Þjóðólfur - 22.11.1907, Page 1

Þjóðólfur - 22.11.1907, Page 1
59. árg. Reykjavík, föstudaginn 22. nóvember 19 07. 51. jónas Ijallgrimsson. Hundrað ára afmæli. 1807-1007. Minnisvarði hans afhjúpaður. Það var íyrir réttum io árum (19. nóv. 1897), er Vilhjálmur stúdent Jónsson (•}* 1902) reit grein í Þjóðólf um Jónas Hallgrlmsson og skoraði 1 lok greinar- innar á Stúdentafélagið hér og í Höfn, »að gangast fyrir írjálsum samskotum um land allt á næstu árum 1 þeim tilgangi, að skáldinu Jónasi Hallgrímssyni verði reist eitthvert alþjóðlegt minnis- merki, er yrði afhjúpað á vænt- anlegri 100 ára minningarháttð skáldsins 16. nóv. 1907«. (Þjóð- ólfur XLIX. árg. nr. 54). Þetta hefur orðið að áhrínsorðum. Minningarmerkið er reist. Eptir að Vilhjálmur heit. reit þessa grein ■slna, bar hann mál þetta upp í Stúdenta- íélaginu hér, og var því vel tekið, og kos- in nefnd til að standa fyrir samskotum þessum og hafa forgöngu málsins. Voru í henni auk Vilhjálms heit., er var for- maður nefndarinnar: Bjarni Jónsson frá Vogi, Guðm. Björnsson læknir, Halldór Jónsson bankagjaldkeri og Jón Ólafsson ritstj. Eptir lát Vilhjálms heit. (8. febr. 1902) tók Bjarni Jónsson við formennsku nefndarinnar og vann síðan manna mest að framkvæmdum hennar. Eptir áskorun Stúdentafélagsins hér, kaus Stúdentafé- lagið í Höfn einnig framkvæmdarnefnd, er átti að vera í samvinnu við Reykja- víkurnefndina. En þessi Hafnarnefnd mun harla lítið hafa aðhafzt. Fremur tregt gekk samskotasöfnunin, og varð hluttaka almennings miklu minni en vænta mátti. Langmest fé (um 3000 kr.) safnaðist í Reykjavlk, að sumu leyti með beinum samskotum, og að sumu leyti með ýmsum skemmtunum, er haldnar voru og ágóðinn látinn renna f samskota- sjóðinn. I sumum sýslum landsins varð hluttakan sama sem engin, og sumstaðar mjög lítil. Það var því fyrirsjáanlegt, að nægilegt fé mundi ekki hafast saman á þennan hátt svo fljótt, að skáldinu yrði reistur sómasamlegur minnisvarði á aldar- afmæli hans. Þá var það, að þingið 1905 hljóp undir bagga og veitti 2000 kr. úr landsjóði til viðbótar við samskotin efþyrfti. Einari Jónssyni myndasmið frá Galta- felli var falið að gera líkneski Jónasar í meira en fullri lfkamsstærð, og var það síð- an steypt í bronze. Það er þetta líkneski, sem afhjúpað var hér á laugardaginn var (16. nóv.) á 100 ára afmælisdegi Jónasar. Verður ekki annað sagt, en að það hafi allvel tekizt, og sýni eflaust riokkurnveg- inn sanna mynd skáldsins, en það vand- hæfi var á fyrir myndasmiðnum, að ekki var annað að tara eptir, en mynd, tekin af Jónasi dauðum, mynd, sem þó kvað ekki vera réttgóð. En til er lýsing af Jónasi, eptir menn, er þekktu hann vel, og hana hefur myndasmiðurinn getað haft til stuðnings, er hann bjó til stand- myndina. Það er ánægjulegt, að fyrsta standmynd úr eiri, sem hér er reist af íslenzkum manni fyrir íslenzkt fé (Thor- valdsensmyndin er dönsk gjöf), skuli vera gerð af íslenzkum listamanni, er nú hefur fengið annað mikilsháttar verkefni að leysa af hendi — Ingólfsmyndina —, er sagt er að verða muni snilldarverk, að dómi þeirra manna, er hana hafa séð eða uppkast af henni. Þá er safnahúsið á Arnarhóli er full- gert, á Jónasar myndin að koma þar öðru meginn við innganginn (hinu meginn þá líklega Jón Sigurðsson?) Én nú stend- ur Jónas á múruðum stalli á túni Guð- mundar landlæknis Björnssonar að aust- anverðu við lækinn. Og þar var hann afhjúpaður með hátíðlegri viðhöfn á laug- ardaginn var (16. nóv.). Sú athöfn hófst kl. 2 síðdegis með því að Stúdentafélagið gekk í skrúðgöngu frá Thomsensskála á Lækjartorgi eptir Lækjar- götu