Þjóðólfur - 11.09.1908, Side 2
154
Þ JOÐOLFUR.
vera öllum bezt. Það er sigur fyrir mál-
stað frumvarpsmanna. Fáist þessar breyt-
ingar, sem eg sem miðlunarmaður sting
upp á að séu einungis gerðar, verð eg að
sætta mig við að kyngja frumvarpinu og
reyna lögin með þeirri hugsun, að þá sé
fenginn allgóður samningsgrund-
völlur undir það ástand, sem hver maður
hlýtur að stefna að, svo fljótt sem fært
er, það er fullkomið, óháð sjálf-
s t æ ð i m e ð eða á n sameiginlegs kon-
ungs. Fáist ekki þessar breytingar, fer eg
að missa trúna á, að útskýring nefndar-
mannanna á frumv. sé rétt og sönn, eða
halda að einhver hræðilegur misskilningur
ríki milli hinna ísl. og dönsku nefndar-
manna. Suma grunar það. Breytingatil-
lögur þessar ættu að skera úr, hvort svo
sé; að fá úrlausn á þvf er nauðsynlegt.
Neiti Danir þessum breytingum, finnst
mér fullsannað, að þeir hafi alls ekki
meint það, sem ísl. nefndarmennirnir segja
að sé meiningin í frv., og þá megum vér
þakka guði fyrir, að hann varnaði oss
því, að samþykkja frv. óbreytt og binda
hendur vorar, þá höfum vér grætt á var-
færninni. Þetta ætti að vera hættu-
1 a u s t og um leið a u ð s ó 11 mál, ef allt
er eins og nefndarmenn okkar segja. Við
þessar einar breytingar vilda væri eg
þingmaður 1 sumar, sætta mig m e ð
það fyrir augum, sem áður er
s a g t, þótt margt finni eg fleira, er breyt-
inga þyrfti. En þessi atriði finnast mér
svo þýðingarmikil fyrir nútíð og framtíð
sérstaklega, að án þeirra sé frumvarpið
óhafandi. Vill enginn hugleiða þetta í
ró og hitalaust?
5.
StÉeyks! í Diiíé.
Alberti orðinn uppvís að stórkost-
legum fjársvikum.
J. C. Christensen hætt staddur.
Að kveldi 8. þ. m. barst Blaðskeyta-
bandalaginu svolátandi símskeyti, sent frá
Kaupmannahöfn kl. 6 e. h.:
Alberti (fyrrum íslands ráðgjafi) hefur
geflð sig upp í dag við lögregluna fyrir
fjársvik og fals (»Bedrageri og Falsk«).
Fregn þessi vakti þegar afarmikla eptir-
tekt hér í bænum, er hún birtist f sér-
stökum fregnmiða frá blöðunum Ingólfi,
ísafold og Þjóðólfi. Varð skammt frekari
frétta að bíða, því að morguninn eptir
(í fyrra dag) birtist fregnmiði frá sömu
blöðum með svolátandi símskeyti sent frá
Kaupm.höfn kl. io:
Fjársvik Albertis 9,000,000 — níu mil-
jónir. — Byrjuðu 1894.
Bændnr tapa stórfé.
Fjármálahorfur illar í Danmörku.
»Politiken<( heimtar Christensen frá
völdum.
Þann dag var ekki um annað talað
hér í bænum samhliða kosningunni, en
þetta »fall Albertis«, er varð þyngra og
dýpra, en nokkur dæmi eru til áður á
Norðurlöndum, um jafnmikinn burgeis,
dómsmálaráðgjafa f ráðaneyti konungs full
7 ár með nýfengna stórvirðulega-geheime-
konferensráðsnafnbót, þá er hann loks fór
frá völdum fyrir rúmum mánuði.
