Þjóðólfur - 08.05.1908, Blaðsíða 1
60. árg.
Frá sambandslaganBfndinni.
Frumvarpið samþykkt,
1 fyrra dag birti Þjóðólfur með sérstök-
um fregnmiða eptirfarandi einkasímskeyti
trá einum nefndarmanninum (L. H. Bjarna-
son sýslum.):
Khöfn 6. maí, kl. 1 e. h.
Lagafrumvarpið er nú samþykkt.
Góður árangur. Verður hirt eptir
8 daga.
Nokkru síðar (kl. 6 e. h.) s. d. kom sim-
skeyti frá sameiginlegum tiðindamanni
Reykjavíkurblaðanna, sent frá Kaupmanna-
höfn kl. 5. Það var svolátandi:
Nefndarfrv. samþgkkt, allt viku-
fresti, niðurstaða Pingvalla.
Þetta virðist hljóta að merkja það, þótt
það sé nokkuð óljóst orðað, að frumvarp-
ið og niðurstaða þess verði gert heyrum
kunnugt að vikufresti, eins og sagt er í
hinu skeytinu, en það umfram í þessu, að
sú niðurstaða sé i samræmi við Þingvalla-
'fundarályktunina 29. júní f. á., eða að
rcinnsta kosti höfuðatriði hennar. En að
svo stöddu eru allar frekari bollaleggingar
um þetta óþarfar, þangað til séð verður
til fulls, hvernig samningarnir eru úr garði
gerðir, því að fyr verður ekki um þetta
dæmt með fullum rétti. Allir Islendingar
bíða þess með óþreyju, að nefndarfrum-
varpið verði gert heyrum kunnugt i heild
sinni, og vænta þess, að vel og giptusam-
lega hafi tekizt í samningum þessum, svo
að íslenzka þjóðin hafi enga ástæðu til að
hrinda því, er um hefur samizt. Samkvæmt
skeytum þessum, sem hér eru nú birt, er
fyllsta ástæða til að gera sér hinar beztu
vonir utn árangurinn og verður nú skammt
að bíða fullrar vissu í því efni.
Erlend tíðindi
eru fá markverð vikuna 18.—25. f. m.,
,er nýjustu blöð ná yfir. Hið helzta er
iráfall Campbell-Bannermans (sbr. sím-
skeyti í næst síðasta blaði). Hann and-
aðist í Lundúnum að morgni 22. f. m.
úr hjartasjúkdómi, eptir langa legu. Hann
fær ágæt eptirmæli 1 enskum blöðum af
öllum flokkum. Er þess sérstaklega getið,
að persónulega óvini hafi hann enga átt,
og hvarvetna verið mikils metinn sakir
■drenglyndis, mannúðar og mannkosta.
1-Iann varð rúmlega sjötugur að aldri.
Þá þótti það og tfðindum sæta a Eng-
landi og víðar, að ínston Churchill
nýi verzlunarmálaráögjafinn f ráðanevti
Asquith’s, féll við aukakosningu í Man-
chester. Hann var þingmaður þar áður,
,en varð að leita kosningar að nýju, er
hann tók við ráðgjafaembætti, því að þau
eru lög þar í landi, að taki einhver þing
maður utan ráðaneytisins við ráðgjafa-
embætti, verður hann að leita endurkosn-
ingar. Er það gert til þess, að stjórnin
geti ekki skipað þingmann t ráðherrasæti,
án þess að kjósendur hans fái að skera
iúr, hvort þeir vilji fela honum þing-
Reykjavík, föstudaginn 8. maí 19 08.
Jfo 22.
mennskuumboð eptir sem áður. Auk
þess verða ensku ráðgjafarnir að vera
þingmenn, til þess að geta setið í ráða-
neytinu. Nú féll Churchill í Manchester,
og verður hann því að komast að einhvets-
staðar annarstaðar, er líklega verður á
þann hátt, að einhver flokksbróðir hans
þokar úr þingsæti fyrir honum, þar sem
telja má víst, að Churchill nái kosningu.
En þessi ósigur hans í Manchester var
eigi að síður tilfinnanlegur. Æsingarnar og
kappið við kosninguna þar keyrði fram
úr hófi, svo að snarpari kosningabardagi
hefur naumast háður verið á Englandi.
Churchill fékk meðal annars tvo ráðgjafa
sér til hjálpar í leiðangrinum, en það
hrökk ekki til. Mótstöðumaður hans,
Joynson Hicks (úr flokki sambandsmanna)
fékk 5,417 atkv., Churchill 4,988, og
þriðja þingmennsefnið (úr flokki jafnaðar-
rnanna) að eins 276 atkv. Svo vel var
smalað, að 90% atkvæðisbærra kjósenda
greiddu atkvæði.
