Þjóðólfur - 22.11.1907, Síða 2
202
ÞJÓÐÖLFUR.
1. Að vinnan sé móðir allrar vel-
megunar, og að arðurinn af vinnunni
gangi til þeirra, er taka þátt í henni.
2. Að allir menn, karlar og kon-
ur, bæði giptar og ógiptar, sem eru
2i árs, hafi óbundinn kosningarrétt.
3. Að kvennmenn hafi jafnrétti á
við karlmenn í stjórnmálum, atvinnu-
málum og menntamálum.
4. Að ríki og kirkja sé aðskilið,
enda sé og hverjum frjálst að hafa
þá trú, er honum sýnist og sann-
færing hans býður.
5. Að uppfræðsla og menntun sé
sameiginleg fyrir allar stéttir fram að
vissu aldurstakmarki, og kostuð af
almannafé.
6. Að gjafsóknarréttur sé öllum
frjáls.
7. Að öll gjöld til þess almenna
hvíli að öllu leyti á fasteignum, arði
af atvinnu og peningaforða einstakra
manna.
8. Að erfðagjald til lándsjóðs fari
hækkandi, og hækki því meir, sem
arfurinn er stærri.
9. Að arðvænleg fyrirtæki, er miða
til almenningsheilla, svo sem sam-
göngur á sjó og landi, námugröptur
o. s. frv., séu rekin með fé hins al-
menna og undir umsjón þess.
10. Að öryrkjastyrkur sé veittur
öllum, er ekki geta séð fyrir sér
sjálfir, og án þess þeir missi nokk-
urs í af réttindum sínum.
11. Að séð verði um, að þeir, er
þess óska, geti fengið land til rækt-
unar með sem beztum kjörum, og
ódýr lán til að rækta með landið.
12. Að aðflutningur og tilbúning-
ur áfengra drykkja sé bannaður.
13. Að sjúkrasjóðir verði stofnaðir
og styrktir af almannafé.
14. Að engir aðrir en búsettir
menn í landinu eigi fasteignir, fossa,
ítök, námur eða reki aðra atvinnu í
því eða landhelgi þess.
15. Að fullt sjálfstæði íslands sé
vlðurkennt".
En auk þeirra mála, er hér eru
talin, þá hefur sambandið mörg fleiri
mál til meðferðar (5. gr. laganna),
og eru þau aðallega þessi:
1. Samtök vinnukaupenda gegn
verkamönnum til að þröngva kosti
þeirra.
2. Atvinnuleysi innan sambandsins.
3. Kaupfélagsskapur eða samtök
til vörukaupa.
4. Fræðsla og menntun barna og
unglinga verkamanna.
5. Sjóðstofnanir til þarflegra fyrir-
tækja og fyrir félögin.
6. Nægilegar húslóðir handa verka-
mönnum í kaupstöðum.
7. Kosningar í bæjarstjórnir.
8. Kosningar til alþingis.
9. Útgáfa blaða eða blaðs, er ræði
málefni og hugsjónir félagsmanna.
Eins og sjá má, eru hugsjónir
sambandsins talsvert miklar, og eigi
að búast við, að þær komist allar til
framkvæmda þegar í stað.
Þau mál, er þingið nú aðallega
hafði með höndum, voru kaupfélags-
mál, bæjarstjórnarkosningar og blaða-
málið. Öllum þessum málum var
vísað til Sambandsráðsins til fram-
kvæmda og úrslita. Kaupfélagsmálið
er komið svo langt á veg, að öll
astæða er til að álíta, að það kom-
ist í framkvæmd, áður en langt líður
og er enginn efi á því, að það verður
mikill hagnaður að því fyrir marga.
Slíkur félagsskapur er einkar þarfur,
einkum eins og nú stendur á. Lög
fyrir væntanlegt félag eru fullsamin
— voru útbúin á þinginu — og er
meginregla þeirra: engin lán, engar
skuldir, hvorki innlendar eða útlendar.
annars er fyrirkomulag þess að nokkru
svipað t. d. Verzlunarfjelagi Stein-
grímstjarðar og fél. Ingólfur á Stokks-
eyri.