Eins og kunnugt er, var Alberti íslands-
ráðgjafi, þangað til stjórnarskrárbreytingin
komst á hér 1904. Og afskipti hans af
því máli eru fullkunn. Hann var mjög
illa þokkaður í Danmörku fyrir afskap-
legt gerræði í embættisfærslu sinni sam-
hliða ískyggilegum fjárglæfrabrellum og
ýmsu misindishátterni. Voru gerðar
snarpar atrennur á ríkisþinginu síðastlið-
inn vetur til að koma honum frá völdum
og fá atferli hans rannsakað, en forsætis-
ráðherrann J. C. Cristensen og allur stjórn-
arflokkurinn hélt hlífiskildi yfir honum og
eyddi öllum ákærum gegn honum. Svo
var honum leyft að segja af sér (23. júlí)
og barið við heilsubresti, en um leið
sæmdur þeirri nafnbót, er veglegust þykir
með Dönum. Hann var og alveg nýlega
kominn inn í stjórn »Mikla norræna frétta-
þráðarfélagsins«. Og þá, allt í einu, er
fjársvikanetið orðið svo margflækt og
fast vafið utan um hann, að undanfæri
er ekkert lengur, og hann sér engin önnur
fangaráð, en að gefa sig á vald lögregl-
unnar og játa sig sekan um fjársvik og
fals, líklega f von um náðun fremur á
þann hátt, þótt ósennilegt sé, að slíkt
geti komið til greina, jafnstórkostleg sem
fjársvikin eru. Þau munu sérstaklega koma
niður á sparisjóði sjálenskra bænda, er
faðir Albertis hafði stofnað og sonurinn
veitt svona laglega forstöðu. Haldið að
»Privatbankinn« muni fá mikinn skell,
hafði lánað Alberti stórfé (um 3 miljónir).
Og yfirleitt hlýtur þetta Alberti-hneyksli
að hafa mjög ill áhrif á fjármálahorfurnar
1 Danmörku og þá um leið hér, með því
að bankarnir báðir eru mjög dönsku fé
háðir. Lánstraust Dana út á við eykst
og naumast við svona stórkostleg fjársvik
hinna allra hæstu valdsmanna í landinu.
Það er mjög eðlileg krafa, að J. C.
Christensen verði að víkja úr völdum,
sakir fylgis hans við Albenti, enda þótt
honum hafi eflaust verið ókunnugt um
háttemi þessa félaga síns. Það kemur
engum til hugar, að Christensen hafi nokk-
uð um það vitað. En það er einmitt ófyr-
irgefanlegt þekkingarleysi af forsætisráð-
herranum, að þekkja ekki betur sitt heima-
fólk en svo, að annað eins stórhneyksli
og þetta geti átt sér stað í stjórn hans, í
sjálfu ráðaneytinu, að þar sitji árum sam-
an annar eins glæframaður og Alberti.
€rleni símskeyti
til Pjóðólfs.
Krisljaníu 3. sept.
Gjelsvik lweður Uppkaslið inn-
limun íslands og Morgenstjerne of-
stœkisfullan hœgrimann með engri
lillrú.
Kaupm.höfn í. sept.
Morgenstjerne játar í »A/tenpos-
ten«, að eptir Uppkastinu verði ís-
land ófullvalda (usuverœn) og sam-
bandið ekki einu sinni real-union.
* ^ *
*
Hinn 7. þ. m. barst ennfremur frá Kaup-
m.höfn símskeyti um grein Gjelsviks í
„Aftenposten" lfks efnis og skeyti það um
sama efni, er birt var í síðasta blaði, þó
ákveðnara um margt. T. d. er þar haft
eptir Gjelsvik, að ísland sé ríki samkvœmt
Gamla sáttmdla, pað sjdist Ijóslega d upp-
sagnardkvœðinu, ef sdttmdlinn er rofinn,
ennfremur, að það sé að níðast d sjdlfstæð-
ishugmyndinni að kalla ísiand sjdlfstœtt j
land í sömu andrdnni og pað er dkveðið,
að pað skuli vera partur úr hinni dönsku
ríkisheild.
