Þjóðólfur - 27.12.1907, Blaðsíða 2
230
ÞJOÐÖLFUR
€rlenð sínskeyti
til Pjóðólfs frá R. B.
Kaupm.höfn 24. des., kl. 3m e. h.
Brezki konsúllinn.
Hinn 17. þ. m. var Abraham George
Coates viðurkendur brezkur konsúll fyrir
Færeyjar og Island, og á hann að hafa
aðsetur ýmist í Reykjavík eða Þórshöfn
eptir atvikum.
Valurinn
(»Islands Falkc) verður ferðbúinn 8. jan.
Práðlaust samband.
Með Poulsens aðferðínni hefur náðst
þráðlaust talþráðarsamband milli Kaup-
mannahafnar og Berlín. Hefur Poulsen
fundið upp aðferð til að rita á pappír inni-
hald hinna þráðlausu hraðskeyta.
Slys.
Við sprengingu í Palermo (á Sikiley)
hrundi vopnaverksmiðja og veitingahús
og 44 menn biðu bana.
Rán.
Vélafræðingur nokkur, Nielsen að nafni,
rændi 2,300 kr. frá jarðeigendabanka
(Grnndejerbank) Kaupmannahafnar, strauk
því næst, en var handsamaður af leyni-
lögreglu, en um leið skaut Nielsen tveimur
skotum af marghleypu og særði manninn.
Símskeyti,
er koma átti frá Ritzau Bureau til Þjóð-
ólfs í gærkveldi, ókomið, vegna þess, að
sfminn milli Lervick á Hjaltlandi og Aber-
deen á Skotlandi er bilaður, en landsím-
inn hér er í góðu lagi.
Húsbruni.
Aðfaranóttina 22. þ. m. brann hér í
bænum lítið hús á Laugavegi nr. 17, eign
Baldvins Einarssonar aktygjasmiðs. Hafði
hann þar vinnustofu sína. Eldsins varð
vart um kl. 1 um nóttina. P'ólki, sem svaf
uppi á lopti,var bjargað í síðustu forvöðum,
og var þá kominn mikill eldur 1 húsið.
Brann það til kaldra kola á skömmum
tíma. Upptök eldsins eru gersamlega 6-
kunn. Er bæjarfógetinn nú að halda próf
um það.
,,Vesta“
fór héðan í gær til Austfjarða, áleiðis til
útlanda. Með henni fór aptur heim til sfn
séra Björn Þorláksson á Dvergasteini. Til
útlanda fór R. Braun kaupmaður o. fl. far-
þegar.
Nýársnóttin
eptir Indriða Einarsson er nú nýprentuð,
allmjög aukin og breytt, svo að heita má,
að hún birtist nú í algerlega nýju gerfi.
Var hún leikin hér í Iðnó í gærkveldi.
Verður síðar getið nánar.
Mannalát.
Hínn 21. þ. m. varð bráðkvaddur í Hafn-
arfirði Böðvar Böðvarsson ffyrrum
prófasts á Melstað Þorvaldssonar) bróðir
samfeðra séra Þórarins heit. í Görðum,
hálfsjötugur að aldri (f. 17. nóv. 1842). Hann
var tvíkvæntur, fyr Guðrúnu Guðmunds-
dóttur prófasts á Melstað Vigfússonar, en
síðar Kristínu Ólafsdóttur dómkirkjuprests
og síðar prests á Melstað Pálssonar. Böð-
var heit. bjó fyrst norður í Miðfirði, en
flutti til Hafnarljarðar fyrir mörgum árum
(1882). Hann var vandaður maður og vel
látinn, fjörmaður og gleðimaður. Synir
hans af fyrra hjónabandi eru Guðmundur
kaupmaðurí Hafnarfirði, fyrrum ráðsmaður
holdsveikraspítalans í Laugarnesi, Böðvar
bakari í Hafnarfirði og Eggert trésmiður
í Keflavík. Af síðari konu börnum hans
lifa 9, flest uppkomin.
Á jólanóttina varð bráðkvaddur hér í
bænum (úr heilablóðfalli) Páll Pálsson
Vídalín, fyrrum bóndi í Laxnesi í Mos-
fellssveit, bróðir Jóns heit. Vídalíns kon-
súls, á 48. aldursári (f. 15. júlí 1860).
Hinn 23. þ. m. andaðist eptir 10 vikna
legu í lungnahimnubólgu Friðrik Gísla-
son úrsmiður og bæjarfulltrúi á Seyðis-
firði 33 ára gamall. [Eptir símskeyti frá
Seyðisfirði].
Sjálfsmorð.
Um eða litlu fyrir miðjan þ. m. fyrirfór
sér Hans K. J. Beck bóndi í Litlu-
Breiðuvfk við Reyðarfjörð, bróðurson Hans
gamla Becks á Sómastöðum. Hann drekkti
sér. Hafði verið þunglyndur lengi. Hann var
greindur maður að náttúrufari og vel að
sér. Mun hafa verið um fertugt.
Eptirmæli.
Elín Helgadóttir húsfreyja í Austurey í
Laugardal (sbr. 56. tölublað) andaðist þar
15. f. m., rúmlega sjötug að aldri. Hún var
dóttir Helga bónda Guðmundssonar í Stein-
um undir Eyjafjöllum og fædd ó.júní 1837,
giptist 1858 eptirlifandi manni sínum, Skúla
Þorvarðarsyni, síðast prests á Kirkjubæjar-
klaustri (-J- 1869) Jónssonar. Þeim hjónum
varð 11 barna auðið, og lifa að eins 3
þeirra: Skúli bóndi í Austurey og2dætur:
Anna, gipt kona í Keflavík, og Helga, gipt
kona í Hrunamannahreppi, * allt efnisbörn.