Og yfir lækinn upp á tún landlæknis. Var íslenzki fáninn borinn í fararbroddi fyrir stúdentafylkingunni. Þá gengu og skólapiltar með marga fána í skrúðgöngu niður skólabrúna og eptir Lækjargötu inn á hátíðasviðið. Síðast kom fylking Ung- mennafélagsins, einnig fánum prýdd, og skipuðu allar þessar fylkingar sér á tvo vegu kringum líkneskið. Streymdi mikill mannfjöldi þar að hvaðanæfa, svo að há- tíðasvæðið, Lækjargata öll og næstu göt- ur var troðfullt af fólki, svo að sjaldan hefur meira verið við önnur hátíðabrigði hér í bæ, enda vildi svo heppilega til, að veður var stillt og gott. Því næst var fyrst sungið eptirfarandi kvæði eptir Jón Ólafsson með nýju lagi eptir Arna Thorsteinsson: Þér, Jónas Hallgrfmsson, ísland var allt, þess afl og þess fegurð lék á þínum strengjum Þótt hamingjustigirnir hallir, yrði þér jafnan og auðlánið valt, hafa ávöxt borið hjá frónskum drengjum þeir hollu hreimarnir snjallir. Skáldjöfur lands vors, vér elskum þig allir! Þýður sem vorblær, sem háfjallið hár, svo hreinn sem faðir-vor barns á tungu, sem stálið er andinn þinn sterki. Lifi’ hann hjá þjóðinni aldur og ár og eldmóð hann tendri í hjörtunum ungu; það verður þess vísasta merki, íslenzk sé Jþjóðin í orði’ og verki. Heill sért þú, loks til vor heimkominn! þótt hvíli bein þfn í öðru landi, þú áttir þó hér að eins heima. Ættjörðin lítur hér ástmög sinn, um aldur hjá oss nú mynd þín standi; þér aldrei skal ísland gleyma. Svffi þinn andi’ yfir öllu hér heima ! Þá sté fram Bjarni Jónsson frá Vogi og hóf mál sitt með stuttri skýrslu um 10 ára undirbúning þessa minningarmarks og bauð formanni Stúdentafélagsins (Sig. Eggerz) að afhjúpa líkneskið, og gerði hann það með nokkrum orðum, en for- maður Ungmennafélagsins (Jakob Ó. Lár- usson) lagði lárviðarsveig um höfuð lík- neskinu. Hélt Bjarni svo áfram ræðu sínni og mæltist vel að vanda. Að því loknu var sungið eptirfarandi kvæði eptir Þorstein Erlingsson með nýju lagi eptir Sigfús Einarsson : Hér fékk okkar glæstasta gígja sinn hljóm og gullið í strengina sína; og sæll ertu Jónas, því sólskin og blóm þú söngst inn í dalina þína, og þjóðin þín fátæka fegin sig býr og frægir með gimsteinum þínum, og málið þitt góða í faðminn þinn flýr með flekkina’ á skrúðanum síuum. Og heiðraðu, móðurjörð, hörpuna þá, því hann varð oss kærastur bróðir, sem söng við oss börnin og benti’ okkur á, að blessa og elska þig, móðir, sem ástvana sjálfur og einmana dó 6g andaður fekk ekki leiði, sem söng þegar geislarnir sendu’ honum fró og svolítill blettur í heiði. En sárt var að kenna þá svipinn hans fyrst, er sólin var slökkt undir bránum, og minnast þá barnsins, hve brjóstið var þyrst, og bjóða' honum armana dánum. En látum sem fæst yfir högunum hans og hinna, sem frægðir oss vinna, svo móðirin gangi’ ekki döpur í dans í dulunum barnanna sinna. Hann Jónas sá morguninn brosa við brún; en bágt á hér gróðurinn veiki, því lágur er geislinn, sem teygist í tún og tröllskuggar smámenna’ á reiki; og þyki þér hægfara sól yfir sveit, þá seztu’ ekki niður að kvíða, en minnstu þá dagsins, sem meistarinn leit og myndin hans ætlar að bíða. Og gakktu’ honum aldrei f gáleysi hjá: hann gleymdt’ ekki landi né tungu, og æfinni sleit hann við ómana þá, sem yfir þig vorhimin sungu. Hér bíður hann dagsins sem ljósvættur lands og lítur til blómanna sinna : þess fegursta’ í ættjarðarhlíðunum hans og hjörtunum barnanna þinna. Loks hrópaði formaður Stúdentafélags- ins: »Lifi minning Jónasar Hallgrlms- sonar«, og var tekið undir það með|fer- földu fagnaðarópt. Var þá iokið sjálfri afhjúpunarathöfn- inni, og