Skeyti þessi voru „reiðarslag" fyrir Upp-
kastsmenn rétt fyrir kosningarnar og
reyndu þeir á allan hátt að hnekkja gildi
þeirra, en tókst vitanlega ekki. Einna sár-
ast þótti þeim að heyra, að átrúnaðargoð
þeirra, Bredo Morgenstjerneprófessor, væri
genginn af trúnni á ágæti frumvarpsins, eða
að minnsta kosti orðinn blendinn í henni,
úr því að hann játaði, að ísland væri 6-
fullveðja eptir Uppkastinu. Er svo að sjá,
sem deila um sambandsmálið íslenzka hafi
orðið í „Aftenposten" milli þeirra Gjels-
viks og Morgenstjerne, og hinn síðarnefndi
borið þar lægri hlut.
Erlend tíðindi.
Frá Marokkó.
Þess var getið í símskeyti í næst-sfð-
asta blaði, að Marokkósoldáni hefði ver-
ið steypt úr völdum af bróður sínum.
Soldán sá, sem hér er átt við, er Abdul
Aziz, sem hingað til hefur að nafninu
til verið Marokkósoldán, en í rauninni
hafa völdin síðan í fyrrahaust verið í
höndum Muley Hafids bróður hans,
því að mestur hluti landsins hefur verið
á hans valdi, þar á meðal höfuðborgin
Marrakes, en Abdul Aziz einungis haldizt
við í skjóli Frakka, sem hafa herlið fram
með ströndinni. En fyrir skömmu bjóst
Abdul Aziz í leiðangur, hélt hann með
her manns suður í land og hugðist nú
að vinna höfuðborgina Marrakes úr hönd-
um bróður síns. Var jafnvel haldið, að
Frakkar mundu veita honum lið til þessa.
Ur því varð nú samt ekki, en ýmsir mik-
ilsmegandi höfðingjar innlendir hétu hon-
um liðveizlu sinni og á leið hans gengu
ýmsir ættstofnar honum á hönd. Samt
fóru svo leikar, að Abdul Aziz náði
ekki suður tll Marrakes, þvf að áður
hann kæmist svo langt, beið hann algerð-
an ósigur fyrir bróður sfnum og lið hans
allt rekið á flótta. Ætla menn, að or-
usta þessi hafi algerlega gert enda á sol-
dánstign Abdul Aziz, því að jafnvel norð-
ur í hafnarbæjunum (t. d. í Tanger) var
MuleyHafid nú viðurkendur soldán
landsins. Hann á nú einungis eptir að
fá viðurkenningu stórveldanna og er talið
líklegast, að hann muni einnig fá hana,
þó að Frökkum muni ekki vera það sem
geðfeldast, því að þeir hafa altaf haldið
hlífisskildi fyrir Abdul Aziz.
Norskt strandferðaskip-
rakst á sker í nánd við Skaanevik 23. í.
m. og s ö k k gersamlega á þrem mín-
útum, eptir því, sem »Daily Mail« frá 24.
f. m. skýrir frá. A skipinu voru 85 far-
þegar og af þeim var talið að um 40 hafi
drukknað. Skipið hét »Folgefonden« og
var eign útgerðarfélags í Björgvin.
2—3 þús. hús brunnu
til kaldra kola í Konstantínópel
23. f. m. Var það 1 Stambul, þeim hluta
bæjarins, er Evrópumenn búa ekki í. Eru
þar mörg gömul hús, er fátæklingar haf-
ast við f. Um manntjón var ekki kunn-
ugt, þá er síðast fréttist, en haldið var,
að það muni hafa verið mikið.
Prentaraverkfallið
í Danmörku, sem getið hefur verið í sím-
skeyti, stóð yfir f rétta viku og lauk því
17. f. m. fyrir milligöngu Sigurðar Bergs
innanríkisráðherra, sem tókst að miðla
málum, og koma á sáttum á þá leið, að
báðir aðilar létu undan að nokkru. A
meðan verkfallið var, komu engin blöð
út nema þau, sem stóðu fyrir utan félags-
I skap vinnuveitenda, en það voru svo að
segja einungis blöð jafnaðarmanna. í
Kaupmannahöfn kom þannig ekkert blað
út nema »Social-Demokraten». Svo sem
geta má nærri, varð verkfallið heldur en
ekki vatn á mylnu þeirra blaða, sem
héldu áfram að koma út, þrátt fyrir verk-
fallið. Upplag »Sosial-Demókratens« tvö-
faldaðist þannig meðan á verkfallinu stóð,
komst upp í 100 þús.