Látinn er Linievitch, herforinginn
rússneski, er tók við yfirstjórn alls rúss-
neska landhersins í japanska stríðinu eptir
Kuropatlcin, og þótti vel veynast. Hann
var sjötugur að aldri.
Eins og getið hefur verið um áður í
símskeyti frá Kaupm.höfn, varð eitt höfuð-
skip »hins sameinaða«, sUnited States«,
fyrir skemmdum miklum við árekstur á
útsiglingu frá New-York. Enskt gufuskip,
»Monterey«, renndi á »United States« og
reií burtu byrðinginn á stjórnborða á 100
feta svæði, svo að féll inn sjór kolblár,
og sá skipstjóri ekki annað vænna, en
snúa sem hraðast að landi, þangað sem
skemmst var, og tókst honum að hleypa
skipinu á grynningar, og björguðust rnenn
allir. En svo rnikill ótti greip íarþegana
við áreksturinn, að nærri lá, að sumir
steyptu sér í sjóinn. Voru 500 farþegar
á »United States«, en færri miklu á »Mon-
terey«, er hlaðið var dýnamiti, og þótti
hrein furða, að sá farmur skyldi ekki
springa í lopt upp við árekturinn, er var
svo harður, að allir farþegar á »Monterey«
slengdust niður á þilfarið. Það skip varð
og ósjófært með 30 feta langri rifu á
kinnungnum.
Um furðulega vísindalega uppfundningu,
er sé í aðsigi, geta nýjustu ensk blöð frá
25. f. m. Frakkneskur verkfræðingur og
vísindamaður, Armengaud að nafni, hefur
allmörg ár fengizt við tilbúning vélar
þeirrar, er hann nefnir »telespektroskop«
eða »telefót«, og kalla mætti á íslenzku
»fjarsjá«. Er það einskonar undraskugg-
sjá, er sýnir það sem gerist í afarmiklum
fjarska. Armengaud segir, að hann hafi
fullkomnað þessa skuggsjá svo, að hann
geti sagt það fyrir, að þess verði ekki
langt að blða, að maður staddur í París
eða Lundúnum geti séð fað sem fram
fer í New-York, eða þvert yfir Atlantshaf.
Þessi fjarsjá Armengauds kvað vera svipuð
vél þeirri, er Korn prófessor notar við sfmrit-
un Ijósmynda. Hver veit nema kynslóð sú,
sem nú er uppi, fái handa á milli töfraskugg-
sjárnar úr sÞúsund og einni nótt«, gangi
með þær eins og menn ganga nú með
úr í vasanum. Hver veit? En vitanlega
er ekki mikið á þessu að byggja enn, og
getur verið eitthvað skylt frásögninni um
skotvopnið nýja, er Englendingur nokkur
á að hafa fundið upp og allan hernað
geri ómögulegan, með því að skotið verði
með því á svo afarlöngu færi, t. d. rnilli
Lundúna og ParísarDorgar, eða lengra.
Jrá sambanðslaganefnð
inni.
Hia isl. bókmenntafélag.
Latigardaginn xr. apríl var haldinn
fundur í Hafnardeild hins ísl. Bókmennta-
félags. 24 félagsmenn voru á fundi.
Fórseti lagði fram endurskoðaðan reikn-
ing deildarinnar. Samkvæmt honum höfðu
tekjur hennar á umliðnu ári verið 5850
kr. 60 a,, en útgjöld 5135 kr. 31 e. I
sjóði við árslok 23519 kr. 86 a. Reikn-
ingurinn var samþ. í einu hljóði.
Forseti skýrði þá frá starfsemi félagsins
á umliðna árinu. Reykjavíkurdeildin hefði
gefið út: Skírni 81. árg., ísl. fornbréfasafn
VIL bd. 4. h. og VIII. bd. 2. h., og
Sýslumannaæfir 3. bd. 3 h. Hafnardeildin
hefði gefið út: Willard Fiske eptir B. Th.
Melsted (Alþýðurit Bókm.fél. 2. bók), síð-
ara heptið af Bygging og líf plantna,
eptir Helga Jónsson, Islendingasögu B.
Th. Melsteds II. bd. 2. h., Lýsing Islands
eptir Þorv. Thoroddsen, I. bd. I. hepti,
og Satn til sögu Islands IV. bd. 1. h. —
I ár mundi Hafnardeildin gefa út: Lýs-
ing Islands, eptir Þvrv. Thoroddsen, I. bd.