raufst mannþröngin. En Stúdenta- félagið söng að skilnaði nokkur þjóðlög við Thomsensskála. Um miðaptan hélt Stúdentafélagið mikla blysför, er þótti takast nijög vel. Var gengið sunnan frá kirkjugarði upp að líkneskinu og þaðan út á tjörn. Kl. 8 var stofnað til samsætis, er Stúd- entafélagið gekkst fyrir á hótel Reykja- vfk, og sátu það á 2. hundrað manns, karlar og konur. Var þar gleðskapar allmikill: ræðuhöjd, upplestur og söngur. Voru ræðurnar svo margar, að naumast varð tölu á komið, og voru sumar dá- góðar, sumar lélegar, sumar bull. Þar var t. d. talað fyrir Einari myndasmið* Jónasarnefndinni, tónskáldunum (Árna Th. og Sigf. E.), samvinnu skáldanna og kvenn- fólksins o. m. fl. Þar var og minnzt Vilhjálms heit. Jónssonar og Páls Mel- steds, sem boðið var sem heiðursgesti í samsæti þetta, en treysti sér ekki að koma. En hann er hinn eini núlifandi Islend- ingur, er haft hefur veruleg kynni af Jón- asi og þekkt hann vel. Meðan setið var að snæðingi, var sungið kvæði það eptir Þorstein Gíslason, sem prentað er í öðru tölublaði nú í dag, en eptir máltíð las Jens Waage upp fyrsta kaflann af minningarljóðum Jónasar Guðlaugssonar, sem vér birtum einnig, og frk. Guð- rún Indriðadóttir síðasta hluta þeirra. Frú Stefanía Guðmundsdóttir söng nýj- ar gamanvísur (eptir Þorstein Gísla- son?) og þótti góð skemmtun. Sama kveldið hélt Ungmennafélagið aðra sam- komu í Bárubúð, og iðnaðarmenn hina þriðju í Iðnaðarmannahúsinu, og voru margar ræður haldnar á þessum samkom- um, kvæði sungin og mannfagnaður hinn bezti. Á Akureyri var og haldið samsæti þetta kveld til minningar um Jónas. Og Guðlaugur bæjarfógeti sendi símskeyti frá ættstöðvum Jónasar (Eyjafirði) til Stúdenta- félagssamkomunnar á hótel Reykjavík með samfagnaðaróskum í minningu þessa aldar- afmælis, og var honum þegar sent þakkar- skeyti af formanni Stúdentafélagsins. Á þessum Jónasar afmælisdegi blöktu fánar alstaðar á stöng hér í bænum, þar á meðal margir íslenzkir. En það óþokka- bragð hafði verið gert nóttina áður, að skera sundur snæri á nokkrum stöngum, er Islenzki fáninn hefur verið dreginn á. Þeim strákskap er þannig háttað, að hann verður ekki eignaður siðuðu fólki, og al- gerlega rangt, að bendla hann við sam- tök nokkurs einstaks stjórnmálaflokks. Að minnsta kosti mun hið þjóðfræga »Fram« nú svo vel síað, að oddborgarar þeir og örfáir aðrir, sem þar sækja fundi, séu ekki að bollaleggja slíkar herferðir, eins og »Ingólfur« virðist gefa 1 skyn. Svo lágt er félagsnefna þessi naumast fallin enn. Hinn 29. f. m. var fyrsta þing verkmannasambandsins sett í Báru- húsinu og var því slitið 5; þ. m. Samband þetta er stofnað af ýms- um verkmanna- og iðnaðarsveinafé- lögum hér í bænum, og er ætlazt til þess, að það síðar meir nái yfir alt landið. Flvatamenn að stofnun sambandsins voru formenn nokkurra félaga hér í bæ (Dagsbrún, Báran og Prentarafélagið), og var fyrsti undirbúningsfundur, þar sem rætt var um mál þetta, haldinn Iý.marzþ. á. og voru þar mættir 25 menn, er allir voru stjórnendur ýmsra félaga hér í bæ; þar var kosin nefnd ti! að semja lög o. s. frv., og síðan hefur málið vérið í undirbúningi hjá fé- lögunum, og loks komst það svo langt, að sambandið var stofnað og fulltrúar mættu á hinu fyrsta þingi verkmannasambands íslands. Eins og eðlilegt er, þá var mikið af starfinu á þessu þingi falið í laga- smíði fyrir sambandið, en þó voru mörg fleiri mál afgreidd þar. í 2. gr. laganna er stefnuskrá Verk- mannasambandsins, og sýnir hún Ijósast stefnu þess. Hún hljóðar svo: 1

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.