Um bæjarstjórnarkosninger hér í
Reykjavík er það að segja, að Sam-
bandsráðinu var falið, í samvinnu við
stjórnir félaganna f sambandinu, að
semja lista fyrir það.
Blaðamálið er máske stærsta og
þýðingarmesta málið út á við. Það
var að öllu falið Sambandsráðinu, og
er vonandi, að því takist að hrinda
því í framkvæmd, því undir því er
þróun og velgengni þess mikið komin.
Annars er verkefni Sambandsráðs-
ins allmikið, þannig á það t. d. að
leitast við að koma í veg fyrir verk-
föll og koma á sættum, ef unnt er,
ef verkfall verður o. fl.
í sambandsráðinu eru 7 menn, og
er herra Þorvarður Þorvarðsson prent-
ari formaður þess. ■
P.
SJónleikar.
Leikfélag Reykjavíkur hóf sjónleika sína
þennan vetur á sunnudaginn var. Þá lék
það gamanleik nokkurn: >Föðursystir
Charleys« eptir Brandon Thomas,
enskan leikritahöfund. Hefur leikur þessi
áður verið leikinn hér fyrir nokkrum ár-
um. Hann er efnislítill fremur, en ekki
óskemmtilegur, og hlær fólk dátt að hon-
um. I þetta skipti var hann meðallagi
vel leikinn. Aðalgallinn, að flestir leik-
endurnir töluðu svo óskýrt og loðmullu-
lega, að opt heyrðust ekki nema hálfar
setningarnar og stundum alls ekki. Þar
lék meðal annars svo að segja spánnýr
leikandi, frú Efemía Waage, en hlutverk
hennar var lítið og ómerkilegt, og verður
þvl ekkert dæmt um leiklist hennar ept-
ir þvf.
Mjög bar á því í þetta sinn, eins og
og reyndar optar, að húsið var offyllt á-
horfendum, allt of margir aðgöngumiðar
seldir, og troðfullt af standandi fólki með-
fram veggjunum. Veldur það miklum
óþægindum, þeim er sæti hafa, og gerir
loptið í húsinu nær óþolandi, auk þess
sem þessi ofþrengsli gætu orðið stórhættu-
leg, ef bruna bæri skyndilega að hönd-
um. Leikfélagið tapar heldur engu við
það, þótt vísa verði fólki frá vegna hús-
þrengsla, vandinn ekki annar en sá, að
að láta það fólk, sem frá verður að hverfa,
hafa forgöngurétt næsta skipti. Það er
nokkuð öðru máli að gegna um skemmt-
un, sem að eins er haldin einu sinni og
ekki endurtekin. Þá er eðlilegt, að menn
gæti síður hófs í sölunni.
Mannalát.
Hinn 15. þ. m. andaðist hér 1 bænum
ekkjufrú Maren Ragnheiður Frið-
rika Lárusdóttir, tæplega 80 ára að
aldri. Hún var fædd í Hofsós 11. des-
ember 1827, og voru foreldrar hennar
Lárus Thorarensen sýslumaður í Skaga-
íjarðarsýslu (^-1864) Stefánsson amtmanns
Þórarinssonar og kona hans Elín Jakobs-
dóttir Havsteen systir J. P. Havsteens
amtmanns, og var hún einkabarn þeirra
hjóna, giptist ung að áldri Jóhannesi
Guðmundssyni síðar sýslumanni í Stranda-
sýslu og Mýrasýslu. Hann varð úti skammt
frá heimili slnu Hjarðarholti í Stafholts-
tungum 11. marz 1869, að eins hálf-
flmmtugur að aldri. Nokkrum árum síð-
ar flutti hún til Reykjavíkur. Af börnum
þeirra hjóna lifa 4: Jóhannes sýslumaður
og bæjarfógeti á Seyðisfirði, Ellert véla-
stjóri í Ólafsdal, Sigriður kona séra Kjart-
ans Helgasonar í Hruna og Katrín
ógipt, en 2 dóu uppkomin: séra Lárus
aðstoðarprestur á Sauðanesi (-j- 1888) og
og Anna (j- 1903) er átti dr. Valtý Guð-
mundsson í Kaupmannahöfn. Ein dóttir
þeirra, Elín að nafni, dó 6 ára gömu).—
Frú Maren heit. var mesta sæmdarkona
og mannkosta, trygg og trúlynd, ráðdeild-
arsöm og umhyggjusöm húsmóðir, og
framúrskarandi ástrik móðir börnum
sfnum.
