að hluthafarnir hefðu fengið hinar lögmæltu 4o/o, var felld með 15 atkv. gegn 7. Þessir 7, sem atkv. greiddu með gjaldinu voru Eggert Páls- son, Hannes Þorsteinsson, Lárus H. Bjarnason, Ólafur Thorlacius, Skúli Thor- oddsen, Stefán Stefánsson (Eyf.) og Tr. Gunnarsson. Frumv. fór þvi skilyrðis- laust út úr deildinni og verður vitanlega samþykkt óbreytt i Ed., svo að hluta- bankamennirnir mega vel við una þau úrslit. Minni hluta þingflokkurinn gerir ekki endasleppt ástfóstur sitt við íslands- banka, og þá er þeir fá mestallan meiri hlutann í lið með sér, að minnsta kosti alla Lögréttumenn —■ 1, þá er engin furða, þótt þessari dönsku bankastofnun sé vel borgið. Þlngsályktun. Guðl. Guðm. og Jón Jónsson flytja þingsályktnn þess efnis, að neðri deild skori á stjórnina að gera ráðstafanir til þess, að íslendingar, er þess kynnu að óska, geti átt kost á að fá verklega kennslu um 4—6 mánuði á ári í sjó- mennsku á varðskipinu. Langa rollu um óhagsýniog óspilunarsemi stjórn- arinnar las dr. Valtýr Guðmundsson upp við 2. umr. fjárlaganna í Ed. í fyrra dag, og á hún eflaust að birtast á prenti bráðlega, því að ræðumaður hafði »lexi- una« hreinskrifaða fyrir sér, svo að honum skyldi ekki fipast, enda veitti sannarlega ekki af því, því að tölur voru þar miklar og ægilegar, er vera áttu rothögg á fjármálapólitik stjórnarinnar, og sýna það og sanna, að hún væri að fara með landið á höfuðið, það væri þegar orðið eða yrði bráðlega »fallit«, með fleiri miður góðgjarnlegum og mið- ur drengilegum ummælum i garð stjórn- arinnar, er ráðherrann tók að vonum óstinnt upp og hitnaði óvenjulega mikið í honum, er hann svaraði dr. V., en fæstum mun samt hafa þótt ráðherra þungyrtur um slcör fram, því að þótt sitthvað megi að stjórninni finna, þá getur enginn samvizkusamur maður bor- ið henni eða ráðherranum á brýn, að hann vilji stofna landinu i bersýnilegan voða eða tefla því fjárhagslega undir yfirráð Dana, því að slíkt mætti land- ráð kalla, og mundu fáir verða til að bera slíkar sakir á Hannes Hafstein. Ofsvæsnar árásir, sem ekki eru á rökum byggðar, spilla að eins málstað sækjanda og gera hann tortryggilegan og illa þokk- aðan bjá öllum sanngjörnum og dreng- lunduðum mönnum, sem ávallt neyta virðulegra vopna gegn mótstöðu- mönnum sinum, enda er það ekki að eins drengilegra, heldur viturlegra og vænlegra til sigurs. En dr. V. G. virðist eiga erfitt með að skilja það.

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.