2. h., íslendingasögu B. Th. Melsteds II.
bd. 3. h., Safn til sögu íslands IV. bd.
2. h., og Sögu Jóns Olafssonar Indía-
Elitir ad blaðiA var setl,
kom 1111 í «las» Kl. 1 svolát*
andi síinskeyti, sent frá
Kaiiimiannaliöfii Kl. 12:
Bæjarstjóri Reykjavikur
til næstu 6 ára (frá 1. júlí 1908) var
kosinn af bæjarstjórninni í gærkveldi Páll
Einarsson sýslumaður í Hafnarfirði með
10 atkv. Knud Zimsen fékk 3 atkv. Þrír
bæjarfulltrúar voru fjarverandi (Lárus H.
Bjarnason, Magnús Th. Blöndahl og Sighv.
Bjarnason).
fara I. h.
Þá fór fram stjórnarkosning, og hlutu
þessir kosningu: Forseti: próf. Þorv.
Thoroddsen, féhirðir: Gfsli læknir Bryn-
jólfsson, skrifari: Sigfús Bíöndal undir-
bókavörður við konunglega bókasafnið,
og bókavörður: Pétur Bogason stud. med.,
allir endurkosnir. í varastjórn voru end-
urkosnir: varaforseti B. Th. Melsted mag.
art., varaféhirðir Þ. Tulinius stórkaup-
maður og varaskrifari Stefán Stefánsson
cand. jur.; varabókavörður var kosinn
stud. mag. Jónas Einarsson. — Ettdur-
skoðunarmenn voru endurkosnir þeir cand.
mag. Þorkelí Þorkelsson og læknir Sig-
urður Jónsson.
Forseti minntist látinna félaga, Guðna
Guðmundssonar læknis, Jóns Magnússonar
kaupmanns og dr. Salone Ambrosoli’s;
létu félagsrnenn hluttekningu slna í Ijósi
rneð því að standa upp. — Heiðursfélagi
var kjörinn í einu hljóðí prófessor við
háskólann í Lundúntim W. P. Ker. — 40
reglulegir félagar voru teknir inn.
Utan dagskrár vakti exarn. juris. Gísli
Sveinsson máls á heimflutningsmálinu, og
urðit utn það allmiklar ttmræður. Að
þeim loknttnt var fundi slitið.
Ungmennafélagið „Iðunn"
heldur skemmtun í Iðnaðarmannahúsinu
annað kveld (9. þ. m.) og verður margt
þar til skemmtunar: glímttr sýndar og
skratttsýningar; söngflokkttr undir stjórn
Sigfúsar Einarssonar syngur, María Jó-
hannsdóttir skáldkona les þar upp og Har-
aldttr guðfr. Níelsson flytur ræðu.
Glimur
sýndi glímufélagið »Armann« í Iðnó í
gærkveldi, og var sú skemmtun dável sótt,
en ágóðinn á að ganga til fararstyrks
gtímumanna héðan til Lundúnamótsins
mikla. Er í ráði, ef hægt er, að senda
héðan 4 hina fræknustu, en fé skortir enn
til þess og verður því leitað samskota hér
tttn bæinn í því skyni. Akureyringar og
Seyðfirðingar og líkl. ísfirðingar senda og
glímumenn. Munu þeir koma hingað
ttm 8. júní og æfa sig við félaga stna, er
héðan fara, til 28. s. m., er allir leggja af
stað til Englands.
Heiðursgjöf
var D. Thomsen konsúl afhent 16. f. m.
af útgerðarmönnum fiskiskipa í Hull fyrir
hjálpsemi hans og liðsinni við enskar skip-
hafnir, er lent hafa í skipreika hér. Gjöfin
var silfttrskrín vandað með langri áletrun.
Rannsókn á hafnarstæði.
Úr Mýrdal er ritað 15. f. m.:
Hafnleysið hér er rnikill þröskuldiir í
vegi fyrir velferð þessarar sveitar, enda
allrar sýslttnnar, en um það niun ei frekar
þýða að tala, eða svo hefur víst hr. Þorv.
Krabbe til ætlazt, nteð ályktun þeirri, er
hann hefttr gefið út um hafnarstæði hér
í Mýrdal; en á hvað sterkum grundvelli
sú ályktun hans er byggð, skal eg ekki
segja um, en það mun óhætt að fullyrða,
að ítarlega rannsókn gerði hann ekki hér;
fvrst og fremst kom hann ekki í sjálft
kauptúnið, nfl. Vík, þar sem manni þó sýnist