Hinn 18. þ. m. varð bráðkvaddur hér
í bænum séra Ólafur Ólafsson, fyr
prestur í Saurbæjarþingum, tæpra 56 ára
að aldri. Hann var fæddur í Stafholti
27. nóvember 1851, og voru foreldrar
hans séra Ólafur Pálsson síðar dómkirkju-
prestur í Rvík og síðast prestur að Mel-
stað (j- 1876) og kona hans Guðiún dóttir
Ólafs Stephensen sekretera í Viðey. Séra
Óiafur heit. kom í lærða skólann 1866,
en vék þaðan vegna vanheilsu að afloknum
fyrri hluta burtfararprófs 1871, og tók
ekki stúdentspróf fyr en 1876 með 2.
einkunn, en embættispróf á prestaskólan-
um 1878 með sömu einkunn. Arið eptir
(1879) var hann vígður prestur að Brjáns-
læk, er hann hafði fengið veitingu fyrir
haustinu áður. 1881 fékk hann Garps-
dals prestakall, og frá 1882 þjónaðihann
jafnframt Saurbæjarþingum, er Garpsdals-
sókn var sameinuð við til fulls með lög-
um 1890. Bjó séra Ólafur á Brunná,
Hvoli og Staðarhóli, og var prófastur í
Dalasýslu frá 1892 til 1897. I fyrra haust
flutti hann hingað til bæjarins, en fékk
algerlega lausn frá prestsskap næstl. vor.
Hann var kvæntur ekkju Jóns S. Johnsen's
læknis á Húsavík, Guðrúnu Birgittu Gísla-
dóttur frá Lokinhömrum Oddssonar, syst-
ur Odds málaflutningsmanns í Rvlk, og
eiga þau börn mörg á lífi. Séra Ólafur
var mjög vel látinn af sóknarfólki sínu,
mesta spakmenni og góðmenni, fróð-
leiksmaður allmikill, þar á meðal einkar
vel að sér í ættfræði o. fl.
VepzlunarbékO Bryde
hér í bænum hefur verið stækkuð og
endurbyggð svo mjög í sumar, að hún er
nú eflaust hin langsmekklegasta og falleg-
asta búð hér í bænum, og öllu þar mjög
haganlega fyrir komið, vörunum skipt í
deildir í sérstökum hólfum, en gangur
eptir endilangri búðinni milli allra deild-
anna, og er það einkar hentugt fyrirkomu-
lag. Auk sjálfrar búðarinnar, sem er
óþekkjanleg frá þvf sem áður var, hafa
öll útihús verzlunarinnar verið dubbuð
upp og endurbyggð að meiru eða minna
leyti, máluð og fáguð, svo að Bryde-
eignin beggja vegna Hafnarstrætis má
nú heita veruleg bæjarprýði. Hin nýja
búð var opnuð 19. þ. m,, en áður hafði
fulltrúi verzlunarinnar, hr. N. B. Nielsen,
boðið kaupmönnum, blaðamönnum o. fl.
að skoða hana, og dáðust allir að stakka-
skiptum þeim, er hún hafði tekið, og
hversu smelcklega og haganlega breyt-
ingarnar væru gerðar. Kaupmanuafé-
lagið sendij eiganda verzlunarinnar J. P.
T. Bryde etazráð samdægurs samfagnaðar-
skeyti út af þessu.
Drukknun.
Hinn 15. þ. m. drukknaði í Héraðs-
vatnaós Skapti Sigur ð s son, sonur
Sigurðar hreppstjóra Ólafssonar á Hellu-
landi í Hegranesi, efnismaður hinn mesti
um tvítugt og smiður hinn bezti. Hann
hafði róið á pramma til að ausa mótor-
bát, en missti prammann frá bátnum, en
hvassviðri var á. Ætlaði Skapti þá að
synda í land, en ísjaki færði hann í kaf.