Verkfall þetta náði annars einnig til
nokkurra annara iðnaðargreina, en prent-
iðnar, en sættin náði til þeirra allra, og
verkfallinu létti samtímis í þeim öllum.
Þó vildu verkamenn í skósmfðaverksmiðj-
unum ekki hlíta sættinni og taka aptur
til vinnu heldur héldu verkfallinu áfram.
Hótuðu þá vinnuveitendur að gera vinnu-
teppu í öllum þeim iðngreinum, er að
einhverskonar smíðum lúta, ef skósmið-
irnir tækju ekki aptur til vinnu fyrir mán-
aðamótin. Mundi sú vinnuteppa svipta
um 30 þús. manns atvinnu. En sjálf-
sagt hefur ekki komið til þess, þvf að
ekkert símskeyti hefur borizt um það.
Má vera, að annaðhvort hafi skósmiðirn-
ir tekið aptur til vinnunnar eða verk-
mannasambandið vikið þeim úr félags-
skap sínum vegna þess, að þeir vildu ekki
gangast undir sætt þá, sem það hafði
gert einnig fyrir þeirra hönd.
Námuslys
mikið varð 18. f. m. í Lancashire á Eng-
landi. Kviknaði í kolanámu, sem kend er
við Maypole, og brunnu þar inni 72 menn,
en einúngis örfáum mönnum tókst aö forða
sér burt úr námunni í tæka tíð.
jjöfuðstaðurinn gersarn-
lega unninn!
Alþingiskosningar.
1.
í Reykjavík eru kosnir:
dr. Jón Þorkelsson
landsskjalavörður með 579 atkv. og
Magnús Blöndahl
framkvæmdarstjóri með 529 atkv. Guð-
mundur Björnsson fékk 455 atkv. og
Jón Þorláksson fékk 453 atkv.
Á Akureyri er
Sigurður Hjörleifason
ritstjóri kosinn með 147 atkv., Magn-
ús Kristjánsson fékk 137 atkv.
Á Seyðisfirði er
dr. Valtýr Guðmundsson
kosinn með 57 atkv. Séra Björn Þor-
láksson féklc 56 atkv. 7 atkvæða
seðlar séra Björns gerðir ógildir, því
krossinn var ýmist settur framan eða
aptan við hringinn eða nafnið. Einn
seðill dr. Valtýs gerður ógildur. 4
seðlum Valtýs mótmælt af séra Birni.
Hóflausar „agitationer" frumvarps-
manna.
Kosningaúrslitin í höfuðstað lands-
ins munu þykja stórtíðindi um land
allt. Ósigur frumvarpsmanna hér í
höfuðvígi þeirra, er þeir hugðu óvinn-
andi, getur ekki verið átakanlegri, þar
sem báðir kandídatar þeirra eru lagðir
að velli með miklum atkvæðamun, og
annar þeirra sjálfur landlæknirinn,
þessi kjörgripur stjórnarhöfðingjanna.
Kjörfundur ákaflega vel sóttur. 1092
greiddu atkvæði af rúmum 1600 á
kjörskrá. Margir fjarverandi (á fiski-
skipum og í kaupavinnu). Kosninga-
athöfnin stóð yfir frá hádegi til mið-
nættis í 3 kjördeildum. Rúmir 80
kjörseðlar urðu ógildir.
Kosning Seyðfirðinga er því kaup-
túni til lítillar sæmdar, jafnmikill þyt-
ur, sem þar var gerður í upphafi.( Á
Akureyri tókst hins vegar betnr, en
búizt var við.