Elín heit. var guðrækin og siðprúð kona,
blíðlynd og glaðlynd og manni sínum ást-
ríkasta eiginkona allan hinn langa samveru-
tíma þeirra. Hún var ástrík móðir barna
sinna og lét sér annt um að innræta hjá
þeim guðsótta og góða siðu. Hún gegndi
húsmóðurstarfi nær 50 ár og leysti þau störf
af hendi með dugnaði og lagi. Hún var
virt og elskuð af hjúum sfnum, hjartagóð
og hjálpfús við alla, sem bágt áttu, og lét það
ásannast í verkinu eptir efnum og ástæðum.
Ávann hún sér því virðing og vinsæld allra,
er henni kyntust utan heimilis og innan.
X.
Brauns verzlun ,Hamborg
Aðalstræti 9.
Dans-glöjar handa konum og körlum.
?vít hálsbinði £ Ijálslín, stórt úrvai.
Regnkápur fyrir konur og karla, stærsta úrval.
D.D.P.A.
Verð á olíu er í dag:
5 oi 10 potta hrúsar 16 aura nr, pott „Sólarskær Stanöarú WMte“,
5 - 10 — — fl — - - „Pennsylyansk Stanðard White",
5 _ io — — 19------- „Pennsylyansk Water Wbite“.
1 eyri ódýrari potturinn í 40 potta brúsum.
clirusarnir Idnaéir sRipfavinum óRaypis!
Menn eru beðnir að gæta þess, að á brúsunum sje
vörumerki vort, bæði á hliðunum og tappanum.
Ef þjer viljið fá góða olíu, þá biðjið um þessi merki
hjá kaupmönnum yðar.
Veð urskýrsluágri p.
Vikuna 14.—20. desember 1907.
Des. Rv. Bl. Ak. Gr. Sf.
21. 2,0 —1_ 8,0 5,5 12,2 0,9
22. + 1,7 + 0,6 0,0 ~h 4,3 0,5
23- + 0,2 ~ 0,8 + 0,6 -h 4,0 0,0
24. + 3.1 -7- 1,2 ~ 0,5 -r 1,4 + 0,4
25- + 5.4 + 2,9 + 2,5 + 2,2 + 7,5
26. + 4,2 + 4,4 + 4,0 + 3,3 + 8,3
26. / + 4,7 + 1,2 + 1,6 0,0 + 6,1
miklu úr að velja — alll sélegt, haldgott og ódýrt.
Hátíða-skófatnaðinn,
jafnt og skófatnað til daglegrar brúkunar, er bezt að kaupa í Aðal-
stræti 10; það er gömul reynsla og þó ætíð ný.
er
Fjóla.
Fólkið segir, að hún sé skemmti-
legasta ljóðabókin.
Fæst á afgreiðslu Þjóðólfs og kostar
2 krónur,
MomlÉið Betel.
Sunnudaga: Kl. 6l/2 e. h. Fyrirlestur.
Midvikuaaga: Kl. 81/.* e. h. Bibliusamtal.
Laugardaga: Kl. n f. h. Bcenasamkoma
og bibliulestur.
Til almennings.
Eins og almenningi mun kunnugt, hefur síðasta alþingi samþykkt
lög um, að af Kína-lífs-elixír þeim, sem eg bý til og alstaðar er viður-
kenndur, skuli greiðast skattur, er samsvarar 2/3 af inntlutningstollinum.
Sökum þessa ósamsvarandi háa skatts, er mér kom öldungis óvart
og vegna mikillar verðhækkunar á öllum efnum elixírsins, sé eg mig
því miður knúðan til að hækka verðið á Kína-lífs-elixír upp í 3 kr. fyrir
flöskuna írá þeim degi, er fyrnefnd lög ganga í gildi, og ræð eg því
öllum neytendum Kína-lífs-elixírsins vegna eiginhagsmuna þeirra, að
birgja sig upp með hann um langan tíma, áður en verðhækknn þessi
gengur í gildi.
Waldemar Petersen.
ííyvej 16. Köbenliavn V.
Miklar
birgðir
af allskonar SKÓFATNADl
og GALOSCHUi\l eru ávallt
í skóverztun minni.
Ovida betri kaug að fá.
M. A. Mathiesen,
Bröttugötu 5.
INTýtt liótel.
llalins Missionshótel
Badsiuestrœde 9. Kjöbenliavn.
Herbergi frá 1 kr. 25 a.
Fæði og húsnæði 3 kr. 50 a. á dag.
Grand Hotel Nilson
Köbenhavn
mælir með herbergjum sínum með
eða án fæðis í veitingahúsinu fyrir
mjög vægt verð.
NB. Istenzkir ferðamenn fá sér-
staka ívilnun.
Samkomuhúsið „Sílóam“.
Sunnudaginn 29. des. kl. 8.
Nýársyuðsþjónustur:
Gamlársdag kl. 6'/» og 10V2 e. h.
Nýársdag kl. 10 f. h. og 8 e. h.
Leiðarvísir til lífsábyrgðar
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.
J. Jónassen, sem einnig gefur þeim, sem
vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar
upplýsingar.
Samkomuhúsið „Silóam“: Almennar samkom-
ur: sd. kl. 6 og föd. kl. 8. Biblíul.: priðjud. kl. 8.
Eigaruli og ábyrgðarmaður: Hannew t^or^teinsson.
Prentsmiðjan Gutenberg.