Frá þessu hefur verið skýrt í símskeyti
frá Sauðárkrók.
V atn s veitan
hingað f bæinn, er getið var í síðásta
blaði, var til umræðu á bæjarstjórnar-
stjórnarfundi í gærkveldi, og var samþykkt
að auglýsa tilboð um pípugerð og úvega
vel hæfan mann til að hafa eptirlit með
pípugerðinni og sjá um, að verkið yrði
vel af hendi leyst, og hefði sá maður
jafnframt umsjón á hendi, þegar pípurnar
yrðu settar niður. Öll bæjarstjórnin virt-
ist vera á einu máli um það, að taka
vatnið úr Gvendarbrunnum, fremur en
EUiðaánum, þótt það yrði um 80,000 kr.
dýrara. Tillaga frá Kr. Ó. Þ. um að
fresta málinu, var felld með öllum atkv.
gegn hans einu.
Veflurátta
hefur verið mjög umhleypingasöm þessa
viku, en frost lítið. Símaskrifstofan hér er
farin að birta daglega veðurskeyti fráBlöndu-
ósi (Bl.), Akureyri (Ak.), Grímsstöðum (Gr.)
og Seyðisfirði (Sf.) og birtist hér ágrip af
þeirri skýrslu um hitastig á þessum stöðvum
og í Reykjavík á hverjum degi kl. 7 árd.
Nóv. Rv. Bl. Ak. Gr. Sf.
16. + M + 0,5 + 2,5 -f- 1,0 + 6,1
17. 0,0 *í- 2,4 -r- 0,4 -f- 4,0 + i,3
18. H- °,4 -f- 0.5 0,0 -f- 4,6 -r 0,7
19- + 4,5 + 4,o + 5,° + 1.5 + 7,2
20. -r- 1,5 -r- 1,4 -r* 0,4 -+- 4,o + 2,2
21. -r- 2,8 -r 1,9 -F- i,5 -5- 6,2 -f- >,2
22. 3,9 -v- 0,7 -r- 5,5 Æ 5,o + 0,2
í dag er snjókoma um land allt og
hvassviðri (bylur á Bl. og Gr.).
Skipstrand.
Enskur botnvörpungur, »Premier« að
nafni, nr. 740 frá Grimsby strandaði 9.
þ. m. á Hörgslandsfjöru í Vestur-Skapta-
fellssýslu. Skipshöfnin var 15 manns, en
1 drengur 16 ára drukknaði af bátnum á
leið í land, hinir 14 heilir á húfi, og eru
þeir á leið hingað til bæjarins.
Skipstjórinn heitir George Dixon.
€rlenð símskeyti
til Pjóðólfs frá R. B.
Kaupm.höfn 20.rnóv. kl. b. e. h.
Sambandsnefndin.
Til að taka sæti í millilandanefndinni
í staðinn fyrir Hansen málafærslumann
(Kolding-Hansen) er skipaður landsþings-
maður Hansen frá Gundsölille, jústizráð
að nafnbót.
(N. Hansen (Gundsölille) hefur verið
landsþingsmaður síðan 1882 og er nú 64
ára gamall. Er einn af helztu mönnum
vinstri manna í landsþinginu. Hann er
óðalsbóndi á Sjálandi og hefur haft mörg-
um trúnaðarstörfum að gegna).
Jónasarhátíð.
íslendingafélagið hélt minningarhátíð um
Jónas Hallgrímsson á laugardaginn. H.
Hafstein ráðherra hélt minningarræðu
um Jónas og óskaði, að Islendingar gætu
orðið á einu máli. Valtýr Guðmundsson
mælti fyrir minni ráðherrans.
Hafnarvigsla.
Höfnin við Skagann var vígð 1 gær af
konungi með mikilli viðhöfn. Hafstein
þar við staddur.
21. nóv. kl. 9,60.
Hákon konungnr
farinn til Énglands. Var f heimsókn í dag
á Fredensborg.
Ástandið í Portúgal
al ið fskyggilegt. Lýðveldisflokkurinn efl-
ist afar mikið. Margir menn settir í
varðhald.
1